Helgarpósturinn - 29.10.1982, Qupperneq 17
17
-tpfisiurinn Föstudagur
29. október 1982
Popp 7
inn um annað eyrað og út um hitt.
Þetta eru þó ágætlega samin lög
en útsetningar þeirra miðast um
of við að særa nú engan í eyrun.
Einn af stærri kostum plötunn-
ar tel ég vera saxófónleik Kristins
Svavarssonar, sem gefur tónlist-
inni mannlegan blæ, sem hana
mundi tilfinnanlega skorta á köfl-
um ef saxinn kæini ekki til.
Grunnurinn er svobassaleikur
Jóhanns Ásmundssonar og
trommuleikur Gunnlaugs Briem.
Jóhann er lipur bassaleikari en
hann má þó passa sig á að vera
ekki að negla bassan um of, eins
og t.d. í Sprett úr spori, því það
verður heldur hvimleitt
áheyrnar. Gunnlaugur er ágætur
trommuleikari en þó er stundum
sem það vanti meira svif í leik
hans.
Einnig koma einhverjir gesta-
leikarar við sögu, svo sem áslátt-
arleikarinn Louis Jardin, Shady
Owens og einhverjir fleiri, sem
ég get ekki nefnt hér, þar sem
platan er ekki komin út þegar
þetta er skrifað og ég aðeins haft
kassettu af henni undir höndum
en engar upplýsingar aðrar
hvorki um hljóðfæraleikara né
lagahöfunda.
Ætlunin var að fjalla einnig um
afmælistónleikana á Broadway
hér, en það hefði nánast orðið
endurtekning á því sem hér hefur
á undan farið, þar sem mér
fannst, svona í fljótu bragði, ekki
sérlega mikið brugðið út af því
sem á plötunum gefur að heyra.
Hljórriurinn var góður og þetta
skilaði sér allt ágætlega. Pað var
helst að mér þættu kynningar
þeirra hálf fáránlegar, þar sem
þeir voru alltaf hálf flissandi en
brandararnir voru bara svo inn-
viklaðir að enginn skildi þá.
Kannski voru þetta ekki brandar-
ar heldur gætu þeir bara hafa ver-
ið svona feimnir eða, það sem lík-
legra er, taugaóstyrkir.
Pað er þá bara að óska strákun-
um til hamingju með afmælið og
hvað sem öðru líður er virðingar-
vert að þeir skuli hafa verið nógu
þverir til að fara sínar leiðir, því
það hafa þeir gert hér á heima-
markaðnum, og gefast ekki upp
þó byrinn hafi verið á móti þeim í
upphafi. Ég er á því að þeir hafi
nú góðan meðbyr, þó að mitt álit
á þeim sé kannski mikið til fokið
út í veður og vind. Ég bjóst jú
jafnvel við að þeir yrðu einhvern
tíma boðberar góðrar skapandi
tónlistar en ekki bara gott diskó-
band.
Bjöm Thoroddsen - Svif
Þó að Mezzoforte hafi verið
eina fusion hljómsveit landsins
sem einhverjar sögur hafa farið
af, er því (miður) ekki að neita að
fleiri hafa fengist við að leika
þessa tegund tónlistar hér, þó
minna hafi fyrir þeim farið. Éinn
þessara manna er gítarleikarinn
Björn Thoroddsen en hann nam
um tíma gítarleik í Bandaríkjun-
um, heimalandi þessarar iðnað-
arframleiðslu sem kölluð hefur
verið fusion en þó hefur verið
reynt að telja fólki trú um að
þetta sé eitthvað sem heiti jazz.
Nokkuð hefur borið á Birni í
tónlistarlífinu hér síðan hann
snéri heim að nýju. Hann hefur
m.a. leikið inn á plötu með Fræb-
bblunum (???!!!), leikið með
göntlum jazzbrýnum í Djúpinu,
og kannski víðar, og síðast en
ekki síst hefur hann verið einn af
meðlimum Hljómsveitar Björg-
vins Halldórssonar, fór með þeim
hér um landið en síðan héldu þeir
í austurvíking til Ráðstjórnarríkj-
anna, en sagan sú ku víst vera
framhaldssaga Moggans um þess-
ar rnundir og ætla ég mér ekki að
ræna þá glæpnum.
Björn hefur nú sent frá sér sína
fyrstu plötu. Nýtur hann þar að-
stoðar ýmissa fimra en að sama
skapi ekki jafn skapandi hljóð-
færaleikara. Kannski er þó ekki
rétt að dæma sköpunargáfu
þeirra af verki þessu til þess fá
þeir raunar of fá tækifæri. Piata
þessi, sem nefnd hefur verið Svif,
er fyrst og fremst plata gítarleik-
arans Björns Thoroddsen. Lagl-
ínur eru allar kynntar af honum
og sóló hans eru einna mest áber-
andi, hvort sem það er nú vegna
þess að hann sé besti hljóðfæra-
leikarinn á plötunni eða ekki.
Ekki get ég nú sagt að ég sé
neitt yfir mig hrifinn af þeirri tón-
list sem gefur að heyra á Svif.
Hún er þegar á heildina er litið
heldur bragðdauf og lítt eftir
tektarverð en þó ekki alvond því
inn á milli eru líflegir sprettir.
Á fyrri hliðinni er nú fátt sem
situr í manni. Pað eru helst lögin
Heitur ís (hvað sem það á nú að
tákna) og Sjálfvirkur símsvari og
það síðarnefnda þá fyrst og
fremst fyrir að það er öðruvísi.
Seinni hliðin eröllu betri, lögin
lieldur lengri og betur úr þeim
unnið. Upphafslag hliðarinnar er
t.d. þokkalegt en bestu lög plöt-
unnar eru tvö síðustu lögin, Brot-
hætt og Djúpið, þar sem Björn
kemst einna næst jazzinum.
Svíarnir Hans Rolin og Mikael
Berglund leika hér með Birni á
trommur og bassa og skila þeir
sínu hlutverki ágætlega. Hins
vegar er ég á því að margir aðrir
sem korna frani á plötunni leiki
undir getu og því til stuðnings má
t.d. nefna að saxófónleikur Kri-
stins Svavarssonar er heldur
bragðdaufur. Og það sama er
einnig að segja unt hljómborðs-
leikinn.
Á heildina litið er þetta sem sé
heldur lítilfjörleg plata en hún á
þó sína spretti.
ýja leðurdeildin býður
ú upp á rmrgar gerðir af
homsófunrog feðursófasettui
HRINGBRAUT 121
SÍM110600
Smíóum timburhús klædd utan með
timbri, stáli eða áli, - eftir okkar
teikningum eða yðar.
Ennfremur önnumst við alla aðra tré-
smíðavinnu.
BYGGINGAVÖRUR
m.a. vörur innfluttar af okkur og oft á
mjög hagstæðu verði.
Við bendum m.a. á eftirfarandi byggingavöru auk þess sem er að
finna ívöru- og þjónustuskrá þessa blaðs:
Hurðir: Bilskúrsrennihurðir, útidyrahurðir, innihurðirog fylgihlutir
Gluggar: Allar gerðir úr timbri ásamt fylgihlutum
Handrið: Fyrir svalir og stiga, úr timbri
Timbur: Harðviður, krossvióur, límtré, sperruefni
Stigar úr timbri
Auk þess: Einangrunarefni, fúavarnarefni, fylli- og þéttiefni,
silicone, trétex, veggklæðningar og loftaklæðningar, saumur
Stöðluð hús,
en sérsmíðuð!
Við bjóðum þá þjónustu að
byggja hús yðar eftirstaðlaðri
teikningu. Það má kalla það
sérsmíðað einingahús. Reynsla
húsbyggjenda afþessu fyrir-
komulagi er mjög góð. Þér
ættuð að hafa samband við
okkur hið fyrsta og ræða málið.
TRÉSMIÐJA ÞÓRÐAR - STRANDVEGI79
VESTMANNAEYJUM - SÍMI (98)2640
Heimasímar:
Þórður Karlsson sími 1756
Þórður Sigursveinsson sími 2057
Þórður Svansson sími 1646