Helgarpósturinn - 29.10.1982, Page 22
22
í 50 ár hefur Grjótaþorpið verið hálfgert
„vandræðabarn" í Reykjavík. Hver
skipulagstillagan eftir aðra hefur verið gerð
um þessa húsaþyrpingu milli Aðalstrætis og
Garðastrætis, og lengi vel voru þær hug-
myndir sem þar voru settar fram þær, að
hverfið yrði jafnað við jörðu.
Hugmyndir þessar komust þó aldrei lengra
en á pappírinn, og smám saman varð Grjóta-
þorpið að elstu heillegu byggð í Reykjavíkur-
borg, eina „sýnishornið“ af því hvernig bær-
inn leit út á seinnihluta siðustu aldar og fram
eftir þessari. Fleiri og fleiri hafa gert sér grein
fyrir þessu, og í síðustu skipulagstillögunni
um Grjótaþorp, sem verið hefur til umræðu,
var einmitt tekið tillit til þessara breyttu við-
horfa.
Þessar tillögur að nýju deiliskipulagi á
Grjótaþorpi voru unnar í tíð fyrrverandi
borgarstjórnarmeirihluta og samþykktar í
borgarstjórn í vor. Hinsvegar tókst ekki að
fjalla um athugasemdir hinna ýmsu borgar-
Grjótaþorpið - elsti hluti Reykjavíkur
í hættu
Ætlar Davíö að
grafa Grjótaþorpið?
stofnana um það fyrir kosningar, sem þýddi
að skipulagsstjóri ríkisins gat ekki auglýst
skipulagið þannig að það fengi endanlega
staðfestingu. Sigurður Harðarson arkitekt og
borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins segir
mér, að ástæðan hafi einfaldlega verið sú, að
borgarlögmaður hafi tekið sér lengri tíma til
að setja saman sína umsögn en aðrir, og það
verið nóg til þess að borgarstjórn hafi ekki
getað fjallað um athugasemdirnar fyrir kosn-
ingarnar.
-Ég tel að þarna hafi borgarlögmaður ein-
faldlega verið að eyðileggja málið og ástæðan
var sú, að tillögur okkar voru ekki í samræmi
við hugmyndir hans, segir Sigurður
Harðarson.
Flestum er kunnugt framhaldið. Núverandi
meirihluti í borgarstjórn hefur ekki fallist á
að taka deiliskipulagið til umræðu á ný, og
Davíð Oddsson borgarstjóri hefur lýst því
yfir, að fyrst þurfi að skipuleggja götulínuna
við Aðalstræti - og taka þar tillit til
Morgunblaðshallarinnar.
- Það eru rangfærslur, að málið hafi verið
tafið, það var sjálftafið, sagði borgarstjóri
við mig þegar ég bar undir hann kvartanir
fulltrúa núverandi minnihluta í borgarstjórn
þess efnis.
- Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins voru ekki
sammála vinnubrögðum fyrrverandi meirih-
Iuta en ákváðu að láta kyrrt liggja eftir að
breytingartillaga kom frá Alþýðuflokknum
um að beðið skyldi með skipulag Aðalstrætis
og það tengt við skipulag kvosarinnar í heild,
auk þess sem efnt yrði til samkeppni um það
skipulag, sagði borgarstjóri.
Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Borgar-
skipulags er á öðru máli.
- Það er afskaplega bagalegt ef ekki er
hægt að ljúka þessu máli. Hefði náðst sam-
komulag um þetta hefði það verið góður
áfangi í áttina að því að vernda þessa byggð
að fá staðfest í borgarstjórn. Ef þess gerist
þörf má alltaf taka málið upp og endurskoða
skipulagið í samráði við þá sem hefðu áhuga á
að gera eitthvað þar, annað hvort endurbæta
gömul hús eða byggja ný, segir Guðrún Jóns-
dóttir.
- Þó má segja, að ekki sé óeðlilegt að nýr
meirihluti skoði slíkar tillögur upp á nýtt. En
ég á ekki von á því að það þýði samt að miklar
breytingar verði gerðar, samstaða allra
flokka var um forsögn deiliskipulagsins, segir
húm_
Þó náðist ekki samkómulag um eitt atriði.
Það er bílageymsluhús það, sem Sjálfstæðis-
menn vilja byggja á horni Vesturgötu og
Garðastrætis. Og það virðist einmitt eiga að
vera snúningspunkturinn í málinu.
Hefnd í stað réttarfars
leidd í lög i íran
Barátta íraks og írans um drottnunarað-
stöðu við Persaflóa, og þar með tangarhald á
olíuauðæfum landanna sem að fjóanum
liggja, hefur staðið í rúm tvö ár. Því sést nú
haldið fram, að úrslitaorustan í þessu stríði
hafi þegar verið háð. Fyrir mánuði lagði her
írans til atlögu við landamærin, þar sem leið
er styst og greiðust til Baghdad, höfuðborgar
íraks. Harðir bardagar stóðu á aðra viku, og
lauk svo að sóknaraðilinn vann ekki á. Sadd-
ad Hussein, forseti íraks, fór á vígvöllinn að
þakka hersveitum sínum og lét í ljós að héðan
af væri aðeins tímaspursmál, hvenær Khom-
eini erkiklerkur yrði að gefast upp á hernaði
til að steypa núverandi stjórn í Baghdad af
stóli.
Áður en þessar síðustu stórorustur í Persa-
flóastríðinu voru háðar, kom fram hjá fyrr-
verandi sendiherra Bandaríkjanna í Saudi-
Arabíu sú skoðun, að her írans hefði einung-
Khomeini
is mátt til einnar höfuðatlögu gegn írak, og
færi hún út um þúfur yrði það upphafið að
endalokum stjórnar Khomeini. James A.
Akins lét þessi orð falla á ráðstefnu í London
um ástandið í olíulöndunum við Persaflóa,
sem blöðin International Herald Tribune og
Oil Daily efndu til.
/Vkins var nýkominn úr ferðalagi til landa
við Persaflóa, og kom þá við í Baghdad.
Hann skýrði svo frá, að mannafli sem stjórn
írans hefur aflögu til að senda fram í sjálfs-
morðssveitum yfir jarðsprengjusvæði fraka, í
því skyni að ryðja þjálfuðum hersveitum með
þungavopn braut að íröksku víglínunni, væri
á þrotum. Takmörk væru fyrir, hve lengi væri
unnt að smala unglingum og jafnvel börnum
út í slíka slátrun, jafnvel þótt skírskotað sé til
trúarofstækis og gefin fyrirheit um tafarlausa
sæluvist í Paradís eftir fórnardauðann.
Að auki kemur það til, að upp á síðkastið
hefur írak gengið betur en íran að endurnýja
vopnabúnað hers síns. írakar hafa algera
yfirburði í lofti og sovétmenn eru orðnir ör-
látari á varahluti í skriðdrekaflota þeirra en
fyrst eftir að stríðið hófst. Þá hefur dregið úr
vopnaútvegun ísraelsku leyniþjónustunnar
1 Mossad fyrir íransher, eftir að verkefni henn-
ar jukust mjög við innrásina í Líbanon.
Akins, og fleiri sem rætt hafa ástandið í
íran upp á síðkastið, telja vaxandi líkur á
, uppreisn gegn klerkastjórninni. Tilefni henn-
ar gæti annað hvort orðið vonlaust en mann-
frekt stríð við írak eða fráfall Khomeini erki-
klerks. Undirrótin væri þó fyrst og fremst
óvinsældir stjórnkerfis islömsku klerkanna,
sem gerist því grimmara sem dugleysi þess
gerir daglegt líf almennings erfiðara.
Mujahedin-hreyfingin berst gégn klerkas-
tjórninni með hermdarverkum, og hefur á
síðustu vikum ráðið nokkrum nánum sam-
starfsmönnum Khomeini bana á bænasam-
komum. Tilræðismaðurinn faðmar þar að sér
fórnarlambið, en sprengir um leið hand-
sprengju sem verður báðum að bana. Muja-
hedin gerir sér vonir um að ná höndum
saman við óánægð öfl í hernum um aðgerðir
til að steypa klerkastjórninni af stóli.
Svar Khomeini og nánustu samstarfsmanna
Föstudagur 29. október 1982
JjosturinrL
Davíð Oddsson borgarstjóri upplýsir að
næsta skref sé að nefnd á vegum borgarverk-
fræðings leggi fram tillögur um tilhögun þess,
og niðurstöðu hennar sé að vænta á næstu
dögum.
Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Borgar-
skipulags á einmitt sæti í þeirri nefnd, en
þegar ég innti hana eftir gangi málsins vildi
hún lítið gera úr starfi nefndarinnar.
- Þessari nefnd er ætlað að fara yfir þær
tillögur sem fyrir lágu um þetta bílageymslu-
hús, en ekki veit ég hvort niðurstaðan verður
sú, að við gerum einhverjar endanlegar til-
lögur, segir hún um það.
Þannig virðist sem deilurnar um skipulagið
á Grjótaþorpinu snúist ekki lengur fyrst og
fremst um það hvort gömlu húsin þar eiga að
standa eða ekki, heldur um umferðarmál og
nýtingu lóðanna við Aðalstræti. Sjálfur segist
Davíð vera því fylgjandi að sum húsin þar fái
að standa, „en önnur naumast“, eins og hann
sagði, en benti jafnframt á nauðsyn þess að
laga götulínuna við Morgunblaðshöllina. Að
hans mati þarf að viðurkenna tilvist þess húss
þar á þann hátt að leyfa hærri byggingar á
lóðunum sitt hvoru megin við hana.
-En tillaga fyrrverandi meirihluta er
dauðadæmd vegna þeirrar forsendu hennar,
að þar sem húsin ættu sér merkilega sögu
bæri að varðveita þau, en jafnframt mætti rífa
þau og byggja önnur jafnhá í staðinn, segir
Davíð Oddsson.
Sigurður Harðarson borgarfulltrúi segir
aftur á móti að þarna gæti tvískinnungs í mál-
flutningi borgarstjóra. Vitanlega væri best að
friða húsin alveg að hans mati, en það legði
jafnframt skaðabótaskyldu á borgina.
- Því var talið réttast að setja málið fram
þannig, að mönnum væri leyfilegt að rífa hús-
in, en mættu ekki byggja stærri hús í staðinn.
Þannig er tryggt að húsin fái „sjens“, hús-
eigendum er stillt upp frammifyrir þeim val-
kostum að gera gömlu húsin upp eða leggja í
þann kostnað að reisa jafn stór hús á lóðun-
um, segir Sigurður Harðarson borgarfulltrúi
og arkitekt.
En eins og fyrr segir er í tillögum fyrrver-
andi meirihluta borgarstjórnar tekið tillit til
þeirra verndunarsjónarmiða, sem eiga vax-
andi fylgi að fanga, ekki bara hér á landi,
heldur um allan heim, og sér helst stað í
INNLEND
VFIRSVINI
hans er að herða tökin á írönsku þjóðinni sem
mest þeir mega. Nú hefur klerkastjórnin
kunngert, að í næsta mánuði falli úr gildi öll
fyrri hegningarlög, dómstólar séu afnumdir
og lögfræðingastéttin leyst upp. í staðinn
skulu koma tafarlaus málagjöld fyrir mis-
gerðir, byggð á hefndarrétti sem ríkti með
hirðingjum eyðimerkurinnar áður en Mú-
hameð setti þeim lög. Hefndarrétturinn, eða
„qisas”, er í orði kveðnu viðurkenndur í Kór-
aninum, en í raun og veru ýtti Múhameð
honum til hliðar með fyrirmælum um vand-
aðri rannsókn mála og mannúðlegri hegning-
ar en tíðkuðust í „qisas”. Þetta er ein ástæðan
til að Khomeini hefur ekki tekist að fá aðra
erkiklerka írans til að samsinna því að „qis-
as” skuli ríkja í landinu, en hann virðist samt
staðráðinn í að fara sínu fram.
í næsta mánuði skal því öllum réttarhöld-
um með vörn og sókn hætt, dómstólar leystir
upp og lögfræðingar sendir í endurhæfingu. í
stað þeirra koma 1200 faranddómarar
klerkavaldsins, sem setið hafa þriggja vikna
námskeið í nýja réttarfarinu í hinni helgu
borg Qom. Dómsmeðferð þeirra skal vera
svo skjót, að unnt sé að uppfylla kröfu eyðim-
erkurlaganna um að enginn sakamaður skuli
þurfa að bíða dóms í haldi lengur en tvö
sólarlög. Dómar hinna nýju dómara eru
endanlegir og verður ekki áfrýjað. Sakborn-
ingur hefur engan rétt til að ráða sér verj-
anda. Dómum ber að fullnægja tafarlaust.
Dauðarefsing er lögð við 109 afbrotum,
samkvæmt réttarfari Khomeini. Þar á meðal
eru nokkur sem gefa til kynna, að með því
eru lögð drög að útrýmingu allra sem núver-
andi yfirvöld líta hornauga. Til að mynda
skulu þeir láta iífið sem „vinna gegn islam,”
hafa sýnt „merki um satanskar tilhneigingar”
eða þá „fara ómaklegum orðum um hin is-
lömsku stjórnvöld."
Fyrir ópólitísk afbrot skal refsað með fé-
sektum eða Iíkamsmeiðingum, fangavist er
afnumin. „Markmið okkar er að skapa
þjóðfélag án fangelsa,” segir Moussavi-
Ardabili yfirdómari. „Því skyldu guðhræddir
múslímar kosta framfærslu glæpamanna, sem
Reykjavík í endurreisn gömlu húsanna á
svonefndri Bernhöftstorfu.
í tillögunni er gert ráð fyrir því, að húsin
standi að mestu leyti óbreytt og sömuleiðis
gatnakerfið, að undanskildu því að Mjóstræti
verði framlengt upp á Vesturgötu. Þessar
götur verði síðan ýmist göngugötur eða
aðeins ætlaðar fyrir umferð að húsunum.
Fljótlega eftir að vitnaðist um þessar nýju
skipulagstillögur hófust íbúar í Grjótaþorpi
handa við að endurbæta hús sín, enda þóttust
menn þá sjá fram á að tryggt væri að þau
fengju að standa. En nú, þegar afturkippur
virðist vera kominn í málið enn á ný, eru þeir
orðnir uggandi um sinn hag á ný.
En málið snýst um annað og meira en þá
sem eiga hús í Grjótaþorpinu nú.
- Málið snýst um elstu byggð í Reykjavík
og hvort Reykvíkingar vilja halda í þessa
fortíð eða sleppa henni og segja, að í borginni
sé ekkert hús að finna nema frá þessari öld,
eins og Guðrún Jónsdóttir orðar það.
Hún segir líka, að eftir miklar umræður
þeirra sem unnu að tillögunni hafi niðurstað-
an orðið sú, að ekki sé rétt að undirstrika
stærð Morgunblaðshallarinnar með því að
hækka byggðina sitthvorumegin við hana,
heldur varðveita þessa byggð í upprunalegri
mynd þrátt fyrir þetta stóra hús.
-Einhverntímann verður Morgunblaðs-
höllin gömul, og þá er hugsanlegt að menn
vilji að hún hverfi. Annað eins hefur gerst,
meðal annars í Færeyjum. Færeyingar rifu
nýlegt stórt hús sem þeim fannst eyðileggja
gömlu byggðina í Þinganesi, segir Guðrún
Jónsdóttir.
Og það að tengja saman Grjótaþorpið og
miðbæjarkvosina er dálítið að gera málið ó-
þarflega flókið, breiða yfir það hvað við vilj-
um raunverulega í þessu máli, segir hún enn-
fremur. -
Það er biðstaða í Grjótaþorpsmálinu, eina
ferðina enn. Þó erum við nær því en nokkru
sinni fyrr að varðveita elsta hluta Reykjavík-
ur, og það væri mjög miður - raunar stórslys,
ef hann hyrfi undir umferðargötur, bílastæði
og stórhýsi. Það væri andstætt þeirri þróun
sem er að gerast í borgum allt í kringum
okkur.
verðskulda að för þeirra til helvítis sé flýtt
tafarlaust.”
Við þriðja þjófnaðarbroti liggur missir
hægri handar. Sá sem veitir öðrum áverka
getur valið um að sæta samskonar meiðslum
af fórnarlambinu eða selja því sjálfdæmi um
fébætur. Hórkonur skulu líflátnar en hór-
karlar hýddir með priki opinberlega svo næst
gangi lífi þeirra.
Líflátsrefsing liggur við fíkniefnasölu,
bruggun eða sölu áfengra drykkja, fjárhættu-
spili og matarhamstri, svo nefnd séu dæmi af
handahófi.
í fangelsum írans er talið að sitji 120.000
manns, þar af 80.000 sakamenn og 40.000
pólitískir fangar. Klerkastjórnin virðist hafa í
hyggju að láta sakamennina lausa gegn því að
þeir fari sem „sjálfboðaliðar” á vígvöllinn í
stríðinu við írak.
Stjórnarandstæðingar óttast að pólitísku
fangarnir eigi líflát í vændum. Formlegum,
kunngerðum aftökum hefur að vísu fækkað í
íran að undanförnu, en það stafar af því einu
að byltingarverðir klerkastjórnarinnar skjóta
fólk strax við handtöku, undir því yfirskyni
að um hafi verið að ræða „vopnaðan mót-
þróa”.
Svo er að sjá sem stjórn Khomeini sé ekki
með öllu ónæm fyrir viðbrögðum sem böð-
ulsveldi hennar vekur utan írans. Því var
komið til leiðar að Mannréttindanefnd SÞ og
Evrópuráðið ályktuðu um ofsóknir erkikl-
erkanna gegn trúflokki baha’ia. Var fram-
kvæmdastjórn SÞ falið með samþykkt Mann-
réttindanefndarinnar að fylgjast með með-
ferð á baha’ium í landinu. Gerald Knight,
sem talar máli baha’ia á vettvangi SÞ, skýrði
frá því fyrir viku, að eftir þessa samþykkt
hefði dregið verulega úr aftökum á fulltrúum
í þjóðarráði og svæðisráðum baha’ia í íran.
Hins vegar er ekkert lát á upptöku eigna
safnaðarins eða einstakra baha’ia, vanhelgun
grafreita og helgistaða, atvinnubanni og við-
leitni til að knýja baha’ia, einkum börn og
unglinga, til að afneita trú sinni. 1