Helgarpósturinn - 08.04.1983, Síða 6

Helgarpósturinn - 08.04.1983, Síða 6
6 Föstudagur 8. apríl 1983 JpSsturinn, Nú stendur barátta þeirra sem standa í því að flytja ferðamenn til og frá landinu sem hæst. Bæklingar streyma inn um bréfalúgur, hver heilsíðan í blöð- unum skyggir á aðra með auglýsingum og sjónvarpsauglýsingatímarnir eru undirlagðir fjálglegum lýsingum á heillandi löndum og þess betri aðstöðu. Mitt í þessum darraðadansi er Arnarflug, sem í sumar heldur uppi áætlunarflugi til þriggja Evrópulanda, auk þess sem félagið flýgur mikið hér innanlands. Aðal- fundur félagsins verður haldinn innan fárra daga. Agnar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri fýrirtækisins er í yfirheyrslu Helgarpóstsins í dag. Nafn: Agnar Friðriksson staða: Frarakvœmdast jðri Arnarflugs Fæddur: 14« júli 1945 Heimiii: Þrastarlundur 14 Garðabæ Bifreið: Volkswagen Jetta '82 ÁhugamákStarfið, þjóömálHeimiiishagir: Ingunn H.jaltadðttir, 2 börn Milljónatap í fyrra —• Hvaðan kemur þú inn í flugbransann? „Ég er stúdent frá MR 1965, útskrifaðist frá Háskólanum í viðskiptafræði 1970. Vann svo á Landsvirkjun í 7 ár, þá í Heklu þar til núna 1. janúar" — Gengur rekstur Arnarflugs vel að þínu mati, manns sem kemur inn í reksturinn núna fyrir skömmu? „Arnarflug var á sínum tíma stofnað í kringum eina flugvél og hefur breyst mjög mikið. Þetta hefur hlaðið utan á sig. Félagið stundaði einkum leiguflug, bæði á farþeg- um og vörum, fyrst hér á milli íslands og út- landa, og síðan erlendis. Svo fær Arnarflug áætlunarflugleiðir innanlands á Snæfells- nes, Vestfirði, Blönduós, Siglufjörð og að lokum fékk félagið leyfi til reglubundins á- ætlunarflugs til Evrópu um mitt ár í fyrra. Félagið hefur því verið í örum vexti, og kannski að einhverju leyti vaxið hraðar en æskilegt væri. En það er ekkert sem ekki er hægt að ná tökum á. — Ef við tökum innanlandsflugið fyrst. Það gekk illa í fyrra? „Já. Það er ljóst.“ — Hversu illa? „Það liggur nú ekki fyrir endanlegt upp- gjör, en það er ljóst að tapið er meira en hægt er að þola. Flutningarnir eru minni en við getum afkastað og spurningin er sú hvort við reynum ekki að aðlaga okkur þeirri þörf sem virðist vera fyrir hendi á þessa staði, með því að minnka umsvifin, minnka flotann og reyna frekar að leigja inn vélar á háannatímanumí' — Þannig að slíkar aögerðir eru væntan- legar? „Hér hefur hópur fólks verið að vinna að úttekt á innanlandsfluginu og er um það bil að skila áliti og ég geri ráð fyrir að þessi verði meginniðurstaðan" — En Evrópuflugió. Gengur það jafn illa? „Það gekk tiltölulega vel í fyrra. Það byrj- aði í júlí í fyrra. og var flogið til Zurich, Dusseldorf og Amsterdam. í september hættum við að fljúga til Zúrich og Dússel- dorf. Flugi til Amsterdam var haldið áfram í allan vetur. Það sem einkum einkenndi af- komuna í fyrra var það áfall sem félagið varð fyrir þegar það missti Boeing 720 vélina útúr rekstri vegna tæringar, sem reyndist svo dýrt að gera við að það borgaði sig ekki. Þetta var á há annatímanum og félagið þurfti að leigja inn vélar, sem óumdeilanlega er miklu dýrari á slíkum tíma. Þetta er talið eftir Guðjón Arngrímsson hafa kostað fyrirtækið í kringum 700 þús- und dollara, fyrir utan kostnaðinn við að geta ekki verið með þessa vél í rekstri í dag. Beinn útlagður kostnaður var semsagt 700 þúsund dollarar.“ — Aðalforsendurnar fyrir því að leyfi var veitt fyrir flugi Arnarflugs á sínum tíma til Evrópu var að um yrði að ræða heilsársflug og að þetta myndi stækka markaðinn, — ferðamennirnir yrðu fteiri. En er ekki komið í ljós að hvorugt stenst? „Þú átt þá við Dasseldorf og Zúrich. Það er náttúrlega ljóst að það þýðir ekkert að bjóða uppá áætlunarstaði erlendis sem ís- lendingar eru í dag ekki tilbúnir að fara til. Við höfum kynnt upp Holland og Amster- dam sérstaklega og það virðist ætla að ganga upp, meira að segja betur en menn þorðu að vona.-Þannig að í dag er hægt að ganga útfrá því með vissu að það verður heilsársflug til Amsterdam. Við verðum með allt að fjórar ferðir í viku í sumar og væntan- lega þrjár ferðir meiri hluta næsta vetrar. Síðan er meiningin að snúa sér að Sviss, og núna á þessu ári opnum við skrifstofu í Sviss. Við erum búnir að ráða til þess starfs- mann. Okkar hugmynd er að bæta einum valkosti við fyrir Islendinga, bæði varðandi fragtflutninga og öll almenn ferðaviðskipti. Ætlun okkar er að lengja þennan tíma sem við fljúgum á bæði Dusseldorf og Zúrich. Hvort það tekst er mest undir okkur sjálfum komið“ — Nú flugu Flugleióir til Amsterdam, sem þú segir að hafi gengið vel hjá ykkur, en hinar tvær leiðirnar hafa ekki gengið vel. Er ekki Ijóst að á þessum Evrópuleiðum er ekki pláss fyrir tvo? „Þetta er kannski ekki spurning um það hvort pláss er fyrir einn eða tvo. Þetta er spurning um það hvort markaðurinn þolir samkeppni eða ekki. Það er ekki hægt að segja að um beina samkeppni flugfélaganna til útlanda sé að ræða, vegna þess að við er- um með eina borg og þeir með fimm eða sex. Við erum með afskaplega takmarkaðan hluta af markaðinum. Þeir eru með 95% eða svo. Spurningin er sú hvort íslendingar vilja hafa eitt stórt fyrirtæki til þess að ann- ast alla flutninga til og frá íslandi eða hvort þeir vilja leyfa takmarkaða samkeppni, með þeim kostum og göllum sem það kannski kann að hafa í för með sér. Það má Iíka spyrja: Er eðlilegt að láta þrjú skipafélög flytja fragt milli íslands og útlanda. Svona má spyrja áfram. Ég get ekki séð að flugið sé svo sérstakt að það sé ekki eðlilegt að hafa samkeppni þar eins og annarsstaðar, ef menn telja samkeppni eðlilega á annað borð. Ég á ekki við samkeppni þar sem barist er til síðasta blóðdropa. Oheft samkeppni, sem er öllum til tjóns. Eðlileg, takmörkuð sam- keppni, eins og þetta er í dag, er öllum til góðs. Þetta hefur til dæmis gefið íslending- um kost á að fljúga til Amsterdam allt árið, sem þeir gátu ekki áður. Okkar spá er sú að 30 þúsund íslendingar velji þann valkost í ár. — En getur samkeppnin verið af hinu góða þegar báðir samkeppnisaðilarnir eru reknir með tapi, eins og raunin er? „Það kemur nú ekki fram í reikningum Flugleiða að hve miklu leyti þeir rekja þetta tap sitt til samkeppni við Arnarflug. Mér virðist tapið einkum stafa af innanlands- fluginu, af Cargolux og Norður-Atlants- hafsfluginu. Við komum hvergi nærri þess- um leiðum. Þeir eru með sérréttindi til flugs á öllum aðalleiðum innanlands, við fljúgum ekki á Norður-Atlantshafinu og ég get ekki sagt að við séum í samkeppni við Cargolux þó við séum í vöruflutningum erlendis. Við fljúgum ekki á sömu leiðum og þeir. Ég sé ekki að hægt sé að tengja þessa takmörkuðu samkeppni í Evrópufluginu við afkomu Flugleiðaí’ — Arnarflug hefur um skeiö flogið í Lý- bíu og þar í kring og hagnast vel á því. Verð- ur áframhald á því flugi? „Arnarflug var með tvær vélar í rekstri fyrir Lybian Arab Airlines, sem er venjulegt flugfélag í IATA, eins og önnur flugfélög sem stunda flug með farþega og fragt. Arn- arflug var semsagt með tvær vélar þarna þar til í mars, þá runnu báðir samningarnir út. Samningur um aðra vélina var framlengdur til áramóta. Þannig standa málin í dag“ — Nú á næstunni verður aðalfundur Arnarflugs og þar verða lagðir fram reikn- ingar félagsins. Hver er staða þess? „Það er fyrirsjáanlegt að í fyrra varð tap. Hversu mikið er ekki hægt að segja á þessu stigi. Það eru nokkrar milljónir, ekki tugir milljóna. Nær varla 10 milljónum. En eitt- hverttap er. En fjárhagsstaða fyrirtækisins er tiltölulega góð" — Þú ert það nýlega kominn inn í þetta fyrirtæki að þú komst ekkert nálægt um- deildum kaupum Arnarflugs á íscargo. Finnst þér að þau kaup hafi verið skynsam- leg? Hvaða beinan hagnað hefur félagið haft af þeim umfram kostnaði? „Ég á erfitt með að svara þessu svona beint út. Þarna er verið að kaupa hluta af eignum íscargó, keypt aðstaða útá flugvelli sem mörgum finnst vera gulls ígildi, því til- tölulega lítið, eða ekki neitt má byggja á vell- inum. Þarna fékkst aðstaða fyrir innan- landsflugið sem áður hafði verið í samfloti með Flugleiðum. Síðan var einnig um að ræða kaup á Electravél ásamt varahlutum. Það hafa verið gerðar tilraunir til að selja þessa vél. Það hefur ekki tekist ennþá, og kemur þar margt til. Sérstaklega að það hef- ur verið tiltölulega lítið um kaup og sölur á vélum allt síðasta ár og er enn, — hvað þá notuðum vélum. Við gerum okkur aftur á móti vonir um að hún sé að fara í fulltverk- efni. Hún hefur verið í skoðun í Noregi, með örlitlu hléi sem var notað til að fljúga milli íslands og Hollands, íslands og Danmerkur og síðan var flogið leiguflug frá Hollandi til Arabíu. En hún fór semsagt í skoðun núna í Osló og áætlað er að henni ljúki á næstu 10 dögum. Væntanlega verður þá gerður samn- ingur um leigu á þessari vél. Það var mat manna á þeim tíma að þetta hafi verið skynsamlegt og ég sé ekki að neitt hafi komið fram sem breyti því“ — Sagt er að formlegir stjórnarfundir séu fremur sjaldan haldnir í Arnarflugi, af þeirri ástæðu að í stjórninni sitja menn frá Flugleiðum, samkeppnisaðilanum. Er þetta í rauninni ekki óviðunandi ástand? „Hér eru haldnir stjórnarfundir fyrstu mánudag í hverjum mánuði, og mér skilst að svona hafi þetta verið lengi. Ég veit ekki hvort það breyttist þegar Flugleiðir seldu meirihutaeign sína í félaginu. Þeir eiga 40% af félaginu og tvo fulltrúa af fimm í stjórn. Fyrirtækin eiga í samkeppni. Það hlýtur náttúrlega að setja sitt mark á stjórnar- fundi. En það er ágætis samkomulag milli manna í stjórn félagins. Auk þessara 40% sem Flugleiðir eiga, þá á starfsmannafélagið 23% félagsins, SÍS og olíufélögin eiga sam- tals tæplega 15% og það sem eftir er eiga tæplega 800 einstaklingar? — Hverjir eru helstu kostir og gallar við að starfsfólk eigi í svona fyrirtæki? „Ég held að gallarnir séu engir. Það eru bara kostir. Starfsfólkinu er mjög umhugað um velgengni fyrirtækisins og það er mjög vakandi og viljugt til vinnu. Það hefur á- huga á því sem er að gerast, vegna þess að þetta er þeirra fyrirtæki“ ---------myndir: Jim Smart—

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.