Helgarpósturinn - 08.04.1983, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 08.04.1983, Blaðsíða 24
24 hans í þáttunum Dallas, sem sam- kvæmt skoðanakönnun Helgar- póstsins er eitt alvinsælasta sjón- varpsefnið hér. Tilefni heimsókn- arinnar er skemmtiþáttur í beinni útsendingu sem SÁA stendur fyrir á laugardagskvöldið. Þar mun hann koma fram í viðtali og væntanlega segja frá reynslu sinni af áfengi, en hann er alkohólisti. Þessi heimsókn er árangur ferðar SÁÁ-manna til Hollywood, en þar tóku þeir enn- fremur upp fimm viðtöl við þekkta einstaklinga og verða þrjú þeirra sýnd í þættinum. Eitt þeirra er við- tal við leikarann Rod Steiger. Heim- sókn Kercheval er SÁÁ að kostnað- arlausu, því Flugleiðir og Hafskip greiða kostnað ferðir og uppihald, en fátítt er að leikarar í Dallas gefi sér tíma til að þyggja boð eins og ri'l Ættarerjur heyra ekki- f'l sögunni til, því þó að úrslit í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurlandskjördæmi kæmi flatt upp á marga urðu fáir jafn fúlir og framámenn útgerðar- og frysti- húsaauðvaldsins í Vestmannaeyj- um. Þeir telja sig eiga þingsæti Vestmannaeyinga, enda hafa full- trúar þeirra setið í þvi svo lengi sem elstu menn muna. Guðmundur Karlsson er forstjóri fyrir einu frystihúsanna og forveri hans Guð- laugur Gíslason var fulltrúi sama hóps og pólitískur fóstursonur - Jóhanns Þ. Jósepssonar sem um áratugi var þingmaður Vestmanna- eyja á fyrri hluta aldarinnar og um tíma sjávarútvegsráðherra. Jóhann Þ. var annar aðaleigandi Tangans í Eyjum sem var annao aðaiúigeroar og verslunarfyrirtækið í plássinu upp úr aldamótum og fram yfir 1940 og er núverandi stöðvarvald beinn arftaki þess eða því sem næst. Fyrir rúmum fimmtíu árum fór hitt aðalfyrirtækið í Eyjum á haus- inn og lá það orð á að Jóhann Þ. sem þá var þingmaður hefði átt verulegan hlut að máli að koma helsta keppinautnum á hausinn. Þetta var fiskverkunar-.útgerðar- og verslunarfyrirtæki Gísla J. Johnsen. Síðan þá hefur stöðvarvaldið í Eyjum fremur litið niður á Johnsenættina og fólki úr henni hefur ekki verið hleypt til mann- virðinga hjá sjálfstæðismönnum þar, þrátt fyrir að ættin sé stór og nærri einskipuð eldheitum sjálf- stæðismönnum. Gísli J. Johnsen var afabróðir Árna Johnsen vænt- anlegs alþingismanns Vestmanna- eyinga og því þykir Johnsenunum núna hefndin sæt þótt seint sé.... ’V't Nú árla dags er væntanleg /■J ur hingað til lands á vegum ■S SÁÁ einn af efstu mönnum á lista yfir þá sem grunaðir eru um morðið á JR Ewing, — sjálfur Cliff Barnes, eða réttara sagt: Ken Kercheval, sem fer með hlutverk þetta utan úr heimi. Kercheval mun m.a. fara í héimsókn í íhéðféröar- stöðvarnar við Sogn og Silunga- poll og verður blaðamönnum einnig boðið í þá ferð. Hann heldur síðan utan á sunnudaginn ásamt fylgdarkonu sinni. Eftir því sem við heyrum verður þátturinn annað kvöld með allt öðru sniði en hinn frægi krabbameinsþáttur, og öllu léttari og húmorískari blær yfir honum. Þá mun söfnun SÁÁ sem um tíma fékk verulegt bakslag hafa tekið við sér að nýju.... r< 1 Það munar að minnsta /~ \ kosti um gjafir eins og þær >r' sem Tommi hamborgara- kóngur lætur frá sér. „Ef ekki væri SÁA, þá væri ég ekki edrú núna,“ sagði hann í gær og gaf eina milljón í söfnunina.... Kvikmyndahúsaeigendur f 1 hafa um nokkurt skeið haft áhuga á að fá að sýna kvik- myndir fram til kl. 24 aðfararnótt páska og hvítasunnu, rétt eins og öldurhúsin fá að hafa opið þá. Fyrrum biskup var því alltaf and- vígur, en þegar þetta var borið und- ir herra Pétur Sigurgeirsson núver- andi biskup, tók hann því ekki illa, þar sem skárra væri að hafa börnin á bíó en á öldurhúsunum. Kvik- myndahúsaeigendur fóru þvi til - Friðjóns Þórðarsonar dómsmála- ráðherra og hann tók hugmyndinni heldur ekki illa. En þegar hún komst inn á borð til Ólafs Walters Stefánssonar skrifstofustjóra, sagði hann þvert nei og bar því við að Iög væru lög. Það mun nefnilega standa í lögum, að kvikmyndasýn- ingar eru bannaðar eftir kl. 18 þessa tvo laugardaga. Hver var að tala um Já, ráðherra.... Heldur þykir kunnugum / i ganga seint undirbúnings SI vinnan við fyrirhugaða Rás 2 hjá útvarpinu. Eftir að undir- búningsnefndin lauk starfi sínu í byrjun ársins hefur nánast ekkert gerst, en nefndin lagði áherslu á að ef rásin ætti að taka til starfa á þessu ári, sem enn stendur til, þá þyrfti um þetta leyti að vera búið að ráða lykilfólk til starfa, leggja drög að öllum tækjakaupum, hefja upp- setningu stúdíóa, frágang húsnæðis og fleira og fleira. Það eina sem gerst hefur er að staða forstöðu- manns rásarinnar hefur verið aug- lýst laus til umsóknar. Einn þeirra sem vitað er að hafa sótt um stöð- una er Helgi Pétursson í Washing- ton með BS gráðu í „Broadcasting management and operation" uppá vasann. Og svo er hann fram- sóknarmaður, sem kemur sér ekki illa, þar sem veiting þessa embættis verður væntanlega eitt af síðustu verkum Ingvars Gíslasonar í Föstudagur 8. apríl 1983 jpfísturinn REVLON „Eterna 27“-24 Hour Cream, með Progenitin, samlagast húðinni strax, örvar rakamyndun og mýkir upp þurrar húðfrumur. „Eterna 27“ berst gegn öldrunar- einkennum og gefur húðinni unglegan og frísklegan blæ á ótrúlega skömmum tíma. „Eterna 27“ kvölds og morgna með frábærum árangri. menntamálaráðherrastólnum fyrir kosningar.... PT^| Á meðan tekur sú gamla rás f' \ 1 stig fyrir stig á sig „alþjóð legri“ blæ. Það nýjasta í þeirri þróun er að þeir sem sjá um að kynna Iétta tónlist, syrpustjórar og fleiri, hafa tekið sig saman og út- búið vikulega það sem erlendis er kallað „Playlist", það er valið nokkur lög sem hafa munu forgang í spilun þá vikuna að hætti flestra erlendra útvarpsstöðva. Þetta er gert svo meira samræmi fáist í þessa léttu tónlistarþætti. Þannig eru val- in þrjú aðallög, og síðan tveir listar a og b með fimm lögum hvor, sem stjórnendur þáttanna hafa til hlið- sjónar við lagaval. Á þessum listum eru bæði islensk lög og erlend.... Eins og kunnugt er af fréttum hætti Egill Skúli Ingibergsson um daginn störfum sem framkvæmdastjóri „væntanlegrar“ Kísilmálmverk- smiðju við Reyðarfjörð. Við því starfi hefur nú tekið til bráða- birgða, eða þar til alþingi tekur ákvörðun i málinu, Dr. Geir A. Gunnlaugsson, háskólaprófessor. Hann er einn stjórnarmanna í undirbúningsnefnd verksmiðjunn- ar og hefur fengið leyfi frá störfum í Háskólanum um óákveðinn tíma... Svo er hér lítil saga, í tilefni f' J Frakklandsfarar Vigdísar Finnbogadóttur, forseta Stúlka nokkur um 14 ára gömul til- kynnti foreldrum sínum einn morguninn fyrir skömmu að hún hefði áhuga á að verða Au pair stúlka í Frakklandi, og spurði pabba sinn þegar hann var á leið- inni útúr húsi til að fara í vinnuna, hvert hún ætti að snúa sér í málinu. „Af hverju talarðu bara ekki við Vigdísi“ sagði faðirinn í hálf- kæringi, svona eins og til að fá dótturina ofanaf hugmyndinni. Nokkrum dögum síðar urðu foreldrarnir heldur betur hissa þegar dóttirin laumaði út úr sér að hún hefði farið og talað við Vigdísi og að málið væri í fullum gangi. Þá hafði hún gert sér litið fyrir og pantað viðtalstíma hjá forsetanum og borið upp erindið. Vigdís tók stúlkunni firnavel, þakkaði henni traustið sem hún sýndi sér, gaf stúlkunni upp adressu í Frakklandi þar sem hún gæti spurst fyrir um Au Pair störf, og tilkynnti henni að ef hana vanhagaði um meðmæli í þessu sambandi þá skyldi hún bara koma til sín...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.