Helgarpósturinn - 08.04.1983, Blaðsíða 22
22
Föstudagur 8. apríl 1983
Úr myndinni: Á hjara veraldar eftir Kristínu Jóhannesdóttur.
Kvikmyndir, kvikmyndir...
Það er að bera í bakkafullan lækinn að tala
um gróskuna í íslenskri kvikmyndagerð. En
hvað er annað hægt að gera einmitt nú, þegar
hún virðist aldrei hafa verið meiri? Þessa dag-
ana er verið að sýna þrjár íslenskar kvikmynd-
ir í kvikmyndahúsum borgarinnar og er ólík-
legt að slíkt hafi nokkurn tíma gerst áður. Þar
með er ekki allt upp talið, því að í sumar og
haust verða væntanlega fjórar kvikmyndir
annað hvort fullkláraðar eða komnar í
vinnslu.
TJmsóknir í Kvikmyndasjóð á þessu vori
sýna, að kvikmyndagerðarmenn Iáta ekki
deigan síga þrátt fyrir versnandi árferði á öll-
um sviðum efnahagslífsins. En eins og svo
víða annars staðar eru margir kallaðir, en til-
tölulega fáir útvaldir. Af 42 umsóknum um
styrk í sjóðinn, hlutu „aðeins" sextán náð fyr-
ir augum stjórnarinnar, auk þess, sem sjóður-
inn veitti nú nokkru fé til kynningar á íslensk-
um kvikmyndum erlendis.
Kvikmyndasjóður hafði fimm milljónir
króna til umráða og fóru 3.6 milljónir til
styrktar sex leiknum kvikmyndum I fullri
lengd. Völuspá s.f. fékk 850 þúsund krónur
vegna myndarinnar Á hjara veraldar eftir
Kristínu Jóhannesdóttur, sem nú er verið að
sýna í Austurbæjarbíói. F.I.L.M. h.f. fékk
sömu upphæð vegna myndarinnar Einu sinni
var..., sem nú mun heita Hrafninn flýgur. Það
er Hrafn Gunnlaugsson, sem gerir þá mynd
eftir eigin handriti og er sögusviðið ísland á
landnámsöld. Tökur myndarinnar hefjast um
mánaðamótin maí-júní og er áætlað að þeim
ljúki í lok júlí. Óðinn h.f. fékk sex hundruð
þúsund krónur til gerðar Atómstöðvarinnar -
eftir skáldsögu Halldórs Laxness. Leikstjóri
þeirrar myndar verður Þorsteinn Jónsson og
hefjast tökur í sumar. Jón Hermannsson og
Þráinn Bertelsson fengu sex hundruð þúsund
vegna myndarinnar Nýtt líf, en tökur hennar
eru þegar hafnar í Vestmannaeyjum og ku
ganga mjög vel. Myndin fjallar um tvo hressa
stráka úr bænum, sem fara á vertíð í Eyjum,
þjóðleg mynd með gamansömu ívafi. Frum-
sýning verður svo um eða eftir miðjan septem-
ber. Saga Film h.f. fékk 350 þúsund vegna -
Hússins, sem nú er sýnd í Háskólabíói. lx>ks
fékk UMBI sex hundruð þúsund til að gera -
Skilaboð til Söndru eftir samnefndri skáld-
sögu Jökuls Jakobssonar. Þar segir frá rithöf-
undi úr Reykjavík, sem dvelur sumarlangt úti
á landi við samningu kvikmyndahandrits fyr-
ir útlent kvikmyndafélag. Upptökur hefjast
um 20. júni og verður þeim lokið á 6-8 vikum
og frumsýning verður væntanlega um jóla-
leytið. Leikstjóri er Kristín Pálsdóttir en
handritshöfundur er Guðný Halldórsdóttir.
Til handritagerðar fóru þrír styrkir að upp-
hæð fimmtíu þúsund krónur hver. Þá hlutu
Ágúst Guðmundsson til að gera handrit að
mynd, sem gerist í Noregi á 9 öld, Lárus Ýmir
Óskarsson til að gera handrit að mynd um
Fjalla-Eyvind, og Viðar Víkingsson til að gera
handrit eftir Vikivaka Gunnars Gunnarsson-
ar
Sjö styrkir voru veittir til gerðar heimildar-
mynda að upphæð samtals 530 þúsund krón-
ur. Vilhjálmur Knudsen til að gera mynd um
Mývatnselda, Hjálmtýr Heiðdal og fleiri til
gerðar myndar um Síldarævintýrið á Djúpu-
vík, Njála s.f. til gerðar myndar um íslenska
hrafninn, Páll Steingrímsson til gerðar mynd-
ar um sögu hvalveiða á íslandi, Sigurður Snæ-
berg Jónsson til gerðar myndar um Miðnes-
heiði og herinn, Heiðar Marteinsson til gerðar
myndar um línuveiðar frá Vestfjörðum og
loks Þorsteinn Ú. Björnsson til gerðar myndar
um Sigurjón Ólafsson myndhöggvara.
Þegar eftirspurn eftir styrkjum úr Kvik-
myndasjóði er umfram framboð, ef svo má að
orði komast, þá er það hlutverk sjóðsstjórn-
arinnar að fara yfir allar umsóknir og meta
þær eftir þeim gögnum, sem liggja fyrir. Það
segir sig því alveg sjálft, að ekki eru allír á eitt
sáttir um skiptinu kökunnar. Einn þeirra, sem
hvað harðast hafa gagnrýnt stjórn Kvik-
myndasjóðs er Friðrik Þór Friðriksson. Hann
hefur þegar sýnt og sannað með myndum sín-
um Eldsmiðnum og Rokk í Reykjavík, að
hann er með okkar albestu heimildarmynda-
smiðum. Hann fékk á sínum tíma 75 þúsund
króna styrk til gerðar Rokksins, sem kostaði
álíka mikið og ódýr leikin mynd. Friðrik Þór
hefur síðan sótt tvisvar um aukastyrk, en ekki
fengið og síðast núna, þegar hann sótti um
fimm hundruð þúsund króna styrk til að
’ WNLEND
VFIRSVINI
mmlmma Wtí vW tmHwaimm vmrn mmmtHuwfc1
Annars vegar eru verslunarviðskipti og
tæknisamvinna við Bandaríkin ómissandi
þáttur í áformum Kínverja um að reisa at-
vinnulíf sitt úr rústum menningarbyltingar-
innar. Hins vegar er fullt samband við Banda-
ríkin forsenda fyrir því, að Kína nái fram til-
slökunum af hálfu Sovétríkjanna í deilumál-
um þeirra.
Fangaráð Kínverja er því að láta óánægju
■með framkomu Bandaríkjastjórnar á ýmsum
sviðum kristallast í máli tenniskonunnar
HÚ Na. Sjálfur Deng Hsiaoping, valdamesti
maður Kína, hefur brýnt fyrir hverjum tign-
um gestinum frá Bandaríkjunum á fætur öðr-
um, að jákvæð afgreiðsla Bandaríkjastjórnar
á hælisbeiðni hennar myndi hafa óþægileg
eftirköst.
Nú Ha kveðst gera sér í hugarlund, að auk
stórpólitískra sjónarmiða í skiptunum við
Bandaríkin, geri æðstu menn Kína svo mikið
veður út af stroki hennar og raun ber vitni,
vegna kunningsskapar hennar við einstak-
linga í forustu Kommúnistaflokks Kína. Til
að mynda sóttist einn af fulltrúum í fasta-
nefnd stjórnmálanefndar flokksins, Van Lí
að nafni, eftir að fá hana með sér í tvenndar-
leik í tennis. Wang er mjög handgenginn Deng
og hefur stundum verið staðgengill forsætis-
ráðherrans.
Umsókn sína um hæli af pólitískum ástæð-
um byggir Hú á því, að fast hafi verið lagt að
sér að sækja um inngöngu í kommúnista-
flokkinn, en það vilji hún með engu móti,
vegna vitneskju sinnar um hvert varð hlut-
skipti ýmissa íþróttastjarna í flokknum í
bræðravígum menningarbyltingartímans.
Haldi hún fast við að neita að ganga í flokk-
inn, sé vísast að flokksfulltrúar í stjórn í-
þróttamála geri íþróttaferil hennar að engu.
Til dæmis um það sem hún óttast, rekur Hú
feril heimsmeistarans í borðtennis, Súang
Sedong. í menningarbyltingunni tók ekkja
Maós hann upp á arma sína, gerði hann að
ráðherra íþróttamála og notaði hann til að
framkvæma ógnarstjórn yfir kínversku í-
þróttafólki. Eftir að fjórmenningaklíkunni
var steypt af stóli, var Súang Sedong tekinn
fastur og færður í fangabúðir.
„Ég óttast því um mig“, sagði Hú í viðtali við
Þátttaka kínversks borðtennisliðs í móti í
Bandaríkjunum fyrir rúmum áratug var
fyrsta skýra merkið um að samskipti stórveld-
anna sitt hvoru megin Kyrrahafs færu batn-
andi, eftir nær aldarfjórðungs illindi og ófrið.
Það er því í stíl, að fyrsti verulegi afturkippur-
inn í sambúð ríkjanna birtist sem rifrildi út af
landflótta snjöllustu tenniskonu Kína.
r
A. mánudaginn tilkynnti dómsmálaráðu-
neyti Bandaríkjanna, að tekin hefði verið til
greina umsókn um landvistarleyfi sem póli-
tískur flóttamaður, sem tenniskonan Hú Na,
19 ára gömul, lagði fram í júlí í fyrra, þegar
hún strauk úr liði Kína á bikarmóti í Santa
Clara í Kaliforniu. í gær svaraði Kínastjórn
Hú Na á tennisvellinum í Santa Clara
í fyrrasumar.
Strokin tennisstjarna spiilir
sambúð Bandaríkjanna og Kína
með því að aflýsa öllum samskiptum við
Bandaríkin samkvæmt samningi ríkjanna um
samvinnu í menningarmálum út þetta ár.
Bandarísk stjórnvöld gerðu sér ljóst frá
upphafi, að umsókn Hú Na urn að fá landvist
í Bandaríkjunum sem pólitískur flóttamaður,
gæti dregið dilk á eftir sér. Níu mánaða drátt-
ur á að afgreiiða umsóknina stafaði af tog-
streitu innan utanríkisráðuneytisins í Wash-
ington. Mannréttindadeild ráðuneytisins vildi
veita landvist á grundvelli umsóknar Hú Na.
Austur-Asíudeildin var því mótfallin, af ótta
yið áhrifin á sambúðina við Kína.
Innflytjendaeftirlitið tók síðan þá afstöðu,
eftir að hafa kynnt sér gögnin frá öðrum deil-
dum utanríkisráðuneytisins, að synja bæri
umsókn Hú Na. Dómsmálaráðuneytið tók
svo þveröfuga ákvörðun og tók umsókn stúlk-
unnar til greina. Þá var rifrildið í utanríkis-
ráðuneytinu komið í fréttir, og vinir útlaga-
stjórnarinnar á Tævan í hópi nánasta stuðn-
ingsliðs Reagans forseta voru teknir að beita
sér í málinu.
Sambúð Kína og Bandaríkjanna hefur
stöðugt hrakað, síðan Reagan varð forseti.
Eitt af kosningaloforðum hans var að efla
aambandið við Tævan, og mátti skilja sumar
yfirlýsingarnar í kosningabaráttunni á þá leið,
að hann myndi færa stuðning Bandaríkjanna
við stjórnvöld á eynni í sáma horf og var áður
en Kína og Bandaríkin tóku upp fullt stjórn-
málasamband.
Kínastjórn Iét engan vafa á því leika, að hún
myndi taka óstinnt upp sérhvert merki um frá-
hvarf af hálfu Bandaríkjanna frá Sjanghæ-
yfirlýsingu Nixons, þar sem lýst var yfir á
hvem hátt bandarísk samskipti við Tævan
yrðu takmörkuð, eftir að stjórnmálasamband
kæmist á við Kína. Eftir margra mánaða ýf-
ingar náðist í fyrra samkomulag þar sem
stjórn Reagans lýsti yfir, að vopnasala til
Tævan yrði takmörkuð og dregið úr henni
smátt og smátt. Svo kom í ljós eftir áramótin,
að Bandaríkjastjórn hyggst selja til Tævan
vopnabúnað, sem Kínastjórn telur ótvírætt
óheimilan samkvæmt fyrra samkomulagi.
Stjórnvöldum Kína er bráðnauðsynlegt af
innanlandsástæðum að standa fast á rétti
sínum gagnvart Tævan sem óaðskiljanlegum
hluta Kína. Á hinn bóginn vilja þau í lengstu
Iög skirrast við að bregðast við því, sem þau
telja yfirtroðslur af hálfu Bandaríkjanna,
með því að draga úr stjórnmálasambandi éða
verslunarviðskiptum, því þá væri skaðinn
fyrir Kína tvöfaldaður.
^pústuririn
greiðabókfært tap. Eldsmiðurinn hefur aldrei
fengið styrk.
„Ég trúi ekki, að þessir menn geri sömu
skyssuna tvisvar í röð og afhjúpi þannig van-
kunnáttu sína í kvikmyndamálum. Þeir vilja
greinilega ekki að myndir eins og Eldsmiður-
inn og Rokkið séu gerðar hérna. Þetta hlýtur
að vera annað hvort af persónulegum eða
pólitískum toga spunnið. Það getur ekki verið,
vegna efnis myndanna“, sagði Friðrik Þór í
samtali við Helgarpóstinn.
En þeir eru fleiri, sem eru ekki alls kostar
ánægðir með úthlutunina í ár. Helgi Gestsson
formaður Félags kvikmyndagerðarmanna
sagði, að þeir væru langt því frá að vera hressir
með hlut heimildarmynda, sem hefur minnk-
að frá síðasta ári.
Hins vegar ságði hann það gleðilegt, að nú
væru veittar til leikinna mynda upphæðir,
sem skiptu verulegu máli. í fyrra hafi úthlut-
unin numið tæpum 10% af meðalmynd, en nú
væri hún 15-20%.
Eins og áður sagði, var nú í fyrsta sinn veitt
sérstaklega fé til þess að standa undir kynn-
ingarstarfsemi. Það færist mjög í vöxt, að ís-
lenskar myndir séu sýndar á erlendum kvik-
myndahátíðum og hefur það töluverðan
kostnað í för með sér. Það hefur því komið i
hlut Kvikmyndasjóðs að standa undir þeim
kostnaði.
Félag kvikmyndagerðarmanna telur aftur á
móti, að það eigi ekki að vera í verkahring
sjóðsins að annast slíkt starf, heldur sé það
verk kvikmyndastofnunar. Gallinn er bara sá,
að Kvikmyndastofnun íslands er ekki enn
komin á laggirnar. Nýtt lagafrumvarp um
Kvikmyndasjóð og Kvikmyndastofnun átti að
sjá dagsins ljós á Alþingi síðastliðið haust, en
það hefur dagað uppi í kerfinu. Og hver veit
hvort það verður dregið fram á næstunni, þeg-
ar ný ríkisstjórn og nýtt Alþingi fara að glíma
við drauginn fræga. Á meðan verðum við
bara að starfa eftir gamla kerfinu, sem hefur
jú reynst takk bærilega alveg ágætlega.
bandarískan fréttamann , þegar hún var að
útskýra ástæður sínar til að gerast landflótta“.
„Aldrei er að vita, hvenær ein flokksklíkan
ýtir annarri til hliðar“.
Harkan í viðbrögðum Kínastjórnar við
stroki Hú Na hlýtur að nokkru að stafa af því,
að möguleikar eru á að aðrir fylgi í slóð henn-
ar. Kínverskir stúdentar í Bandaríkjunum
skipta þúsundum, aðallega í tæknigreinum og
náttúrvísindum. Með því að senda efnilegustu
námsmenn Kína til náms í Norður-Ameríku
og Vestur-Evrópu, reyna núverandi stjórnend-
ur að fylla í eyðuna eftir menningarbylting-
una, þegar framhaldsmenntun lá niðri í Kína'
svo árum skipti. Þessir námsmenn geta margir
hverjir átt vísar freistandi stöður í námslönd-
unum, hætti þeir við að snúa heim að námi
loknu.
Auk þess sem áður var rakið um samskipti
Bandaríkjanna og Tævan, hefur ýmislegt
fleira á bjátað upp á síðkastið í sambúð
Bandaríkjastjórnar við Kína. Helstu út-
flutningvörur Kínverja, til að greiða fyrir inn-
flutning á fjárfestingarvörum, eru afurðir
léíts iðnaðar. Nýlega setti Bandaríkjastjórn
kvóta á innflutning vefnaðarvöru frá Kína, og
raskaði þar með verulega áætlun Kínastjórn-
ar um útflutning til Bandaríkjanna. Um svip-
að leyti voru hömlur settar á útflutning tækni-
nýjunga og miðlun tækniþekkingar frá
Bandaríkjunum til Kína, og var sú ráðstöfun
réttlætt með því að verið væri að framfylgja
banní við eflingu hernaðarmáttar komm-
únistarikja.
Slíkar kveðjur Bandaríkjanna kunna stjórn-
endur Kína lítt að meta, en sovétmenn sjá
tækifæri til að koma sinni ár fyrir borð. í við-
tölum við framámenn í Moskvu í síðasta mán-
uði, fannst Leslie H. Gelb, fréttaritara New
York Times, afar áberandi, hve mikið þeir létu
af árangri í viðræðum ríkjanna að draga úr
spennu þeirra í milli. Sögðu sovétmenn Gelb,
að samkomulag um að fækka herafla við
landamæri Sovétríkjanna og Kína væri í sjón-
máli.