Helgarpósturinn - 08.04.1983, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 08.04.1983, Blaðsíða 14
14 Sinfóníu- hljómsveit dýranna Kirk Nurock heitir 34 ára gamall bandarískur tónlistarmaður, sem m.a. stundaði nám við Juillard- skólann í New York. Hann hefur verið fenginn til að útsetja lög fyrir Bette Midler, Judy Collins og Barry Manilow, svo nokkrir séu nefndir — og hafa færri komist að en vilja. Nýjasta verk hans er Sónata fyrir píanó og hund, 35 mínútna langt í fjórum þáttum. Aðalhlutverkið er í höndum/loppum hundakórs. Og til að tryggja sér lagvissa hunda hefur Nurock að undanförnu lagt á sig mikla vinnu, bæði við að ræða við hundaeigendur og þjálfa hundana í einkatímum. — Þetta er ekki sjóbísniss, segir Nurock, heldur framhald á fjórtán ára langri tilraunastarfsemi hans með náttúruleg hljóð; hann gengur sem sé út frá því, að hverskonar hljóð geti verið músíkalskt. Hann hefur áður flutt tónlist með dýrum. í fyrra kom hann fram í dýragarðinum í Bronx í New York ásamt kór ugla, úlfa og smáfugla og síðan aftur í dýragarði i Chicago. Þar voru flytjendur með honum órangútanar og naggrísir. Ekki er allt gull 1 sem glóir Rauðvínsáhugamenn nokkrir í New York þóttust hafa himinn höndum tekið þegar þeim bauðst nýlega að kaupa 29 kassa af fágætu frönsku rauðvíni, Chateau Mouton-Rothschild ’75, fyrir sem svarar 1600 krónur flöskuna. En þá komst vín- og tóbakseftir- litið í málið og upplýsti, að þetta gæðavín væri í rauninni kaliibrn- Þorgrímur Gestsson fyrir framan hljóðnemann „Þetta er spennandi starf og það þarf mikla þjálfun til að veröa skikkanlegur útvarpsmað- ur. Ég veit ekki hvort ég næ því á þeim sex mánuðum, sem ég verð hér“. Svo mælti Þorgrímur Gestsson, nýbakaður fréttamaður útvarps, í samtali við Helgarpóstinn. En les- endur biaðsins kannast mætavel við Þorgrím, þar sem hann hefur starfað þar undanfarin þrjú og hálft ár. En nú er hann sem sé í sex mánaða leyfi. Af Þorgrími er það annars að segja, að hann fæddist í Dan- mörku fyrir rétt tæpum 36 árum, þar sem foreldrar hans voru við nám. Hann dvaldi þar þó ekki lengi, því þrem mánuðum síðar flutti hann heim. „Ég kom heim í septémber í pappakassa með flugvél frá breska hernum“, sagði Þorgrímur. Hann ólst fyrst upp á Hofteign- um, en flutti síðan til Hafnar- fjarðar og loks aftur til Reykja- víkur, þar sem hann stundaði sitt nám. Fyrst var það Laugarnes- skólinn, síðan landspróf í Voninni og loks Kennaraskólinn, þaðan scm hann útskrifaðist vorið 1967. Sæljón leggja í langferð „Þetta verður heljarökutúr, næstum fimm þúsund kílómetra langur“, sagði Addie Jepsens sæljónaeigandi frá Danmörku í nýlegu blaðaviðtali. Hér að ofan sjáum við eitt af þessum ágætu Ijónum, en Addie á alls þrjú stykki, sem öll eru ættuð frá Patagóníu, syðsta odda Argentínu. Addie sló á sínum tíma stórt lán í banka til þess að kaupa sæljónin, en nú hafa þau heldur betur borgað sig. Addie var með þau í finnsku hringleikahúsi á sið- asta vetri og einnig hafa þau komið fram í París. Núna er ferðinni hins vegar heitið norður á bóginn, til Kirkenes, sem liggur Noregsmegin við landamæri Sovétríkjanna. Það getur verið gaman að vera sæljón. Svona eiga foreldra- fundir að vera Skólastjóri nokkur í Providence Rhode Island í Bandaríkjunum var nýlega víttur af fræðsluyfirvöldum þar í borg fyrir að ganga of langt í að stríða félaga sinum, sem er skólastjóri í öðrum skóla þar. Sá vítti hafði nefnilega sent fé- laga sínum svokallað „bellygram“ (fáklædda magadansmær) og ætlast til að stúlkan skemmti skóla- stjóranum á skrifstofunni. En þetta kvöld var einmitt foreldrafundur í skólanum og magadansmærin tafðist á leiðinni. Foreldrarnir voru því mættir, alls um eitt hundrað manns, og sátu andagtugir þegar stúlkan birtist skyndilega á sviðinu í samkomusalnum, svipti af sér yfirhöfninni og dansaði inn á milli gapandi foreldra íklædd aðeins brjóstahaldara og nærbuxum. Skólastjóranum var ekki skemmt. Já, herra dómari íbúar við Hamlin-flóann um 200 mílur suður af Perth í Ástralíu, kvörtuðu nýlega við yfirvöld vegna gríðarlegs fnyks, sem lagði um tvo kílómetra inn í land. Dauður hvalur í fjöruborðinu reyndist orsök ó- daunsins, og yfirvöld sýslunnar Föstudagur ískt sull, sem i mesta lagi væri 100 króna virði pr. flösku. Miðarnir höfðu verið sérstaklega prentaðir fyrir popplistamanninn Andy Warhol og stolið frá honum. Þrír menn sitja í tugthúsi ákærðir fyrir svindlið. Ferlegur fnykur Þrítug kona í Aþenu í Grikklandi var nýlega dæmd til átján mánaða fangelsisvistar fyrir hór. Félagi hennar í glæpnum var dómari, sem skömmu áður hafði sýknað hana af samskonar ákæru. 8. aprfl 1983 JpiSsturinn Fleksness á fjalirnar Norðmenn fá bráðum tækifæri til að endurnýja kynni sín af spé- fuglinum Fleksnes, eftir árs hvíld. Rolv Wesenlund hefur nefnilega þegið boð um að leika hetjuna á leiksviði. Frumsýningin verður í Tönsbergi þann 29. júní í sumar. Að frumsýningunni lokinni verður haldið á flakk um allan Noreg, uns komið verður við í Gautaborg í Sví- þjóð. Það er danskur leikhúsmað- ur, sem átti þessa snjöllu hugmynd. Geri aðrir betur. segir Þorgrímur Gestsson nú situr í útvarpinu Þorgrímur fór síðan beinustu leið upp á Varmaland í Borgar- firði, þar sem hann kenndi i einn vetur. „Ég byrjaði síðan á Alþýðu- blaðinu árið 1968 og var þar til haustsins 1970. Þá gat ég ekki lengur á mér setið og réðist sem kennari til Akureyrar, þar sem kon- an mín var að klára menntaskól- ann, og ég kenndi þar í eitt ár“. Blaðamennskan var þó ekki langt undan því í apríl 1972 fór hann aftur á Alþýðublaðið, sem þá var undir ritstjórn Gísla Ástþórs- sonar. En hvers vegna blaða- mennska fyrir kennaramenntaðan manninn? „Ég hef oft velt því fyrir mér“, sagði Þorgrímur. „Ég hafði alltaf gaman af að skrifa þegar ég var í skóla og hafði gaman af íslensku máli. Ég þóttist hafa sæmilega til- finningu fyrir því, ekki síst vegna þess að ég ólst upp nálægt afa mín- um, sem kenndi mér að meta góðar bókmenntir“. Haustið 1975 gafst hann svo end- anlega upp á Alþýðublaðinu og fór austur á Hallormsstað, þar sem hann kenndi næstu tvö árin, eða þar til hann fór til Noregs og settist þar í blaðamannáskólann í Osló. í Noregi var Þorgrímur í tvö ár og þegar heim kom hóf hann störf á Helgarpóstinum. En þaðan er hann svo farinn að sinni, eins og áður segir. En er mikill munur á því að skrifa í blöð og að skrifa fréttir fyrir út- varp? „Já. Stóri munurinn er sá, að hér (á útvarpinu) er skrifað miklu knappara og allt er mælt í mínút- um. A blöðunum er maður að snúa mæltu máli i ritmál, en hér þarf að skrifa gott talmál, þannig að það komi vel út í munni þess, sem les“, sagði Þorgrímur Gestsson, fyrrum HP-maður og nú fréttamaður út- varpsins um sinn.‘ höfðu samband við sjóherinn í þeirri von að hann kynni ráð við vandanum. Sjóherinn sendi niður- rifsflokk á staðnum, og hann kunni ráð: Sprengiefni var hlaðið á risa- stórann hvalskrokkinn og hann sprengdur í loft upp, þannig að rotnandi hvalspik slettist yfir yfir- stéttarhverfið næst ströndinni... Danmörku, sem var dæmdur í 15 mánaða fangelsi. Hann hafði nefnilega stundað þá vafasömu iðju að selja alls kyns þýfi úr gulli og silfri fyrir kunningja sinn. Kunningi þessi bjó ásamt vin- konu sinni hjá pensjónistanum og voru þau háð lyfjum. Til þess að hafa efni á eitrinu, stal kunninginn og stal og fékk öryrkjann til að selja fyrir sig. Sá heimtaði 10% af ágóð- anum, og þegar hann náðist, hafði hann fengið 3500 Dkr. í sinn hlut. Ætli hjarta mannsins kælist ekki aðeins í fangelsinu og þar lærist honum vonandi, að þótt gull glói svona á stundum, glóir það ekki til endimarka veraldarinnar. Það eru aðeins demantar, sem eru eilífir, ef svo má segja. Þegar hjartað bregður fyrir þig fætinum Stundum getur stórt hjarta orðið dýrt spaug. Hann fékk svo sannar- lega að reyna það á dögunum, 53 ára gamli örorkulífeyrisþeginn í Frakkinn Patrick Knaff er ein- fættur, en hann lætur það ekki aftra sér frá skíðaiðkunum. Á myndinni hér að ofan sjáum við hvar hann brunar niður brekku á franska skíðastaðnum Les Arcs. Ferðin er hvorki meira né minna en 170 km á klukkustund og mun það vera nýtt heimsmet hjá einfættum skíðamanni.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.