Helgarpósturinn - 08.04.1983, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 08.04.1983, Blaðsíða 11
11 lelgar pösturinn Föstudagur 8. apríl 1983 Jóhanna sýnir í Nýlistasafninu glettni og ábyrgð Jóhanna Kristín Yngvadóttir sýnir um þessar mundir í Nýlista- safninu og reisir við heiður þess, sem féll kannski aldrei; nema fall sé til þess eins að hægt sé að rísa upp aftur. Og það er það yndis- legasta við fallið. Jóhanna Kristín Yngvadóttir er hins vegar rísandi listakona. Þegar gesturinn kemur inn á sýningu hennar berst á móti hon- um sá „maleríski andi“ sem hefur horfið að mestu úr andrúmslofti myndlistarinnar. Og þú finnur að „málari er að koma heim til Islands eftir nám erlendis“. Það er þetta. Góðu heilli finnurðu líka að hæfileikana skortir ekki. Samt er það fremur æska en þroski sem birtist auganu. Æska en um leið verki. Jóhanna málar manna- myndir. > Þetta eru fáar myndir, en þær nægja til að „gefa mynd“ af lista-, konunni. Viðfangsefni þeirra er svipað: það að binda litina í líkamsmyndir manna, en leyfa þeim samt að leika dálítið lausum hala um Ieið, og freista þeirra. Myndlist Jóhönnu er glettin en ábyrg. Bros er sjaldgæft í íslenskri myndlist. I íslenskri myndlist er munnur fólks saman saumaður, líkur striki fyrir neðan nefið, varirnar holdlausar, svipurinn grimmdarlegur. Munnur á mönn- um í íslenskum málverkum hefur aldrei tekið meiri þróun en munn- ur á barnateikningum. En hjá Goya til þeirra og hóf þá upp í enn hærra veldi. Hjá Jóhönnu er það einkum „mosagræni“ liturinn, enda fer litaval hennar saman við það framboð lita sem er á boðstól- um í íslensku umhverfi. Hún læt- ur fólkið þá kúra saman í gjólu ofan á þessum lit og kallar mynd- ina Vor. En hún kann líka að slíta litinn frá hinni beinu skírskotun: til vors sem er nývaknað, hún kann að gera litinn sjálfstæðan þar sem hann ríkir einvörðungu af því að hann þarf á sjálfum sér að halda. Um leið er kominn vísir að sjálfstæðri list. Litirnir og formin fara að segja: Ég er ég, en jafnframt þær að- stæður sem ég bý við. Svo er það hlutverk þjóðarinnar að hlú að fáum blómum en fögrum og láta arfann eiga sig. Þó hefur arfarækt ætíð verið stunduð þegar „kreppa" er í túnum. Stúdentaleikhúsið verður með sérstaka Brecht dagskrá í Félagsstofnun stúdenta á sunnudags og mánudagskvöld kl. 20. Dagskráin ber yfirskirftina „Lofgjörð um efann“ eftir samnefndu ijóði. leiknir verða þrír einþáttungar: Betlarinn og dauðahundurinn, Hinn jákvæði og hinn nei- kvæði, og Spæjarinn. Tveirfyrrnefndu þættirnir hafa aldrei verið fluttir hér á landi áður. Auk þess verður lesið upp úr Ijóðum og smásögum Brechts og Sigurún Björnsdóttir syngur nokkur lög úr verkum hans. Sigfús Daðason skáld flytur svo tölu um höfundinn. ÍSLENSKA ÓPERAN Óperetta Gamanóperetta eftir Gilbert & Sullivan Sýning laugardag kl. 21.00. Sunnudag kl. 21.00. Miðasalan er opin milli kl. 15.00-20.00 daglega. Simi 11475. tengsl við hið sígilda litaval. Hún ber á gunnfána sinn (sem mál- verkið er ætíð) svartan lit, þann lit sem er göfugastur allra lita, vegna þess að hann hrindir sjaldan öðr- um litum frá sér. Styrkur hans er ekki aðeins í tigninni, ofurmætt- inum, heldur í því að hann getur tekið alla liti í faðminn, ef málar- inn kann að kynna hann almætt- inu af einlægni og tilgerðarleysi. Líkt og fjölmargir og flestir málarar með og eftir komu impresionismans beitir Jóhanna penslinum þannig að hún teiknar með honum, pensilstrikin eru auðsæileg, þau tjá tilfinningaleg- ar hræringar, rífa upp lit og sýna hvaða litur er undir litnum; og penslinum er beint af miskunnar- leysi að myndfletinum. Hér er ekki verið að draga með pensli samræmdan myndflöt þar sem pensilstrikin sjást ekki, þannig að undirstaða formanna verði að ómælishafi, kyrru og lygnu, en djúpu og kynlegu; þannig mynd- flötur er haf ómælisvíddarinnar. Nei. Jóhanna er að mestu í ölduganginum, hverfulum svift- ingum litabrimsins, sem hún hem- ur þó með vitsmunum þess sem hefur næmt myndauga. Hún veit að brimið er í sama lit og hafið. Briminu berast engir aukalitir þótt hafið rjúki upp. Enginn ætti samt að halda að Jóhanna máli sjávarmyndir. Hér er aðeins tekin líking til stuðnings, svo hugur lesandans sjái það í hugmynd sem auga mitt sá á mál- Jóhönnu brosir fólk - og munn- lagið er frá Hals komið, enda eng- in furða því hún nam í Hollandi. Brosið er léttlyndisbros, saklaust og kannski örlítið reynslulaust; blessunarlega laust við hinn ábyrgðarfulla munnsvip íslenskra „málverkaðra manna“. Svo er Iíka hitt að hún „málverkar“ ekki manneskjurnar þannig að þær verði uppstilltar, líkt og þær hafi farið til ljósmyndara af þeirri þrá að „fá að sitja fyrir“ einu sinni á ævinni. Af slíku hefur þó íslensk mannamyndalist þjáðst; hún hef- ur verið of mikið undir áhrifum ljósmyndaranna sem störfuðu hér kringum aldamótin. fslenskir málarar hafa kannski numið í Kaupmannahöfn eða París eða í Berlín, en þegar þeir fóru að mála mannamyndir voru þeir ævinlega gæddir í senn anda mannsins sem kom úr sveitinni til að „sitja fyrir, stjarfur á svip með munnstrik fyr- ir neðan nefið“ og anda ljós- myndarans sem hafði sest að í Borgarnesi og „ stillti upp“ fyrir framan vélina. Ljósmyndin hefur því haft meiri áhrif á íslenska myndlist en haft er á orði. Eins og ég sagði er andrúmsloft málverksins í Nýlistasafninu, og hin sígilda litameðferð gægist hvarvetna í gegnum „tjáningu“ geðsveiflanna. Þarna örlar á hin- um djúpu, mögnuðu litum sem niðurlandamálararnir gripu svo oft til, hvort sem þeir hétu Brouwer eða Hals, og síðan greip LEiKFÉLAG REYKJAVÍKUR SÍM116620 Skilnaður ÍSj* þriðjudag kl. 20.30. fáar sýningar eftir. Jói föstudag kl. 20.30 Síðasta sinn. Salka Valka laugardag kl. 20.30 Guðrún 7. sýn. sunnudag kl. 20.30. Hvít kort gilda. 8. sýn. miðvikudag kl. 20.30. Appelsínugul kort gilda. Miðasala í Iðnó kl. 14-20.30. HASSIO HENNAR MÖM Miðnætursýning i Austurbæjarbíói Laugardag kl. 23.30. Fáar sýningar eftir. Miðasala í Austurbæjarbíói kl.16—21. Sími 11384 fiMÓÐLEIKHÚSW Silkitromman í kvöld kl. 20 sunnudag kl. 20 Síðasta sinn Lína langsokkur laugardag kl. 15 Uppselt sunnudag kl. 15 Oresteia 8. sýning laugardag kl. 20 Þeir sem eiga aðgangskort á þessa sýningu athugi um breyttan sýningardag Litla sviðið: Súkkulaði handa Silju þriðjudag kl. 20.30 Miðasala 13.15-20. Sími 1-1200. RNARHÓLL VEITINGAHÚS A horni Hverfisgötu og Ingólfsstrcetis. s. 18833. 9 HVERJU SPÁIR ÞÚ? Kosningagetraun Frjálsíþróttasambands íslands er einföld Leikurinn er fólginn í því að giska á hvað flokkarnir fái marga þingmenn í komandi alþingiskosningum. Hverjir fá pottinn? Miðinn kostar 50 krónur og fara 20% af andvirði seldra miða í vinninga, þannig að seljist 50 þúsund miðar verður potturinn 500 þúsund, sem þeir get- spöku skipta á milli sín. Seljist 100 þúsund miðar verður potturinn 1 milljón o.s.frv. Allir skilmálar eru á miðanum. Gott málefni Frjálsíþróttasambandinu er nauðsyn að efla fjárhag sinn til að geta sinnt öflugu starfi í þágu æskunnar í landinu. Allar tekjur af getrauninni fara til þess að efla íþróttastarfið. Takið þátt í að efla íþrótta-. starfið Takið þátt i leiknum. Sölukerfi- sölustaðir Félagar í íþróttahreyfingunni o.fl munu sjá um sölu miöanna alveg til kl. 19 á kjördag. Hægt verður að skila útfylltum miðum nú þegar í íþróttamiðstöðinni og hjá Samvinnuferðum, Austurstræti. Á kosningadag- inn verður hægt að skila seðl- um ( sérstaka stampa við fiesta kjörstaði. Hverju spáir þú um kosningarnar? Það er spurningin. Við spáum því að potturinn verði stór. Frjálsíþróttasamband íslands, íþróttamiöstööinni í Laugardal, sími 83386.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.