Helgarpósturinn - 23.06.1983, Side 2
Fimmtudagur 23. júní 1983
JaÉ.
iar- - ~
isturinn
Ferðagetraun
Helgar ~
pústurinn
og Ferðaskrifstofan
Vinningur er 3 vikna
ferð tii Mallorka
Getraunin er mjög einföld og allir hafa rétt til þátttöku án nokkurra skilyröa.
Lagðar veröa fyrir ykkur 12 spurningar í 4 blööum, 3 spurningar í hverju blaöi;
þiö krossið viö réttu svörin og sendið alla seölana ásamt nafni og heimilisfangi
til Helgarpóstsins. Vinningur verður dreginn út 1. júlí.
12. Kvikmyndaleikar-
inn frægi Eroll Flynn
10. Hvað heitir sæ- dýrasafnið fræga á Mallorka? 11. Hver er stærst Baleares-eyja? stað á Mallorka sem hann gisti hvenær sem færi gafst.
Son-Amar □ Ibiza □ El Arenal
Alfabia □ Mallorka □ Palma Nova
Marineland □ Menorka □ Puerto de Andraitx
Nafn:
Heimilisfang:
Póststöð •'
hafa beitt sér fyrir því að Helgi var
valinn sem bankastjóraefni Fram-
sóknarflokksins og þurft að hafa
töluvert fyrir því, þar sem hann hafi
þá í leiðinni þurft að ganga fram
hjá gamalreyndum bankamönnum
eins og F.inari Ágústssyni og Jó-
hannesi Elíassyni, sem mörgum
flokksmönnum þá þóttu betur að
stöðunni komnir....
pi Úr fjölmiðlaheiminum er það
J að frétta að Leo Löve, eigandi
ísafoldarprentsmiðju mun
ekki ætla að láta staðar numið við
þátttöku í útgáfu á nýju tímariti um
sjávarútvegsmál (sjá viðtal bls. 3).
Er sagt að hann renni hýru auga til
myndbandamarkaðarins og hafi á-
huga á framleiðslu á myndbanda-
efni fyrir sjómenn, sem yrði þá
væntanlega í bland, fræðsluefni,
skemmtiefni og auglýsingar.
Helgarpósturinn hefur fengið
/ J ítrekaðar staðfestingar á
S' klausu í síðasta blaði um
jarðhræringar þær sem standa nú
yfir innan Framsóknarflokksins,
þar sem Steingrímur Hermannsson
er stöðugt að tryggja völd sín með
stuðningi SÍS-manna á kostnað Ól-
afs Jóhannessonar og stuðn-
ingsmannaliðs hans í Reykjavík og
berlegast kom fram á aðalfundi
fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í
Reykjavík á dögunum. Ólafsmenn
segja hins vegar að þetta sé aðeins
lognið á undan storminum. Þeir
hafi ekki safnað liði fyrir þennan
fund, þar sem þeir hafi haft ávæn-
ing af því að SlS-menn væru reiðu-
búnir að koma til starfa I flokknum
á ný eftir að hafa verið í fýlu frá því
talsvert fyrir kosningar. Sú fýla
beindist að Ólafi Jóhannessyni fyr-
ir að gefa aftur kost á sér, þar sem
hernaðaráætlun SÍS-manna hafi
gengið út á að Guðmundur G. Þór-
arinsson skipaði fyrsta sætið á list-
anum og Þorsteinn Ólafsson annað
sætið. Reykjavíkurlið Ólafs átti
þannig ekki von á því að SÍS-menn
myndu láta til skarar skríða á þess-
um fundi. En einkum sjá þó Ól-
afsmenn ofsjónum yfir því að -
Bjarni Einarsson skyldi vera kjör-
inn formaður fulltrúaráðs Reykja-
víkur félaganna þegar hann sem
forstöðumaður byggðaáætlunar-
deildar Framkvæmdastofnunar
hafi það nánast að atvinnu að vinna
gegn hagsmunum Reykvíkinga.
Segjast Ólafsmenn ekki vera búnir
að segja sitt síðasta orð í þessari
viðureign...
^ 1 F framhaldi af þessu. Átökin
/ A á fulltrúaráðsfundinum hafa
ekki alveg verið gamanlaus
þótt ekki hafi það gaman verið vilj-
andi. Svo mikið var kappið i upp-
stokkuninni í helstu trúnaðarstöð-
um fulltrúaráðsins, að Kristinn
Finnbogason var felldur úr hús-
byggingasjóði fulltrúaráðsins sem
hefur með rekstur húseignarinnar
að Rauðarárstíg að gera. Menn
gáðu ekki að því, að kjörtímabil
Kristins rennur hins vegar ekki út
fyrr en að ári, og ætlar Kristinn víst
að sitja sem fastast. SÍS-maðurinn -
Tómas Óli Jonsson (Kjartanssonar
í ÁTVR) sem kosinn var í Kristins
stað, verður því að bíða annars
vitjunartíma. Inn í þetta mál munu
fléttast fjárhagsvandræði Tímans.
Skuldir blaðsins eru nú að nálgast
40 milljónir. Sambandið mun hafa
gefið vilyrði fyrir láni til Tímans til
að laga stöðu hans en hafa viljað fá
veð fyrir láninu í húseigninni að
Rauðarárstíg. Kristinn Finnboga-
son mun hins vegar hafa farið fyrir
þeim mönnum innan húsbygginga-
sjóðsins, sem ekki vildu láta meiri
veð af hendi i húsinu, þar sem slíkt
væri tæpast verjandi og gæti leitt til
þess að flokkurinn missti þessa
eign...
Enn um fulltrúaráðsfundinn.
Y ) Það mun hafa vakið talsverða
J athygli er Helgi Bergs Lands-
bankastjóri sté þar í pontu og gekk
til liðs við þau öfl sem þar unnu fyr-
ir opnum tjöldum gegn Ólafi Jó-
hannessyni. Ólafur á þá að hafa
farið upp og svarað fyrir sig með
þeim hætti að bankastjórinn fór
ekki aftur I pontu. Fundarmönnum
mun hafa þótt þetta töluvert
dramatísk orðaskipti, minnugir
þess að Ólafur mun á sínum tíma
9
Þau tíðindi gerðust í tölvu-
// heiminum á íslandi að
stærsta tölvufyrirtæki lands-
ins, EBM, missti af samningi við
Reikningsstofnun bankanna sem
ætlar sér að koma upp nýjum og
fullkomnum tölvubúnaði. Mikil
samkeppni var milli tölvuframleið-
erida um samninginn við bankana,
en Einar J. Skúlason mun hafa haft
best í því og verður tölvubúnaður
sem það fyrirtæki hefur umboð
fyrir valið í bankastofnunina. Vel
kann að vera að það hafi svo enn
meiri áhrif á tölvumarkaðinum hér-
lendis og fylgir sögunni sem Helg-
arpósturinn heyrði að eftirspurn
eftir tölvum hefði stóraukist hjá
Einari eftir að það tók að kvisast að
bankarnir myndu semja við fyrir-
tækið.
Fyrir skömmu var Fokker
f'J flugvél frá Flugleiðum hf.
y stödd á ísafirði. Þegar halda
skyldi þaðan fór annar hreyfill vél-
arinnar ekki i gang og ekki annað
sýnna en að vélin yrði að vera á ísa-
firði uns flugvirkjar kæmu úr
Reykjavik og gerðu við hana. Með-
al farþega í vélinni voru hins vegar
knattspyrnustrákar úr Garðabæ og
brá einn þeirra sér út og tókst á
skömmum tíma að gera við hreyfil-
inn og koma honum í gang og var
síðan flogið suður eins og ekkert
hefði í skorist. Fylgir það sögunni
að farþegum hafi verið um og ó, en
skylt er einnig að láta þess getið að
knattspyrnumaðurinn mun hafa
verið flugvirki að menntun.
Að sögn kunnugra manna í
f J atvinnurekstri hefur borið
J töluvert mikið á því að eig-
endur jafnvel gamalla og gróinna
fyrirtækja eru að missa móðinn og
leita eftir kaupendum. Margir
munu hafa beðið eftir kosningum
og stjórnarskiptum, en ekki virðast
atvinnurekendur hafa mikla trú á
ríkisstjórn þeirri,sem nú er nýlega
tekin við, þar sem vilji þeirra til þess
að losna út úr atvinnurekstrinum
mun hafa aukist verulega eftir
stjórnarskiptin. Er sagt að þeir sem
vilja hafa til þess að standa í at-
vinnurekstri og fást við skuldabasl
hafi óvenjulega góð tækifæri til
þess að eignast fyrirtæki um þessar
mundir og þurfi í flestum tilfellum
ekkert að borga út við yfirtöku
fyrirtækjanna og í allmörgum til-
vikum er ekki um aðrar greiðslur að
ræða en yfirtöku skulda.
Viðari Eggertssyni leikara
f' 1 hefur verið boðið á leik-
listarhátíð í Edinborg, sem
haldin verður í sumar,að vera þar
með „einleik". Þessi hátíð er mikill
viðburður í leiklistarheiminum og
víst er að færri komast að en vilja;
mikill fjöldi umsókna berst á ári
hverju. Fyrir tveimur árum var Við-
ar með sérstæðan performans í Ný-
listasafninu, Ekki ég... heldur... en
hann var lauslega byggður á ein-
þáttungi Becketts; Ekki ég og varð
þess valdandi að Viðari var boðið á
hátíðina. Svo skemmtilega vill til að
Viðar leikur einmitt í þessum ein-
þáttungi Becketts í Stúdentaleik-
húsinu nú um helgina, en hann er
þó mjög ólíkur þeim performansi
sem Viðar flutti um árið...