Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 23.06.1983, Qupperneq 21

Helgarpósturinn - 23.06.1983, Qupperneq 21
XS&tt- ceer inii'i es luscbuírnmR if-jnn Prrnrnt'udágúr '2~3. jum T98'3 21 möguleikana á störfum, fara á vinnustaði, tala við atvinnuveitendur og starfsfólk, kynna sér kröfur um menntun eða þjálfun, kjör o.þ.h. Valkostirnir eru skoðaðir en ekki fyrr en hver og einn hefur komið sér niður á braut sem hentar — ekki aðeins á hagnýta veginn, heldur líka hvað varðar löngun, metnað og þá manngerð sem um er að ræða hverju sinni. Hvert námskeið tekur sex vikur. Það má ekki vera of langt, vegna þess að annars mynd- ast sú hætta að fólk fari að nota þau sem ein- hvers konar hækju. Þessi stofnun er ekki öxl til að gráta á, hún er „startlína“. Og taktu eftir því að þetta er ekki stofnun fyrir fólk með sál- ræna kvilla — við vísum veiku fólki til sál- fræðinga, það á ekki erindi til okkar.“ Að vera fyndin Það kemur í ljós að námskeið Alene eru fyrirmynd stofnana víðar, m.a. í Mexico. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra, bæði um nám- skeiðin sérstaklega og um konur og raunar fjármagnað sína ráðgjafastöð með fyrir- lestrahaldi að miklu leyti. „Öll börnin okkar hafa farið í gegnum háskóla — og trúðu mér, það er afar dýrt að hafa börn í háskólum í Bandaríkjunum — á fyrirlestrapeningum. En nú eru þau að útskrifast og ég er hætt að nenna að ferðast vítt og breitt til að halda ræð- ur fyrir greiðslu. Það er sjálfsagt að reyna að græða peninga en það þarf að hafa tilgang, verðugan tilgang. Það hringdi til mín maður frá Acapu lco og bauð mér að koma og tala. Hann ætlaði að borga mér þúsund dollara fyrir. Og um hvað á ég að tala? Um konur! Mér er sagt, sagði þessi maður, að þú sért svo skemmtileg og okkur vantar einhvern á þessa ráðstefnu til að vera skemmtilegur. Og á ég sem sagt að vera fyndin um konur.spurði ég. Já! En ég er hætt að vilja halda erindi eða ræður, ég hef engan áhuga á að fljúga alla leið til Mexico til þess, það fer of mikill tími í það. Maðurinn hélt ég væri að prútta um verð og hann bauð mér alltaf meira og meira og ég hélt áfram að segja nei. Hann bara skildi ekki að ég vildi ekki koma, alveg sama hvað ég fengi mikið fyrir vikið! En þetta með að vera fyndin um konur — húmor getur oft verið sár líka og ég get verið mjög fyndin, þó þannig að það komi við kvik- una á fólki. Og ég hef oft haldið fyrirlestra um konur. Ég er alltaf að segja bisnissmannaráð- stefnum frá því að það borgi sig að ráða kon- Alene H. Moris var boðið af Kvenréttindafélagi íslands að kynna hugmyndir sínar og aðferðir fyrir félögum KRFÍ, en félagið hefur í hyggju að hefja sambœrilega ráðgjafaþjón- ustu fyrir konur. Myndin var tekin á Hallveigarstöðum á tveggja daga námskeiði, sem Alene hélt þar í vikunni fyrir væntanlega leiðbeinendur. ur, að það sé kominn tími til að þær fái notið sín og hafi áhrif á gang mála. Ég er mikill feministi. Einu sinni hélt ég ræðu á ráðstefnu í Ari- zona. Um konur. Hvernig þeim væri neitað um að vera þær sjálfar. Það sat fullorðinn maður, greinilega efnamaður, beint fyrir framan mig í salnum og í miðri ræðunni sé ég hvar hann byrjar að gráta! Tárin bara streymdu niður kinnarnar á honum. Mér fannst það dálítið skrýtið, vissi ekki hvort það var vegna einhvers sem ég var að segja, eða yfirhöfuð hvað olli þessu. Ég hitti hann ekki, hann var farinn þegar kom að matarhléi. Nú, nokkrum mánuðum seinna,var ég stödd í Pheonix í Arizona. Þegar ég kem inn á hótel- ið, bíður mín bréf. Það er þá frá þessum manni, hann skrifaði og sagðist vera sá sem fór að gráta og hvort hann mætti hitta mig, bað mig að hringja í sig á skrifstofuna. Þá kemur í ljós að þetta er bankastjóri; ég heim- sótti hann á skrifstofuna, hún var á efstu hæð í skýjakljúf, og þegar hann sá mig, fór hann aftur að gráta! Einkaritararnir hans vissu ekki hvert þeir áttu að snúa sér! Við setjumst inn og þá biður hann mig afsökunar á tárunum, „ég hef líklega grátið svona þrisvar síðan ég var strákur og ég hálfskammast mín en ræð ekki við þetta“ Svo segir hann mér hvernig stendur á þessu. Hann hefði tekið doktors- próf i hagfræði frá Harvard, gifst námsmey frá Radcliffe, sem er einn besti kvennaháskóli Bandaríkjanna — fallegri, gáfaðri stúlku og þau hefðu verið hamingjusöm, áttu börn saman, voru efnuð... þetta var eins og draum- ur að rætast, ha? Nú, svo fóru börnin og þá kemur konan til mannsins og segist ætla í há- skóla aftur, taka seinnihlutapróf. Hann skildi ekki hvers vegna — hvað ætlaðirðu ekki að fara að láta mála og yfirdekkja? þú veist, svona gerði góðlátlegt grín að þessari hug- mynd. Hún hætti við. Til að gera langa sögu stutta, þá fór konan á geðsjúkrahús upp úr þessu, var þar í tvö ár án þess að segja eitt ein- asta orð! Síðan voru liðin 7 ár og hún búin að vera heima, fámál, þjónustufólkið gerir það sem þarf að gera, hún svona vafrar um húsið. Hann skildi aldrei hvernig stóð á þessu, ekki fyrr en hann heyrði ræðuna mína. Þá skildi hann að hann hafði meinað henni að nýta sér hæfileika og getu, í rauninni hafði hann bann- að henni að halda áfram að þróast, breytast og þroskast. „Þetta var mér að kenna“, sagði hann. „Þegar þú varst hætt að tala, fór ég beint heim og bað hana afsökunar. Ástæðan fyrir því að ég bað þig að hitta mig er að mig langaði til að segja þér frá þessu og ég vil að þú segir þessa sögu hvenær sem þú getur svo aðrir geti lært af henni“. Þú getur ekki ímyndað þér hvað það er mik- ið af svona konum í Ameríku. Konum, sem eru að streitast við að vera eitthvað allt annað en þær sjálfar. Kunna ekki að meta sjálfa sig, vita ekki hvað þær gætu gert, treysta sér ekki. Þessu þarf að breyta“. Ms n t*allorC<? GR KOMIÐ UT Fæst í bókaverslunum, blaðsölustöðum, og hjá kvenfélögum um allt land. wnnlíSp0 08 Zta fo sa«ta allra osS>0^Ve^^ Afe,sí lalaUS‘ og bótela búöa L sW^a**’ VKasem fZer to *** paL"heita sern -0 url rétt v s MflX* mt ta* vl 08 jegto» b0g vi»s‘^lgraVa- g ske,rl"'",;<}ií 08 io'11' ,„,<«■ rn%i«.....................fr«*“ b P a o g( ótal lrntilegar ■] hW ***$£$$&

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.