Helgarpósturinn - 23.06.1983, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 23.06.1983, Blaðsíða 23
23 -^|^|£^^-^^Fin'iniUjdagu^23JúnM983^ dr.lngvar 4 Ingvar Birgir Friðleifsson við Helgarpóstinn. „A þessu ári voru 6 styrkþegar Háskóla Sam- einuðu þjóðanna á íslandi í 6 mánaða þjálf- un: Þeir komu frá Filipseyjum (3), Eþíópíu (2) og Kína (1). Þá komu styrkþegar til 2—3 mán- aða námsdvalar frá Portúgal (1) og Hollandi (2). Auk þess verða hér í 2—3 vikur sérfræð- ingar frá Costa Rica (1), Nicaragua (l),Eþíó- píu (1) og Portúgal (1). í fyrra höfðu alls 22 styrkþegar frá orkustofnunum 8 landa í Af- 'ríicu, Asíu og Mið-Ameríku hlotið hér 6—8 mánaða þjálfun og 8 styrkþegar frá 3 löndum hafa verið hér í skemmri kynnisferðum“. — Hvernig eru styrkþegar valdir? „Styrkþegarnir eru valdir mjög vandlega. Hér er um að ræða sérfræðinga sem hafa unn- ið við jarðhita heima fyrir i tvö ár eða lengur. Við förum til viðkomandi landa og metum á- stand jarðhita, stofnanir þær sem sjá um þessi mál og tækjabúnaðinn. Síðan er samin skýrsla um heildarástandið í landinu og mönnum boðið í þau fög sem að mestum not- um gætu komið. Yfirleitt er hér um að ræða afbragðs námsmenn sem koma hingað í flóknara nám en í sumum tilfellum kennum við frumstæðcu-i aðferðir og veitum ráðgjöf varðandi tækjabúnað“. — Hvernig fer kennslan fram? „Kennslan er sérþjálfun hvers og eins. Þetta er dýr kennsluaðferð en hún skilar miklum árangri. Þeir sem dveljast hér í 6 mánuði hlýða á fyrirlestra fyrstu fimm vikurnar. Það eru 16 sérfræðingar frá Orkustofnun og Háskóla ís- lands en einnig menn úr jarðhitaiðnaðinum, hitaveitum, verkfræðistofum o.s.frv. sem þá fyrirlestra flytja. Síðan tekur við verkleg þjálfun en einnig fræðilegt nám. Þá dvelur er- lendur gestafyrirlesari frá tveimur vikum upp í þrjá mánuði á ári við Jarðhitaskólann. Þegar á heildina er litið má segja að margir styrkþeganna séu nú þegar í fararbroddi í rannsóknum og nýtingu jarðhita í sínum þjóðlöndum. Beiðnir koma frá fjölmörgum löndum í þriðja heiminum um þjálfun sér- fræðinga i Jarðhitaskólanum en aðeins er unnt að sinna hluta af beiðnunum. Þá má geta þess að frá árinu 1951 hafa íslenskir jarðhita- sérfræðingar farið til 32 þjóðlanda sem jarð- hitaráðgjafar. Flestir þeirra hafa verið á veg- um Þróunaraðstoðar Sameinuðu Þjóðanna. Varðandi fjárframlög og árangur vil ég segja, að hverja krónu er hægt að verja; við fylgjum hverri krónu heim. Hins vegar er ég ekki hlynntur of hraðri útvíkkun. Við viljum fremur gæði en magn“, segir Ingvar Birgir Friðleifsson. Baldur 5 stunda flestir landbúnað í samvinnuþorpum sem stjórnin leggur mikla áherslu á. Þegar ég var þarna voru um 30 Norðurlandabúar að störfum og skiptust þeir í þrjá hópa. Nokkrir gegndu starfi ráðgjafa í landbúnaðar- og for- sætisráðuneytum landsins, einn fjallaði um samgöngur, annar um bókhald o.s.frv. Annar hópur starfaði í héraðskaupfélögum sam- vinnuþorpanna og sá þriðji vann við beina fræðslu". — Hvernig fannst þér að þessu verkefni staðið? „Þetta var mjög vel skipulagt og gerði mik- ið gagn. Það var líka greinilegt að landsmenn og yfirvöld Tanzaníu mátu Norðurlandabúa mikils, ekki síst vegna þess að þeir urðu ekki varir við að við værum að sækjast eftir yfir- ráðum í landinu. Ég tel það mjög viturlega ráðið hjá íslendingum að taka þátt í þessu verkefni. Með því móti öflum við dýrmætrar reynslu sem nýtist í okkar eigin þróunarað- stoð“. — Urðuð þið fyrir vandræðum vegna ætt- bálkarigs? „Nei, það hagar öðruvísi til i Tanzaniu en t.d. í Kenýa þar sem einn kynþáttur situr að flestum embættum. í Tanzaníu eru um 130 þjóðflokkar en þeir eru tiltölulega jafnstórir og nokkurt jafnræði með þeim. Enda hafa stjórnvöld lagt áherslu á að yfirfæra ætt- flokkakenndina yfir á þjóðarheildina. Það hefur tekist ágætlega og ræður þar miklu að allir landsmenn tala og skilja swahili sem er höfuðtunga landsins, þótt vitaskuld tali hver kynþáttur sína mállýsku innbyrðis“, sagði Baldur. Áskorun 10 plötusölu á Islandi i gegnum fyrir- tæki mitt. Ástæðan fyrir því er ein- föld. Þekking og reynsla á íslensk- um hljómplötumarkaði og dugnað- ur starfsmanna fyrirtækisins. Sig- urður trúir því ef til vill ekki að slík- ir hlutir einir sér geti leitt af sér ár- angur. Hann heldur greinilega að ó- heiðarleiki sé óaðskiljanlegur hluti velgengni, ekki síst ef viðskipti eru annars vegar. Hann ætti þá að upp- lýsa þjóðina um hvaða brögðum var beitt við markaðssetningu met- sölubókar hans? Hann heldur þá líka væntanlega að ég sé hér úti í Englandi önnum kafinn að múta dagskrárgerðarmönnum B.B.C. og annarra útvarpsstöðva til að koma Mezzoforte og öðrum íslenskum tónlistarmönnum á framfæri. Sig- urði til frekari glöggvunar skal ég einnig benda honum á að í opinber- um skýrslum Ríkisútvarpsins um flutning á íslensku efni er hlutur fyrirtækis míns tæplega 18 prósent. Sigurður segist hafa borðleggjandi sannanir fyrir máli sínu. Ég sé ekki að hann hafi nokkra ástæðu til að spila ekki trompinu út, fyrst slagur- inn er pottþéttur. — Varla er hann að „blöffa“. Ég skora á þig Sigurður A. Magnússon að leggja fram þessa borðleggjandi vitneskju, annars skaltu ómerkilegt lítilmenni og róg- beri heita. Ef þú sýnir ekki þann manndóm, en heldur áfram órökstuddum róg- burði, sé ég ekki ástæðu til að svara þér og aðstoða þig þannig við öflun skotsilfurs frá Helgarpóstinum. Steinar Berg ísieifsson — sign — Utanríkisstefna 15 haldið gangandi, meðan kínverskir valdhafar fylgjast með breytingum á alþjóðavettvangi. Fari svo að Reagan-stjórnin haldi fast við af- stöðu sina til sjálfstæðrar tilvistar Taiwan sem ríkis, kemst líklega skriður á viðræðurnar. Fari hins vegar svo, að Reagan, eða eftirmað- ur hans á forsetastólnum í Hvita Húsinu, dragi úr stuðningnum við Taiwan-stjórnina er ekki víst að árangur viðræðnanna verði neinn. Eflaust rekur lesendur minni til, að kínverskir borðtennisleikarar voru framverðir diplómatískrar stórsóknar Kínverja: í byrjun síð- asta áratugar. Þá var talað um ping- pong-diplómatíu. Það er dálítið skemmtileg tilviljun, að tennis- stjarnan Hu Na, sem fékk pólitískt hæli í Bandaríkjunum fyrir skemmstu, skyldi verða til þess að upp úr syði milli Iandanna tveggja. Hver veit nema það sé forboði nýrr- ar diplómatískrar stórsóknar Kín- verja inn fyrir járntjaldið. Það er áreiðanlega ekki fyrir siða sakir að leiðtogi kínverska kommúnista- flokksins heimsótti austantjalds- löndin nýverið. Það er liður í hæg- fara breytingum á utanríkisstefnu Kinverja. FÍM HAUSTSÝNING FÍM Haustsýning FÍM verður nú með öðru sniði en áður. Ákveðið hefur verið að í stað hefðbundinnar haust- sýningar verði efnt til sýningar á verkum unnum á og í pappír. Er þar átt við teikningar í svart hvítu og í lit, klippimyndir og ýmiskonar pappírsverk t.d. í þrívíðu formi, svo sem lágmyndir, svifmyndir og fleira þess háttar. Sýningin verður opin jafnt félagsmönnum FÍM sem utanfélagsmönnum og verður nánar auglýst um skilafrest, þegar nær dregur hausti. Tökum að okkur hverskonar verkefni í setningu og umbroti, svo sem: Blöð í dagblaðaformi Tímarit Bcekur o.m.fl. Ármúla 38 — Sími 81866 VELJUM ÍSLENSKT VELJUM ÍSLENSKT VELJUM ÍSLENSKT Hefur þú kynnt þér kosti og gæði Tannus teygjulakanna. Nú fástTannusteygjulökin í flest- um verslunum landsins. Taktu mál af dýnunni þinni, og fáðu þér TANNUS teygjulák því þau fást í öllum stærðum og litum og lakið hreyfist ekki á dýnunni. STÆRÐIR: □ 70X190 CM. D 80X190 CM. □ 80X200 CM. □ 90X200 CM. □ 100X200 CM. □ 120X200 CM. TEYGJULOK 100% BÓMULL FRAMLEIÐANDI: TANNUS KÓPAVOGI TANNUS teygjulökin fást í eftirtöldum verslunum REYKJAVÍK Hagkaupum Vörumarkaðinum Vefnaöarvöruversl. Laugavegi 26 Verinu Njálsgötu 86 Versl. Kristínar Snorrabraut 22 Fatabúöinni Skólavörðustlg 21a Z-brautir Ármúla 42 Árbæjarmarkaðinum JL Húsgagnadeild KÓPAVOGI Stórmarkaðurinn Húsgagnaversl. Hreiðrið Húsgagnaversl. Setriö Húsgagnaversl. Skeifan HAFNARFIRÐI Fjaröarkaup Miðvangur Versl. Einars Þorgilss. KEFLAVÍK Samkaup SANDGERÐI Versl. Aldan AKRANES Skagaver BORGARNES Kf. Borgfirðinga ÓLAFSVÍK Versl. Vík GRUNDARFJÖRÐUR Kf. Grundfirðinga PATREKSFJÖRÐUR Versl. Ara Jónssonar ÍSAFJÖRÐUR Kf. (sfirðinga BOLUNGARVÍK Versl. Einars Guöfinns HVAMMSTANGI Kf. Vestur Húnvetninga BLÖNDUÓS Versl. Vísir VARMAHLÍÐ Kf. Skagfirðinga SAUÐÁRKRÓKUR Kf. Skagfiröinga SIGLUFJÖRÐUR Versl. Guðrúnar Rögnvaldsdóttur ÓLAFSFJÖRÐUR Versl. Valberg AKUREYRI Amaró Dúkaverksmiöjan Vörubær húsavIk Kf. Þingeyinga Seyöisfjörður Versl. Aldan FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR Versl. Viðars HORNAFJÖRÐUR Kf. Austur Skaftfellinga VESTMANNAEYJAR Versl. Mózart HELLA Kf. Þór ÞORLÁKSHÖFN Versl. Inga FRAMLEIÐANDI: TANNUS DREIFING: DÝNU OG BÓLSTURGERÐIN Smlöjuvegl 28, 200 Kóp. S. 79233

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.