Helgarpósturinn - 23.06.1983, Qupperneq 16
-a
Umsjón:
Jóhanna V.
Þórhallsdóttir
T U
Stuðarinn var að væflast eitthvað vestur í
bæ eins og gerist og gengur þegar allt í einu
hann heyrir þennan tryllingslega skemmtilega
sambatakt. Og sambataktur, það er eitthvað
sem fær mann til að komast í gott skap, hann
er svo seiöandi. Innan skamms er ég komin
að J.L. húsinu og trumbuslátturinn í algleym-
ingi. Ég sá að á hurð einni stóð Svart og sykur-
laust og þangað fór ég inn.
Samba
rumba tja,
tja, tja
Já. Það er víst óþarfi að vera að draga á
langinn lengur það sem fyrir augu bar. Það var
götuleikhúsæfing fyrir sautjánda júni. En ég
hef aldrei áður séð svona hér á landi fyrr.
Þarna voru tugir barna og unglinga og meiraö
segja fullorðnir lika. Já. Þetta er svo sannar-
lega vinnustofa. Það verða ekki margir varir
við það að Stuðarinn er mættur á svæðið, allir
eru svo uppteknir. Fyrir miðju gólfinu er hin
mesta ásláttarsveit en í baksýn við hana er
stór svanur sem hefur sennilega einhvern tíma
verið bíll. Og það er veriö að æfa dans viö á-
sláttinn. (Þið vitið þessi samba...) Krakkarnir
eru einbeittir á svipinn. Tveir, tveir, snúa, dilla
mjöðmum. Þrír tveir áfram, einn og tveir.
Stuðarinn er allur á iði.
Ríó? Nei,
Reykjavik
Stelpa er að dunda sér við að klára brúðu
og stenst ekki mátið að dilla sér líka. Skiljan-
legt. Og var einhver að segja að eitthvað væri
bannað? Fáránlegt! í einu horni er stór hópur
töffarastráka, að mér sýnist. Einn er með gít-
ar. Þeir eru greinilega að biða eftir að önnur
saumavélin losni. En auðvitað eru þær upp-
teknar. Það er verið að sauma. Ein er að
sauma ballettkjól, sennilega á ballerínuna. Ella
Magg er á fullu að sauma tippi á björn. Stór-
kostlegt. Já. Ég var ekki stödd á karnivali I Rió.
Nei, ég var IJL húsinu I Reykjavík.
Stuðarinn tók upp kassamyndavélina sína
og tók að mynda allt sem fyrir augu bar, eftir
að Gíó var þess fullviss að þetta mundi ekki
birtast í blööunum fyrr en eftir 17. júní. Gíó er.
stjórnandi sýningarinnar ásamt Kollu Halldórs,
en þau voru á fullu að undirbúa. Gíó fór hægt
og rólega yfir prógrammið. Krakkarnir fylgdust
þegjandi með. Áhuginn leyndi sér ekki þau
skiptast niður i hópa, sígaunahópurinn, fjöl-
skyldan, stangabrúður. Og svo eru týpur eins
og Fýlupúkinn, Ballerfnan, Froskurinn, Löggan,
Presturinn, Skvlsan og farartæki eins og svan-
urinn og barnavagninn, svo eitthvað sé nefnt.
En jæja hvernig er þetta með unglingana á
svæðinu.
Ætti alltaf
að vera svona
Þarna eru þær Guðrún L. Gunnlaugsdóttir og
Álfrún G. Þorkelsdóttir. Þær eru frænkur, alveg
að verða fimmtán.
- Hvert er ykkar starf í sýningunni?
„Við erum fánaberar með sígaunahóp. Við
lentum þannig I þessu að verkstjórinn okkar
I unglingavinnunni bað okkur um að koma hing-
að. Svo eru líka margir krakkar hér sem við
þekkjum."
- Hafið þið lent í einhverju slíku áður?
„Nei, aldrei áður. Þetta er mjög gaman, hér
eru allir svo hressir og skemmtilegirf1
- Þegar þið eruð ekki í svona fjöri, hvernig
drepiði þá tímann á kvöldin?
„Við förum bara á tónleika, bíó og svona
ýmislegt."
- Og hvernig músík hlustíði þá á?
„Rokk og pönk, þ.e. pönk svona eins og
Þeyr spila."
- En höldum okkur viö Svart og sykurlaust.
Hvernig er það frábrugðið?
„Allir eru svo frjálsir. Svona ætti alltaf að
vera.
Allir
hjálpast að
Björn Haraldsson var i Hagaskóla I vetur en
fer I M.H. næsta vetur. Ég spyr hann hvert
hans starf sé I þessari aksjón.
„Ég geri allt mögulegt. T.d. var ég að sauma
búninga I gær. Ég verð fánaberi sem stendur
uppá Útvegsbankanum á 17."
Björn segir mér hvernig hann komst inn í
hópinn.
„Vinkona min kom mér inní þetta. Hún var
að fara á æfingu og ég var forvitinn að vita
hvað væri um að vera. Maður var ekki fyrr
kominn en maöur var settur í vinnu. Þetta er
skemmtilegt og góð tilbreyting. Ég hef aldrei
lent I slíku. Það væri skemmtilegt ef svona
gerðist oftar. Svo kynnist maður líka mörgum
krökkum."
Brynja Björnsdóttir er að sauma leðurblöku.
Hún segist vera að hjálpa til. Henni finnst
skemmtilegt hve hópurinn er góður. „Hér
hjálpast allir að“ segir Brynja. Guðjón Sig-
valdason er þarna llka. Hann ætlar að vera á
stultum. Guðjón er einn af þessum jákvæðu
mönnum á svæðinu. Það er ekki furða þótt all-
ir séu brosmildir og jákvæðir I þessum sam-
stillta hóp.
Halla Árnadóttir verður á stultum.
Hún er ekki að taka þátt I svona úti-götuleik-
húsi i fyrsta sinn, ónei. Hún var I Herranótt
og fór í aksjónina með Gránufjelaginu í mars
s.l.
Allt alveg
frábœrt
- Hvað er svona skemmtilegt við götuleik-
hús?
„Það er gaman að sjá eitthvað á islandi
sem ekki hefur verið gert áður og allir halda
að sé ómögulegt. Hér vinna allir saman og
engin vandamál, allt alveg FRÁBÆRT."
Eydfs Ólsen leikur fil. Hún hefur aldrei lent
I svona æöislegu fjöri fyrr.
Stuðarinn hefði getað haldiö áfram að tala
við fleiri ogfleiri og getur étið hattinn sinn upp
á það að flestir, ef ekki allir, hefðu haft sömu
sögu að segja. Stuöarinn óskar aðstandendum
sýningarinnar öllum til hamlngju með daginn.