Helgarpósturinn - 23.06.1983, Qupperneq 24
IMI5SAN
Sunny:
Bíll áttunda áratuaarins
Merkar fréttir úr bókmennta-
f'l heiminum: Tilnefndar hafa
verið bækurnar tvær af hálfu
fslands til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Eru það ljóða-
bókin Spjótalög á spegil eftir Þor-
stein frá Hamri og smásagnasafn
Svövu Jakobsdóttur „Gefið hvort
öðru“. Iðunn gaf út báðar bækurn-
ar í fyrra...
Svava Jakobsdóttir hefur
f' Jk reyndar nýskrifað leikrit sem
Si nefnist „Lokaæfingin" og
hefur verið æft í Þjóðleikhúsinu
undir stjórn Brietar Héðinsdóttur. -
Frumsýning verður þ. 6.
október og leikritið gefið út í bók-
ar formi sama dag..
Miklar hræringar voru á
f' \ framhaldsaðalfundi Félags
islenskra bókaútgefenda sem
haldinn var s.l. þriðjudag. Einkum
voru það tvö mál sem deilt var um:
Reglugerð fyrir bóksöluráð og söiu
bóka í bókaklúbbum. Bóksöluráð
er skipað tveimur mönnum frá Fél.
ísl. bókaútgefenda og tveimur frá
Fél. ísl. bókaverslana, og fjallar um
sameiginlega hagsmuni og fellir úr-
skurði varðandi brot á þeim sam-
skiptareglum sem í gildi eru milli út-
gefenda og bóksala. Á aðalfund-
inum sem haldinn var 19. mai var
samþykkt að frestai reglugerð-
inni , að undirlagi Jóhanns Páls
Valdimarssonar í Iðunni, þar eð ó-
nógar upplýsingar lægju fyrir. í
umræddri reglugerð segir m.a. að ef.
aðili er ákærður fyrir reglubrot skal
honum veitt áminning og ef um al-
varlegt brot er að ræða, sé honum
vikið úr félagi útgefenda eða ef um
bóksala er að ræða; hann sviptur
viðurkenningu með bóksöluleyfi.
Þegar málið var tekið fyrir að
nýju á framhaldsaðalfundinum
hafði Jóhann Páll og þeir Iðunnar-
menn sem mjög eru mótfallnir
reglugerðinni fengið próf-
essor Sigurð Líndal til að skrifa á-
litsgerð um umrædda reglugerð.
Sigurður segir í Iokaorðum álits-
gerðar sinnar að „sér virðist" sem
brýn nauðsyn sé að endurskoða
umrætt reglugerðarfrumvarp, ella
sýnist mér að vandræði kunni að
hljótast af“ Bendir Sigurður m.a. á,
að innan hvors aðildarfélags um sig
séu keppinautar og eðlilegra væri
að gerðardómur fjalli um ágrein-
ingsmál. Þá bendir hann á að orðin
„ákærandi" og „á-
kærði“ séu ekki eingöngu mjög ó-
viðeigandi heldur einnig röng. Þrátt
fyrir plagg Sigurðar urðu Iðunnar-
menn að láta í minni pokann, þvi
reglugerðin var samþykkt með yfir-
gnæfandi meirihluta...
Fimmtudagur 23. júní 1983 '
urinn
Margra ára frábær reynsla á
Sunny hefur tryggt þeim stóran
og tryggan aðdáendahóp
NISSAN
Sunny & nú nýr og endurhannaður með.
— Framhjóladrifi
— 17.5 cm. undir lægsta punkt
— Splunkunýrri sparneytinni vél sem
þó er 84 hestöfl (1500 cc) og 74 hestöfl
(1300 cc)
— Svo fallegur aö þaö eitt nægir til
þess aö falla fyrir honum
— Svo rúmgóöur og þægilegur aö þú
kemur til meö aö sakna þess aö geta
ekki horft á sjónvarpið í honum líka
Tökum allar gerðir bifreiöa upp í nýjar.
Eigum ennþá bankagreidda örfáa -
Sunny °9 & Cherry
INGVAR HELGASON
Sýningarsaiurinn/Rauðagerði slrhi 33560
Hi
/ j Fé
fja
Hitt málið á framhaldsfundi
Félags ísl. bókaútgefenda.
fjallaði um samskiptareglur
vegna^ bókaklúbba. Á nýlegum
fundi samningsnefndar útgefenda
og bókaverslana náðist samþykkt
um samskiptareglur vegna bóka-
klúbba en fóru þær mjög fyrir
brjóstið á formanni Fél. ísl. bókaút-
gefenda, Oliver Steini Jóhannes-
syni, sem gekk af fundinum og
sagðist aldrei samþykkja eða skrifa
undir samþykkt þessa.
Á framhaldsaðalfundinum kom
hins vegar Oliver Steinn öllum á ó-
vart með því að leggja fram nýja
samþykkt sem hann hafði samið og
fengið undirritaða af sjö bóksölum
af eldri kynslóðinni og situr enginn
þeirraí stjórn Fél. ísl. bókaverslana.
Voru tillögur Olivers Steins sam-
þykktar á framhaldsaðalfundinum
og urðu margir óánægðir með það.
Margir eru gramir Oliver Steini fyr-
ir að vera með sinn hvorn fótinn í
hvoru þessara félaga, því hann á -
Skuggsjá en einnig stærstu bóka-
búðina i Hafnarfirði; Bókaverslun
Olivers Steins....
Það hefur vakið athygli að
meðan ráðherrar Sjálfstæðis-
1 flokksins, þeir Matthías Á.
Mathiesen og Albert Guðmunds-
son hafa báðir sagt af sér banka-
ráðsstörfum sinum, hefur Halldór
Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra,
formaður bankaráðs Seðlabankans
ákveðið að halda sinni stöðu en
kalla inn varamann sinn meðan
hann situr í ráðherrastól. Þetta mun
hafa kallað á töluvert svæsinn prót-
ókolískan höfuðverk í Seðla-
bankanum. Bankaráðið sjálft kýs
sér nefnilega líka varaformann sem
mörgum mun finnast að eigi fremur
að taka við formennskunni þegar
formaðurinn sjálfur gengur úr
skaftinu heldur en varamaður Hall-
dórs. Gallinn er bara sá að varafor-
maður bankaráðsins er enginn ann-
ar en allaballinn alltumlykjandi
Ingi R. Helgason, sem er vont mál
fyrir núverandi stjórnarherra. Okk-
ar ráð er: Einn skammtur af hrossa-
kaupum þrisvar á dag kippir mál-
um í lag....
Meiraumbókaútgefendur og
Y \ bókaverslanir: Iðunn virðist
y\ rekast illa í Félagsskap þess-
ara tveggja aðila, því nú hefur for-
lagið kært samskiptareglur Fél. ísl.
bókaútgefenda og Fél. ísl. bóka-,
verslana fyrir Verðlagsstofnun...
r'l Það þarf ekki að taka fram að
/ I allt fjaðrafokið út af bóka-
y* klúbbsmálum stafar af tilvist
nýja bókaklúbbsins Veraldar. Enda
kannski ekki að furða: Áður en
klúbburinn hefur gefið út sína
fyrstu bók er hann orðinn sá stærsti
á íslandi með 13 þúsund meðlimi...
i?l Kristján Jóhannesson óperu-
Y 1 söngvari vann geysilegan
y listasigur s.l. miðvikudags-
kvöld er hann söng aðalhlutverkið í
Madame Butterfly á stærstu óperu-
hátíð heims í Spoleto á ít-
alíu. Eins og fram hefur komið í
Helgarpóstinum leikstýrði hinn
frægi kvikmyndaleikstjóri Ken
Russell óperunni og var henni út-
varpað um alla Ítalíu í heild og
sjónvarpað að hluta til en síðar mun
ráðgert að senda óperuna í heild í
Eurovision-kerfinu. Að sögn Leifs
Þórarinssonar sem dvelst á Ítalíu
um þessar mundir er þetta stærsti
söngsigur íslendings erlendis enda
Kristján sungið á heimsmæli-
kvarða. „ítalia hreinlega brjálað-
ist“ sagði Leifur.
^<1 Einhver hreyfing virðist vera
f'l komin á málefni Spegilsins.
^4 Ritstjórnin hefur fengið þá
lögmenn Sigurmar Albertsson og
Arnmund Bachmann i lið með sér
og hafa þeir sent inn kæru. Nú hef-
ur sakadómur úthlutað dómara,
Hjört Aðalsteinsson. Lögmenn
Spegilsins hafa tekið saman grein-
argerð um málið og ríkissaksóknari
fékk frest fram á föstudag 24. júní
að skila gögnum sínum um málið til
sakadóms...
Prófaðu
BILALEIGA
Mesta úrvalið.
Besta þjónustan.
Skeifan 9, 108 Reykjavik s. 91-86915
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
s. 96-23515