Helgarpósturinn - 30.06.1983, Page 10
10
Fimmtudagur 30. júní 1983 jjlfisturinn.
Amman var ævinlega
vot um augun og hrygg á
svip, með lafandi kinnar
eins og hún harmaði eitt-
hvað. Samt var hún aldrei
sorgmædd í tali eða við-
móti heldur undarlega
blíð, næstum um of, Iíkt
og hún forðaðist að snerta
hlutina eða umræðuefni
af ótta við að hún kynni
að særa. En hún vann
myrkranna á milli, með
rök augu eins og af innri
sorg.
Þegar leið að þingkosn-
ingum þá grét hún, þegar
kaupmannssonurinn kom
í heimsókn til að tryggja
sér atkvæðin á heimilinu.
Raunar var hann ekki í
framboði og fór þess
vegna ekki fram á neitt
fyrir sjálfan sig beinlínis
eða í eiginhagsmunaskyni
heldur vildi hann tryggja
flokknum atkvæði ömm-
unnar, mannsins hennar
og dætranna þriggja.
Hann tók hlýlega utan um
ömmuna í ganginum og
þau fóru niður í kjallara
til að huga að því hvað
væri mikið eftir af kart-
öflum, enda hafði hann
ríkan áhuga á hagsýni, og
þegar hann sá að kartöfl-
urnar í tunnunni nægðu
fram á haust þegar tekið
yrði upp úr görðunum, þá
hrósaði hann ömmunni
og sagði:
Það er til fyrirmyndar
hvað þið eruð spör á kart-
öflurnar.
Þá sýndi amman hon-
um hvar hún gerði skyrið
og síaði það í trogi. Hún
leiddi hann inn í herberg-
ið í kjallaranum þar sem
loftið angaði af gerlum.
Og í rökkrinu þar drakk
kaupmannssonurinn
undanrennu úr emaler-
uðu máli og sagði:
Þetta er svei-mér bragð
af ómengaðri undan-
rennu.
Síðan skoðuðu þau
dimma afkimann þar sem
kjöttunnurnar voru
geymdar, og amman gaf
honum nokkra salta kjöt-
bita.
Þegar kaupmannsson-
urinn kvaddi grét gamla
konan í fangi hans, áður
en hann steig inn í bílinn
sem konan hans ók. Þá
sást hvað þau voru jafn
rétthá og skildu kröfurn-
ar til Iífsins. Konan hafði
ekki farið í kjallarann
heldur gaf hún dætrunum
nýjustu mataruppskrift-
irnar og dropa til að koma
í veg fyrir ropa, og hún
gaf manni ömmunnar dós
með nýskornu bresku
píputóbaki.
Greiðinn
bílnum, og síðan drukku
þau öll kaffi heima hjá
kaupmanninum en var
síðan ekið heim, þar sem
amman seldi upp öllu sem
hún hafði borðað í veisl-
unni. Hún kvaðst vera svo
bílveik.
Dæturnar höfðu fengið
nýjar mataruppskriftir en
fengu aldrei að elda sam-
kvæmt þeim, svo þær
límdu þær inn í auðar
stílabækur eða skraut-
skrifuðu og Iétu sig
dreyma um ilminn af
ókunnum réttunum,
meðan þær biðu eftir
unnustunum. Sem komu
reyndar hver af öðrum en
börnum. Þetta voru börn
allrar kaupmannsættar-
innar komin til að tína
ber. Berin uxu best hand-
an við rauða fjallið, úti í
hrauninu í mosanum sem
lá í þembum og í honum
uxu berjalyng sem höfðu
ævinlega nægilegt vatn
þvi mosinn geymdi vatnið
í sér í þurrkum. Amman
kallaði á drenginn.
Vísaðu þeim til berja,
sagði hún og bjó hann út
með nesti og drykk, því
börnin áttu að fá að tína
ber allan daginn og það
var sólskin.
Það er óþarft að smyrja
handa honum, sagði
Konan steig á bensínið
og harmaði um leið að
dæturnar gætu ekki sótt
fundi í kvenfélaginu og
lært að berjast gegn
„elsku karlmönnunum
okkar sem eru ekki allt of
liprir við að ganga í
heimilisverkin“.
En ef þið giftist, sem ég
efast ekki um, bætti hún
við, kaupið ykkur þá
laxveiðistöng og veiðið á
við karlmennina. Það eru
tómir fordómar að konur
geti ekki staðið í nárahá-
um gúmistigvélum úti í
Iaxveiðiám.
Siðan óku þau burt og
gleymdust þangað til kos-
ið var og sonur kaup-
mannsins sótti ömmuna,
manninn hennar og dæt-
urnar, svo þau gætu kos-
ið. Og konan hans ók
einhverra hluta vegna
aldrei með trúlofunar-
hringinn, og bónorðið
barst aldrei fram á varir
þeirra. Þeir vildu bara
sofa hjá og fengu það
óspart. Nýþvegin lök
hengu þess vegna ævin-
lega úti á snúru undir
hádegið. Drengurinn
horfði á lökin blakta og
hugleiddi orð ömmu sinn-
ar sem hafði svarað spur-
ningu hans umhinn eilífa-
Iakaþvott:
Eitt sinn þurfti ekki að
þvo úr laki, og þá varst þú
til.
Drengurinn hugsaði og
hugsaði og honum þótti
skrýtið að hann skyldi eiga
afa sem var líka einskonar
pabbi.
Síðla sumars kom lítill
langferðabíll fullur af
barnapían. Við erum með
nægilegt nesti í körfum
þótt svo hann hefði þre-
faldan maga eða vömb.
En amman smurði rúg-
brauð og hveitibrauð og
lagði óskyldar sneiðarnar
saman og vafði dagblaði
um brauðið. Hún lét einn-
ig undanrennu á flösku og
sneri bréfi í tappa og tróð
í stútinn. Síðan afhenti
hún drengnum nestið,
laut að honum og hvíslaði
í eyru hans:
Mundu að borða bara
af þínu nesti, því það á að
gera öðrum greiða en
aldrei að þiggja af öðrum.
Svo fór drengurinn inn
í bílinn og sat fram í hjá
bilstjóranum svo hann
gæti vísað honum veginn
sem var grýtt slóð út að
fjallinu þar sem berin
uxu. Hann sagði i sifellu
„og svo er farið til hægri
og svo er beygt til vinstri“
eins og bíllinn ætti bágt
með að fylgja slóðinni.
Þannig komust þau á
leiðarenda og tíndu ber,
meðan sólin stóð kyrr á
fölbláum himni og tíminn
hætti að vera til, bara
sólskin og heiður himinn
uns barnapían sagði:
„Kaffi, krakkar“. Og hún
dró ísaumaðan borðdúk
úr körfu og breiddi á grá-
an mosann og raðaði á
hann fjölmörgum disk-
um, og sumir voru með
einkennilegu brauði og
konan sagði: „Fáð’ér
skinku“. Og hún sagði:
„Fáð’ér hvað sem þú vilt“.
Krakkarnir höfðu þá sest
kringum dúkinn og
brostu í hvert sinn sem
þau bitu í brauðið en
sögðu ekkert, hvít, falleg
og hrein. Þau þurftu bara
að rétta fram höndina og
þá lagði konan brauð í
lófann og hún var sífellt
að segja: „Hérna er brauð
með skinku“. Og svo
sagði hún: „Fáð’ér sæti,
strákur, og fáð’ér brauð
með skinku með hinum
börnunum!‘
En hann mundi þá eftir
flöskunni með undan-
rennunni og brauðinu í
dagblaðinu og hann
þakkaði ekki fyrir sig
heldur brá sér afsíðis og
settist undir hraun-
dranga. Hann sat þar einn
og dró tappann úr stútn-
um og fann súra kjallara-
lyktina þar sem skyrið
svaf, þar sem kartöflurn-'
ar voru í tunnu, þar sem
saltkjötið var. Allt kom
þetta upp úr stútnum.
Hann horfði einnig á
brauðið sem hafði undist
upp og klesst. Svo horfði
hann út yfir landið. Sólin
var alls staðar og hiti úr
mosanum. Hann sat einn
undir steininum og kókó-
lyktin barst til hans með
golunni og allt var grátt
og hlýtt í kringum hann
og þurrt, og hann lyfti þá
flöskunni að munninum
og drakk af súrum stútn-
um og hann tók brauðið
og beit í klessuna.
Höfundar kennslu-
bóka og fræöirita
stofna félag
Páll
Jóhannesson tenór
heldur tónleika á Norðurlandi
í ráði er að stofna félag höfunda
kennslubóka og fræðirita. Þá ráða-
gerð má rekja til þess að síðastliðið
ár hafa nokkrir höfundar slíkra
bóka fylgst með þeim samningum,
sem Iauk í maí, um greiðslu fyrir
Ijósritun og aðra fjölföldun i ís-
lenskum skólum á útgefnum verk-
um. Samningurinn var gerður milli
menntamálaráðuneytisins annars
vegar og samtaka útgefenda, blaða-
manna, rithöfunda og tónskálda
hins vegar og starfar gerðardómur á
grundvelli hans í sumar.
í áðurnefndum höfundahópi var
áhugi á aðild að samningaviðræð-
unum og var reynt að fá hana með
atbeina Bandalags Háskólamanna
og síðar með inngöngu í Rithöf-
undasamband íslands. Eftir að
þeim tilraunum lauk án viðhlítandi
árangurs var ákveðið, eftir nokkurt
samráð við áðurnefnda samnings-
aðila, að gangast fyrir félagsstofn-
un. Sú ákvörðun byggist m.a. á
þeirri sannfæringu að torvelt sé að
fá sanngjarnar niðurstöður af áð-
urnefndum samningum án aðildar
þeirra sem eiga höfundarrétt að
stærstum hluta þeirra verka sem
fjölföldun í skólum bitnar á.
Ætlunin er að væntanlegt félag
starfi á breiðum grundvelli. Það
mun verða opið öllum sem hafa
hagsmuna að gæta í samningum
um útgáfu og notkun á kennslu-
gögnum og fræðiritum — og vilja
jafnframt vinna að því að skapa
grundvöll fyrir fjölbreyttari og
betri útgáfu slíkra verka.
Stofnfundur félags höfunda
kennslubóka og fræðirita verður
haldinn í Menntaskólanum við
Hamrahlíð föstudaginn 1. júlí og
hefst kl. 17. í undirbúningsnefnd
hafa starfað: Ásgeir Björnsson,
Eysteinn Þorvaldsson, Heimir Þor-
leifsson, Hörður Bergmann, Ind-
riði Gíslason, Ingvar Sigurgeirsson,
Loftur Guttormsson, Lýður
Björnsson og Örnólfur Thorlacius.
Páll Jóhannesson, tenórsöngv-
ari, heldur tónleika á fimm stöðum
á Norðurlandi dagana 2. - 9. júlí
n.k. Hinir fyrstu verða laugardag-
inn 2. júlí í Safnahúsinu á Sauðár-
króki kl. 15.00 Sunnudaginn 3. júlí
í Siglufjarðarkirkju kl. 17.00.
Þriðjudaginn 5. júlí kl. 21.00 i fé-
lagsheimilinu Miðgarði, Varma-
hlíð. Fimmtudaginn 7. júlí kl. 21.00
í félagsheimilinu v/Hafralæk í Að-
aldal (Ýdalir), og laugardaginn 9.
júli í Borgarbíói á Akureyri kl.
17.00. Píanóleikari er Jónas Ingi-
mundarson.
Þetta er önnur tónleikaferð Páls,
en s.l. haust hélt hann nokkra tón-
leika og hlaut hvarvetna frábærar
móttökur áheyrenda og gagnrýn-
enda.
Páll stundar nú söngnám í Ítalíu
hjá hinni heimsfrægu óperusöng-
konu, professor Eugenia Ratti.
Á efnisskránni eru m.a. verk cftir
Emil Thoroddsen, Pál ísólfsson,
Karl O. Runólfsson, Mozart, Beet-
hoven, Giordano, Verdi, Pucccini,
o.fl.