Helgarpósturinn - 08.09.1983, Qupperneq 2
Fimmtudagur 8. september 1983 /p'ésturinn
Skólar og stéttarfélög
Endurmenntun fyr-
ir háskólamenn
Ert þú að leita að hillum í stofuna.
barnaherbergið, geymsluna, lagerinn
eða verslunina? Þetta er lausnin.
FURUHILLUR
Þjóðfélagið breytist hratt og
hvers kyns nýjungar rigna yfir okk-
ur á öllum sviðum. Atvinnulíf og
skólar hafa brugðist við með ýms-
um hætti og nú undanfarin ár er
orðið algengt að efna til námskeiða
fyrir þá sem þurfa að halda við
menntun sinni eða bæta við hana.
Háskóli Islands og Tækniskóli
íslands hafa tekið upp samvinnu
við ýmis stéttarfélög háskóla-
menntaðra manna um endur-
menntun. í sumar var Margrét S.
Björnsdóttir þjóðfélagsfræðingur
ráðin starfsmaður nefndar áður-
nefndra aðila til að skipuleggja
námskeiðahald og upplýsingar um
endurmenntun til háskólamanna.
Að sögn Margrétar hefur endur-
menntun verið með mismunandi
formi erlendis, en hún sagðist ekki
vita til þess að stéttafélag og skólar
Margrét Björnsdóttir
Veðrið um helgina
Æ veðrið. Hinir vinsælu veður-
fræðingar vita að það verður
norðaustanátt um allt land. Á
föstudag er líklegt að hann létti til
á Suðurlandi. Það er gott. En
skúrir verða hins vegar á Norður-
og jafnvel á Austurlandi. Það er
allt í lagi. Á laugardag verður
veðrið svipað, ef til vill ögn hæg-
ara. Á sunnudag litlar breytingar,
víða bjartviðri á Suðvesturlandi,
einhverjar skúrir fyrir norðan og
austan. Tími til kominn að Hall-
///////"
ormur fengi vætu. Hittumst í
Kjallaranum.
Súperklóið
Þér er mál. Þú gengur upp
að hurðinni, stingur pening í
rauf og dyrnar Ijúkast upp.
Sjálfvirk vigt í gólfinu inni
fyrir mælir vigt þína, sértu
minna en 25 kg gerist ekkert
— sem sagt börn verða að
vera í fylgd með fullorðnum
— en ef þú ert meira, þá ger-
ist eftirfarandi:
Loftræsting og kynding byrja,
hitinn inni er 19 gráður, vatnið fer
að renna úr krananum og disco
musik berst úr hátalara. Þú tekur
niður um þig buxurnar og sest. Þeg-
ar þessu er aflokið „og þegar örygg-
iskerfið hefur gengið úr skugga um
að enginn sé lengur á staðnum",
þ.e.a.s. þegar þú ert farinn út á götu
aftur, lokast dyrnar og hreinsunin
hefst. Gólfið og seta salernisins
lyftast uns hvoru tveggja er í sömu
hæð og vaskurinn. Sjálfvirkur
bursti skrúbbar innveggi, gólf,
salerni, vask og krana með
bakteríudrepandi sápu. Að hreins-
uninni lokinni, hún stendur í sextíu
sekúndur, fer allt á sinn stað aftur
og ilmefni er sprautað yfir hreina
dýrðina.
Ekki er hún þó öll upptalin enn:
Sjálfvirkt kerfi lætur miðstöð vita
sé nokkurs vant, sápu, pappírs o.s.
frv. Á þakinu eru auk þess kyrfilega
læstar dyr handa löggunni að
komast inn um, fari eitthvað úr-
skeiðis. Það er svo sem aldrei að
vita nema eitthvað bili. í ágúst árið
1981 læstist átta ára gömul telpa
inni og lenti í hreingerningunni,
barnið lést af sárum sínum. Eftir
það var öryggiskerfið endurbætt!
Slíkt er nýja súperklóið,
almenningssalerni, sem nú þegar
hafa verið tekin í notkun í Frakk-
landi, Englandi og Þýskalandi. í til-
raunaskyni. í Hamborg hefur
þremur verið komið upp og
almenningur ku ánægður með kló-
in og ekki síður borgaryfirvöld.
Veggirnir eru báraAir til að koma í veg
fyrir piaköt og dónalega skriffinnsku.
Eins og er eru 250 almennings-
salerni í Hamborg og 250 klósett-
verðir, allt konur. Rekstrarkostnað-
urinn nemur 10 milljónum marka á
ári en tekjurnar eru 400.000 mörk.
Ef gert er ráð fyrir 120 neytendum
á dag í súperklóinu, sem borga 50
pfenniga hver, verða tekjurnar
22000 á ári svo það tekur ekki lang-
an tíma að ná stofnkostnaðinum,
30.000 mörkum. Þessi kostnaðar-
áætlun ætti að standast, hverjum
neytanda er gert að eyða ekki meira
en 15 mínútum á klóinu og ekkert
múður. Því að 15 mínútunum liðn-
um opnast dyrnar átómatískt,
hvort sem kúnninn er búinn að
girða upp um sig eða ekki.
BB
.
SÖLUDEILD 24220
AFGREIÐSLA 33533
ættu samstarf með þeim hætti sem
hér er að fara af stað.
Fyrsta námskeiðið verður nú í
september og fjallar um tölvur og
gagnavinnslu. Þau næstu verða um
tölvur í iðnaði og ljósleiðaratækni.
Þá verður fólki bent á þau nám-
skeið sem eru á kennsluskrá Há-
skólans og Tækniskólans og nýst
geta sem viðbót við fyrri menntun.
Margrét S. Björnsdóttir sagði að
þessi námskeið yrðu nánar kynnt í
blaði BHM og fréttabréfum verk-
fræðinga og tæknifræðinga. Með
þessum endurmenntunarnám-
skeiðum er verið að tengja saman
skólana og atvinnulí fið og auðvelda
fólki að fylgjast með því sem gerist
í grein þeirra.
%
Matthías Á. Mathiesen, við-
skiptaráðherra hefur ráðið
Hrein Loftsson lögfræðing
og framámann í Félagi frjáls-
hyggjumanna til að sjá um verð-
lagsmál innan ráðuneytisins. Mun
Hreinn hefja störf þar alveg á næst-
unni....
Útsölustaðir: REYKJAVÍK: Liturinn, JL-Húsið, KÓPAVOGUR: BYKO, Nýbýla-
vegi 15, HAFNARFJÖRÐUR: Málmur, Reykjavíkurvegi, AKRANES: Verslunin
Bjarg, BORGARNES: Kaupfélag Borgfirðinga, STYKKISHÓLMUR: Húsið,
PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jónasar, BOLUNGARVlK: Jón Fr. Einarsson, ISA-
FJÖRÐUR: Húsgagnaverslun (safjarðar, BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga,
EGILSSTAÐIR: Verslunarfélag Austurlands, SEYÐISFJÖRÐUR: Verslunin
Dröfn, REYÐARFJÖRÐUR: Verslunin Lykill, FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Verslunin
Þór, VÍK í MÝRDAL: Kaupfélag Skaftfellinga, VESTMANNAEYJAR: Þorvaldur og
Einar, SELFOSS: Vöruhús K.Á.
VELKOMIN I
JAZZ - LEIKFIMI,
JAZZ - DANS OG
JAZZ - BALLET
GLÆSILEGT UMHVERFI A
GÓÐUM STAÐ
Við byrjum
12. sept.
Innritun haf-
in í síma
25170 frá
kl. 14—17
alla virka
daga.
jazz spottm
HVERFISGATA 105 SÍMI: 13880
ASTA, JENNÝ
OG SÓLVEIG
SHÉHHhSh
ÞAKPAPPI