Helgarpósturinn - 08.09.1983, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 08.09.1983, Blaðsíða 6
Fimmtudagur 8. september 1983 irinn Hvar á að taka peningana? Þak yfir höfuðið. í áratugi hefur það verið markmið flestra Islendinga að eignast sitt eig- ið húsnæði og stjórnvöld hafa leynt og ljóst ýtt undir þá stefnu. Nú er svo komið að það er orðið meiri háttar vandamál að uppfylla þessa kröfu. Við stöndum á þröskuldi þessa dagana og það er ljóst að stjórnvöld verða að grípa til einhverra ráða í húsnæðismálum. Sá mikli fjöldi sem er að drukkna í skuldasúp- unni hrópar hátt og vill lausnir. Jrað eru liðin um það bil 20 ár frá því að verkalýðshreyfingin samdi um stórátak í hús- næðismálum, þegar samið var um byggingu Breiðholtsins. Þá ríkti mikill skortur á hús- næði, fólk bjó í kjöllurum, hanabjálkurrt og bröggum sem smám saman var útrýmt. Það var því veruleg þörf á úrbótum. Sú stefna var tekin að hver og einn skyldi eignast sitt hús- næði og strita við það sjálfur, meðan stefnan t.d. á öðrum Norðurlöndum var bygging félagslegs húsnæðis og leiguhúsnæðis. Frá þessum tíma hafa velflestir Islendingar sem komnir eru til vits og ára gegnt sinni hús- næðisherskyldu með endalausri vinnu, timbursköfun og naglhreinsun. Á síðasta áratug urðu skuldbindingar að næstum því engu í verðbólgubálinu, eri eftir að farið var að verðtryggja lán, gjörbreyttist ástandið, fólk verður að borga öll sín lán upp í topp. Það sem nú hefur gerst er það að kjara- skerðing ríkisstjórnarinnar hefur raskað öll- Enginn getur með réttu vænst virðingar fyr- ir mannslífum né annarra mannúðlegra eigin- leika af arftökum Leníns og Stalíns. Grund- vallarregla lærimeistarans í mannlegum sam- skiptum var: „Hver hvern?“, og eftir henni hafa lærisveinarnir lifað. Sovéska valdakerfið er til þess sniðið að hampa fólum og föntum, hlaða undir þá sem lita á mannfólk eins og hvert annað hráefni, sem fara má með hvernig sem vera skal í þágu Flokks sem í sér felur Sögulega nauðsyn. um hlutföllum. Lánin hækka og hækka, en launin rýrna og rýrna. Það getur ekki endað öðru vísi en með ósköpum og þess vegna hef- ur fólk nú risið upp. Skriðan fór af stað með fundinum fræga og margmenna í Sigtúni. Þar voru settar fram kröfur um hærri lán, lengri lánstíma og aftur- virkni til þriggja ára. Talsmenn hinnar nýju hreyfingar húsbyggjenda/kaupenda hafa síðan gengið á fund ráðherranna Alexanders !og Alberts, rætt við nefndina sem nú vinnur að endurskoðun á húsnæðislögunum, en það er fátt um svör. Gerð fjárlagafrumvarpsins stendur yfir og gengur seint að því er frengir herma. Menn vilja ekkert segja fyrr en Ijóst verður hvað ríkisstjórnin ætlar að veita miklu fé til húsnæðismálanna. „Það er Ijóst að það kostar stórfé að koma á úrbótum í húsnæðis- málum, en eitthvað verður að gera“, sagði Jóhann Einvarðsson formaður húsnæðis- nefndarinnar í samtali við Helgarpóstinn. Nefndin sú á að endurskoða gildandi lög um húsnæðismál og endurskoða frumvarp sem lagt var fyrir Alþingi í fyrra sem gerði ráð fyrir nokkrum breytingum á húsnæðislögunum. Nefndinni er líka ætlað að finna leiðir til að afla aukins fjármagns til húsnæðismála, því ætlunin er að lánin nemi 50% af byggingar- kostnaði til þeirra sem eru að kaupa eða byggja í fyrsta sinn. Síðan er ætlunin að lánin hækki upp í 80% í samræmi við þau kosningaloforð sem gefin voru síðast liðið Hr Lreinræktaðast birtist þetta viðhorf auðvitað í sovéska hernum, sem hefur nú bætt á afrekaskrá sína því þrekvirki að skjóta Flug 7 frá Kóreska flugfélaginu, Boeing 747 með 269 manns innanborðs, niður í Japanshaf. Þrjár systur kóreska piltsins Lé Sjúl Kjú, sem fórst með flugi KAL 7, fá fréttina um afdrif flugvélarinnar Stöðvun Moskvuflugs svar við sovéskri fúlmennsku Sovésk orustuflugvél skaut radarstýrðri eldf- laug að farþegaflugvélinni af dauðafæri, eftir að kóreski flugstjórinn hafði gefið til kynna að hann gerði sér grein fyrir eftirför og myndi lenda þar sem fyrirskipað yrði. Eftir þennan verknað stendur Andrei Gromiko, utanríkisráðherra í Moskvu í þrjá áratugi, upp á ráðstefnu ríkja Helsinkisátt- málans í Madrid í fyrradag og heldur því blá- kalt fram, að sökin í málinu hvíli á þeim sem villtust fyrir byssukjaftana, en sá sem tók í gikkinn og yfirboðarar hans beri alls enga ábyrgð. Það á sannarlega vel við, að sovétveld- ið skuli afhjúpa sig svo rækilega á ráðstefnu, sem sérstaklega er ætlað að fjalla um mann- réttindamál. A. annan áratug hafa Sovétríkin verið aðili ásamt 150 öðrum ríkjum að alþjóðasáttmála um loftferðir. Þar eru meðal annars rækileg ákvæði um, hversu með skal farið þegar flug- vél villist af leið inn í lofthelgi einhvers ríkis, sem ekki hefur veitt henni flugleyfi. Sovét- menn þverbrutu reglur loftferðasáttmálans, og venjur sem á þeim eru reistar, með aðför- um sínum gagnvart Flugi KAL 7 yfir jKamsjatkaskaga, Okotskhaf og eyna Sakiral- 'in í síðustu viku. Upptökur Japana og Bandaríkjamanna á því sem sovéskum orustuflugmönnum og stjórnstöðvum þeirra á jörðu niðri fór á milli, bera með sér að þarna var framið vísvitandi og yfirvegað fjöldamorð. Farkostur 269 manna, vopnlaus farþegaflugvél, er aldrei kölluð annað en „skotmarkið“, og að henni er beint eldflaug eftir að flugstjórinn hefur gefið til kynna með ljósmerkjum, að hann sé reiðu- búinn til lendingar þar sem þeir skipi sem eftirförinni ráða. Áður en Flug KAL 7 var skotin niður, hafði jvélin verið í tvo klukkutíma inni yfir sovésku ; yfirráðasvæði umkringd sovéskum orustu- flugvélum, auk þess sem radarstöðvar á jörðu niðri fylgdust með ferðum hennar. í stað þess að nota tímann til að beina flugvélinni til sovésks flugvallar eða vísa henni stystu leið úr sovéskri lofthelgi, eins og réttur bar til sam- kvæmt alþjóðareglum, var tíminn notaður tilj að afla heimildar æðstu manna sovéskra loft-i varna og flughers til að gera árás. vor. Nefndin á að skila af sér fljótlega, ætlun félagsmálaráðherra er að leggja frumvarpið fram á fyrstu dögum þingsins og sjá til þess að þau (með áorðnum breytingum) taki gildi um áramót. En hvar á að taka peningana og hvað er verið að ræða um háar fjárupphæðir? Jóhann Einvarðsson vildi ekkert segja um leiðir og hugmyndir nefndarinnar, en komið hefur fram í fjölmiðlum að dæmið sé upp á eina 3 milljarða. r A meðan eru húsbyggjendur/kaupendur að verða mjög óþreyjufullir. Stefán Ólafsson lektor, einn af talsmönnum húsnæðishreyf- ingarinnar nýju sagði að ef ekki fengjust svör á allra næstu dögum yrði að grípa til einhverra aðgerða. Menn væru í og með að glíma við kjaraskerðingu ríkisstjórnarinnar og þess yrði að gæta að enn væri ekki nema helmingur hennar kominn fram. Því ætti staða lántak- enda eftir að versna enn meir yrði ekki eitt- hvað að gert. Fólk væri að slást við skamm- tímalán bankakerfisins, þann vanda yrði að leysa strax. Það sem fólk væri að fara fram á væri að ríkisstjórnin stæði við gefin fyrirheit. Það þýddi ekkert að segja fólki það lengur að engir peningar væru til, þegar fólk sæi banka- hallir rísa alls staðar í kringum sig. Það væri hlutverk ríkisstjórnarinnar að útvega fjár- magn, ef ekki væri meiningin að setja heila kynslóð út á guð og gaddinn. Stefán sagði að það sem menn væru alltaf að fást við væri til- færsla á fjármagni. Hér á landi hefur verið rekin sú stefna að færa fjármagn stöðugt til atvinnufyrirtækjanna, hvort sem þau þyrftu með eða ekki. Hann sagðist hafa reiknað út að síðasta áratug hefði rýrnun sparifjár num- ið verðgildi 40.000 íbúða (2 milljónir á íbúð og miðað við 4 manna fjölskyldu). 75% af þessu fjármagni runnu til fyrirtækja. „Það er ríkis- stjórnarinnar að beina fjármagni í húsnæðis- kerfið. Vilji er allt sem þarf“ Stefán sagði einnig að eftir því sem hann kæmist næst hefðu verið starfandi húsnæðismálanefndir á vegum ríktsstjórna allt frá 1973. „Hvað í ósköpunum hafa þær verið að gera“, spurði hann. Svo standa menn allt í einu frammi fyrir gífurlegum vanda sem auðvitað hefði verið hægt að sjá fyrir. INNLEND VFIRSVINI , ERLEMO Gr romiko utanríkisráðherra lýsti svo yfir í Madrid, að sovétmenn muni hafa sama hátt á hér eftir í hliðstæðum tilvikum. Árásin á farþegaflugvélina var að hans dómi ekkert annað en aðgerð til að framfylgja sovéskum lögum um vörslu landamæranna. Þau líðist engum að skerða, og þeir sem það geri skuli hitta sjálfa sig fyrir. Slík afstaða stórveldis, víðlendasta ríkis á hnettinum, teflir í hættu öllum loftsamgöng- um. Krafan um að eigin reglur ríkis um hömlulausa valdbeitingu skuli ganga fyrir alþjóðlegum skuldbindingum, setur spurn- tngarmerki við undirskrift fulltrúa sovét- stjórnarinnar undir sérhvert milliríkjasam- komulag. x1 lugför eru allra faratækja berskjölduðusti ifyrir illræðismönnum, hvort sem þeir lauma sprengju um borð eða senda hana aðvífandi úr drápstólum sínum. Því er eðlilegt að alþjóðasamtök flugstjóra skuli hafa gengið fram fyrir skjöldu og beitt sér fyrir aðgerðum til að gera sovétstjórninni skiljanlegt, hvað, afstaða hennar þýðir. Komist Sovétríkin upp með athæfi sitt, er enginn efi á að harmleikur- inn yfir Japanshafi á eftir að endurtaka sig. Stjórn alþjóðasambands flugstjóra hefur því hvatt aðildarfélög sín til að stöðva flug til Moskvu næstu tvo mánuði. Áður hafði Kanadastjórn riðið á vaðið með því að svipta sovéska flugfélagið Aeroflot lendingarrétti í Kanada. Ljóst er að þátttaka verður mikil í flug- banni flugstjóranna á Moskvu. Félög flug- stjóra í Bretlandi, Frakklandi, Sviss og á Norðurlöndum féllust á það samstundis. Flugstjórasambandið segir í samþykkt sinni, að menn í þeirri starfsgrein geri sér gleggsta grein fyrir, hvað í húfi er, og beri skylda til gagnvart flugáhöfnum og farþegum að taka upp baráttu gegn þeim sem áskilji sér rétt til að virða að vettugi alþjóðareglur um öryggi í flugsamgöngum. ”að er fleira sem hefur áhrif á það vandamál sem nú hefur komist í hámæli. Auk þess að stefna að eigin húsnæði fyrir alla, hefur líka verið stefnt að því að byggja stórt. Síðasta dæmið um stóríbúðahverfi er Grafarvogs- byggðin, sem fólk hefur greinilega ekki efni á að byggja. Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar á fjölskylduháttum í Reykjavík. Um það hafa verið unnar miklar skýrslur, siðast af Borgarskipulagi Reykjavík- ur. Fjölskyldur minnka stöðugt, einhleypt fólk býr eitt í íbúðum, hjónaskilnaðir, mikill fjöldi aldraðs fólks og fleira skapar þörf fyrir Iitlar íbúðir. Þetta er löngu ljóst og það hefði því verið hægt að segja sér það að eftirspurnin er mest eftir 2-3 herbergja íbúðum og einbýlis- húsabyggð í félagsheimilisstíl dæmd til að mistakast. Samt var Grafarvogsævintýrinu haldið til streitu og mið tekið af eftirspurn eftir lóðum, en ekki þörfinni í borginni. Þar við bætist að algjörlega hefur verið hunsað að byggja leiguhúsnæði, enda erfitt eins og lána- kjörin eru. Hópar eins og námsmenn, ein- stæðir foreldrar og aðrir þeir sem bæði vilia oggetaekkiannað enbúiðí leiguhúsnæðt meea slást um hverja íbúðarholu sem losnar fyrir uppsprengt verð. Það er greinilega komið að þeirri stundu að stjórnvöld verða að taka á húsnæðismálunum af alvöru og myndarskap og ekki aðeins því sem snýr að þeim sem eru að kaupa og byggja, heldur húsnæðismálunum í heild. Það verður ekki séð að ríkisstjórnin eygi lausnir. Tals- menn húsbyggjenda segja að iangtímafjár- mögnun sé númer eitt, tvö og þrjú. Þeir sem þekkja vandræði leigjenda benda á nauðsyn þess að kleift verði að byggja leiguhúsnæði á ódýran hátt og þannig að öryggi leigjenda sé tryggt. Jóhann Einvarðsson sagði að ríkisstjórnin hefði mikinn vilja til að Ieysa vandann, en hvernig, þeirri spurningu er ósvarað. Það er ljóst að það unga fólk sem nú hefur tekið til sinna ráða hefur fullan hug á að knýja fram svör og úrbætur. Frestur ríkisstjórnarinnar styttist óðum, enda falla afborganirnar jafnt og þétt í gjalddaga. eftir, Kristínu Ástgeirsdóttur eftirt Magnús Törfa Ólafssonl A.rásin á Flug KAL 7 hlýtur að hafa enn víðtækari áhrif. Yfir standa erfiðar samningaviðræður milli stjórna Sovétríkj- anna og Bandaríkjanna um takmörkun á kjarnorkuvígbúnaði. Síðustu mánuði hefur þess gætt að heldur þokaðist í samkomulags- átt, og samskipti risaveldanna á öðrum svið- um hafa farið skánandi. Má meðal annars merkja það á samkomulagi um niðurstöðu fundar Helsinkiríkjanna í Madrid og samn- ingi um kornsölu Bandaríkjanna til Sovétríkj- anna. Hafa bjartsýnustu menn gert því skóna, að framundan gæti verið fundur Reagans og Andrópoffs, til að reka smiðshöggið á veru- legan áfanga í viðleitninni til að hemja kjarnorkuvígbúnaðarkapphlaupið. Hafa rök verið leidd að því í Bandaríkjunum, að slíkt gæti orðið Reagan til verulegs framdráttar, afráði hann að leita endurkjörs í forsetaem- bættið. Eftir árásina á kóresku flugvélina horfa mál öðruvísi við. Þeir af fylgismönnum Reagans, sem frá upphafi héldu því fram að ekki þýddi að reyna að semja við sovétmenn, nema iBandaríkin öfluðu sér fyrst slíkra yfirburða að þau geti sett Sovétríkjunum kosti, hafa fengið sterkari aðstöðu til að halda sínu máli fram. Því verður ekki á móti mælt, að árásin á Flug KAL 7 er freklegt brot á alþjóðasamn- ingi af Sovétríkjannahálfu. Undirskrift sovét- stjórnarinnar undir hvers konar skuldbind- ingar er þar með orðin enn minna virði en i fyrr. iÞar á ofan eignuðust bandarískir harðlínu- !menn í skiptum við Sovétríkin nýjan píslavott, jþegar Flug KAL 7 hrapaði í hafið. Meðal far- iþega í kóresku vélinni var einn fremsti maður i þeirra hópi, Lawrence P. McDonald, full- trúadeildarmaður frá Georgíu. Hann var inýlega orðinn formaður John Birch Society, jfélagsskapar sem stofnaður er til að rækja iminningu Bandaríkjamanna sem fallið hafa.í átökum við kommúnistaríki og halda áfram Ibaráttu þeirra.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.