Helgarpósturinn - 08.09.1983, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 08.09.1983, Blaðsíða 17
17 • V-4. ii - - ■ »»v y jjSsturinn« Fimmtudagur 8. september 1983 nu þarf að steyta hnefann Enska hljómsveitin Crass spilar í Laugardalshöll á laugarday- inn. Crass er allt eins pólitískt fyrirbrigði og tónlistarlegt og hún er sprottin upp úr bresku pönk- og nýbylgjusprengingunni í rokkinu 1976-77. Hljómsveitin berst fyrir anarkisma, friði og mannlegri sam- skiptum og er á móti valdníðslu og vígbúnaði. Hún syngur ekki ælovjúlög. Hún krefst breytinga. í hljómsveitinni eru sjö manns: Steve Ignorant, Eve Libertine, Joy deVivre, Phil Free, N.A. Palmer, Pete Wright og Penni Rim- baud. Það er söngvari Crass, Steve lgnorant#sem svarar spurn- ingum Helgarpóstisns. — Crass hefur verið setí' á svartan lista hjá stjórnvöldum í Bretlandi og BBC hefur neitað að spila tónlist ykkar. Hvernig hefur þetta komið niður á ykk- ur? „Ekkert sérstaklega illa í rauninni. Það er náttúrlega hálf svekkjandi að fá ekki tónlist okkar spilaða í út- varpi, en þetta er ekki eina bannið sem við höfum staðið frammi fyrir. Raun réttri hefðu margar plötur okkar, t.d. flestar litlu plöturnar, átt að lenda á vinsældarlistum. Þær seldust jafn vel og plötur sem voru á Topp 10 í Bretlandi, en komust ekki inn á listann vegna þess að við erum ekki aðilar að samningum tónlistarmanna og útvarpsstöðv- anna. En þetta er raunverulega ekk- ert vandamál því að jafnvel þó að við séum ekki spiluð í útvarpinu kaupir fólksamt plöturnar okkar. Við auglýsum heldur ekkert plöt- urnar okkar á neinn annan hátt hvort sem er. En það sem við höfum hins vegar séð vera að gerast upp á síðkastið er t.d. að plötur okkar hafa verið brotnar í HMV (His Masters Voice-plötubúð í London). Þetta skeði t.d. með Sheep Farming in the Falklands (Crass plata sem fjallar um hvernig Thatcher-stjórn- in notaði Falklandseyjastríðið til að bægja athygli Breta frá kreppu og atvinnuleysi heima fyrir). Þeir hjá HMV tóku þessa plötu úr hillunum hjá sér og brutu hana“. — En í Brctlandi er líka ó- háður vinsældarlisti og þið haf- ið alltaf komist inná hann? „Jú, en það sem er að gerast með óháða listann núna er það að stóru hljómplötufyrirtækin eru farin að gefa út plötur í gegnum dótturfyrir- tæki sín sem segjast vera óháðar út- gáfur. Þannig hefur þeim tekist að koma plötum inn á óháðu listana". — Hvernig hafa samskiptin verið við stjómvöld. Hafa þau reynt að stoppa ykkur á ein- hvcrn hátt? „Nei, ekki síðan við gáfum út How Does it Feel (to Be the Mother of a Thousand Dead) (Sungið til Margrétar Thatcher um Falklands- eyjastríðið). Þá hótaði einn þing- maður íhaldsflokksins að fara í mál við okkur fyrir svívirðilega árás á forsætisráðherrann og stjórnina og meiðyrði gagnvart þjóðinni og fjöl- skyldum þeirra sem dóu á Falk- landseyjum. Við hittum reyndar þennan þingmann. Þetta var í út- varpsviðtali. Ég held að hann hafi búist við að hitta þarna heimska og illa upplýsta pönkara. En svo þegar hann áttaði sig á því að það sem við höfðum að segja var greindarlegt, þá skipti hann um taktík. Þá sagðist hann ekkert hafa á móti því sem lagið fjallaði um heldur einungis orðavalinu í textanum. En síðan þessu viðtali var útvarpað hafa stjórnvöld ekkert skipt sér af okk- ur“. — Ykkur tókst að launta lagi ykkar Wedding Bells á flexi plötu með einu tölublaði af Lov- ing, sem er tímarit fyrir unga elskendur? „Já, þetta var lag af stóru plöt- unnni okkar Penis Envy og okkur datt í hug að koma því inn í eitthvað kvenna- eða rómans-tímarit. Við komum því inn í Loving, sem fjallar alltaf um hvað það er að verða ást- fanginn og svoleiðis hluti. Svo þeg- ar útgefendurnir komust að því að Crass hefðu gert þetta urðu þeir óð- ir. Þeir sögðu að þetta væri dóna- Iegt og ógeðslegt. Sem var í sjálfu sér hlægilegt því að í laginu var bara verið að segja nákvæmlega það sama og tímaritið var að halda að lesendum sínum þ.e. hluti einsog „þú verður að elska mig, og enga aðra og við skulum gifta okkur og verða rík“. En þeim fannst ógeðs- legt að hljómsveit eins og við vær- um að segja þessa hluti“. — Þið hafið ráðist harkalega á ýmsar stofnanir þjóðfélagsins sem eru að mörgu leyti hcilagar í hugum fólks, kirkjuna, hjóna- bandið, o.s. frv. Eruð þið ekkert hræddir um að fólk snúist önd- vert gegn boðskap ykkar i heitd út af þessu? „Ég held að þetta fólk, t.d. venju- legir foreldrar, séu ekkert hrifnir af því sem við erum að gera hvort sem er. Það fólk sem við náum til er aðal- lega fólk sem ekki aðlagast kerfinu. Annað hvort passar það ekki í kerf- ið eða langar ekkert til að passa í það. Okkur er þannig sama þótt einhverjir séu á móti okkur að öllu leyti. En þetta er bara eitt af þeim vandamálum sem við stöndum frammi fyrir vegna þess að við töl- um tæpitungulaust. Það ?r eins og þingmaðurinn sem var aó ráðast á okkur út af Falklandseyjaplötunni. Hann var að segja að við bærum enga virðingu fyrir fjölskyldum þeirra hermanna sem féllu, en stað- reyndin var náttúrlega sú að við höfðum dýpstu samúð með þeim. Hann sagði: „Sko, hér er einhver pönkhljómsveit sem barðist ekki í stríðinu að segja að nú lægju lík þessara stráka á jörðinni. Hvernig heldur Crass að fjölskyldum hinna látnu líði að lesa svona nokkuð“? Þannig snéri hann út úr því sem við vorum að segja. Ég held að það sé einmitt þetta, sem fólk gerir þegar það vill ráðast á okkur“. — Ef við tölum nú aðeins um tónlist Crass. Þið byrjuðuð þeg- ar pönkið var að koma fram, en hvar er pönkið statt núna? „Pönkið er hvergi statt núna, ekki í Englandi a.m.k. Ég meina, það eru auðvitað starfandi pönk- hljómsveitir, en þessar hljómsveitir hafa ekki farið neinar nýjar leiðir í tónlist sinni. Þetta er allt hálf-gelt. Menn eru að berja höfðinu við steininn. Fólk fer á hljómleika, horfir á hljómsveitina og fer svo heim. Enginn spyr, hvað eigi að gera næst, enginn veltir fyrir sér hvernig hægt sé að láta eitthvað fara að ger- astí‘ —Margir hér á íslandi telja að Crass spili pönk, árásar- gjarnt og ofbeldiskennt pönk. Hvernig er hægt að ráðast gegn ofbeldi og yfirgangi með þannig tónlist? „Já, þetta er ekki allt pönk, sjáðu til. Það er liðin tíð að Bob Dylan stilli kassagítarinn sinn og syngi um frið. Draumsýn þeirra tíma verður aldrei veruleiki úr þessu, ekki með þeirri aðferð. Nú þarf að steyta hnefann. Ég veit ekki hvort við erum endilega að predika eitt- hvað, en það er svona sem við ger- um það núna. Eftir fimm ár verða kannski leikhúsin eða ljóðin áhrifa- ríkust í friðarbaráttunni, ég skal ekki dæma um það. Friðarsinnar hafa svo lengi verið að biðja um frið. Nú er tími til kominn að krefj- ast friðar. Og það verður ekki gert með neinum ljúflingshætti eða hálfkáki. Maður verður að vera sterkur og krefjast hlutanna" — Notið þið tónlist ykkar til að sameina fólk gegn stríðs- rekstri? , „Já, en við gerum meira. Við reynum að nota tónlist okkar og plötuútgáfu sem auglýsingamiðl- un. Við gefum ekki bara út plötur. Á hljómleikum erum við með kvik- myndir og video sem við sýnum. Við stofnuðum Crassútgáfuna m.a. vegna þess að við vildum ein vera ábyrg fyrir því sem við sögðum. Við erum að segja óþægilega hluti með sterku orðbragði og það erum við sjálf sem tökum sénsinn á því að verða handtekin fyrir það sem við segjum. Við höfum stofnað Corpus Christi útgáfuna þar sem hljóm- sveitir geta gefið út plötur og haft fullt vald á útgáfunni sjálfar. Við gefum út blað og tímarit og bækurí* — Sjáiö þið fram á einhverjar breytingar á tónlist ykkar á næstunni? „Eins og ég sagði áðan þá finnst okkur lítil hreyfing vera í tónlistinni hér í Englandi, það er farið að slá í þetta. Okkur fannst að á meðal þeirra sem hlustuðu á okkur væri fólk sem vildi setja okkur á ákveð- inn bás. Það vildi bara heyra okkur spila Banned from the Roxy, hart pönk, þannig að við ákváðum að breyta til, og gáfum þá út Yes, Sir, I Will. Ef fólk vildi halda áfram að hlusta, þá þurfti það að leggja eitt- hvað á sig, lesa textann og reyna að skilja hann. Yes, Sir I Will hefur fengið ágætar viðtökur og það get- ur verið að við gerum eitthvað svip- að næst. En við höldum samt áfram að gera hluti eins og Banned from the Roxy áfram. Við semjum text- ana fyrst og ákveðum síðan hvers konar tónlist hentar þeim best. Þannig að þetta er alltaf að breyt- ast. Við spilum enga eina tegund af tónlist. Við reynum alltaf að gera okkar besta. Næst kemur kannski ekta rock and roll, kannski eitthvað allt annað“ — Hvernig datt ykkur í hug að koma til Islands? „Það sem okkur finnst unnið við að koma til íslands er aðallega það að geta spilað fyrir alla þar í einu. Við höfum aldrei viljað spila er- lendis áður, því að í flestum tilvik- um þýðir það venjulegt hljómleika- ferðalag. það þarf að spila á mörg- um stöðum. Vonandi getum við líka liðsinnt friðarhreyfingunni í land- inu. Við spiluðum einu sinni í Hollandi og Þýskalandi. Ýmislegt fór fyrir ofan garð og neðan þar vegna tungumálaerfiðleika og vegna þess hve menningin þarna er ólík okkar. í Hollandi er hægt að fá keypt eiturlyf á götunni og flestir sem komu á hljómleika okkar þar voru útúrstónd. Það var eins og að spila fyrir framan steinvegg. Stefn- an hjá okkur hefur alltaf verið sú, að ef okkur finnst eitthvað þess virði, eins og t.d. þessi hátíð á ís- landi, þá gerum við það. Við viljum ekki bara korna eins og hver önnur rokkhljómsveit. Við viljum koma og spila og vera svo á landinu í nokkra daga til að kynnast ástand- inu“ — Hver er ykkar pólittk? „Við viljunt enga ríkisstjórn. Við viljum að fólk taki sjálft ábyrgð á eigin lífi. Þetta er eina lausnin. Þetta sannaðist í síðustu kosning- um hér í Bretlandi. Verkamanna- flokkurinn sagði allt fram að kosn- ingum að hann væri á móti kjarn- orkuvopnunt og kjarnorkustríði. Þegar flokkurinn komst að því að hann fengi ekki atkvæði út á þessa stefnu, þá hætti hann að halda henni fram. Þeir notuðu kjarn- orkuafvopnun bara til að fiska at- kvæði. Þetta sýnir okkur bara að allar ríkisstjórnir eru eins, þegar öllu er á botninn hvolft. Það er allt- af einhver munur á þeim, en enginn sem skiptir venjulegt fólk neinu máli. Það breytist ekkert fyrr en fólk fer að ákveða sjálft hvað því er fyrir bestu. Það er engin önnur leið“ —- Hefíir þú, einhverja hug- mynd um af hvcrju margt ungt fólk viróist ekki hafa mætur á pólitískri rokktónlist? „Já, skýringin gæti verið sú, að ungt fólk er hætt við að hugsa, kannski veit það ekki að það getur hugsað, veit ekki að það má hugsa. Og margir eru latir, nenna ekki að hugsa. Crass kemur aldrei í veg fyrir að Margrét Thatcher vinni kosningar, en það sem við getum gert er að pirra núverandi valdhafa, og koma upplýsingum okkar út til fólks. Og vonandi kemst fólk að því einhvern tíma — kannski ekki fyrr en eftir minn dag, kannski eftir 200 ár — að það er engin þörf fyrir valdhafa, hver og einn getur verið sinn eigin valdhafií'

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.