Helgarpósturinn - 08.09.1983, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 08.09.1983, Blaðsíða 15
15 _}~lelgai-1—**■ pðsturinn Fimmtudagur Búist er við miklum sam - drætti á jólabókamarkað- inum í ár. Hefur verið óvenju- lega rólegt í flestum bókaprent- smiðjum það sem af er árinu og segja prentsmiðjueigendur að bókaútgefendur séu með mun færri titla á ferðinni en undanfarin ár og telja áberandi hversu miklu færri ís- lenskar skáldsögur eru á ferðinni en að undanförnu. Ástæða til tregðu útgefenda á útgáfu skáldsagna mun vera sú fyrst og fremst að þær hafa selst illa undanfarin ár og telja þeir sig ekki geta tekið áhættuna að þessu sinni... ^ Meðal bóka sem væntanlegar Z' 1 eru á jólamarkaðinn er bók sem fjaliar um heims- styrjaldarárin síðari á íslandi. Höfundur bókarinnar er Tómas Tómasson sagnfræðinemi og mun hann víða hafa leitað fanga við efnissöfnun í bókina. Meðal þess sem Tómas mun hafa komist að er það að Þjóðverjar höfðu tekið endanlega ákvörðun um að gera ekki innrás í ísland, en hingað til 8. september 1983 hefur verið haldið að þeir hafi haft tilbúna áætlun um slíkt, en orðið aðeins á eftir Bretum. Mikil áhersla mun hafa verið lögð á að afla ljós- mynda úr ýmsum áttum í bók Tómasar og þar munu birtast fjöl- margar myndir sem ekki hafa sést hérlendis áður... Það vakti nokkra athygli að l Þjóðviljinn setti upp fýlusvip ,✓ þegar Þröstur Ólafsson var ráðinn til Dagsbrúnar. Ritstjórinn - Einar Karl Haraldsson hefur verið bendlaður við hin neikvæðu frétta- skrif og sagt að hann sé að hefna harma sinna fyrir hin óvirðulegu ummæli Guðmundar J. um blaðið að undanförnu. Aðrir segja að blaðamaður einn á Þjóðviljanum hafi skrifað fréttina en Einar tekið á sig skrifin eins og sannur ritstjóri. Enn aðrir segja að sakir þess hve Morgunblaðið og Tíminn hafi verið neikvæðir í garð Guðmundar J. og Þrastar Ólafssonar hafi Þjóðviljinn einnig tekið þann kost til að breyta tóninum í skrifum hinna blaðanna og tekist það með ágætum. Þetta sýni bara hve Þjóðviljamenn eru kænir.... Timbur Bygginga- eftirstöðvar ** 7 1forur Teppi Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar • FLÍSAR • HREINLÆTISTÆKI • BLÖNDUNARTÆKI • BAÐHENGI • BAÐTEPPI • BAÐMOTTUR • MÁLNINGARVÖRUR • VERKFÆRI • HARDVIÐUR • SPÓNN • SPÓNAPLÖTUR • GRINDAREFNI • VIÐARÞILJUR • PARKET • PANELL • EINANGRUN • PAKJÁRN • ÞAKRENNUR • SAUMUR • RÖR • FITTINGS • Og NÚ einnig steypustyrktarjárn og mótatimbur. OPIÐ: mánudaga — fimmtudaga kl. 8—18 föstudaga kl. 8—19 laugardaga kl. 9—12. iBYGOINGflVÖRMRl HRINGBRAUT 120 Simar Byggingavörur 28 600 Golfteppadeild 28 603 Timburdeild 28 604 Málningarvörur og verkfæri 28 605 Flisar og hreinlætistæki 28 430 HRINGBRAUT 120 (Aðkeyrsla frá Sólvallagötu) r»^ Það er ekkert lát á baráttu J kvenna fyrir jafnrétti. Við Y heyrum að konur eins og aðrir séu farnar að undirbúa vetrar- starf hver á sínum stað. Launamálin verða ofarlega á baugi nú í haust. Alþýðuflokkskonur munu halda ráðstefnu um launamál kvenna 24. september, þar sem tækifæri gefst til að spyrja forkólfa verkalýðs- hreyfingarinnar um það hvers vegna konur sitja alltaf á botnin- um. Eins mun Kvennaframboðið hafa í hyggju að hóa konum úr öll- um starfsstéttum saman siðar í haust til að ræða saman um kjör kvenna og sameiginlefe vandamál á vinnumarkaðinum. Það skyldi þó aldrei vera að næsta sókn kvenna verði í kjaramálum?... Kvennalistakonur héldu ráð- stefnu að Búðum á Snæfells- nesi um síðustu helgi. Þar mættu um 90 konur víða að af landinu til að ræða málin. Eins og menn muna bauð Kvennalistinn fram í þremur kjördæmum í síð- ustu kosningum, nú velta menn því fyrir sér hvort konur í öðrum kjör- dæmum muni slást í hópinn og hvort sú hreyfing sem sumir væntu að væri bóla, verði varanleg í póli- tísku litrófi landsins... Af Jafnréttisráði er annars f i það að frétta að fjárhagur- S ir.n virðist þar þrengri en hjá mörgum öðrum stofnunum: Fyrir liggur að ráða starfsmann á skrif- stofu ráðsins, vandinn er bara sá að Jafnréttisráð hefur ekki efni á að auglýsa! Því eru ætlaðar einar 12 þúsund krónur á mánuði í rekstur og kostnaður við auglýsingu eftir nýjum starfsmanni myndi gleypa hátt í helming þess fjár.... ivieo naustinu netst vertíðin f' \ i listalífinu. Sinfóníuhljóm- Jr' sveit íslands er mætt til leiks og æfingar hafnar. Á fyrra misseri mun Einar G. Sveinbjörnsson verða konsertmeistari í nokkra mánuði í stað Guðnýjar Guðmundsdóttur - sem fer í frí. Einar hefur sem kunn- ugt er starfað undanfarin ár með Sinfóníuhljómsveitinni í Malmö.... Við opnun Reykjavíkurviku f~ J voru fluttar margar ræður y um stofnanir borgarinnar. Meðal þeirra sem steig í stól var Þóra Kristjánsdóttir listráðunautur Kjarvalsstaða. Hún sagði frá því að sl. ár hefðu 100.000 manns heimsótt Kjarvalsstaði sem slagar hátt upp í leikhús borgarinnar ef ekki betur. Hins vegar nefndi hún að um 60.000 manns hefðu komið á Laug- ardalsvöllinn. Með allri virðingu fyrir íþróttamönnum væri gaman að einhver reiknaði út hvað íþrótta- völlurinn fær mikið fé frá borginni (sbr. gervigrasvöllinn sem átti að fá 10 milljónir en varð svo að fresta), miðað við það að Kjarvalsstaðir sem þjóna allri borginni fá 5 millj- ónir til sinna þarfa á árinu... Gísli Sigurgeirsson blaða- maður á Akureyri fæst um þessar mundir við samningu endurminningabókar Jóhanns heitins Konráðssonar söngvara. Auk minninga Jóhanns verða í bók- inni viðtöl við gamla söngvini hans, félaga úr Smárakvartettinum og fleiri. Útgefandi bókarinnar verður Skjaldborg og hún er væntanleg út fyrir jólin. Ein megin ástæðan fyrir því f l að Stúdíó Stemma hefur ver- ^ ið fengin til að annast upp- tökur á stórum sviðsverkum og kirkjutónlist er sú, að stúdíóið er hið eina með hreyfanlegt 24 rása kerfi. Hljóðriti er einnig með 24 rása upptökur, en á erfiðara að koma tækjunum úr húsi og með mun meiri fyrirhöfn. Hljóðriti hef- ur aðeins einu sinni tekið upp 24 rása upptöku utan stúdíós og var það þegar Megas hélt tónleikana í Hamrahlíðarskóla sem út komu á plötunni „Drög að sjálfsmorði“. Stúdíó Stemma getur hins vegar komið upp tækjum sínum hvar sem er á tveimur klukkustundum.... /------------- ' X Þegar komið er af vegum með bundnu slitlagi tekur tíma að venjast breyttum aðstæðum FÖRUM VARLEGA! FÖSTUDAGSKVÖLD I JIiHUSINU 11JUHUSINU OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 10 í KVÖLD 0PIÐ LAUGAR DAGA EUROCARD NYJUNG ve' JL grillið O^^'ina Grillréttir allan daginn rslunartt Réttur dagsins MATVÖRUR FATNAÐUR HÚSGÖGN HUSGA GNA UR VAL Á TVEIMUR HÆÐUM. RAFTÆK! RAFLJÓS REIÐHJOL

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.