Helgarpósturinn - 08.09.1983, Page 9
He/aai----v-1-
Posturínn Fimmtudagur ®- september 1983
9
Astvinir sveifiuþjóðarinnar
Það er hluti af djassgeggjun-
inni að standa í flughöfninni í
Keflavík klukkan sex að morgni
og bíða eftir Hinum átta stóru,-fá
að vita að flugvélinni hafi seinkað
um fimm tíma, æða útá flugvöll
aftur klukkan ellefu og keyra
Hina átta stóru í bæinn.
En hverjir eru Hinir átta stóru?
Draumar tveggja kynslóða djass-
geggjara rætast í þeim! Hinir eldri
muna Teddy Wilson, Red Norwo,
Billy Butterfield og Johnny Mince
og hinir yngri (þó engin unglömb
séu) Buddy Tale, Alwell Shaw,
Sam Woodyard og Tal Farlow.
Þeir sem fylgjast eitthvað með
muna þá alla.
Það var mikil upplifun að sitja
í Gamla Bíói troðfullu og hlusta á
meistarana, og það kom fljótt
uppí hugann hvernig eetti að leysa
vandann: átta stórstjörnur í einni
hljómsveit. Rósettan hans Earl
heitins Hines var fyrst á dagskrá:
upphitun fyrir bandið, en síðar
fékk hver og einn þetta tvo, þrjá
einni stærstu hótelkeðju Banda-
ríkjanna fyrir að leika of hot: þar
hljóta gestir að vera úrkynjaðir
upptil hópa.
Billy Butterfield var sjálfum sér
líkur, Weep For Me var vel blásið
en það þarf dirfsku til að blása
Dear Old Southland eins og hann
gerði. Þetta er eitt af helstu
Snilldarverkum Louis
Armstrong: hljóðritað upphaf-
lega 1930 og byggt að hluta á
sálminum fræga: What Do I Feel
as A Motherlike Child. Billy blés
þannig að hörðustu Louis
aðdáendur táruðust.
Red gamli Norvo er 75 ára
gamall og velkominn í 83 væbsafn
Jazzvakningar, þar sem fyrir eru
Lionel Hampton og Garry
Burton. Þrátt fyrir að heyrnin sé
skert hjá meistaranum er ekkert
að tónhugsuninni og vænt þótti
okkur um kliðmjúka víbrafón-
sólóana.
Teddy Wilson er Teddy Wilson
og einn af helstu snillingum
djasspíanós fjórða áratgsins.
opusa til að sýna ágæti sitt. Þar
var margt fallega gert og oft
snilldarlega og er ekki um það að
villast að Hinir átta stóru eiga
ýmislegt ósagt áður en þeim gefst
foldar friður.
Fyrstur á vettvang var kallaður
klarinettuleikarinn Jolinny
Mince. Johnny býr nú í Florída og
var loðfóðraður þegar hann lenti
í Keflavík. Dóttir hans hafði eitt-
hvað frétt af sumrinu íslenska.
Það er gaman að heyra fyrsta
flokks svíngklarinettuleikara
blása! Of oft höfum við heyrt
skuggamynd Benny Goodmans í
fjölmiðlum. Johnny Mince var
enginn skuggamynd af sjálfum
sér; í það minnsta fannst mér
hann blása betur í Gamla bíói en
hann gerði í Tommy Dorsey band-
inu þegar Frank Sinatra söng.
Þegar hann tryllti í The Man I
Love undraðist maður fréttirnar
að hann hefði verið rekinn úr
hljómsveitarstjóradjobbi hjá
Það var ljúft að heyra hann túlka
Sophisticated Lady og Tea For
Two — þar var hin eilífi Wilson-
glans í hlaupum og trilIum.Verra
var þegar farið var í St. Louis
BIues,þar ræður búgginn ríkjum
og Arwell Shaw tók völdin —
þessi hraustlegi útblásni fýsibelg-
ur! Hann var þarna kominn í stað
Slam Stewart, sem nú liggur
banaleguna. Kannski voru það
forlögin sem ákváðu þetta: þegar
Louis Armstrong kom hér 1965
átti Arwell Shaw að leika í band-
inu en Arwell fékk slæma flensu
svo Jack Lesberg mætti fyrir hönd
Chicago skólans. En við sem
söknum þó Slams og vonum og
biðjum að hann nái sér enn einu
sinni og komi til Reykjavíkur og
Ieiki á bassann vorum ekkert
óhress með Arwell. Djöfull var
það óvænt geggjun að heyra hann
blása bassann. Hann strauk
Yesterdays, eins og sá sem valdið
hafði og söng Summertime svo
públikumið lyftist í sætunum.
Það var eins og á Goodman
tónleikunum ’76. Buddy Tate leit
ekki út fyrir að vera nema rétt um
fimmtugt og þegar hann blés East
of the sun í þessum gullhamraða
Websterstíl táruðust fleiri en ég.
Oh boy! þessi maður er djass-
tenorinn samankýldur!
Tal Farlow var sá þeirra félaga
sem kannski átti mest erindi við
okkur öll. Gamla hljómatröllið
hafði engu gleymt og stíll hans var
enn svo ferskur að undrun sætti.
Jón Páll var í salnum, en sá ágæti
kappi er á leið til LA í gítarnám
( svo lengi lærir sem lifir), Hann
hefur s.l. áratug reynt að ná
Farlow „Iæf“. Það tókst loksins í
Reykjavík (aukanafla alheims-
ins!) Ég fullyrði að sólóar Farlows
voru ekki aðeins mér heldur öll-
um til unaðar!
Þegar sjömenningarnir voru
komnir frá N.Y. á Hótel Loftleiðir
greip um sig dálítill órói. Hvar er
Sam Woodyard? Gertt Mayer
umbi sveitarinnar stikaði um gólf
og hringdi heimshorna á milli. En
óttinn var ástæðulaus. Sam
Woodyard, Ellingtontrommarinn
mikli, hafðu komið til landsins
með sömu seinkunarvélinni og
þeir félagar höfðu mátt þola að
fljúga með.
Hann hafði tekið hana frá
Lúxemburg. Þeir frá New York.
Og satt aðsegja var Woodyard í
rosastuði. Hann var búinn að
hvílast í Reykjavik í sólarhring,
hafði ekki eins og Teddy þurft að
fljúga frá Colorado, hírast í fimm
tíma á Kennedyflugvelli í New
York vegna seinkunar og koma til
Reykjavíkur um hádegi konsert-
dagsins nær dauða en lífi.
Sam sá um allt, rýþminn eins og
hver vildi og sólóarnir leiftrandi
af músíkaliteti.Það var eðlilegt að
Ellington heitinn réði auka-
trommara til að þurfa ekki að
segja Sam upp þegar hann týnd-
ist: tók vitlausa lest, flugvél eða
skip! það er aðeins einn Sam
Woodyard og hann lamdi allt í
klessu I Óperunni eins og stór-
trommara sæmir.
Þetta var sveiflukvöld sem
sagði sex! Drengirnir léku lög sem
allir kunnu en betur en aðrir
kunna.
ur Sæmundsson segir frá fjallaferð
endur fyrir löngu.
14.40 Á frívaktlnni. Margrét Guömunds-
dóttir kynnir Gylfa Ægisson og vini
hans, hásetana slöppu, sem ekkert
fiska. Bara dorma á Dormbanka.
19.50 Viö stokkinn. Ólafur Haukur segir
skemmtilega frá ævintýrum sinum.
Hann hefur sko hugmyndaflugiö í
lagi sá maöur. Börnin kunna aö
meta þaö.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg.
23.00 Náttfari. Gestur E., Jónsson frá
Akureyri talar unglingana i svefn.
01.10 Á næturvaktinni.ÁsgeirTómasson
sór um fulloröna fólkið.
03.00 Dagskrárlok. Er nokkur eftir?
Laugardagur
10. september.
8.20 Morguntónleikar. Merkileg
blanda af andlegri tónlist.
10.25 Óskalög sjúklinga. Lóa Guöjóns-
dóttir er ekki orðin þreytt. Ég finn
þaö á mér. Ég er aftur á móti þreytt-
ur mjög.
11.20 Sumarsnældan. Sigríður Eyþórs-
dóttir meö synina tvo annast um-
sjónarþátt fyrir yngstu þörnin.
13.35 Á ferð og flugi. Um málefni liöandi
stundar. Um veröbólguna? Um
kjaraskeröinguna? Um vanda hús-
byggjenda?
14.35 Um nónbil í garðlnum. Hafsteinn á
hrós skiliö fyrir rósirnar sem hann
gaf okkur um daginn. Góöur þáttur.
16.20 Að elska og umbreyta. Danskur
prestur og lýöháskólafrömuöur er
tvö hundruö ára um þessar mundir
Hér er fjallaö um hann.
19.35 Óskastund. Hér er þaö svo Þing-
vallapresturinn sem segir okkur frá
draumum sinum.
20.30 Sumarvaka. Tveir menn.
24.00 Listapopp. Gunnar Salvarsson fer
með okkur I tónlistarferö um helstu
höfuöborgirnar.
Sunnudagur
11. september
9.05 Morguntónleikar. Vaffalaus and-
leg tónlist eftir meistara meistar-
anna.
10.25 Út og suður. Guömundur Arn-
laugsson segir okkur frá ferö skák-
manna til Argentinu 1939. Siðari
umferö. Sú fyrri var bráðskemmti-
leg.
11.00 Messa. Guö er nú i Grenivík, gettu
hvaö hann heitir... (Bjart er yfir
Betlehem)
13.30 Sporbrautin. Ólafur Torfason og
Örn Yngi finkemba Norðurlandið.
Merkilegt hvað þeim tekst aö grafa
upp af skemmtilegu fólki.
15.15 André Heller. Bokkinn sá er aust-
urriskur og syngur Ijóöin sin. Guöni
Bragason og Hilmar Oddsson
segja frá.
16.30 Rós til Emilíu. Smásaga eftir%
Faulkner.
17.00 Síðdegistónleikar.
18.00 Þaö var og. Þráinn Bertelsson út
um hvippinn og hvappinn. Hefur
þessi maöur ekkert annaö að gera?
19.35 Samtal á sunnudegi. Fólk frá
óvenjulegum sjónarhornum.
19.50 Hrafninn. Þorsteinn frá Hamri ætl-
ar aö krunka fyrir Edgar Allan Poe.
23.00 Djass. Jón Múli er ekki enn búinn
aö ná sér eftir áttmenningana.
llíOIII .['★★★★ framúrskarandi
★ ★ ★ ág»t
★ ★ góð
★ þolanleg
O léleg
Bíóhöllin:
Get Crazy. Bandarisk kvikmynd, ár-
gerð 1983. Leikendur: Anna Björns,
Malcolm McDowell, Allen Gorwitz,
Daniel Stern. Leikstjóri: Allan
Arkush.
Gamlárskvöld 1983-4. Fjölmargir
skemmtikraftar koma fram á diskótek-
inu Saturn. Heilmikiö grin og glens og
tónlist. Áramótafagnaöur i sérflokki
meö okkar einu og sönnu Önnu
Björns.
Snákurinn (Venom). Bresk kvik-
mýnd, árgerð 1981. Leikendur: Oli-
ver Reed, Klaus Kinski, Susan
George.
Ágæt spennumynd um eitraða snáka
og saklaust fólk. Tekst þeim að kála
ófögnuöinum?
Utangarðsdrengir. (The Outsiders).
Bandarísk. Árgerð 1983. Handrit:
Kathleen Knutsen Roweil eftir bók
S.E. Hinton. Kvikmyndataka:
Stephen H. Burum. Tónlist: Carm-
en Coppola (faöir leikstjórans).
Leikendur: C. Thomas Howell,
Ralph Macchío, Matt Dillon o.fl.
Leikstjórl: Francis Ford Coppola.
Þetta er spennandi strákasaga með
slagsmálum, sorg, hetjudáðum og
dauöa. Og svo auövitaö stelpum.
þeim miklu örlagavöldum. ***
- LÝÓ.
Allt á floti. (Take this Job and Shove
it). Bandarísk kvikmynd. Árgerð
1982. Aðalhlutverk: Robert Heys,
Barbara Hershey, David Keith, Art
Carney, Eddie Albert. Leikstjóri:
Gus Trikonis.
Þessi grínmynd fjallar um bjórbrugg-
araog lögmál frjálsrarsamkeppni hiö
vestra.
Sú göldrótta. (Bedknotes and
Broomsticks) Walt Dlsney mynd.
Aðalhlutverk: Angela Lansbury og
Roddy McDowell. Leikstjóri: Robert
Stevenson.
í þessari er einn sá mesti kappleikur
sem sést hefur lengi. Myndin er bæöi
leikin og teiknuö.
Bekkjarklikan. (National Lampoons
Class Reunlon). Bandarfsk, árgerð
1983. Lelkendur: Gerrit Graham,
Stephen Furst, Fred McCarren.
Leikstjóri: Michael Miller.
Þessi mynd er framhald Delta klik-
unnar sem sýnd var hérfyrir nokkrum
árum. Nú á klíkan 10 ára afmæli og
taka þá hinir fyndnustu hlutir að ger-
ast.
Regnboginn:
Eyðum saman nóttlnni (Let’s spend
the Night together). Bandarísk
kvikmynd, árgerð 1982. Leikstjóri:
Hal Ashby.
Rollingarnir á þeytingi um þver og
endilöng Bandarikin. Nokkrir tugir
uppáhaldslaganna okkar allra.
Truck Turner- (Trukkasnerill).
Bandarísk kvikmynd. Leikendur:
Isaac Hayes, Yaphet Kotto.
Svört sakamálamynd, eins og gengur
og gerist. Vinsæl poppstjarna og frá-
bær leikari. Gæti veriö þokkon.
Annar dans (Andra dansen).
Sænsk kvikmynd, árgerð 1982.
Handrit: Lars Lundholm. Leikend-
ur: Kim Anderzon, Lisa Hugoson,
Sigurður Sigurjónsson, Tommy
Johnson. Leikstjóri: Lárus Ýmir
Óskarsson. * * *
í myndinni ríkir sterk Ijóöræn skynjun
og umfram allt er hún uppfull af
skemmtilegheitum. Lárus Ýmir sýnir
umtalsverðan listrænan þroska, fyrir
utan tæknilegt vald á miölimum.
— ÁÞ
Leitin að dvergunum. Bandarísk
kvikmynd. Leikendur: Deborah
Reffin, Peter Fonda.
Ungt fólk i frumskógum Filippseyja.
Hvar eru dvergarnir? Spenna og
glæpamenn á hverju strái.
Rauðliðar (Reds) Bandarisk, árgerð
1981. Handrit: Trevor Griffith, Wárr-
en Beatty. Aðalhlutverk: Warren
Beatty, Diane Keaton, Jack Nichol-
son, Maureen Stapleton.
„...Beatty hefur óneitanlega unnið
verulegt leikstjórnarafrek með vold-
ugum sviösetningum á viðamikilli
.sögu. Eftirminnilegastur er þó leikur
Jack Nicholsons i hlutverki leikrita-
skáldsins Eugene O’Neill sem verður
vinur Reeds og elskhugi Bryants og
ekki síst stórbrotin myndataka Vittorio
Storaro."
— ÁÞ.
Háskóiabíó:
Ráðgátan (Enigma). Bandarisk, ár-
gerð 1982. Handrit: John Briley.
Leikendur: Martin Sheen, Sam
Neill, Brigitte Fossey, Michel Lons-
dale, Derek Jacobi. Leikstjóri:
Jeannot Schwarc.
Sovéska leyniþjónustan KGB ætlar
aö ráöa af dögum fimm fyrrum Sovét-
borgara sem búa erlendis. Vestrænir
leyniþjónustumenn ætla að reyna aö
koma i veg fyrir þaö. Og þeim tekst
það. Toppleikarar i hverju rúmi.
Bíóbær:
Einvigið (Harry’s War). Bandarisk
kvikmynd. Leikendur: Edward Her-
man, Geraldine Page.
Endursýnd gamanmynd um óvenju-
legan mann sem segir yfirvöldum
stríö á hendur.
Ljúfar sæluminningar. The hottest
film in town. Fer úr landi um helgina.
Frumsýning á sunnudag:
Polyester. Bandarisk gamanmynd
um hjónabandsvandamál og sam-
búðarerfiðleika. MYND MEÐ ILM-
TÆKNI. Komið i bió og finnið góöa
lykt. Eina myndin sinnar tegundar i
heiminum.
Austurbæjarbíó:
Firefox (Eldrebbi). Bandarfsk kvik-
mynd, árgerð 1982. Leikendur:
Clint Eastwood, Freddie Jones.
Leikstjóri: Clint Eastwood.
Clint gamli leikur ofurhuga amerísk-
an, sem fær það verkefni að fara til
Moskvu og stela þar nýjustu orrustu-
flugvél Rússa. Upphefst nú mikill og
spennandi eltingaleikur yfir þvera
Evrópu. Aö sjálfsögðu tekst mannin-
um þaö, enda sinn eigin leikstjóri.
Laugarásbíó:
Ghost Story (Reimleikar). Banda-
rísk, árgerð 1982. Handrit: Lawr-
ence D. Cohen. Leikendur: Fred
Astaire, Melvyn Douglas, Douglas
Fairbanks jr., John Houseman.
Leikstjóri: John Irvin.
Nokkrir gamlingjar hafa það fyrir sið
aö hittast og segja draugasögur. Eitt
kvöldiö ber svo viö að ung stúlka sem
þeir drápu hér á árum áöur, fer aö
ganga aftur og gera þeim lifiö leitt.
Bæjarbíó:
Þjófur á lausu.
Richard Pryor leikur skilorösþjóf, sem
ferðast með skólabörn yfir Usa.
Stjörnubíó: ***
Gandhi. Bresk-indversk kvikmynd.
Árgerð 1983. Handrit: John Briley.
Leikendur: Ben Kingsley, Candice
Bergen, Edward Fox, John Gielgud,
Trevor Howard, John Mills, Martin
Sheen. Leikstjóri: Richard Atten-
borough.
„Prýðiskvikmynd sem er löng, en
ekki leiöinleg. Merkilegur hluti sam-
timasögunnar, sem er fegrun, ekki
lygi. Óvægin sjálfsgagnrýni Breta,
sem gerir þeim mögulegt aö liða bet-
ur á eftir, eins og katólikka, sem er ný-
búinn aö skrifta."
— LÝÓ.
Tootsle. Bandarfsk kvikmynd, ár-
gerð 1983. Lelkendur: Dustin Hoff-
man, Jessica Lange, Terry Garr,
Charles Durning. Leikstjórl: Sidney
Pollack. Dustin Hoffman fer á kostum
i aöalhlutverkinu og sýnir afburöa-
takta sem gamanleikari. Tootsie er ó-
svikin skemmtimynd. Maöur hlær oft
og hefur litiö gleöitár i auga þegar
upp er staðiö. * * *
— LÝÓ
Tónabíó:
The Loop Hole (Glufan). Bresk kvik-
mynd, árgerð 1981. Leíkendur: Al-
bert Finney, Martin Sheen. Leik-
stjóri: John Quested.
Einn náungi er blankur og annar fær
hann meö sér niður i siki Lundúna, en
þaðan ætla þeir aö komast innum
glufu i banka og ræna peningum.
Sakamálamynd af betra taginu frá
Tjallanum.
Nýja bíó: ***
Poltergeist. Bandarisk, árgerö
1982. Handrit Steven Spielberg,
Mlchael Grais, Mark Victor. Leik-
stjórl: Tobe Hooper. Aðalhlutverk:
Jobeth Wllllams, Cralg T. Nelson,
Beatrice Straight.
...þeir keyra hryllinginn áfram meö
sívaxandi þunga og yfirburða tækni,
sem lauslega dregnar persónur og
nokkurvæmni náekkiaðeyöileggja.''
— AÞ.
foillisl
Menningarmiöstööin
Gerðuberg:
Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanó-
'leikari heldur tónleika í kvöid, fimmtu-
dag kl. 20.30. Þorsteinn Gauti leikur
tónlist eftir 17. og 20. aldar tónskáld.
Stúdentakjallarinn:
Hrægammarnir hremma þig í viöjur
djasssveiflunnar á sunnudag kl. 21
og fram eftir kvöldi. Mjaömahnykkur-
inn er. góöur.
viftlMinYir
Kjarvalsstaöir:
Videólist á myndböndum alla helgina
á samsýningu Hagsmunafélags
myndlistarmanna. Á laugardag kl. 15
verður svokölluð videoinstallasjón
eftir Ástu Ólatsdóttur og kl. 16 eftir
Guðrúnu Hrönn Ragnarsdóttur. Á
sunnudag kl. 16 verður svo videoin-
stallasjón eftir Þór Elis Pálsson.