Helgarpósturinn - 08.09.1983, Blaðsíða 20
20
Fimmtudagur 8. september 1983 J^pBsturinn
Börn þekktra foreldra
io3*
að vera
Börn frægra foreldra. Einhvern veginn er hálfgerður Hollywood-
stíll yfir slíkum vangaveltum. Maður sér fyrir sér glampandi
myndavélar, silkikjóla, skinn og smókinga, frægt fólk sem ryðst
gegnum mannþröng í áttina að bíóhöll eða samkvæmisstað, blaða-
menn í hrönnum sem elta fólk á röndum. Líklega kannast börn
þekktra Islendinga ekki við þennan veruleika en skyldu þau ekki
hafa upplifað eitt og annað sem fylgir átökum stjórnmála, athygl-
inni sem beinist að listamönnum og embættismönnum sem kalla að
sér annríki og umstang.
íslendingar hafa löngum verið spenntir fyrir ættfræði og þvi er
varla til sá maður sem ekki hefur fengið þessa spurningu: hverra
manna ert þú? Þeir sem eiga fræga foreldra þekkja þau áhrif sem
þekkt nafn, ættarnafn, starf eða framlag foreldra, jafnvel afa og
ömmu geta haft, bæði til góðs og ilis. Helgarpósturinn leitaði til
nokkurra karla og kvenna með þá spurningu hvaða áhrif það hefði
haft á líf þeirra að eiga frægan föður eða móður.
Sigríður Halldórsdóttir sem er
lesendum Helgarpóstsins að góðu
kunn sem einn af riddurum hring-
borðsins, er dóttir Halldórs
Laxness og Auðar Sveinsdóttur.
Hún fæst lítillega við að skrifa, fyr-
ir utan hringborðið hefur hún tekið
viðtöl fyrir HP, en hennar aðalstarf
er að annast börn og bú í Mosfells-
sveitinni, í túninu heima hjá pabba
og mömmu.
Sigríður: Það hafði töluverð
áhrif á mig sem krakka að vera
dóttir Halldórs Laxness, en það
hefur það ekki lengur. Það gat verið
erfitt að vera Kiljansdóttir. Ég brást
þannig við sem unglingur að ég bjó
mér til töff ímynd sem var kannski
allt öðru vísi en ég var í raun og
veru. Ég vildi alls ekki vera þessi
góða, vel uppalda dóttir hans
Halldórs Laxness. Á tímabili geng-
umst við systurnar upp í því að
prótestera, vorum bæði drullugar
og druslulegar. Óneitanlega kom
frægðin niður á heimilislífinu. Það
var mikill gestagangur, við þurftum
að læðast um, og eitt það versta sem
fyrir kom var þegar við vorum
kallaðar niður til að heilsa fólki.
Seinna fórum við að hjálpa til, og
fórum að líta öðrum augum á þetta
samkvæmislíf sem fylgdi frægð-
inni. En auðvitað hafði frægðin
sínar góðu hliðar. Við kynntumst
fullt af fólki, bæði útlendingum og
íslendingum, en ég fór líka fljótlega
að aðgreina frægðina og heimilis-
lífið. Fyrir mér vorúþau pabbi og
mamma, sem voru oft i burtu en
líka oft heima. Við liðum aldrei
neitt fyrir þetta. Ég var oft mjög
stolt af pabba og auðvitað lærði ég
margt af honum. Mér er það
minnisstætt hvernig ég skynjaði
frægð hans í fyrsta sinn. Þá var ég
pínulítil, það hefur annað hvort
verið þegar hann fékk Nóbelsverð-
launin eða þá að þau voru að koma
að utan. Það var mikið húllumhæ á
bryggjunni og mér fannst það
furðulegt og fór öll hjá mér.
Stundum spurði fólk, hvernig
það væri með hann pabba minn
hvort hann ynni aldrei neitt. Ég var
viðkvæm fyrir því og hugsaði að
fyrst við ættum heima í sveit gætum
við þó haft beljur, i það minnsta
hænsni. Það liti betur út.
Ég naut góðs af frægðinni t.d.
þegar ég flaug inn í Kvennaskólann
á nafninu. Það hlýtur að hafa verið
áfall fyrir kennarana hvað ég var
treg til náms. Það var og er kannski
enn ætlast til þess að þetta afkvæmi
skáldsins búi yfir duldum neista, en
það hvarflaði aldrei að mér að fara
að skrifa fyrr en eftir að ég var orð-
in fullorðin.
Þegar á heildina er litið held ég
að við systurnar búum vel að því
uppeldi og andrúmslofti sem við
ólumst upp í, við lærðum snemma
að standa á eigin fótum, við stóðum
saman og gerum enn.
Ásgeir Thoroddsen er lögfræð-
ingur. Frá blautu barnsbeini hefur
hann alist upp við stjórnmál og
athygli sem beindist að foreldrum
hans og ekki bara þeim heldur líka
afa og ömmu. Ásgeir er sonur
Gunnars Thoroddsen fyrrv. for-
sætisráðherra og Völu Ásgeirsdótt-
ur (Ásgeirssonar fyrrv. forseta
íslands). Hvaða áhrif hefur frægð-
in haft á hann?
Ásgeir: Ég held að uppruni minn
hafi haft góð og hvetjandi áhrif á
mig. Ég vandist því frá byrjun að
faðir minn var í pólitíkinni og við
fylgdumst alltaf vel með því sem
hann var að gera. Heima var slegist
um blöðin á hverjum morgni.
Auðvitað varð ég fyrir skítkasti en
maður fékk á sig skel. Við vorum
ekkert að flagga því hvað pabbi
gerði. Þegar hann var borgarstjóri
sögðum við að hann ynni hjá bæn-
um, ef við vorum spurð. Fólk spurði
alltaf hvaða Thoroddsen þegar það
heyrði nafnið því ættin er stór. Ég
hef alltaf verið hreykinn af nafninu
og það hefur aldrei hvarflað að mér
að kalla mig Gunnarsson. Ég var
stoltur af foreldrum mínum og^það
hafði þau áhrif að ég vildi reyna að
standa mig.
Það er misjafnt hvernig menn
bera vinnu sína með sér heim. Við
vöndumst því að pabbi fór að heim-
an snemma á morgnana og kom
heim um kvöldmatarleytið, en hann
dembdi aldrei vandamálum sínum
yfir fjölskylduna. Hann kom inn
með bros á vör og það var talað í
léttum tón um pólitík. Við fundum
ekki fyrir því þótt mikið gengi á.
Hann vann mikið og iðulega beið
hans einhver ræðan sem þurfti að
semja á kvöldin.
Hvað varðar afa og ömmu hafði
staða þeirra líka jákvæð áhrif á
okkur. Fyrir okkur systkinin voru
þau fyrst og fremst afi og amma.
Við heimsóttum þau oft um helgar,
vorum hjá þeim á vorin áður en við
fórum í sveitina og þegar við kom-
um á haustin. Þá var rekið bú að
Bessastöðum með skepnum og fyrir
okkur var þar ævintýraheimur. Við
minnumst þess tíma með ánægju.
Það hefur aldrei hvarflað að mér
að fara út í stjórnmál þótt faðir
minn hafi helgað sig stjórnmálum,
það hefur heldur aldrei hvarflað að
mér að samband væri milli þess að
hann var lögfræðingur að mennt og
ég líka. Fyrir mér er hann stjórn-
málamaður.
Þegar á allt er Iitið held ég að ég
hafi notið góðs af fjölskyldu minni.
Ég finn traust, kannski hafa ein-
hverjar pólitískar væringar komið
niður á mér, en það hefur hjálpað
mér að hafa þann bakgrunn sem ég
hef, að vera sá sem ég er.
Kristín Ólafsdóttir er í þann
mund að ljúka prófi sem bóka-
safnsfræðingur frá Háskóla
íslands. Hún er dóttir Sigríðar
Hagalín leikkonu sem um áratuga-
skeið hefur leikið á fjölunum í Iðnó
og ólst upp hjá henni og stjúpföður
sínum Guðmundi Pálssyni leikara.
Kristín: Ég minnist þess ekki að
hafa upplifað neitt sérstakt vegna
þess að mamma mín var þekkt leik-
kona. Ég skynjaði foreldra mína
sem foreldra,ekki sem einhverjar
LITMYNDIR SAMDÆGURS!
Filman inn fyrir kl. 11 —Myndirnar tilbúnar kl. 17
Verzlið hjá fagmanninum
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.J
LAUGAVEGI 178 REYKJAVÍK SIMI85811