Helgarpósturinn - 27.10.1983, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 27.10.1983, Blaðsíða 15
"f^(^5ft_/r/nn Fimmtudagur 20. október 1983 PRJÓNAGARN - ÚTSAUMUR - SMYRNA sögur, ekki heldur þó að þær hafi bragðað áfengi. Arnar Guðmundsson hafði einn- ig samband við blaðið og vildi ítreka að lögreglan hefði lögreglu- konu til þess að yfirheyra konur sem kæra nauðgun. Það hefði verið gert til að koma til móts við konur sem þyrfti að yfirheyra vegna slíkra mála. Kristin Ástgeirsdóttir Kjaftavitið berstrípað Svo er um marga lærða menn, hvort sem þeir eru M.Sc. eða eitt- hvað annað, að þeir hafa mikla talgáfu, eru orðhagir og orðmargir, hástemmdir oft og spekin virðist flæða úr munni þeirra og penna. Þeir tjá sig iðulega á opinberum vettvangi og í langhundum sínum taka þeir ýmislegt fyrir og eru þá, að eigin mati, að kryfja mál til mergjar og færa rök fyrir hinu og þessu. Þetta blekkir vafalaust marga, sem eru veikir fyrir lær- dómstitlum og haganlegri orða- samsuðu og tilvitnunum í merkileg nöfn. En ef slík andleg framleiðsla er stúderuð með athygli og hæfi- legri vandfýsi, kemur fljótt í Ijós að spekin er orðhengilsháttur og rökin olíubrák á vatni og útkoman verður dómgreindarlaust gjálfur. Afhjúpað stendur kjaftavitið ber- strípað. Einn slíkur orðsins meistari er GM á Helgar—Tímanum. Hann hefur m.a. tekið spíritismann fyrir og, eftir því sem hann segir sjálfur frá, kveðið hann niður í eitt skipti fyrir öll. Hann tínir til gamlar sögur um afhjúpað andabrask eins og hann sé að bera á borð spánný sannindi. En vitað er að innan allra mannlegra greina, andlegra sem efnislegra, viðgengst fals í einhverj- um mæli, og dettur engum sæmi- lega skyni bornum manni í hug að fordæma heilan skóg þó hann finni laufblað fölnað eitt. GM segir að spíritisminn hafi nú runnið sitt skeið á enda vegna ein- hvers konar sönnunarskorts. Nú er spíritisminn þess eðlis að erfitt mun að sanna neitt nema fyrir sjálfum sér. Ef á að sanna tilvist annarra heima svo allir geti fylgst með, þarf hjálpartæki sem ekki mun enn búið að smíða, en það tæki mun í öllu falli þurfa að vera flóknara og fín- gerðara en höfuð sem er bein í gegn. — Það er kannski ekki að undra að andatrú veki efagirni margra, því um margt sem liggur ljósara fyrir efast þeir stórlega, sem sjá ekki sjá- andi og heyra ekki heyrandi, en þannig þroskaheftum ber engin skylda til að stökkva upp öskrandi: Vér einir vitum. Og það er með rökin og vísindin. Ekki þykir allajafna nóg að gert að segjast hafa fært rök fyrir ein- hverju, rökin verða að fylgja svo marktækt teljist, og þau þurfa helst að vera fersk, en ekki útjaplaðar bragðlausar tuggur. Sönn vísindi og gervivísindi verða aldrei aðskilin í skilvindu yfirborðslegra heims- pekiþanka. Og eitthvað kom enn frá honum, GM M.Sc., í Helgarpóstinum 6. okt. um fyrrgreint efni, og það var þoka eins og útfrymi sem tókst ekki að líkamnast frekar en fyrri daginn. Ólafur Gíslason Neörabæ Arnarfirði rannsóknarfélaginu hefur augljós- lega vakið mikla athygli, enda íslendingar áhugasamir um þessi efni umfram flest önnur. Fróðlegt þætti Helgarpóstinum að fá fleiri viðbrögð lesenda við deilum þess- um, ekki síst með tilliti til bréfs Ævars R. Kvaran, eins helsta for- göngumanns þessara mála um ára- tugaskeið hérlendis, er birtist í síð- asta tölublaði Helgarpóstsins. Ritstj. Parið á ströndinni ásamt mörgum ísaumsmyndum fyrir- liggjandi n Sjónersöguríkari Póstsendum daglega ----------------- Mikið úrval af prjónagarni Tugir tegunda Hundruð lita Með haustinu bendum við sérstaklega á mohairgarn fyrir grófa prjóna og ullargarn HOF - INGOLFSSTRÆT11 (GEGNT GAMLfl BÍÓI). SÍMI167H. Æ • Byggingavörur • Timbur •Teppi Flísar Hreinlætistæki Blöndunartæki Baöhengi Baöteppi Baðmottur Málningarvörur Verkfæri Harðviður Spónn Spónapiötur Grindarefni Viðarþiljur Parket Panell Einangrun Þakjárn Þakrennur Saumur Rör Fittings Einnig steypu- styrktarjárn og mótatimbur Otrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar OPIÐ: mánudaga—fimmtu- daga kl. 8—18 föstudaga kl. 8—19 laugardaga kl. 9—12. JL IBYGG1NGAV0RURI (HRINGBRAUT Simar: Timburdeild ....... . . 28-604J Byggingavörur. 28-600 Málningarvörur eg verkfæri . 28-605 I Gólfteppadeild . 28-603 Flisar og hreinlaetistæki . 28-430 I f Greinin um deilurnar í Sálar-

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.