Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 27.10.1983, Qupperneq 24

Helgarpósturinn - 27.10.1983, Qupperneq 24
kann að fara að slagurinn f' i um formennsku í Sjálfstæðis- S flokknum taki alveg nýja stefnu þegar á landsfund flokksins kemur og að enginn þeirra þriggja sem lýst hafa yfir framboði sínu nái kjöri. Að undanförnu hefur allstör hópur manna unnið að því á bak við tjöldin að fá Albert Guðmunds- son til að gefa kost á sér til for- mennsku í flokknum og hefur hann enn ekki gefið þeim afsvar. Telja þeir sem kunnugastir eru að Albert muni bíða og sjá hvað setur fram að landsfundinum. Sá möguleiki er talinn fyrir hendi að Albert myndi fá verulegt fylgi, jafnvel meira en þeir Þorsteinn, Birgir og Friðrik, byði hann sig fram til formennsku, en Albert á víða fylgismenn, ekki síst úti á landi; einnig á hann sterkt fylgi hjá hinum „almenna" flokks- manni á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem vilja Albert sem formann telja hann mesta miðjumann fjórmenn- inganna og svo slegið sé á léttari strengi er óhætt að segja að það væri ekki í fyrsta sinn sem Albert skoraði frá miðju, ef hann byði sig allt í einu fram og sigraði. Þó kynnu að vera ljón á veginum fyrir þessari lausn á formannavandamáli Sjálf- stæðisflokksins, því eins og við sögðum frá fyrir skömmu mun Albert hafa lofað Geir Hallgríms- syni, fráfarandi formanni, að bjóða sig ekki fram ef hann hætti for- mennsku... '1 Rafmagnsveitu Reykjavíkur - /Ji virðist sérstaklega umhugað ■ um að koma peningum okkar rafmagnsnotenda í lóg. Rafmagnsveitan fékk þannig danskt ráðgjafarfyrirtæki til að hugsa upp endurbætur á tölvukerfi RR. Reikningurinn var að koma frá Danmörku:' 4,2 milljónir króna. Tusind tak!... Bryndís Sehram er fjölhæf f'J, hæfileikakona sem kunnugt S er. Núna á næstunni mun hún hasla sér völl á nýjum vettvangi, þar sem er auglýsingabransinn. Bryndís er að stofna, ásamt Birgi Andrés- syni myndhstarmanni og fleiri aðil- unt, auglýsingastofu sem nefnast mun Auglýsingaþjónustan Mídas og er þá trúlegt að hún láti senn af störfum sem ritstjóri tískublaðsins Líf. Þess má geta að um jólin geta menn séð Bryndísi spreyta sig við kvikmyndaleik, en hún fer með stórt hlutverk í kvikmyndinni Skila- boð til Söndru sem frumsýnd verð- ur 17. desember.... Við gleðjumst þegar löndum f J er sómi sýndur á erlendri S grund: Lárus Ýmir Óskars- son, leikstjóri og kvikmynda- skríbent Helgarpóstsins, hefur nú verið útnefndur til svokallaðra Guldbagge-verðlauna í Svíþjóð fyr- ir myndina Annar dans. Guld- baggen er einnig kallaður „sænski Óskarinn" og eru verðlaunin veitt árlega við mikla viðhöfn af sænkska kvikmyndaiðnaðinum og Sænsku kvikmyndastofnuninni. Fer verðlaunaafhendingin fram um næstu mánaðamót og eru örfáar útnefningar í hvern flokk. I leik- stjóraflokknum keppir LárusÝmir m.a. við gamalreyndan kollega i kúnstinni. Sá heitir Ingmar Berg- mann.... T Kandídatarnir þrír, sem lý f'J hafa yfir framboði sínu I S formennskukjörs í Sjál stæðisflokknum, leggja nú nótt vi Fimmtudagur 20. október 1983 nnn Rás 2 Ríkisútvarpsins hefur seinkað nokkuð. Ekki er gert ráð fyrir að þetta afkvæmi Gömlu gufunnar taki flugið fyrr en síðustu vikuna í nóvember. Þrír starfsmenn hafa verið fastráðnir auk Þorgeirs Ástvaldssonar for- stöðumanns. Þetta eru þau Ragn- heiður Þórðardóttir, sem hefur áralanga reynslu í rekstri Rásar 1; Guðlaugur Guðjónsson tæknimað- ur, einnig af Skúlagötu 4, og Helga Margrét Reinharðsdóttir, sem verð- ur auglýsingastjóri. Helga hefur m.a. starfað fyrir útvarpið í Gauta- borg. Auk þessara hafa Púll Þor- steinsson, Georg Magnússon,_Ólaf- ur Guðmundsson og Ólafur Þórðarson unnið að undirbúningi Rásar 2. Gert er ráð fyrir að reglur um auglýsingar á Rás 2 verði sam- þykktar í útvarpsráði nú fyrir helg- ina... Þjóðleikhúsið hyggst á næstunni bjóða upp á skemmtilega nýbreytni sem er í stíl við „pakkatískuna" sem svo mjög er vinsæl hér. Mun leikhúsið gera gestum sínum tilboð um „leik- húspakka“ sem þeir geta ekki hafn- að. Innifalið í þessum heilskvölds- pakka mun verða matur í Leikhús- kjallaranum, þá sýning uppi og loks ball niðri á eftir. dag að afla sér fylgis. Hafa þeir allir sett á laggirnar óformlegar kosn- ingaskrifstofur, en starfið hjá sveit Þorsteins Pálssonar mun þó vera mest, en því stjórnar Friórik Friðriksson frjáshyggjumaður... Geir Hallgrímsson forðast / A það eins og heitan eldinn að S* opinbera stuðning sinn við Þorstein Pálsson í formannsslagn- um. Ástæðan er sú, að hann vill ekki að stuðningur sinn verði túlk- aður sem lína Geirsarmsins í flokknum. Slíkt gæti auðveldlega leitt til þess að andstæðir pólar mynduðust í flokknum um for- mannskjörið og skötgrafahernað- urinn hæfist þar af fullum ofsa... Þaðerekkinýttaðerfiðleikar f J steðji að í rekstri ákveðinna S dagblaða, þ.e. Tímans, Þjóð- viljans og Alþýðublaðsins. Kunn- ugir telja skuldir Tímans nú nema 40 milljónum króna, erfiðleikar Þjóðviljans eru eitthvað minni, en skuldir minnsta blaðsins á mark- aðnum .Alþýðublaðsins, í kringum fimm milljónir. Meðal forystu- manna Alþýðuflokksins eru hávær- ar raddir uppi um að leggja niður Alþýðublaðið vegna þessara skulda og einnig vegna lítilla áhrifa blaðs- ins. Lögðu þessir sömu forystu- menn flokksins, með formanninn Kjartan Jóhannsson í fararbroddi, því fram tillögu á síðasta flokks- stjórnarfundi Alþýðuflokksins um að útgáfu Alþýðublaðsins yrði hætt 1. febrúar næstkomandi og öllu starfsfólki yrði því sagt upp störf- um um næstu mánaðamót. Mót- tökur flestra flokksstjórnarmanna voru hins vegar á þá leið, að ekki væri bjóðandi upp á það að leggja af þann litla vísi að útgáfustarf- semi, sem Alþýðuflokkurinn hefur með höndum, án þess að ákvörðun um aðra ekki síðri útgáfustarfsemi lægi fyrir. Auk þess væri meira gert með því að leggja niður Alþýðu- blaðið en hætta útgáfu fjögurra síðna dagblaðs, heldur væri með því líka verið að leggja niður einu alvöru stofnunina í flokknum. Nið- urstöður urðu þær, að forysta flokksins var send til baka með til- lögur sínar um stöðvun Alþýðu- blaðsins og sagt að reikna dæmið upp á nýtt og leggja valkosti í út- gáfumálum fyrir flokksstjórn á næsta fundi hennar, sem mun verða á mánudag... Nokkrar sviptingar eru f' \ sagðar vera hjá fyrirtækinu tS Sportver, sem um árabil var eitt af stærstu fataframleiðslufyrir- tækjum landsins. Björn Guð- mundsson, sem var lengi forstjóri fyrirtækisins og potturinn og pannan í starfi þess, mun hafa selt Þorvarði Árnasyni (bróður Tómas- ar Árnasonar) sinn hlut i fyrirtæk- inu og ku vera farinn út úr því með öllu... Verkamannabústöðunum var f'J upphaflega komið á fót til að S auðvelda því fólki sem lægst hefur launin að eignast þak yfir höfuðið. HP er kunnugt um unga konu sem átt hefur í brösum við „kerfið“. Hún keypti íbúð fyrir tveimur árum en fyrri eigandi var fluttur til í kerfinu. Hún skrifaði undir afsal þar sem stóð að ekkert hvíldi á íbúðinni. Hún greiddi þing- lýsingargjald og fyrstu afborgun, en síðan hefur ekkert gerst. Hún hefur ekki fengið neitt afsal í hend- ur, að því er virðist vegna þess að lán hvílir á íbúðinni (þrátt fyrir það sem stendur í samningnum) og þeir hjá Verkamannabústöðunúm hafa ekki gengist í það af einhverjum ástæðum að koma málinu á hreint. Það er ansi langur tími að bíða í tvö ár eftir að verða löglegur eigandi íbúðar, eða hvað? 9 KARABISKA hafið 28. janúar til 13. febrttar 1984 í tvær vikur veröur siglt meö Maxim Corki frá einni stórkostlegri paradís til annarrar. Komiö veröur til eyja, sem enn þann dag í dag eru kenndar við Indland og draga nafn sitt að því, Vestur-lndíur, sökum þess að land- könnuður sá, sem fann þær taldi sig vera á Indlandi. Viökomustaöir: Nassau, Cap Haitien, Haiti. Puerto Plata Dóminíska lýöv. Totola, Jómfrúareyjum. Philipsburg, St. Maarten. Roseau, Dóminí- íska lýöveldinu. Britgetown, Barbados. St. George's Grenada. Porlamar, Margaritaeyjum. La Guaíra, Venezuela. Willemstad, Curacao. Montego Bay, Jamaica. Ferðalagið allt, sem tekur 17 daga, kostar kr. 58.900,- að viöbættum flugvallarskatti. Innifalið er: flug til og frá Frank- furt, tvær gistinætur f Frankfurt með morgunmat. Skemmtisiglingin í 15 daga með fullu fæði. Allt miðað við gistingu f tvíbýli. Ofangreint verö miðast við gengi DEM 22.09 '83. Möguleiki er á að bæta viö dvölina í Frankfurt ef óskað er. ( )TCr( ^ K FERÐASKRIFSTOFA. Iönaðarhúsinu Hallveigarstígl.Símar 28388 og 28580

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.