Helgarpósturinn - 24.11.1983, Blaðsíða 13
RÁS
eftir Hallgrim Thorsteinsson myndir Jim Smart
Næsta fimmtudagsmorgun, 1. desember, á slagirw klukkan 10,
veröur brotið blað í sögu fjölmiðlunar á íslandi. Þá hefjast út-
sendingar á annarri rás Ríkisútvarpsins, Rás 2. Útvarpshlustend-
ur allt frá Barðaströnd, suður um land til Víkur íMýrdal eiga þess
kost að fylgjast með þessarí sögulegu stund með hjálp útvarps-
tœkja sinna.
og tœkjakost Rásar 2 í vesturhluta jarðhœðar nýja útvarpshúss-
ins við Hvassaleiti.
En hvað verður á boðstólum, hvernig verður dagskráin. And-
rés Björrisson útvarpsstjóri hefur lýst hlutverki Rásar 2 á þá leið
að hún eigl að vera ,,létt undirspil undir dagiegt arnstur fólks".
Dagskránni hefur verið skorinn stakkur Sarnkvœmt þessu
mottói útvarpsstjóra. Meginefnið verður létt tónlist, dœgurlög og
létt spjall. Rás 2 er œtlað að standa undirsér fjárhagslega að öllu
leyti með sölu auglýsingatíma ( dagskránni. Auglýsingarnar
verða leiknar og sungnar. jHB sHB
Fyrst í stað veröur aðeins útvarpað í sex klukkustundir á dag,
mánudaga til föstudaga, en ekki um helgar. Þó er gert ráð fyrir
að það nœturútvarp sem í gangi er, veröi keyrt samtímis á báð-
um rásum, og að tilbúnar auglýsingar verði leyfðar í því.
ístórum dráttum hefur dagskráin fengið á sigeftirfarandi svip-
mót, sem starfsfólk Rásar 2 segir þó að sé öllum mögulegum
breytingum undirorpið í Ijósi reynslunnar: Ki 10-12: Morgun-
þáttur. Mestmegnis (80-90%) létt tónhst af ollu tagi. Inn á milli
laga verða upplýsingar sem snerta daglegt líffólks, s.s. um veður
og fœrð. Kl. 12-14 er hádegisútvarp Rásar 1 allsráðandi í dreifi-
kerfinu. Kl. 14-16: Einfaldir tónlistarþœttir (syrpur). Kl. 16-18:
Tónlistarþœttir með fjölbreytilegu ívafi og einstaka talmálsþœtt-
ir.
Til greina hefur komið að keyra Rás 1 á dreifikerfi Rásar 2 þeg-
ar sendingar liggja niðri frá Hvassaleiti. Nýi FM-sendirinn á
Skálafelli sem settur var upp vegna Rásar 2 þykir nefnilega bœta
FM-móttöku víða á Suðvesturlandi. Jafnvel eru taldar líkur á að
sendingar frá honum náist á vissum stöðum norðanlands með
góðum loftnetum. Þessi 10.000 W sendir hefur bylgjulengdina
99,9 MHz og flestir íbúar höfuöborgarsvœðisins koma að líkind-
um til með að stilla tœkin sín á hann þegar þar að kemur.
Vestfirðingar, Norðlendingar og fólk suðaustan- og austan-
lands verða að bíta í það súra epli að fá ekki að heyra í Rás 2
í heild fyrr en síðar. Meðan beðið er eftir að sendar verði settir
upp fyrirþessa landshluta getur fólk á þessum stöðum fengið for-
skot á sœluna með því að hlusta á nœturútvarpið.
Hér á eftir fer stutt yfirlit yfir þá dagskrárgerðarmenn sem allt
útlit er fyrir að fari nú að láta til sín heyra á Rás 2. Iþessu yfirliti
er gengið út frá þeim dagskrárhugmyndum sem undirbúningur
að Rás 2 hefur miðast við allra síðustu daga. Yfirlitið gefur ekki
heildarmynd af dagskránni — enn eru nokkrir endar í dag-
skránni óhnýttir.
Þau taka þátt
Jónatan Garðarsson verður
með tónlistarþátt á miðvikudög-
um klukkan 16-17: „Ég ætla að
spila reggea-tónlist í þessum þátt-
um a.m.k. til að byrja með. Ég
ætla ekki að kafa Iangt undir yfir-
borðið í þessari tónlist, spila frek-
ar það sem er nýjast. Seinna býst
ég við að fikra mig út í annað
tema, annars konar tónlistar-
stefnur. Aðstaðan á Rás 2 er geysi-
lega góð. Þetta er eins og nýr
heimur miðað við Skúlagötuna og
ég hef það á tilfinningunni að
þetta getið orðið skemmtileg
stöð."
Bogi Ágústsson sjónvarpsfrétta-
maður verður með þáft hálfsmán-
aðarlega á fimmtudögum klukkan
16-17. Samstarfsmaður hans verð-
ur annar sjónvarpsstarfsmaður
sem ekki fæst uppgefið hver er:
„Þetta verður púra nostalgía í
okkur," segir Bogi. „Við ætlum að
spila tónlist sem okkur þykir
skemmtileg, lög frá tímabilinu
1962-1974 og verða með einhver
fróðleikskorn inn á milli. Mestur
þunginn verður á bítlatímabilinu,
en svo spilum við líka t.d. Led
Zeppelin og Crosby, Stills, Nash
og Young. Þetta eru plötusnúðs-
frústrasjónir hjá okkur sem hvergi
hafa fengið útrás nema í partíum
hingað til og fimmtudagarnir voru
lausir hjá mér... Ég fagna Rás 2 af
heilum hug og vona að hún nái til
allra landsmanna sem fyrst, en
mér er bara spurn: Hvers vegna í
fjandanum fór hún ekki af stáð
fyrir 10 árum?“
Pétur Steinn Guðmundsson hef-
ur séð um miðvikudagspopphólfið
á Rás 1 í haust og bætir nú á sig
léttum tónlistarþætti klukkan 14-
16 á fimmtudögum ásamt félaga
sínum Jóni Axel Ólafssyni sem
hefur verið með popphólf á mánu-
dögum í útvarpinu: „Mér líst vel á
þetta,“ segir Pétur. „Ég hlakka
mikið til að fara í loftið fyrsta dag-
inn. Að koma neðan af Skúlagötu
og upp í Rás 2 er svipað því að fara
úr eins hreyfils flugvél upp í
Boeing 747. Tækin á Rás 2 eru
miklu flóknari. Mér finnst það
kostur að fá að stjórna tökkunum
sjálfur. Tónlistin hjá okkur verður
blanda af nýju poppi og eldra.“
Ásta Ragnheiður Johannesdótt-
ir verður með þátt á miðvikudög-
um kl. 14-16: „Þetta verður ekki
flókin dagskrá hjá mér. Dagskrár-
stefnan er að hafa einfalda tónlist-
arþætti á þessum tíma dags. Þetta
verður syrþustíllinn með auglýs-
ingaívafi — létt og þægilegt eftir-
miðdagsprógram. Það er lítið
hægt að segja um þetta í heild fyrr
en Rás 2 kemst í loftið. Ég vona að
maður fái að heyra frá hlustend-
um, fái eitthvert endurkast, svo að
maður sitji ekki bara einangraður
í búri í einhverjum húsgrunni úti í
bæ. Ég vil heyra undirtektir. Ann-
ars leggst þetta vel í mig.“
Guðjón Arngrímsson verður
með hálfsmánaðarlegan þátt á
mánudögum klukkan 16-17 ásamt
Þorvaldi Þorsteinssyni. Guðjón
svaraði spurningu um efni þáttar-
ins glottandi með pennann í öðru
munnvikinu: „Þetta verður tón-
listarþáttur með þjóðfélagslegu
ívafi af léttara taginu." Meira
fékkst ekki upp úr honum um efn-
ið.
„Ef vel tekst til," segir Guðjón,
„gæti Rás 2 fljótlega orðið Rás 1
meðal þjóðarinnar. En þetta er
spurning um hvað menn vilja
leggja mikið í þetta útvarp. Það er
hægt að hafa þetta bara gutl, en
það er Iíka hægt að hafa það
annað og meira ef vilji er fyrir
hendi hjá stjórnendum."
Gísli Sveinn Loftsson er ekki nýr
Morgunfólkið
Páll Þorsteinsson: „Allar fjórar
raddirnar heyrast í þessum þætti.
Hann verður fjórradda. Tónlistin
verður uppistaðan — létt tónlist í
víðasta skilningi. Við tökum mið
af því að fólk er í vinnu á þessum
tíma, frá klukkan 10-12 alla virka
daga. Við brjótum síðan tónlistina
upp með talmáli en ekki öfugt eins
og tíðkast hefur í magasínþáttum
af þessu tagi hingað til. Tónlistin
verður 80-90% af þættinum. Ég
býst við að þættir á Rás 2 komi til
með að hljóma öðruvísi en það
sem nú er í boði á Rás 1. Þessi
morgunþáttur okkar er nýjung að
því ieyti að á þessum tíma dags
hefur aldrei verið svona magasín-
þáttur áður. Auglýsingarnar
koma líka til með að setja mikinn
svip á dagskrána og gera hana frá-
brugðna dagskrá Rásar l.“
í plötusnúðabransanum frekar en
margir þeir sem taka þátt í Rás 2.
Hann er nú plötusnúður í veitinga-
húsinu Broadway. Þátturinn hans
verður líklega á þriðjudögum
klukkan 14-16: „Ég ætla að spila
svokallaða „middle of the road“
tónlist. Þetta verða ný popplög og
góð eldri lög í bland; Það verður
mikil breidd í þessu. Ég reyni m.a.
að sjá snemma hvaða lög eru á
leiðinni á toppinn og spila þau þá
áður en þau verða vinsæl.
Vonin um Rás 2 hefur haldið í
manni lífinu á leiðinlegum stund-
um í bransanum. Þetta er eins-
konar hápunktur á ferlinum hjá
mér.“
Valdís Gunnarsdóttir sér um
tveggja klukkustunda þátt á föstu-
dögum kl. 14-16 ásamt Hróbjarti
Jónatanssyni: „Þetta verður eins
konar pósthólf hjá okkur. Hlust-
endur senda okkur bréf og biðja
um lög, en óskunum verður að
fylgja einhver ástæða fyrir valinu,
t.d. saga um hvers vegna hlust-
andanum þykir vænt um þetta
ákveðna lag. Fólk má gjarnan
senda okkur bréf um eitthvað allt
annað, s.s. hvað þeim finnst um
Rás 2, skemmtilegar sögur —
hvað sem er.
Ég er tölvari núna en mig langar
að snúa mér að útvarpinu. Ég var
búin að ganga með hugmynd að
svona þætti í maganum lengi og
ég vona að hann verði góður.”
Kristján Sigurjónsson kemur til
með að sjá um þátt á þriðjudögum
klukkan 17-18: „Þetta verður tón-
list sem hefur þróast út frá þjóð-
lagatónlist. Ég býst við að verða
aðallega með músík frá Bretlands-
eyjum, en líka frá öðrum Evrópu-
löndum og eitthvað frá Bandaríkj-
unum. Þetta leggst vel í mig. Ég
hef aldrei prófað þetta áður en ég
held að þetta verði í lagi. Ætli ég
reyni ekki að vera mátulega
ArnþrúðurKarlsdóttir: „Ég held
að fólk komi til með að hlusta mik-
ið á Rás 2 ef okkur tekst vel upp á
stöðinni. Miðað við þann hlustun-
artíma, sem nú er ákveðinn,
reikna ég ekki með að fólk setjist
niður og hlusti mikið. Það kemur
frekar til með að heyra þættina —
ekki hlusta á þá. Þetta er jú undir-
spil undir daglegt amstur. En við
ætlum að vera í sambandi við
fólk. Það má hafa samband við
okkur, t.d. löggur og skólastjórar,
en við viljum engin auglýsinga-
viðtöl."
Asgeir Tómasson: „Ætli við
verðum ekki einskonar andlit
stöðvarinnar. í fyrsta þættinum á
fimmtudaginn byrjum við líklega
stressaður og mátulega kærulaus,
þá á þetta að ganga."
Jóhanna Harðardóttir sér um
tveggja klukkustunda þátt í föstu-
dagsumferðinni klukkan 16-18:
„Aðaluppistaðan verður músík,
eins og í öðrum þáttum, en ég ætla
að leggja áherslu á haldgóðar upp-
lýsingar handa fólki fyrir helgina
— upplýsingar frá lögreglu, Vega-
gerðinni o.s.frv. Upplýsingar um
einstaka atburði helgarinnar eru
vel þegnar hjá mér og það þarf að
koma þeim til mín í tæka tíð.
Ég er sannfærð um að Rás 2
verður allt öðruvísi útvarp en Rás
1. Það verður léttara og hraðara
og auglýsingarnar tvisvar til
þrisvar á klukkustund setja svip
sinn á dagskrána. Við dagskrár-
gerðarfólk þurfum líkast til að
halda uppi góðum dampi til að
falla ekki í skuggann af auglýsing-
unum. Þær eru svo vel unnar,
margar hverjar, heilu leikþætt-
irnir stundum. Það er ekkert til
sparað í þeirri dagskrárgerð."
Þorgeir Astvaldsson forstöðu-
maðurRásar2: „Fólkið í dagskrár-
gerðinni hefur einkum verið valið
vegna þess að það kann til verka
í útvarpi. Þetta hefur verið nauð-
synlegt m.a. vegna þess að tími til
undirbúnings hefur verið skamm-
ur — stöðin er sett í gang með
stuttum fyrirvara. Við höfum
reynt að haga þessu þannig til að
nýliðar vinni með reyndari mönn-
um, þannig að reynsla þeirra sem
eldri eru í hettunni nýtist hinum
með sem beinustum hætti. Við
höfum reynt að skipuleggja ein-
falda dagskrá sem getur tekið
breytingum og þróast, og hún á á-
reiðanlega eftir að gera það. Núna
er þetta vinnustaðaútvarp. Ég er
með tillögur að þáttum á borðinu
hjá mér sem henta betur á kvöldin
og um helgar þegar hlustun er
öðruvísi, krítískari."
á því að kynna okkur og þáttinn
og stöðina almennt. Þetta verður
þjónusta í „núinu” hjá okkur. Segj-
um t.d. að einhver gleymi ljósun-
um á Volvoinum sínum. Þá getur
fólk hringt í okkur og bent við-
komandi á að slökkva. Annars
verður þetta bullandi tónlist — alls
konar tónlist. Klassíkin fær þó
hvíld hjá okkur. Annars erum við
fyrst þessa dagana að leggja þetta
niður fyrir okkur. Þetta er svo
nýtt, aðstæður svo gjörólíkar því
sem við eigum að venjast neðan af
Skúlagötu.“
Jón Olafsson hefur verið blaða-
maður á Tímanum: „Við ætlum að
vera í takt við daglegt líf fólksins
í landinu, tryggja því sæmilegan
aðgang að okkur. Við ætlum að
tala við fólk, en þetta verður eng-
inn vandamálaþáttur. Við reikn-
um með að gestir droppi inn hjá
okkur öðru hverju, en þetta verð-
ur ekki bara Reykjavíkurþáttur.
Þetta verður þáttur Reykjavíkur
og nærsveita, sem í okkar tilfelli
ná alveg frá Barðaströnd og aust-
ur í Vík í Mýrdal.“
HELGARPÓSTURINN 13