Helgarpósturinn - 24.11.1983, Qupperneq 26
HELGARDAGSKRAIN
r19
' 20.
20.
20.
r 21
22
00.
Föstudagur
25. nóvember
45 Fréttaágrip á táknmáli.
00 Fréttir og veður.
30 Auglýsingar og dagskrá.
45 Á döfinni. Umsjónarmaöur Karl
Sigtryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
05 Kastljós. Þáttur um innlend og
erlend málefni. Umsjónarmenn:
Ingvi Hrafn Jónsson og Ög-
mundur Jónasson.
15 Svindlararnir (Les tricheurs).
Frönsk blómynd frá 1958. Leik-
stjórl Marcel Carné. Aöalhlut-
verk: Pascale Petit, Andrea Par-
isy, Jacques Charrier og Laurent
Terzieff. Myndin lýsir lífi ung-
menna I Paris sem hafna smá-
borgaralegri llfsstefnu og
hræsni, og leit þeirra aö Iffsham-
ingju. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir.
Marcel Carné var athyglisveröur,
en oft umdeildur leikstjóri.
20 Dagskrárlok.
14.30
17.15
17.30
18.30
.18.55
19.45
20.00
20.25
.20.40
21.10
22.05
Laugardagur
26. nóvember
Enska knattspyrnan. Leikur i 1.
deild — Bein útsending.
Fólk á förnum vegi. 4. I atvinnu-
lelt. Enskunámskeiö i 26 þáttum.
íþróttir Umsjónarmaður Ingólfur
Hannesson.
Innsiglað með ástarkossi. Fjórói
þáttur Breskur unglingamynda-
flokkur I sex þáttum. Þýöandi
Ragna Ragnars.
íþróttir — framhald.
Fréttaágrip á táknmáli.
Fréttir og veður.
Auglýsingar og dagskrá.
Ættarsetriö Fjórði þáttur. Bresk-
ur gamanmyndaflokkur i sex
þáttum. Þýöandi Guöni Kol-
beinsson.
Glæður. Um dægurtónlist slö-
ustu áratuga. 3. Arni Elfar. Árni
Elfar, planóleikari og básúnuleik-
ari, leikur djasstónlist og segir
frá ferli sinum á sviöi tónlistar og
myndlistar. Umsjónarmaöur
Hrafn Pálsson. Stjórn upptöku
Andrés Indriöason.
Reyfararnir (The Reivers).Banda-
rlsk blómynd frá 1970 gerö eftir
siöustu skáldsögu William
Faulkners. Leikstjóri Mark Ryd-
ell. Aöalhlutverk: Steve
McQueen, Sharon Farrell, Will
Geer og Rupert Crosse. Einhver
besta Faulkner-myndin og tilval-
in fyrir unglinga og reyndar alla
fjölskylduna. McQueen er einkar
skemmtilegur I hlutverki slnu.
Hann leikur galgopa mikinn upp-
úr aldamótunum sem stelur bll
og ekur norður til Memphis meö
12 ára skjólstæöingi. Þrjár
stjörnur af fjórum.
00.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
27. nóvember
16.00 Sunnudagshugvekja. Baldur
Kristjánsson flytur.
16.10 Húsið á sléttunni 3. Annabella
Bandarlskur framhaldsmynda-
flokkur. Þýöandi Óskar Ingimars-
son.
17.05 Frumbyggjar Norður-Ameríku 5.
Fyrstu auðmenn Ameríku 6.
Þjóðirnar sex Breskur mynda-
flokkur um Indlána I Bandarlkjun-
um. Þýöandi og þulur Ingi Karl
Jóhannesson.
18.00 Stundin okkar. Umsjónarmenn:
Ása H. Ragnarsdóttir og Þor-
steinn Marelsson. Stjórn upp-
töku: Elin Þóra Friöfinnsdóttir.
18.50 Hlé ■
19.45 Fréttaágrip á táknmáli ■
20.00 Fróttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku. Umsjónar-
maöur: Guömundur Ingi Krist-
jánsson.
21.00 Glugginn. Þáttur um listir, menn-
ingarmál og flelra. Umsjónar-
maöur Áslaug Ragnars. Stjórn
upptöku: Viöar Vlkingsson.
21.50 Wagner. Lokaþáttur. Wagner æf-
ir af kappi „Rinargull'' sem sýna
á I Múnchen. Strlö skellur á milli 1
Frakka og Þjóðverja. Nietzsche,
vinur Wagners, gerist sjálfboöa-
liöi og kemurafturreynslunni rík-
ari. Cosima og Wagner ganga í
hjónaband. Missætti kemur upp
milli Lúðvlks konungs og Wagn-
ers og hann fer aö svipast um
eftir staö til aö láta reisa leikhús.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
22.50 Dagskrárlok.
©
Föstudagur
25. nóvember
7.00 A virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál.
9.05 Morgunstund barnanna: „Katrin"
eltir Katarina Taikon. Einar Bragi
les þýöingu slna (9).
10.45 „Það er svo margt að minnast á“
Torfi Jónsson sér um þáttinn.
11.15 Dægradvöl. Þáttur um frlstundir
og tómstundastörf i umsjá And-
ers Hansen.
14.00 Á bókamarkaðinum. Andrés
Björnsson sér um lestur úr nýj-
um bókum. Kynnir: Dóra Ingva-
dóttir.
14.30 Miðdegistónleikar.
14.45 Nýtt undir nálinni.Hildur Eirlks-
dóttir kynnir nýútkomnar hljóm
plötur.
16.20 Síðdegistónlaikar.
17.10 Siðdegisvakan.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
18.00 Af hundasúrum vallarins — Einar
Kárason.
19.35 Enn á tall. Umsjón: Edda Björg-
vinsdóttir og Helga Thorberg.
I
20.00 Ungir pennar. Stjórnandi: Dóm-
hildur Siguröardóttir (RÚVAK)
20.10 Lestur úr nýjum barna- og ung-
lingabókum Umsjónarmaöur:
Gunnvör Braga. Kynnir: Ragn-
heiöur Gyöa JÓnsdóttir.
20.40 í leit að sumri. Jónas Guðmunds-
son rithöfundur rabbar viö hiust-
endur.
21.10 Kórsöngur í Akureyrarkirkju: Kór
Lögmannshliðarkirkju syngur.
Stjórnandi: Áskell Jónsson.
Planóleikari: Kristinn Örn Krist-
insson.
21.40 Norðanfari. Þættir úr sögu Akur-
eyrar. Umsjón: Óöinn Jónsson
(RÚVAK).
22.35 Djassþáttur. Umsjónarmaöur:
Gérard Chinotti. Kynnir: Jórunn
Tómasdóttir.
23.15 Kvöldgestir. Þáttur Jonasar Jón-
assonar.
01.10 Á næturvaktinni — Ólafur Þórö-
arson.
03.00 Dagskrárlok.
Laugardagur
26. nóvember
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir.
11.20 Hrimgrund. Vernharður Linnet.
14.00 Llstalif. Umsjón: Sigmar B.
Hauksson.
15.10 Listapopp. — Gunnar Salvars-
son. (Þátturinn endurtekinn kl.
24.00)
16.20 íslenskt mál. Guörún Kvaran sér
( um þáttinn.
' 16.30 Nýjustu fréttir af Njálu. Einar Karl
Haraldsson.
17.00 Frá tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveitar íslands i Háskólabiói 17
þ.m. siöari hluti.
Val Guðrúnar Helgadóttur
Það er útlit fyrir að ég hlusti óvenju mikið á útvarp um helgina, sagði
Guðrún Helgadóttir alþingismaður, af því ég ætla að gera jólahreingerning-
una á laugardag og sunnudag. Á föstudag lofa ég hins vegar ekki að gera
meira en horfa á sjónvarpsfréttir, ég geri það alltaf, og sennilega horfi ég
líka á Kastljós. A laugardaginn hlusta ég sennilega á Listalíf og ég hlusta
gjarnan á Nyjustu fréttir af Njáiu.
Ég hef líka mikinn áhuga á að heyra í Einari Kárasyni, klukkan sex. Ég
hlusta undantekningarlaust á kvöldfréttir útvarps, það er atvinnuskylda
mín. Enska knattspyrnan er vön að undirleggja heimilið á laugardögum, og
ég dregst stundum að henni. En í þetta skipti ætla ég að vera staðföst og
skúra. Trúi því svo hver sem vill, en mér finnst vinalegt að hlusta á messur
á sunnudagsmorgnum, og ekki er verra að hafa séra Karl. Svo hlusta ég á
bókamarkaðinn. Og ég sé að það eru ágætis síðdegistónleikar.
21.15 Á sveitalinunni. Þáttur Hildu
Torfadóttur, Laugurh I Reykjadal
(RÚVAK).
22.00 Tone.Kristln Bjarnadóttir les úr
þýöingu sinni á kvennadrápu eft-
Ir Susanne Brögger. Fyrri hluti.
22.35 Harmonikuþáttur. Umsjón: Sig-
uröur Alfonsson.
23.00 Danslög.
24.00 Listapopp Endurtekinn þáttur
Gunnars Salvarssonar.
Sunnudagur
27. nóvember
8.10 Fréttir
8.35 Létt morgunlög Fllharmóniu-
sveit Vlnarborgar leikur; Willi
Boskovsky stj.
9.00 Féttir.
9.05 Morguntónleikar
10.00 Fréttir
10.25 Út og suður Þáttur Friöriks Páls
/Jónssonar.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju Prestur.
Séra Karl Sigurbjörnsson.
Organleikari: Hörður Áskelsson.
Hádegistónleikar
12.20 Fréttir
13.30 Vikan sem var Umsjón: Rafn
/Jónsson.
14.15 Á bókamarkaðinum Andrés
Björnsson sér um lestur úr nýj-
um bókum. Kynnir: Dóra Ingva-
dóttir.
15.15 í dægurlandi SvavarGests kynnir
tónlist fyrri ára. í þessum þætti:
Útsetjarinn Ray Connlff.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Um vísindi og fræðl. Hvað er ör-
eind? Þóröur Jónsson eðlls-
fræöingur flytur sunnudags-
erindi.
17.00 Frá tónlistarhátíðinni í Vinar-
borg i júní s.l.
18.00 Það var og.... Út um hvippinn og
U hvappinn með Þráni Bertelssyni.
«9.00 Kvöldfréttir
w19.35 Á bökkum Laxár. Jóhanna Stein-
grímsdóttir I Árnesi segir frá
(RÚVAK).
19.50 Tone Kristln Bjarnadóttir les úr
þýðingu sinni á kvennadrápu
eftir Susanne Brögger. Seinni
hluti.
20.00 Útvarp unga fólksins Stjórnandi:
Guörún Birgisdóttir.
21.00 Hljómpföturabb Þorsteins
Hannessonar.
21.40 Útvarpssagan: „Hlutskipti
manns" eftir André Malraux Thor
Vilhjálmsson les þýðingu sina
(29).
22.35 Kotra Stjórnandi: Signý Páls-
dóttir (RÚVAK).
23.05 Djass: Kansas City, o.fl. — 2.
þáttur — JÓn Múli Árnason.
23.50 Dagsrárlok.
/
SJÖNVARP
Vandamál
ÚTVARP
eftir Gísla Helgason
Nú er Bleik brugöiö
Vandamálin dynja yfir þjóðina þessa
dagana. Helgarpósturinn farin sitt vanda-
mál í líki vændiskonu í Vesturbænum
meðan Líf og land lagði heila helgi undir
panelumræður um kreppuna í þjóðfélag-
inu og Sjónvarpið hefur ekki látið sitt eft-
ir iiggja, því að á einni viku höfum við
fengið innsýn i hin aðskiljanlegustu
vandamál og kynnst heimi Jóhönnu
hinnar heyrnarskertu, sextán persónu-
leikum Sybil hinnar sálsjúku og veröld
Walters hins vangefna.
Vegna persónulegra vandamála tókst
mér ekki að innbyrðanema Sytnl af öllu
vandamálaframboði Sjónvarpsins. Ég
varð ekki fyrir vonbrigðum, enda hvern-
ig má slíkt verða með krafta eins og Sally
Field og Joanne Woodward í aðalhlut-
verkum. Að auki státaði þetta ameríska
sjónvarpspródúkt af góðu handriti og
traustri leikstjórn,
Samt hef ég heyrt raddir vera að
agnúast út í þessa ágætu vandamála-
mynd og þá einkum frá aðdáendum
Dallassúpunnar. í mínum huga eru heilu
sólkerfin milli Sybil og Dallas — þar sem
annað efnið fjallar á áhugaverðan hátt
um vandamál meðan hitt er slíkt saman-
safn vandamála, að ekki einu sinni
sænskur vandamálasérfræðingur léti sér
koma til hugar að koma þeim öllum fyrir
í einni mynd. Nei, Dallas-aðdáendur geta
ekki verið á móti vandamála-myndum,
þeir vilja bara fjölbreytni í vandamálin.
En íslenska sjónvarpið státar af fleiri
vandamálum. Þar er til dæmis til innan-
hússvandamál, sem felst í því að varla
Walter hinn vangefni.
gefur þar að líta innlenda dagskrárgerð
langtímum saman, ef frá eru taldir hefð-
bundnir rútínuþættir. En það er kannski
verra — að þá sjaldan sem innlend dag-
skrárgerð kemur upp úr kafinu, er hún
óðar orðin sjálfstætt vandamál, ef marka
má gagnrýnendur.
Vandamál eru hins vegar til að leysa
þau. Félag ísl. kvikmyndagerðarmanna
vill fara Alberts-Ieiðina og telur vanda-
málið vera það að dagskrárgerð Sjón-
varpsins skuli ekki vera boðin út til hinna
kunnáttusömu kvikmyndagerðarmanna
á frjálsum markaði, sem geti það sem
starfsmenn Sjónvarpsins geti ekki og það
fyrir minni pening. Þessu andmæla sjón-
varpsmenn og segja vandamálið vera
það hvað þeir hafa lítið að gera, svo að
bæði tæki og mannskapur standi lang-
tímum saman aðgerðalítil.
Eins og oft vill verða í vandamálum af
þessu tagi, þá liggur lausn þeirra líklega
einhversstaðar mitt á^ milli þessara
tveggja sjónarmiða. Islenskir kvik-
myndagerðarmenn á frjálsum markaði
hafa óneitanlega sýnt meiri tilþrif en
kollegar þeirra innan veggja Sjónvarps-
ins. Það skrítna er hins vegar að þorri
þessara sjálfstæðu kvikmyndagerðar-
manna hefur hlotið eldskírn sína innan
veggja sjónvarpsins en fara ekki að
blómstra fyrr en þeir eru lausir úr viðjum
stofnunarinnar. Skýringin á mistækri
dagskrárgerð íslenska sjónvarpsins hlýt-
ur því að felast í eðli, stjórn og vinnu-
brögðum stofnunarinnar. Það gæti þess
vegna verið ráð að koma á dálítilli sam-
keppni milli utánaðkomandi dagskrár-
gerðar fyrir sjónvarp og innanhússfram-
leiðslunnar með því að bjóða út einhvern
hluta dagskrárgerðarinnar en halda hin-
um hlutanum innan veggja stofnunar-
innar í von um að samkeppnin utan frá
yki á metnað starfsmanna Sjónvarpsins.
En meginvandamálið yrði eftir sem
áður óleyst. Það snýst um peninga.
Þetta máltæki nota menn gjarnan, þeg-
ar þeim verður mikið um eitthvað. T.d.
notaði einn minningargreinahöfundur
þetta máltæki, þegar hann þurfti að rita
minningargrein um nýlátinn vin sinn.
Honum kom látið svo á óvart, að hann
hóf greinina sína með þessum orðum:
,,Nú er Bleik brugðið".
Sumum þótti þetta orka nokkurs tví-
mælis, því að vitanlega gat hinn látni
ekki gert að burtför sinni héðan úr heimi,
en viðbrögð mannanna eru með ólíkind-
um. Mér varð hins vegar talsvert um á
fimmtudagskvöldið var, 17. nóv., þegar
ég heyrði þátt Ólafs Torfasonar Rás 1 b,
hugsanlegur möguleiki. Af kynningu
þáttarins gerði ég mér ljóst, að þarna
kynni að vera um gamanþátt að ræða, en
svo kom í Ijós, að þetta var aðeins veik-.
burða tilraun, sem betur hefði verið
sleppt. Þátturinn var með eindæmum
leiðinlegur og satt að segja furðulegt, að
eins ágætur úrvarpsmaður og Ólafur
skuli láta hafa sig út í annan eins fíflagang
'og þarna átti sér stað. Þarna komu við
sögu ýmsir menn. Hjalti Rögnvaldsson
lék tæknimann og gerði það fremur illa,
og svo var Reynir Antonsson, gamall
félagi minn, þarna sem ríkjandi útvarps-
andi. Hann hefði betur sleppt því að
koma fram í þættinum. Honum tókst að
eyðiieggja efni sitt með stirðri framsögn,
Ólafur H. Torfason — flflagangur.
lesturinn minnti mig á sviptivindana sem
komu stundum í Eyjum, þegar gekk á
með rokum. Sem reyndur útvarpsmaður
hefði Ólafur átt að segja Reyni betur til
og ekki taka í mál annan eins flutning og
þarna átti sér stað. Kannski sannar þessi
þáttur, að þrátt fyrir allt sé Ólafur Torfa-
son ágætis útvarpsmaður, góðir útvarps-'
menn hafa ef til vill leyfi til þess að gera
lélega þætti, eða hvað? Reynir gæti orðið
ágætur útvarpsmaður ef hann kærði sig
um, en til þess þyrfti hann að vanda sig
mun betur eða þá að fá aðra til þess að
flytja efnið fyrir sig.
Halló krakkar.
Á undan þætti Ólafs heyrði ég stórgóð-
an þátt Jórunnar Sigurðardóttur, sem
heitir „Halló krakkar". Þessi þáttur fjall-
aði um Ástralíu og var framsetning og
gerð þáttarins með ágætum. Hún hefur
Iag á að spjalla á notalegan hátt við
áheyrendur sína, svo að þeir hafa það
áreiðanlega á tilfinningunni, að hún sé
inni í herberginu og segi frá. Þetta er
kúnst, sem fáum er lagin, en Jórunn virð-
ist vera ein þeirra. Svo heyrði ég á
laugardagskvöldið Þórunni Hjartardótt-
ur lesa ævintýri úr frumskógum Argen-
tínu í þýðingu Guðbergs Bergssonar.
Sagan var vel þýdd og lesturinn með
ágætum. Það er gaman að fylgjast með
því, hvernig lesari eins og Þórunn
Hjartardóttir þróast og batnar með árun-
um.
Á bökkum Laxár
Ég má til að þakka Jóhönnu Stein-
grímsdóttur í Nesi fyrir þann frábæra
þátt, sem hún flutti á sunnudagskvöldið
var. Þar leiddi hún okkur í heim beitar-
húsamannsins og gerði það svo vel, að
um nóttina dreymdi mig að ég væri á
ferð með einum slíkum og berðist á móti
norðanhraglandanum. Þáttur Jóhönnu
er að mínu viti stórmerk heimild um
liðna tíð.
26 HELGARPÓSTURINN