Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 18
Jólaskór verklýðshreyfingarinnar eyöilagöur Skepnuskapurinn með ólíkindum segir Ásmundur Stefánsson „Ég setfl skó veridýðshreyfingarinnar utí glugga í g*r, elns og ég geri alltaf fyrir öll jól fyrir verklýðslireyfinguna af því að égerskósveinninn. Þetta voru nýir Act-skór, samvinnuverklýðsskór. Og svo, rétt áður en ég fór að sofa, heyröi ég í bíl fyrir utan. Blazer-jeppa með G-nómcri“, segir Ásmundur Stef- ánsson, skósveinn verklýðshreyfingar- innar, i samtali við Áöaljólablaðið. Ásmundur segíst hafa orðið fórnar- lamb óskiljanlegs hrottaskapar frá hendi „ónefnds forystumanns innan rikisstjórnarinnar, sem keyrir Blazer með G-númeri og talar alitaf eins og hann sé að fara að grenja eins og Lúlii laukur í Smjattpöttunum. Það er nátt- úrulega augljóst mál“. Asi, eins og hann er kallaður í verk- lýðshreyfingunni, stökk inní stofu þeg- ar hann heyrði í biinum og sagði for- ystumönnum verklýðshreyfingarinnar óðamála frá bílhljóðinu dularfulla. Forystumennirnir sátu hreyfíngarlaus- ir yfir sjónvarpsauglýsingunum og biðu eftir frammistöðu sinni í Kast- ljósi. „Það er auðvitað alveg Ijóst, að ég hélt að jólaskósveinn Síssins og i- haldsins væri koniinn til að gefa mér i skóinn. Ég hef t.d. oft fengið prósentur og svoleiðis í skóinn frá honum. Svo, þegar ég kem aftur inn i her- bergi, er búið að skera Act-skóinn i tætlur og ég heyri Biazerinn brenna í burtu-í báðum drifunum, það er aug- Ijóst má). Það var líka búið að nudda tánni á skónum upp við vegg til að full- komna punktinn yfir iinu. Þessi skepnuskapur er ineð ólikindum. Það virðast engin takmörk fyrir því hvað fólk getur verið láglaunalegt. Og ég vil undirstrika það að ég hef verið þægur. Þess vegna er þcssi framkoma greini- lega ennþá óskiljanlegri. „Ég er ekki að segja að láglaunahóp- arnir þurfi 15.000 krónur. Er einhver að segja það? Segir nokkur neitt? En guð kaupmáttugur, á ég að líta svo á að skómir hafi verið offjárfest- ing? Eins og það sé ekki hægt að festa ot'fé í öðru en skóni? Svona tuddar, sko. Þetta er gjörsamlega augljóst“. Verkalýðshreyfingin hefur kært mál- ið til Rannsóknarlögreglu ríkisins, sem hefur yfirheyrt annan skóinn í allan dag til að vera ekki bundin i þá báða. Bíllinn befur ekki fundist enn „þrátt fyrir óaðfinnanlega og óvilhalla leit“, eins og Hallvarður Einvarðsson rann- sóknarlögreglustjóri orðaði það í var- legu samtaii við Aðalblaðið. „Ætli þetta verði ekki jólarannsóknin í ár“, sagði Hailvarður. Meðal efnis í Aðaljólablaðinu: Þá var Jesú- barnið nýfæddur Valsmaður í huga manns...“ —Albert Gumundsson rifjar upp bernskujólin sln. „Til hvers er fóik þá aé verda veikt, ef það getur sí4an ekki borgaó?“ — Matthlas Bjarnason heilbrigðisráðherra svarar gagnrýni á sjúklingaskatt- inn (jólaauglýsingu á bls. 17. Vefdur argen- trnska nauta- kjötið kynsjúk- dómum? „Kengúra er herramanns- jólamatur," segir Ingi Tryggvason — sjá inn- lenda umfjöllun. „Eg lem allt og alla ef ég sé reiöur....“ — Bjarki Ellasson yfirlög- regluþjónn I viðtali sem kemur illa út fyrir lögregl- una f heild. Ný löggumynd Lögreglan í Reykjavík hefur sætt mikilli gagnrýni að undanförnu. Hún hefur verið sökuð um að vera kaldranaleg í samskiptum við fólk og vera alltaf að taka eitthvað frá borgurunum svo sem frelsið, í stað þess að fara færandi hendi um göturnar. Yfirstjórn lögreglunnar brá á það ráð að fá hingað bandarískan sérfræðing í almannatengslum til að gera tillögur til úrbóta. Sérfræðingurinn, Les Sockem, Iagði m.a. til að lögreglumenn skiptu um búning í desember. Þessi mynd var tekin á lokafyrirlestri Banda- ríkjamannsins í húsakynnum Lögregluskólans. UMFERÐARNEFND REVKJAVÍKUR LÖGREGLAN I REYKJAVlK Þvl miSur getum vl5 ekki veitt öllum þelm börnum verO- laun, sem senda okkur rétt svör, en dregið verður úr rétt- um svörum og þau heppnu fá verðlaunin send heim. t Í&30 mfer&mú VerálauNngetraun fyrfa skólabðrn Við gerum ráð fyrir því að í haust hafir þú lært ýmislegt um umferðina í skóianum og að í vetur munir þú bæta miklu við þekkingu þína á um- ferðarreglunum. Mundu að löggan er vinur þinn. Ekki vera hrædd við hana. Jólagetraunin er einföld. Hún er bara ein spurning, eiginlega. Spurningin er þessi: í hvernig búningum eru lögreglumenn i desem- ber? Bjarki tekinn Bjarki Elíasson yfirlögreglu- þjónn var handtekinn utan við Sjónvarpshúsið við Laugaveg á þriðjudagskvöldið í síðustu viku, að loknum umræðuþætti í beinni útsendingu. Honum var gefið að sök að hafa staöið sig illa í þættin- um. „Af hverju barðirðu ekki Jónas Kristjánsson?" þrumaði varð- stjórinn við yfirheyrslur yfir Bjarka niðri á lögreglustöð. „Hvers vegna handjárnaðir þú ekki lögfræðinginn og stjórnand- ann? Svo þykistu vera lögreglu- maður...í‘ Yfirheyrslurnar stóðu fram á nótt og Bjarki er sagður hafa ver- ið beittur töluverðu harðræði. Hann segist hafa verið handtek- inn „að ósekju". Hann ætlar þó ekki að kfera lögreglumennina sem í hlut áttu fyrir harðræði. „Maður vinnur aldrei þannig mál. Ég þekki þessa gaura“, sagði Bjarki. Bréf til Þórðar Bréf með ástarþökkum til Þórðar Björnssonar, rlkissaksóknara frá guðslifandi fegnum stórlöx- um I kerfinu sem sluppu viö kærur 1967—1983. Þessi bréf eru hjartanleg þakkarbréf sem eiga sér allt of margar hliöstæður I íslensku réttarfari. Þessi bréf segja sögu, sem er I senn hjartnæm og ógeðsleg. Hér færa fjölmargir lögbrjótar, sumir hverjir í æðstu stöðum, fram einlægar þakkir sín- artil Þórðarfyrirómetanlegan stuðning I sukkinu. Bæði Þórður og höfundar bréfanna þræta fyrir þessi skrif en það þýðirekkert. Útgáfurétturinn er ótvíræður. Hann er réttlátur og því auðveldlega réttlætanlegur. Bréfin frá klámhundum þjóðfélagsins eru safa- rlkastalesning sem sést hefuráprenti síðan f júlí- hefti Bangsans. Klígjugjarnt fólk er beðið að leiða þessa bók hjá sér. — Ríkisútgáfa námsbóka Bjarki Elíasson færður til yfir- heyrski. Hann hefur misst húfuna í átökum við lögregluþjóna i lög- reglubífnum á leiðinni niður á lög- reglustöð. 18 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.