Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 10
 np. BRÉF TIL RITSTJÓRNAR HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Ingólfur Margeirsson Ritstjórnarf uiltrúi: Hallgrlmur Thorsteinsson Blaðamenn: Egill Helgason og Sigmundur Ernir Rúnarsson Utlit: Björn Br. Björnsson/ Björgvin Ólafsson Ljósmyndir: Jim Smart Handrit og prófarkir: Hildur Finnsdóttir Útgefandi: Goögá h/f. Framkvæmdastjóri: Guðmundur H. Jóhannesson Auglýsingar: Áslaug G. Nielsen Skrifstofustjóri: Ingvar Halldórsson Innheimta: Jóhanna Hilmarsdóttir Afgreiðsla: Þóra Nielsen Lausasöluverð kr. 30. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík, sími 8-15-11. Afgreiðsla og skrif- stofa eru að Ármúla 36. Simi 8-15-11. Setning og umbrot: Alprent hf. Prentun: Blaðaprent hf. Hugvekja Þáerkomið að jólum. Og reyndar áramótum líka. I það minnsta fyrir okkur á Helgarpóstinum og lesend- ur okkar, þvl þetta er síð- asta tölublað á því Herrans ári 1983. Það er því hollt að staldra við og horfa um öxl, samtlmis því að ritstjórnin lítur yfir ókomið næsta ár og gefur sjálfri sér og les- endum blaðsins fögur fyrir- heit. Það er ósjaldan að okkur berast bréf eða slmtöl þar sem þekktar raddir og óþekktar segja eitthvað á þessa leið: Þið eruð helvítis skítablaö, sorpsnepill, klámrusl, andskotans kven- hatarar, kommar, homma- dindlar, menningar- snobbarar, karlrembusvín, tippalingar, soraseggir og guðlastarar. Sumir segja annað sem við þorum ekki að birta því þá verður okkur stungið inn. Nú. Þegar við, á þessum timamótum endurskoðun- ar og fagurra fyrirheita og loforða, skoðum þessi lofs- yrði grannt, getum við ekki annað en viðurkennt að allt er þetta satt og rétt. Helgar- pósturinn eralger svívirða I þessu fagra þjóðfélagi okkar, þar sem siðgæði, hjartahlýja, samkennd og heiðarleiki rlkir á öllum sviðum. Eiginlega ætti að banna Helgarpóstinn og brenna gömul eintök. Hann er skltug flís I hinu stóra, tæra og alltsjáandi auga þjóðfélagsins. En hingað til höfum við sloppið. Það er vegna þess að Islendingar eru umburðarlynd þjóð sem virðir leikreglur lýð- ræðis, og prent- og tjáning- arfrelsis. Öllu má hins vegar of- gera. Þess vegna lofum við, kæru lesendur, að bæta okkur á næsta ári og hætta þessu eilffa slúðri og niður- rifi og veröa: jákvæöir, upp- byggilegir og sléttir og felldir eins og hinir. Þessari ritstjórnarstefnu lofum við að framfylgja á næsta ári. Ekkert getur haggað þeirri ákvörðun okkar, nema það eitt að þið, heiövirðu og flekklausu lesendur, hætt- ið að lesa okkur. Gleðileg jól og farsælt komandi ár, elskurnar. Atlaga gegn almanna- trygging- unum Hinn nýi sjúkraskattur, sem ríkisstjórnin hyggst leggja á þá, sem þurfa á sjúkrahús, var gerður að umtalsefni í Innlendri yfirsýn Helgarpóstsins í síðasta tölublaði. í þeirri stuttu umfjöllun var farið á- gætlega ofan i þetta mál, eftir því sem rúm leyfði. Pó vantaði í skrif- in nokkra grundvallarþætti, sem vart verður komist hjá að minnast á. Helgarpósturinn hefur oft gert ítarlegar og fróðlegar úttektir á hinum ýmsu málum; farið ofan í saumana á tilteknum málum, skoðað nákvæmlega hinar fjöl- mörgu hliðar þeirra og náð að greina hismið frá kjarnanum. Sumir hafa kallað þetta rann- sóknarblaðamennsku. Mér dettur í hug, hvort ekki væri athugandi fyrir Helgarpóst- inn að skoða tryggingakerfið út frá sömu sjónarmiðum. Einkan- lega vegna þeirra árása, sem vel- ferðarkerfið og almannatrygging- arnar verða nú fyrir úr herbúðum stjórnarsinna. Sjúkraskatturinn snýst nefnilega ekki um það eitt, að sjúklingar eigi að greiða á- kveðna upphæð til að fá að liggja á spítala, heldur er hér um grund- vallarbreytingu að ræða, — prinsippbreytingu, eins og það var réttilega orðað í fyrrgreindri yfirsýn Helgarpóstsins. Hér er verið að víkja frá þeirri megin- stefnu, að allir þjóðfélagsþegnar eigi kost á að njóta þeirrar full- komnustu heilbrigðisþjónustu sem völ er á, án tillits til stöðu eða efnahags viðkomandi. í hugmyndum Matthíasar Bjarnasonar er verið að víkja frá þessari grunnforsendu; það er verið að opna leið í þá átt, að að- eins þeir sem efni hafi á geti notið góðrar heilbrigðisþjónustu. Þegar á annað borð hefur verið fallið frá þeirri meginhugmynd, að heil- brigðisþjónusta skuli standa öllum til boða, burtséð frá efnahag, eins og ríkisstjórnin miðar nú að, þá má vænta þess að ríkisstjórnin haldi áfram á sömu braut síðar meir og höggvi enn frekar í al- mannatryggingarnar, haldi enn á- fram aðgerðum sem stefna að því aö hver þjóðfélagsþegn verði sjálfum sér næstur. Það væri því fróðlegt að Helgar- pósturinn rifjaði upp sögu þessara mála í íslenskri pólitík. Þá baráttu sem heyja varð gegn íhaldsöflun- um í landinu, áður en almanna- tryggingunum var komið á fót. Það gekk ekki átakalaust að ná þeim málum í gegn, en það hafðist þrátt fyrir hatramma andstöðu íhaldsins í landinu. I orði, t.a.m. fyrir kosningar, hefur enginn stjórnmálaflokkur Ijáð máls á því að hrófla við grund- velli hins víðtæka almannatrygg- ingakerfis, sem við búum við. Nú bregður hins vegar svo við, að í- haldsstjórn Framsóknar og Sjálf- stæðisflokksins mundar hnífinn; það á að leggja til atlögu við ýmsa þætti velferðarkerfisins. Nú skal leita til fortíðar og taka upp hina afturhaldssömu stefnu íhaldsins frá því á árum áður, þegar allar samfélagslegar lausnir voru nán- ast djöfullegar. Það skyldi því ekki koma nein- um á óvart, þótt íhaldið vilji nú velferðarþjóðfélagið feigt, al- mannatryggingarnar á skurðar- borðið. Það lifir lengi í gömlum glæðum. Barátta íhaldsins gegn vökulögunum, gegn almanna- tryggingunum og fleiri þjóðþrifa- málum, er sem afturganga í Sjálf- stæðisfiokknum. Skyldi klámhögg Matthíasar Bjarnasonar nú gegn hinum sjúku og þjáðu í þjóðfélaginu vera upp- haf nýrrar leiftursóknar gegn allri félagshyggju í hvaða mynd sem hún birtist? Ætla nú forréttinda- stéttirnar að láta til sín taka og beita ráðherrum Sjálfstæðis- flokksins fyrir sinn vagn? Þessum spurningum og fleiri ámóta mætti HP leita svara við með nákvæmri úttekt á sögu og stöðu þessara mála. Guðmundur Árni Stefánsson ritstjóri Alþýðublaðsins Ein örfoka sál Fyrir réttum 43 árum flíkuðu breskir stjórnmálamenn lítt lof- orðum enda ekki bjart upp yfir um þær mundir. Einn gekk þá fram fyrir skjöldu og hét þjóð sinni þríeiningu blóðs, svita og tára. Sá hét Winston Leonard Spencer Churchill og hefur stjórnmála- mönnum löngum síðar þótt girni- legt að fara í förin hans. Einn slík- ur taglhnýtingur lét nú nýverið ljós sitt skína, fyrst á fundi í Há- skóla íslands og seinna á síðum Helgarpóstsins. Og ekki rak sig úr vitni hin göfuga hugsjón þessa „litla winstons", nei síður en svo. Hann hét engu en sagðist vera reiðubúinn til viðræðna um mál- efni námsmanna, því ekki vildi hann vísa þeim á guð og gaddinn — eða svo lét hann a.m.k. í veðri vaka. En sem fyrr er sagt þá lét hann „litli winston" okkar ekki hér staðar numið. Hann haslaði sér nefnilega völl á síðum Helgar- póstsins (Hringborð 17. nóv.) og nú átti aldeilis að láta kné fylgja kviði því „winstonspólitík" er við hæfi karlmenna einna er aldrei láta deigan síga. En hann „litli winston" hafði heldur betur snúið snældunni sinni á þeim tíma er leið frá lokum fundarins í hátíðarsal Háskólans og þar til hann settist við hring- borðið, reitandi blöðin af blómun- um. Hetjan stígur þar ljóslifandi fram, hafandi að engu langanir almúgans í viðbit og glamuryrði. Hann „litli winston" ber auðvitað hag litilmagnans fyrir brjósti en hann er raunsæismaður og hvorki fyrir pólitísk látalæti né „lýðskrum með bravúr". Og þessi jötunn til sálarinnar skefur ekki utan af hlutunum heldur færir okkur sannleikann án nokkurra vífi- lengja og það jafnvel þó ganga þurfi í berhögg við væntanlega kjósendur. Ó, þvílík sæla að enn skuli vera til svona pílagrímar meðal okkar er þora að grípa i rétta strengi og beina höfuðlaus- um lýðnum frá villu síns vegar þó það kosti fórnir og jafnvel atkvæði. En hann „litli winston" er ekki allur þar sem hann er séður. Hann skrifar og gefur í skyn að hafa sagt á fundinum að væri hann „...for- sætis-, fjármála- og menntamála- ráðherra fengjuð þið ekki 5-eyr- ing í viðbót". En þarna hefur nú eitthvað skolast til hjá honum „litla winston" því hann hafði haft á orði að hann væri til viðræðu um málið. Misræmi milli orða og skrifa má reyndar finna víðar í grein hetjunnar okkar en það er varla rétt að elta ólar við slíkan tittlingaskít. Mikilmenni allra tíma hafa ávallt litið söguna öðrum augum en sjóndapur almúginn og er „litli winston“ auðsjáanlega engin undantekning þar á. En í títtnefndri grein fjallar „litli winston" náið um persónulega reynslu sína af háskólafundinum. Þarna stóð hann sem hrópandinn í eyðimörkinni, leggjandi líf sitt og limi í stórhættu. í mikilleik sínum gleymir hann auðvitað ekki að undirstrika á hvílíkri heljarþröm hann var staddur. Þrátt fyrir ólæti og frammíköll skrílsins, er drekktu ræðu hans, þá greindu næm eyru ofurhugans orð skelfdr- ar stúlku í áheyrandaskaranum er dásamaði áræðni ræðumanns og kjark (henni hefur líklega legið hátt rómur) — gott ef hún nefndi hann ekki í sömu andránni og frelsarann sjálfan. Því miður hefur mér orðið nokkuð tíðrætt um skrif Jóns Baldvins Hannibalssonar í Helgar- póstinum sem birtust þar 17. nóv. síðastliðinn. Bera þau þess öll merki að höfundurinn sé þar að gera litlum fæti langan skó, semsé hvern lærdóm verðandi stjórn- málamenn geti haft „...af þessari rannsóknaræfingu í Háskóla Islands". Vissulega má til sanns vegar færa að betra sé ólofað en illa efnt. Það breytir samt engu um það að gaspur, sjálfumgleði og misheppnuð fyndni eru ekki væn- leg meðul til lausnar vandamála og hefði verið vitið meira fyrir þingmanninn að horfast í augu við vandann í stað þess að útvatna hann í skætingi og hroka. Læt ég svo útrætt um grein Jóns og vona að hann taki þessi skrif mín ekki sem svar við henni því hún er ekki svaraverð enda skrifuð í þeim eina tilgangi að setja höfundinn á stall með goðum sínum, Churchill og öðrum slíkum. Vil ég nú víkja nokkrum orðum að umfjöllunarefni áðurnefnds fundar sem haldinn var 10. nóv. og er kveikja þessara skrifa. Voru þar rædd málefni Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna. Má segja með nokkrum rétti að þar hafi verið tekist á um grundvallar- atriði stjórnarhátta þar sem ríkis- valdi er skipað til öndvegis. Sem er gildi lagasetninga og hvort öll- um beri að fylgja settum lögum án tillits til stöðu eða stéttar viðkom- andi. Málið er það að í lögum um námslán og námsstyrki, sem sam- þykkt voru frá alþingi þann 30. apríl 1982, er kveðið skýrt á um skyldur ríkisvaldsins varðandi námsmenn og lán til þeirra. Sam- kvæmt þessum lögum er það ótvíræð skylda hins opinbera að búa svo um hnúta að námsmenn eigi þess kost að fá lán er nemi 95% af reiknaðri fjárþörf þeirra (1. jan. 1984 á þetta hlutfall að fara í 100%). Kjósi þingmenn hins vegar að ganga á þessi lög væri það svo sem ekki í fyrsta skiptið sem þeir skitu í nytina sína. Það er þó frá- gangssök og kann aldrei góðri lukku að stýra þegar ráðamenn predika siðferði, löghlýðni og þegnskap í einni andrá þegar þeir í þeirri næstu misbjóða þessu sama siðferði á hinn herfilegasta _máta. En það er einmitt slík tvö- "feldni sem, umfram annað, hefur grafið undan trú almennings og trausti á verðleikum þingmanna. Hirði ég ekki um að nefna dæmi þessa en þau eru mýmörg og ekki öll gömul. Verður nú ekki betur séð en að þeir séu enn einu sinni í þann veg- inn að brenna sig á þessu soði þvi eitthvað stendur á þingmönnum stjórnarinnar að láta Lánasjóði ís- lenskra námsmanna í té það fjár- magn er hann vantar svo fram- fylgt sé landslögum. Væri nú ekki hreinlegra að þurrka sjóðinn út fyrst í orði, þá með brottfellingu þeirra laga er hann styðst við, áður en niðurrifs-verkin eru látin tala? — þ.e. ef ráðamenn ætla í allri alvöru að láta sjóðinn róa. Sé sú raunin er verið að kippa burð- arstoðinni undan hugsjóninni um jafnrétti til náms. Þetta skulum við gera okkur ljóst og ekki fara í neinar grafgötur um það að nám mun þá, ennfrekar en þegar er, heyra til forréttindum þeirra er peningana hafa. Vil ég ítreka tilmæli mín til þing- manna: brjótið ekki landslög, jafn- vel þó slíkt sé ykkur i lófa lagið, í krafti stöðu ykkar (sem er miður). Þið eruð í vinnu hjá íbúum þessa lands og ykkur ber, ekki síður en þeim, að virða samþykktir lög- gjafarsamkomu íslands. Felið ykkur ekki á bakvið grímu rétt- lætis og jafnaðar því það eru verk- in sjálf sem afhjúpa syndahafur- inn. Jón Hjaltason nemi við sagnfræðideild Háskóla íslands Já — enn er von Mínir kæru. Það er vægt til orða tekið að segja að vonbrigði mín hafi verið allt að því óbærileg, er ég nú rétt áðan lagði frá mér Helgarpóstinn frá 15. des. sl. Ástæðan er grein, sem nefnist „Enn er von en nú er nauðsyn" og fjallar þar blm. HP um hina nýútkomnu bók „Enn er von“ handbók piparsveinsins, sem hefur að geyma „auðveld- ustu aðferðina til að kynnast kvenfólki". í fyrrnefndri grein rekur blaðamaðurinn, sem mun ungur og ókvæntur, raunir sínar á all „dramatískan" hátt. Þegar hann einn kaldan skammdegis- morgun hélt á vit örlaganna á lánsbíl, klæddur sínu fínasta pússi og með lykilinn að hjörtum kven- þjóðarinnar upp á vasann. Ekki tókst þó blessuðum manninum betur upp en svo, að upp úr mið- nætti sama kvöld hélt hann einn heim í kalda kjallaraholuna sína, niðurbrotinn á sál og líkama. Vissulega hefur þetta verið átakanleg lífsreynsla en bíðum nú við, hvar skyldi sökin liggja? Bók þessi, sem er bandarísk að uppruna og ber það einfalda og frjálslega heiti „How to pick up girls“, vakti gífurlega athygli og hrifningu í Bandaríkjunum á sín- um tíma. Þótti bókin aldeilis frá- bær leiðbeiningahandbók fyrir piparsveina, sem aðra sveina. Og nú hef ég alveg nýlega lesið, að einmitt vegna þessarar bókar hafi þarlendum einhleypingum farið óðum fækkandi og samskipta- vandamál kynjanna séu nánast úr sögunni. Já, þetta er ótrúlegt, en alveg einstök þekking og lygilegt innsæi höfundarins á kveneðlinu mun þar hafa riðið baggamuninn. Og þá er komið að sökudólgn- um, vini okkar unga, ókvænta blaðamanninum, sem einfaldlega áttaði sig ekki á þvi, að Bandarík- in og ísland eru heldur betur tveir ólíkir heimar. (Reyndar tel ég hann ekki einan um það, ég hef sterkan grun um að þýðandi bók- arinnar sé jafnvel af bandarískum ættum.) Grundvallarmunurinn á íbúum þessara tveggja landa orsakast af veðráttunni, því eins og margsannað er vísindalega hefur einmitt hún hvað mest áhrif á alla þætti mannlegrar náttúru. ísienskir karlmenn eru, hvort sem þeim líkar betur eðaverr, fæddir í köldu landi, á mörkum hins byggilega heims, þar sem meðfætt rómantískt eðli þeirra er svo grimmilega djúpfryst og villt- ar ástríður fyrirfinnast bara á prenti. Þegar svo þessir ólánsömu menn ætla að fara að tileinka sér útlenda tækni í kvennamálum, alveg hrátt, þá er svo sannarlega bara voðinn vís. Eg læt fljóta með hér máli mínu til stuðnings eina aðferð bókarinnar, undurróman- tiska. Ég sé þar fyrir mér ungan, svarthærðan, sólbrenndan mann, (helst frá Suðurríkjunum) sem gengur í þungum þönkum eftir heitum sandinum meðfram ströndinni og mætir svo skyndi- lega ægifagurri stúlku, sem er í gönguferð með hundinn sinn. Hann nemur staðar andspænis henni, tekur um hönd hennar, þau horfast lengi í augu uns hann segir með hálfbrostinni, ástríðuþrung- inni rödd: „Þegar ég sé stúlku eins og þig, þakka ég heillastjörnu minni fyrir að ég skuli ekki vera kvæntur maður“. (bls. 92). Hver í ósköpunum getur séð fyrir sér sama atriði e.t.v. niðri á Lækjar- torgi, þar sem hetjan okkar hefur dæmigert íslenskt útlit (ljóst hörund, sem auðveldlega blánar í kulda) og æðir skjálfandi af kulda að dísinni sinni, fjólublár í kinn- um, með glamrandi tennur og gusar loks út úr sér gullkornunum á einum anda. Eitt dæmi enn, önnur atrenna blaðamannsins einhleypa: hann er staddur í bókaversiun og sér 10 HELGARPÓSTUR 1N

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.