Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 23
BOKMENNTIR Afýmislegu barnaefni Fyrir jólin kemur ævinlega út mikið af alls kyns barnaefni sem ekki er tóm til að gera vandleg skil og reyndar ekki alltaf ástæða til. En í þessum pistli er ætlunin að segja lítil- leg deili á ýmsu slíku þó ekki verði djúpt far- ið í sakirnar. Vísnabókin Það er með ólíkindum hvað Vísnabókin, já þessi gamla góða með myndunum eftir Hall- dór Pétursson, ætlar að endast. í ár er gefin út 7. útgáfa þessarar bókar, en hin fyrsta kom út 1946. Ég hef að vísu ekki borið útgáf- urnar saman, en þó að bókin hafi nokkrum sinnum verið endurskoðuð er kjarni hennar sá sami. Ekki veit ég heldur hversu mörg eintök hafa verið prentuð en þau skipta á- reiðanlega tugum þúsunda. Allt þetta er til marks um að vel hafi verið vandað til valsins í upphafi enda var Símon Jóh. Ágústsson smekkmaður mikill. Safnið er fjölbreytt, spannar tímann allt frá Agli Skallagrimssyni til okkar daga og efast ég um að annarra þjóða fólk geti kennt börnum sínum vísur frá 10. öld sem þau hafa gaman af. Slíkt er ómet- anlegur arfur, brú milli margra kynslóða sem getur gefið trausta tilfinningu um að vera eitthvað, vera af þjóð og tilheyra menn- ingu sem lengi hefur verið til. Vísnabókin er einnig mikil málnáma og hefur sem slík á- reiðaniega stuðlað að málþroska umfram margt annað. Sögusnœldur Annarskonar þáttur í virku viðhaldi menningar okkar er að flytja þjóðsögur og þessháttar efni á milli kynslóðanna. Hefur margt gott verið gert til að koma þjóðsögum til barna, en nú bryddar nýtt fyrirtæki upp á þeirri nýjung að gefa slíkt efni út á snældu (ekki sem þú skalt stinga þig á heldur kass- ettu). Fyrirtæki þetta heitir Sögustokkur og að þvi standa nokkrar ungar konur í ,,upp- eldisgeiranum" Qj.e.a.s. sem hafa haft nokk- ur afskipti af uppeldismálum). Hefur þetta fyrirtæki gefið út tvær snældur, Sögusnæld- una og Jólasnælduna. Á sögusnældunni eru nokkrar þjóðsögur t.a.m. Búkolla og Gili- trutt, en tengt er á milli þeirra með þulum og gömlum vísum. Er þetta efni vel valið og flutningurinn er mjög góður. Á jólasnæld- unni er eins og gefur að skilja efni tengt jól- unum, jólaguðspjallið og nokkrar þjóðsögur tengdar jólum svo og nokkur kvæði og þul- ur. Er hér um skemmtilega nýbreytni að ræða því þó að mér finnist kannski fremur kaldr- analegt að setja börn framan við einhver appíröt og láta þau hlusta, þá er það þó betri kostur en sá að þau verði alveg af slíku því fæstir hafa yfrið nógan tíma að gefa börnun- um í þessu vinnuþrælkunarþjóðfélagi. Æuintýri úr mannheimum, dýrheimum og álfheimum Ævintýrin eru ekki bara gömul. Alla tíð hefur samning ævintýra, sem að meira eða minna leyti eru byggð á þjóðsögulegu efni, verið snar þáttur í ritun barnabóka og ég er ekki frá því að slík ævintýraritun sé að ganga í endurnýjun lífdaganna. Vésteinn Lúðvíksson hefur til þessa skrif- að tvær barnabækur um Sólarblíðuna, sem gerast í raunheimi en með þó nokkru ævin- týraívafi. En nú hefur Vésteinn snúið þessu við. Ævintýrið um Guðmund Hrein með gull í nögl gerist nánast að fullu í ævintýraheimi þó að allra grófasti rammi sögunnar sé úr raunheimi. Efniviðurinn er einnig að mestu byggður á ævintýraminnum. Foreldrar Guð- mundar eru hamingjusöm þegar hann fæð- ist, en faðir hans drukknar skömmu eftir og skömmu síðar er Guðmundi rænt af vondu fólki. Þar er hann lokaður inni en kemst að lokum við illan leik aftur til móður sinnar með hjálp álfkonu, en áður verður móðirin að ganga í gegnum þrjár þrautir. Yfir ævin- týrinu er töluverður óhugnaður. Hið góða og hið illa takast á og hið illa er að sjálfsögðu meira áberandi þó hið góða sigri að lokum eins og vera ber í góðu ævintýri. Bókin er skreytt svarthvítum teikningum eftir Róbert Guillemette. Ævintýrið um Kela kött eftir Guðna Kol- beinsson er alls ekkert óhugnanlegt. Það er meira í ætt við dýrasögur þar sem dýrin lenda í hrakningum en ná heim að lokum. Svo er um Kela. Hann er með eigendum sín- um í sumarbústað á Þingvöllum, en hrekst frá þeim vegna veiðináttúru sinnar og lendir í ýmsum hremmingum en hittir síðan dverga sem hjálpa honum. Nokkuð skemmtilega sagt ævintýri. Það sem gefur þessari bók þó gildi umfram margar aðrar bækur eru frábærar myndir Péturs Halldórs- sonar sem mikið er lagt i og eru fagurlega lit- prentaðar. eftir Gunnlaug Ástgeirsson Sigrún Eldjárn hefur samið og mynd- skreytt lítið hversdagsævintýri sem fjallar um langafa og stelpuncL. Önnu sem hann passar. Langafi er blindur en það aftrar hon- um ekki frá því að taka þátt í ýmsu skemmti- legu eins og að fara í herfilegan drulluköku- leik. Langafi drullumallar er skemmtilegt lít- ið kver fyrir yngstu lesendur og skoðara. og yfir í þann gráa raunueruleika Kristján Ingi Einarsson ljósmyndari, sem tók myndirnar í Húsdýrabókina sem kom út í fyrra, og Sigrún Einarsdóttir hafa sett sam- an snotra bók sem segir aðallega í ljósmynd- um frá degi einnar lítillar stúlku á dagheim- ili. Heitir þessi bók Kátt er í koti — dagur á barnaheimili. Þetta eru mjög vel gerðar myndir, lausar við að vera uppstilltar og lýsa vel einum degi á dagheimili. Lena sól heitir stutt saga eftir Sigríði Ey- þórsdóttur sem virðist ætluð börnum sem eru nýfarin að lesa. Hér erum við komin með nánast hefðbundna vandamálabók (það er ekkert Ijótt við það). Lena sól er ný- flutt utan af landi til Reykjavíkur með mömmu sinni, sem er skilin við pabba Lenu. Þeim mæta báðum aðlögunarerfiðleikar og Lena er ekkert sérlega ánægð með mömmu sína og strýkur burt. En að lokum ákveða þær að standa saman og glíma við erfiðleik- ana. Þetta er stutt saga og nokkuð vel sögð, hentar trúlega ágætlega sem byrjendabók í lestri. Frá Kjörbúð Vesturbæjar Nýir eigendur auglýsa Ertu í kapphlaupi við tím- ann? Leitaðu ekki langt yfir skammt. Við erum hér á Melhaga 2, tilbúin að taka á móti ykkur. Fjölbreytt úrval í hátíðamat- inn, góðar vörur á góðu verði. Kjörbúð Vesturbæjar Melhaga 2, Kjöt — mjólk — nýlenduvörur Verslaðu í rólegheitum Sælgæti — gosdrykkir — kerti — servíettur Kreditkortaþjónusta Visa og Eurocard Opið: Fimmtud. 22.12. frá9 til 20 Föstud. 23.12. frá 9 til 23 Aöfangad. frá 9 til 12 Dagana 27. til 29. frá 9 til 19 Föstud. 30.12. frá 9 til 23 Gamlársd. frá 9 til 12 Sendum heim sími 19141 HELGARPÓSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.