Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 2
Guðrún Alda Harðardóttir pabbí dó Rjllincm .__ búninginn og mæta á stað- inn með brosi, svo sem margir hafa flaskað á, held- ur verður að geisla af manni gleöi og fjör allan tfmann. Börn eru mjög krefjandi á- horfendur, sem sést best á þvf að það þarf ekki að koma nema minnsta hik á mann til að athygli þeirra glatist fyrir fullt og allt.“ Hvað hefur góður jóla- sveinn til að bera? „Hann þarf náttúrlega að vera lífsglaður aó upplagi, þvf það þarf að geisla af honum líf og fjör þannig að það smiti út frá sér. Svo þarf hann að geta sungið, og helst á hann að vera stór, fyrirferðarmikill og á- berandi, svona f svipuðum þyngdarflokki og ég er. Það má ekki henda jólasvein að hann týnist f krakkaskar- anum sakir smæðar sinnar." Trúðirðu á jólasveininn hér á árum áður sem stráklingur? Játning jólasveinsins Eitt af þeim gervum sem mannfólkið tekur sér á að- ventunni, er búningur jóla- sveinsins. Ekki svo að skilja að margir klæðist honum gagngert til að skemmta opinberlega, en þeir eru þó vissulega til sem það gera. Kannski er Magnús Ólafs- son skemmtikraftur besta dæmið í því efni, en hann hefur staðið í jólasveina- bransanum undanliðin þrenn jól. Og er enn að. Þú hlýtur að koma víða við í þessu gervi þínu Magnús? „Já, þetta geta verið allt að fimmtfu staðir yfir hátíð- arnar, svo framarlega sem maður tekur öllum tilboð- um. Það eru allskonar störf í kringum þennan jóla- sveinabransa, en ég reyni að vinsa það úr sem mér þykir þægilegast. Ég reyni til dæmis að forðast versl- anir. Það getur verið svo ósköp lýjandi að sitja þar og hossast með krakka á hnjánum í þrjá til fjóra tfma.“ Erilsamt starf? „Þetta er meiriháttar púl, get ég sagt þér, endasetur að mér kvíða f hvert sinn sem ég tek fram jólasveina- búninginn. Máliö er ekki leyst með þvl bara að fara í „Eg er nú hræddur um það. Eg man vel eftir þvl hvað ég dáðist að látbragði Ólafs Magnússonar frá Mosfelli sem var jólasveinn númer eitt í gamla daga, lék Kertasnfki af guðs náð og fór til útlanda sem slíkur meira að segja. Mér datt vissulega aldrei í hug á þessum árum að ég ætti eftir að fást við sama leik og þessi krossnafni minn.“ En varla trúiröu enn á svein jólanna? „Ég geri það nú ekki, ef ég á að vera hreinskilinn. Hinsvegar verður maður að trúa blint á tilveru hans I hvert sinn sem maður leikur hann. Að öðrum kosti er blekkingin of augljós fyrir börnin." í lokin, Magnús. Er ekki hægt að hafa gott upp úr þessum jólasveinabransa? „Þarna kemurðu nú að veikum punkti. Jú, það er hægt að hafa svolltið upp I úr þessu, þegar og ef mað- ' ur tekur eitthvað fyrir við- vikið." sicnlfn^ I Meða/a„,e°usfu ® hl"ar starf* J?nnars Þá aA myndir. bla*enn á -Hokkrir Sg1 bað i/kfi Urriraecjcja 1 barn- Skynn9!Zekki frn°ar^rtf Ny barnabók sem vakið hefur mikla athygli Hvaða augum lítur barnið dauðann? Hvernig bregst sex ára drengur við þegar pabbi hans deyr? Hver er skilningur hans á að lífið haldi áfram? Sagan lýsir á raunsæjan hátt hvað hrærist í huga sex ára drengs, sem missir pabba sinn í bílslysi. Efnið vekur okkur til umhugsunar um hvaða augum við lítum á dauða náinna ástvina. Saga sem allir hafe gott af að lesa. Hasla . ALLARNÝJU BÆKURNAR ogyfir 4000 aðrir bókatitlar MARKAÐSHÚS BÓKHLÖÐUNNAR Laugavegi 39 Sími 16180 OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 8. SENDUM í PÓSTKRÖFU UM ALLTLAND FELAGSMENN KRON Athugið að gildistími desember afsláttarkorta í matvörubúðum KRON DOMUS og STORMARKAÐNUM hefur verið lengdur til áramóta. Nýir félagsmenn fá afsláttarkort. Hægt er að ganga í KRON í öllum verslunum félags- ins. Með kveðju, Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis. Q KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS Burstafell emutt í nýtt rúmgott húsnæði að Bíldshöfða 14. Nú ennn við í næstu nálægð við öll helstu nýbyggingasvæði Reykjavíkur og með bættri aðstöðu bjóðum við aukna þjónustu og vöruvcil. Góð aðkeyrsla — Næg bílastæði. Eftir 20 ára veru í Smáíbúðahverfi þökkum við ábúum hveríisins ánægrjuleg samskipti á liðnum árum og bjóðum þá velkomna til viðskipta á nýjum stað. BURSTAFELL Byggingavöruverslun Bíldshöfða 14, Símar: Verslun 38840/Skrifstofa 85950 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.