Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 28
Bíóin Háskólabíó Skilabod til Söndru * * Þetta er eina íslenska kvikmyndin sem bíóunnendur eiga kost á að sjá um hátíðirnar. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Jökuis Jakobssonar og fjallar um rithöfundinn Jónas sem hlotnast stóra tækifærið þegar ítalskt kvik- myndafirma býður honum að skrifa handrit að mynd um líf og störf Snorra Sturlusonar. Til að skapa sér næði við skriftirnar flyt- ur hann úr skarkala borgarinnar í sumarbústað ög ræður sér ráðs- konu sem veldur tímamótum í lífi hans. Rithöfundinn Jónas leikur Bessi Bjarnason og er þetta fyrsta stóra kvikmyndahlutverk þessa kunna sviðsleikara. Ásdís Thor- oddsen leikur Söndru, ráðskonu Jónasar, en í öðrum hlutverkum eru meðal annarra Bryndís Schram, Benedikt Árnason, Þor- lákur Kristinsson, Bubbi Morth- ens, Andrés Sigurvinsson og Rósa Ingólfsdóttir. Leikstjóri myndar- innar er Kristín Pálsdóttir. — sjá umsögn í Listapósti. — frumsýning á landsbyggðinni verður á annan í jólum í Isafjarð- arbíói, klukkan 17.00 og 19.00 Nýja bíó Stjörnustríð av Jólamyndin í Nýja bíói, er þriðja myndin í framhalds kvikmynda- flokknum bandaríska, Stjörnu- stríð. Fyrsta Stjörnustríðsmyndin vakti gífurlega athygli og aðsókn, enda má segja hana hafa brotið rifrildi í sögu afþreyingarmynda. Bæði var að þessi mynd gerðist annarsstaðar en á jarðríki og svo var það líka að tæknileg vinnsla myndarinnar þótti takast með ólík indum vel miðað við það sem áð- ur hafði gerst í kvikmyndasög- unni. Priðja Stjörnustríðsmyndin þykir bæta um betur hvað þetta atriði varðar, tæknileg útfærsla hennar ku vera einstök og spenna ævintýrsins meiri en nokkurn- tíma áður. Harrison Ford, skær- asta stjarna ævintýramyndanna, er hér i aðalhlutverki svo sem áð- ur í stríði stjarnanna og svo koma ýmsar furðulegar tölvufígúrur náttúrlega við sögu. — sjá umsögn í Listapósti. Tónabíó Octopussy Enn er „múrarinn" á fullu í Bond- hlutverki sínu, enn snarpari, spaugsamari og umvafðari kven- fólki en i fyrri myndum sínum um núll núll sjö njósnara hennar há- tignar Bretiandsdrottningar. Octopusssý heitir hún og er jóla- mynd Stjörnubíós í ár. Að þessu sinni er Bond að eltast við harðvít- ugan Rússa sem er að stela sér skartgripum úr flestum fylgsnum jarðríkis. Til þess að hafa upp á kauða þarf Bond að hlaupa yfir fleiri en ein landamæri og fleiri en tvenn, og er sá eltingaleikur æsi- spennandi eins og nærri má geta. „Múrarinn" Roger Moore hefur sjaldan verið sprækari en í þessari mynd, orðinti þó hálísextugur að aldri. John Glenri heidur hér um stjórnvölinn einsfag í síðustu Bond-myndinni, o|| leysir hlut- verk sitt með miklum ágætum, svo miklum reyndar að margir telja Octopussy bestu Bond-tnynd- ina til þessa. — sjá umsögn í Listapósti. Stjömubíó Bláa * * * man frst og fremst mynd PÓSTURINN spennunnar, og nokkuð óvenju- leg að því leyti að hún gerist að miklum hluta til í loftinu, um borð í afar fullkominni lögregluþyrlu, brynvarinni og búinni yfirburða vélarafli. Nánar skal ekki lýst efni- viði þessarar jólamyndar Stjörnu- bíós í ár, en láta það nægja að flug- manninn í þyrlunni leikur enginn annar en Roy Scheider og honum hefur hingað til ekki mistekist hrapallega í hlutverkum sínum. Aðrir leikarar myndarinnar eru ekki ónýtir fyrir framan kvik- myndavélina, stirni á borð við Warren Oats og Malcolm McDow- ell. Þetta ætti að vera tilvalin mynd til að hrista upp í sér hátíð- leika og helgislepju jólahaldsins. Það finnst leikstjóranum John Badham að minnsta kosti. — sjá umsögn í Listapósti. Pixote * Brasilísk-frönsk. Árg. '82. Handrit: Jorge Duran og Hector Babenco eftir skáldsögu Jose Louzeiro „Æska hinna dauðu". Leikstjóri: Hector Babenco. Aðalhlutverk: Fernando Ramos da Silva, Marilia Pera, Jorge Juliao og fl. „Atburðarásin er hæg, þrátt fyrir safaríkt efni, kvikmyndatakan ómarkviss og skeytingarnar iðu- lega höstuglegar". Annie Ný amerísk mynd um teikni- myndasöguhetjuna Annie. Hressi- leg mynd fyrir alla fjölskylduna. Leikstjóri: John Huston. Aðalhlut- verk: Alleen Quinn, Albert Finney, Carol Burnett og Ann Reinking. Austurbæjarbíó Superman III Superman verður að teljast ein- hver frægasta hetja teiknimynda- bókanna, og hin síðari ár líka í kvikmyndum. Þriðja myndin um ævintýri og áhættur þessa frækna ofurmennis er jólaefni Austurbæj- arbíós. Superman á hér enn í bar- áttu við vonda menn sem sækja að þjóðfélaginu, en sem verndari þess númer eitt á hann í litlum erf- iðleikum með að afgreiða þá þó stundum muni vissulega mjóu sem endranær í ævintýrum þess- um. Supermyndirnar hafa verið lofaðar fyrir tæknilega fágað handbragð, spennu og góða skemmtun, og mun nýjasta mynd- in bera þá kosti ekki síður en hinar fyrri. Sjálfan Superman leikur Christopher Reeve að sjálfsögðu, en meðal annarra leikara í mynd- inni má nefna hinn góðkunna grínleikara Richard Pryor. sjá umsögn í Listapósti. Bíóhöllin Segdu aldrei aftur aldrei * * Jólamynd Bfóhallarinnar er að þessu sinrti glæný Bond-mynd með gömlum Bondara í aöalhlut- verki, Sean Connery. Connery lék þennan kunna njósnara áður en Roger Moore tók að sér þetta hltit- verkið þykir hafatekisf meö ágæt- um, að rninnsta kosti er spennan í hámarki aila myndina út í gegn og grtniðlær að fljóta með svo sem einkennt hefur flestar Bond- iityndirnar hingað til. Kunnir leik- ' jarar eru í öðrum hlutverkum myndarinnar. eins og Svíinn Max Von Sydow, Edward Fox og hin undurfagra Barbara Carrera. Leikstjóri myndarinnar er Irvin Kershner. „Never Say Never Again er Bond- mynd eins og þær voru á dögum Connerys, þar sem meiri áhersla er jafnvel lögð á rómantíska hlið hetjunnar en húmoríska. Mynd Connerys er prýðileg afþreying, en geldur tiltölulega dauflegs handrits og heldur þunglamalegr- ar leikstjórnar Irvin Kershners, sem stundum er hreinlega vond og hallærisleg (t.d. dans Bond og kvenhetjunnar) og notar illa mun betri leikhóp en Octopussy hefur uppá að bjóða“. — ÁÞ Skógarlíf og jólasyrpa Mikka mús * * * Bandarísk. Árg. ’67 og '81. Fram- leiðandi: Walt Disney-samsteyp- an. Handrit eftir sögum Charles Dickens og Rudyard Kipling. „Hin einstaka kvikmyndagerðar- list Disney hefur ætíð verið for- múlunni trú og er ávallt til yndis ungum sem öldnum. Því má segja að Disney geri sígildar sögur ógleymanlegar í teiknimynda- formi: geri klassík að nýrri klassík”. - IM Sá sigrar sem þorir (Who dares wins) Aðalhlutverk: Lewis Collins, Judy Davis. La Traviata * * * Bandarísk. Árg. ’82. Handrit, svið- setning og leikstjórn: Franco Zeffirelli. Librettó: F.M. Piave. Tónlist: Giuseppe Verdi. Flytjend- ur tónlistarinnar: Kór og hljóm- sveit Metrópólítanóperunnar. Stjórnandi tónlistar: James Levine. Kvikmyndataka: Ennio Guarnieri. Söng- og leikhlutverk: Teresa Stratas, Placido Domingo, Cornell MacNeil og fl. Dansarar: Ekaterina Maksimova, Vladimir Vassiljev og Bolshojballettinn. „La Traviata er fyrst og fremst kvikmynd tónlistarunnenda og sem slík er hún heimsviðburður og það merkasta sem er á boðstól- um í íslenska svartnættinu þessa dagana". — IM Seven Sjö glæpahringir ákveða að sameinast í eina heild. Leyniþjón- ustan kemst á spor þeirra og ákveður að reyna að útrýma þeim á sjö mismunandi vegu. Aðalhlut- verk: William Smith, Cuich Koock, Barbara Leith og Art Metrana. Dvergarnir Walt Disney-mynd, líklegast um dverga. Zorro og hýra sveröið >W\ ",Zorro og hýra sverðið éljekki óskemmtileg mynd, enda unrtin af vel þokkalegri íagmennsku á flestum sviðum. Grínið feLst ein um í því að hinn hefðbundni.svart- klæddi Zorro á hýran tvíbura- bróður, sem hllypur i skarðið fyr- ' m þegar mikið liggj||||p% veldur ór — GA Herra fnamma (Mr. Mom) Bandarísk. Árg. '83. Handrit: John Hughes. Aðalhlutverk: Michael Keaton, Teri Garr. Leikstjórn: Stan Dragotti. „Þeim hefur tekist að gera grínmynd". — GA Regnboginn Eg lifi Sjálfsævisaga pólskættaða Gyð- ingsins Martins Grey, „For those I loved", vakti gífurlega athygli er hún kom út fyrir fáeinum misser- um ekki síður hér á íslandi en í öðrum löndum þar sem hún hefur birst. „Ég lifi” nefnist bókin í ís- lenskri þýðingu og segir á nærfær- inn og magnaðan hátt frá ævin- týralegu og háskasömu lífshlaupi Greys, frá því hann varð að sjá af fjölskyldu sinni inn í útrýmingar- búðir nazista í Treblinka í Póllandi árið 1939, hvaðan hann slapp með naumindum og náði að flýja yfir víglínuna til Rússa. Þar gekk hann í Rauða herinn sem ásamt bandamönnum náði að yfirbuga Þjóðverja í Berlín 1945. Þegar þangað var komið flýði Grey úr herflokki sínum, náði skipi í Ham- borg og sigidi til Bandaríkjanna þar sem hann auðgaðist fljótlega og kvæntist. Þaðan lá leiðin til Frakklands, þar sem ný ógæfa dundi yfir hann. Leikstjóri þessar- ar örlagasögu í kvikmyndinni er Frakkinn Robert Enrico en mynd- in er unnin í samvinnu Frakka og Kanandamanna og gerð á þessu ári. í hlutverki Greys er Michael York, en með önnur stór hlutverk fara Brigitte Fossey og Helen Hughes. Hnetubrjótur Ný bresk grínmynd með Joan Collins og Carol White og Paul Nicholas í aðalhlutverkum. Leik- stjóri: Anvar Kawadi. Megaforce Ný bandarísk fantasíu-mynd sem Hal Needham leikstýrir. Áðalhlut- verk: Barry Bostwick, Michael Beck og Persis Khambatta. Flashdance * * „Dansatriðin eru að vísu vel unnin og afar „smart”,- eins og reyndar myndin í heild, því lýsing, kvik- myndataka og sviðsetning er unn- in með dálitlum stæl. Þetta er það sem má telja vel gertá Flashdance, en er kannski um leið feillinn — myndin er nefnilega lítið annað en fallegt yfirborð, hvernig sem á hana er litið”. — GA Foringi og fyrirmaður * * Bandarísk. Árg. '82. Aðalhlut- verk: Richard Gere, Debra Winger, Louis Gosset jr„ David Keith og Lisa Blount. Leikstjóri: Taylor Hackford. Svikamyllan « * * Bandarísk. Árg. 83 Handdt Manjl Sharp, byggt á bók eítir Robert Ludlum. Kvikmyndataka: John Coqullion. Tónlist: Lalo Schifrm. Leikendur: Rutger Hauer. Johrt Hurst, Burt Lancaster o.fl. Leik- stjón: Sam Peckinpah. „Semsagt ýmislegt laglega gert. Eftir Öðru að þetta verði vinsæl rnynd. Meðan maður situr þarna értir hún nokkra kirtfa, en eftir að efnaskiptin hafa jafnað sig er skammdegiskvöldið eftirminni- - LÝÓ. rá Veroniku Voss * * * * „Þrá Veroniku Voss er frábær kvikmynd og ráðlegg ég hverjum þeim sem hefur snefil af kvik- myndaáhuga að sjá hana. Hún fær mína hæstu einkunn”. - LÝÓ. Laugarásbíó Psycho II: Laugarásbíó býður jólagestum sínum upp á framhaldsmynd af einhverjum kunnasta þriller hvíta tjaldsins. Myndin er viðbót við snilldarverk meistara Hitchcocks, Psycho, og gerist tuttugu og tveimur árum eftir að þeirri mynd lauk, um það þegar aðalsöguhetj- unni, Norman Bates, er sleppt úr fangelsi. Þetta hlutverk í Psycho II leikur Anthony Perkins, en hann lék einnig sama hlutverk í upp- runalegu útgáfunni og eykur þátt- ur hans í verkinu vissulega á gildi þess sem framhaldsmyndar. í öðr- um stórum hlutverkum eru leik- konurnar Vera Miles og Meg Tilly. Leikstjóri Psycho II er Richard Franklin og hafa langflestir gagn- rýnendur borið lof á frammistöðu hans í þessari hrollvekju. — sjá umsögn í Listapósti. Leikhús Þjódleikhúsid Jólaleikrit Þjóðleikhússins verð- ur að þessu sinni „Tyrkja-Gudda” eftir Jakob Jónsson frá Hrauni, en þetta er öðru sinni sem verkið kemur á fjalir þess. Það var sýnt á fyrstu árum leikhússins en frá því eru liðin þrjátíu ár og hefur höf- undurinn gert umtalsverðar breytingar á verki sínu. Tyrkja-Gudda — Guðriður Símonardóttir ætti að vera flest- um kunn í stórum dráttum, ef ekki vegna sagna um lífshlaup hennar sem gengið hafa mann fram af manni, þá sakir þess sem skrifað hefur verið um hana í íslenskum námsbókum. Henni var rænt af Tyrkjum sem hér hjuggu strand- högg á ofanverðri sautjándu öld og flutt til Algeirsborgar þar sem hún dvaldist árum saman í þrælk- un. Um síðir var hún keypt laus ásamt öðrum löndum sínum sem hnepptir höfðu verið úr heimatúni og fjuttir járnaðir á fjarlægar slóð- ir. Á leiðinni heim til íslands var höfð viðdvöl í Kaupmannahöfn. Þar var Hallgrímur sálmaskáld og klerkur Pétursson fenginn til að uppfræða Islendingana frá Alsír í kristnum fræðum og felldu Guö- - ríður og Hallgrímur hugi saman, Það er Steinunn Johannesdóttir seni fa;r það veigamikla hlutverk að túlka Guddu í 'þetta sinni, en Sigurður KarJsson veröur hins- vegar í hempu sálmaskáldsins. Hér um bi) tutlugu aðrir leikarar eru í öörum hlutverkum uppfærsl- unnar, misstórum rullum. - Leikmynd og búningar vegna uppfærslunnar eru í höndum Sigtirjóns Jóhanrissonar, tónlist- ina samdi Leifur Þórarinsson, en Ásmundur Karlsson stýrir ljósum. Leikstjórn Tyrkja-Guddu er leyst af hendi Benedikts Árnason- ar. Frumsýning leikverksins verð- ur annan dag jóla, en sýningar milli jóla og nýárs verða aðrar sem hér segir; 28., 29. og 30. desember. Lína Langsokkur Fimmtud. 29. des. kl. 15 Fáar sýn. eftir. Lokaæfing Miðvikudaginn 4. janúar ’84 kl. 20 Fáar sýn. eftir. Miðasala kl. 13.15-20.00. Sími 1- 1200. Leikfélag Reykjavíkur Gud gaf mér eyra Þriðjud. 27. des. Hart í bak Fimmtud. 29. des. Gud gaf mér eyra Föstud. 30. des. Islenska operan La Traviata Föstudaginn 30. des. kl. 20.00. Frumsýning Rakarinn í Sevilla Frums.: föstud. 6. janúar ’84 kl. 20.00 Pantanir teknar í síma 27033 frá kl. 13-17.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.