Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 22.12.1983, Blaðsíða 9
deilda stórgrínara sinn spreyta sig á hlutverki þar sem reynir á hina dramatískari túlkunarhæfileika. Leikritið heitir Hver er og er eftir Þorstein Marelsson og leikstýrt af Hrafni Gunnlaugssyni. Laddi leik- ur þar uppgjafa popptónlistar- mann, sem þó hefur ekki gefið alla sína drauma upp á bátinn nema síður sé, og dreymir um að semja mikið tónverk. Konan er nýskilin við hann og á einhvers konar ómeðvituðum flótta undan sjálf- um sér og öðrum leitar hann skjóls í afskekktum sveitaskóla, þar sem hann gerist kennari. Þetta er sumsé verk um mann sem á sér draum, hvers stoðir eru löngu orðnar feysknar og fúnar. ,,Eg hef lengi verið að leita að svona hlutverki handa Ladda," segir Hrafn Gunnlaugsson, „hlut- verki sem gerir meiri kröfur til ALLAR NÝJU BÆKURNAR og yfir 4000 aðrir bókatitlar MARKAÐSHÚS BÓKHLÖÐ UNNAR Laugavegi 39 Sími 16180 OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 8. SENDUM í PÓSTKRÖFU UM ALLT LAND LAUSNÁ SKÁKÞRAUT KÓLUMBUSAREGG - LAUSNIR 1. Hvítur lék 2.Dh6 + !!-Bxh6 3. Rg5+ Kh8 4. Hh7 mát 2. Hvítur lék 2. Df8+ Rxf8 3. Hb8+ Kd7 4. Bc8+ Ke8 5. Be6 mát. En svartur gat varist betur: 2. ...He8. Þessvegna var betra að leika 2. Df6 + . 3. 1. Bh5 var ágætur leikur, því að hvítur getur leikið 2. De6 + , hvort sem svartur svarar með e6 eða e5.1. ...Da5 + vinnur að vísu biskupinn, en leiðir þó til ósigurs: 2. Bd2 Dxh5 3. Dxb7 (hótar máti á c8!) Df5. 4. Dxa8 og vinnur. 4. 1. Rxc5! bxc5 2. Dxc5 Rb7 3. Dxc6 Dxc6 4. Bxc6 og heldur- tveimur peðum yfir. 5. (1.... Hf4 2. De2) Hh4+ 3. Kgl Hhl + ! 4. Kxhl Dh4+ 5. Kgl Dh2+ 6. Kfl Dhl mát. 6. Hér fléttast fleiri mótív saman: mannsfórn til þess að vinna leik, önnur fórn til þess að ná tvískák sem leiðir til máts: 1. ...Hhl + ! 2. Kxhl Dh7 + 3. Kgl Dh2 + !! 4. Kxh2 Rf3++ 5. Kh3 (hl) Hh8 mát. 7.1. Hxe6 +! Bxe6 2. Dd6 + Kf 7 3. Dxe6+ Kg7 4. De7+ Kh6 5. Hhl + Rh5 6. Hxh5 +! gxh5 7. Df6 mát eða 1. Hxe6+ Kf7 2. Hxf6 + ! Kg7 3. Hxg6 +! hxg6 4. De5+ Kf8 Kf7 5. Bc4+ 6. Df6 mát. Þessi leikjaröð er ljómandi falleg og minnir á fræga skák: Steinitz — von Bardeleben Hastings 1895. 8. Hvítur leikur 1. Kg4 og hótar þá máti með Hgh3, Hh8+ og Hhlh7 1. ...Db2 Hgh3 Dxf6 3. e5! dxe5 4. Hh8+ Dxh8 5. Hxh8+ Kxh8 6. d6! og þessi frelsingi vinn- ur. Svartur getur reynt að fórna riddaranum: 1. ... Rxe4 (hótar Rxf6 + ) 2. Bxe4 Db2 3. Kg5! og vinnur. hans um persónusköpun og tæki- færið barst loks upp í hendurnar á mér í þessu verki Þorsteins. Ég er líka mjög sáttur við útkomuna. Þeir eru tveir leikarar hér á íslandi sem eiga það sameiginlegt að búa mikið að því í kvikmyndaleik hvað þeir hafa fengist mikið við músík — Laddi og Egill Ólafsson. Laddi hefur mikla músík í sér og þar af leiðandi óvenju góða tæm- ingu, sem skiptir höfuðmáli þegar leikið er í kvikmynd. Hann er líka mjög þjáll í samstarfi og getur endalaust haldið áfram að móta karakterinn út frá þeim upplýsing- um sem hann fær og gengur aldrei með neinar grillur um sína eigin prsónu og sína hæfileika. Ég áleit að hann væri maður til að takast á við þetta hlutverk og tel að það standist alveg." ,,Ef ég á að vera hreinskilinn, þá leist mér ekkert á þessa hugmynd í upphafi," segir Þorsteinn Marels- son, höfundur jólaleikritsins. „Mér fannst Laddi vera búinn að vinna sér svo fastan sess sem gamanleikari og skrípakall, hann hafði gert ýmislegt sem ég var ekkert alltof hrifinn af þótt ég hefði gaman af öðru, og satt að segja var ég óttalega smeykur. Við ræddum þetta mikið við Hrafn, en hann var svo viss um að Laddi gæti þetta með sóma að ég lét telja mér hughvarf. Nú sé ég að Hrafn hafði alveg rétt fyrir sér og er mjög ánægður með útkom- una." En fyrst og fremst er Laddi háðfugl, og kannski síð- astur manna til að halda öðrum fram. Sumum finnst kannski húmorinn býsna flatur og lítilsigldur, en um hitt verður ekki villst að hann hefur með leik sínum og látbragði unnið hug og hjarta þjóðarinnar og á kannski ekki annan eins keppi- naut á því sviði en sjálfan Bessa. Jón Viðar Jónsson, leiklistar- stjóri útvarpsins og mótleikari Ladda í myndinni Hver er: „Ég get sagt litla sögu af því hvílíkur kómíker hann er. Ég var á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar og þar var Laddi staddur með einhverjum kabarett, Týska- kabrett, held ég þau hafi kallað sig. Á svona hátíðum eru auðvitað ekki mjög þægilegar aðstæður til að ná til áhorfenda, þarná sitja þúsundir manna upp um allar brekkur og sviðið pínulítið ein- hvers staðar í fjarska. Og svo eru menn auðvitað að staupa sig og með ýmiss konar háreysti. Jæja, en Laddi kemur þarna fram og gerir sitt númer, þetta var einhver bölvuð della um kínverskan kokk sem var að matreiða önd og heil- mikið vesen í kringum það. En það var undarlegt að sjá hvaða tökum hann náði á þessu públí- kumi; meðan hann var á sviðinu gerðu menn ekkert annað en að fylgjast með hverri hreyfingu hans. Þetta gera menn auðvitað ekki nema þeir séu verulega snjallir — það er enginn vafi á því að maðurinn hefur feiknalega margt til brunns að bera. Mér finnst einkennandi við hans grín hvað það er græsku- laust og óíslenskt að því leyti að það vottar næstum aldrei fyrir geðvonsku í því. Oftastnær finnst manni það svona helsta sérein- kennið á gríni íslendinga, rætni og geðvonska." GEKA VIÐ VINNINGINN, JAFNVEL EKKI SKATTURINN VINNINGASKRÁ 9 @ 1.000. 9 - 200. 207 - 100. 2.682 - 20. 21.735 - 4. 109.908 - 2. 000 9.000.000 000 1.800.000 000 20.700.000 000 53.640.000 000 86.940.000 500 274.770.000 134.550 450 aukav. 15.000 446.850.000 6.750.000 135.000 453.600.000 v- I Happdrætti Háskóla íslands eru dregnir út samtals 135.000 vinningar. Allir þessir vinningar eru greiddir út í beinhörðum peningum, sem hver vinningshafi getur ráðstafað að eigin vild: í húsa- kaup, hnattferð, hest eða hraðbát - allt eftir því hver ósk þín er. Og enginn er skatturinn. IComdu við hjá umboðsmanninum og kannaðu möguleikana. Það SEGIR ÞÉK ENGINN HVAÐ ÞU ATT AÐ HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.