Helgarpósturinn - 29.03.1984, Síða 3
lyienntastofnun og allt það . . .
Þessi lifandi skúlptúr hafði það
vandasama hlutverk með hönd-
um að setja Listadagana i MA.
\\\\\\\\\
☆Sæludagarog N
menningarvökur allra
‘‘handa setja nú mjög
, svip á lífið í mennta- og
fjölbrautaskólum landsins.
Um daginn sögðum við hér í
blaðinu frá svonefndum
Lagningardögum í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð, en
nú eru það nemendur
Menntaskólans á Akureyri
sem hafa gerst menningar-
legir og halda þessa vikuna
fjölbreytta Listadaga.
Listadagarnir voru settir
árla morguns mánudaginn
19da og var það þessi
undravera, lifandi skúlptúr
kalla þeir það víst fyrir norð-
an, sem hafði þann starfa
með höndum. Mun verkið
hafa setið hreyfingarlaust á
stóli uppá sviði þegar gestir
gengu í salinn, en staðið upp N
eftirgóðastund, sagt \
Listadaganasettaog horfiöá \
brott við svo búið. Levndar ,
heimildir innan MA \
. lafa lætt þvíaðokkurað
innan klæða hafi verið ungur\
maður, Finnur Malmquist að
nafni. \
Annars erýmislegt N
hnýsilegt á dagskrá Lista- \
daganna, sem lýkur með \
kaffisamsæti á laugardag-
\
\
\
inn. Nemendur hafastaðið
fyrir myndlistarsýningu, Ijós-
myndasýningu og tónleika-
haldi og auk þess hafa gestir
streymt að; Alþýðuleikhúsið
með leikþáttinn Tilbrigði við
önd, Ólafur Haukur
Símonarson með lestur úr
eigin verkum og ísfirska
hljómsveitin Grafík með
frumsamda tónlist. í kvöld,
fimmtudagskvöld, verða svo
tónleikar með hljómsveitinni
Pax Vobis; áföstudag verður
sýnd kvikmyndin Þrá
Veroniku Voss í Borgarbíói
(,,ég man ekki betur en að
þið Póstar hafið hælt henni
uppúr öllu velsæmi," segir
fréttasendill okkar á Akur-
eyri) og þvínæst fjölbreytt
kvöldvaka. Á laugardaginn
verður sem áður segir kaffi-
samsætið með verðlauna-
afhendingu fyrirframúrskar-
andi list og flutning æðri tón-
listar.
Eini hængurinn á er þessi,
hnýtir fréttaritarinn geð-
vonskulega aftan við tilskrif
sitt: ,,að sjálfsögðu veður
uppi full kennsla þessa
dagana, ekki nokkurglóra í
því, náttúrlega, en þetta er jú
menntastofnun og allt
það“ . . .★
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
Microbee „Nr. líÁstralíu64
Microbee „Tölva framtíðarinnar!66
Microbee Fæst á ótrúlega lágu kynningar-
verði, aðeins kr. 14.800,- með skjá!
Hversvegna félag
makalausra?
„Einhleypingar þurfa að eignast sitt félag eins og
aðrir minnihlutahópar. Þetta kemur til með að verða
hagsmunafélag okkar og skemmtifélag, sem vinna mun
að hagsmunamálum makalausra einstaklinga í efna-
hagslegu og félagslegu tilliti."
- Hvenær ætliði að stofna þennan selskap ein-
stakra?
,,Það er stefnt að stofnfundi þann 28. apríl. Nú þegar
eru starfandi margir undirbúriingshópar sem vinna að
okkar málum, svo sem skattamálum einhleypra, jafn-
réttismálum þeirra, húsnæðismálum, skipulags- og
skemmtimálum, svo ég nefni eitthvað."
- Telurðu að þetta félag verði f jölmennt?
„Það er engin leiðað segja til umfjöldann. Einhleypir í
landinu munu nú vera einhversstaðar milli fjögur og sex
þúsund talsins. Að vísu eru ekki til nákvæmar tölur um
þetta ennþá á Hagstofunni, en starfsmenn þar eru sem
stendur að vinna að talningu á okkur sem líklega mun
Ijúka í haust. En ég vona að allir verði með, þó óneitan-
lega sé einhleypni feimnismál hjá sumurn."
- Eiga einhleypingar undir högg að sækja á ís-
landi?
„Já, í hvívetna. Hagur okkar er að mörgu leyti fyrir
borð borinn í þjóðfélaginu, samanber húsnæðismálin,
en okkur er gert nær ókleift að kaupa okkur húsnæði. Við
höfum mun minni lánamöguleika hjá húsnæðisstjórn-
inni, en þeir eru í besta falli helmingi minni en það sem
fólk fær sem er í sambúð. Tekjustofnar okkar eru einnig
færri. Þess utan hafa einhleypingar minni vaxtafrádrátt
frá tekjuskattstofni en fólk i sambúð.“
- Einhleypingar verða sem sagt útundan í samfé-
lagsmunstrinu?
„Það mundi ég ætla. Það er gjörsamlega allt í þjóð-
félaginu miðað við kjarnafjölskylduna. Allar innréttingar
samfélagsins og samskiptamöguleikar fólks er þar inni-
falið. í reyndinni eru einhleypingar taldir skrítnir og hart-
nær afbrigðilegir fyrir þann lífsstíl sem þeir hafa kosið
sér. Enda þekkja allir það aðhafd sém er að fólki um að
stofna til hjúskapar og eignast afkomendur.“
- Þú talaðir áðan um að félag ykkar einstakra yrði
að nokkrum hluta skemmtifélag. Hvað áttirðu við?
„Því er til að svara að viðsem unnið höfum aðstofnun
þessa félags óttumst mjög þann fábreytileika sem ríkir í
samskiptum fólks. Þar er í raunini aðeins um tvennt að
velja. Annarsvegar rándýra skemmtistaði þar sem
gengið er út frá því vísu að menn séu á makaveiðum.
Hinsvegar ýmis formleg félög eins og karlakóra eða
Dale Carnegie sem enginn þolir að vera í endalaust. Við
viljum auka möguleikana í þessum efnum, jafnvel koma
okkur upp félagsheimili þar sem einhleypir geta gengið
óhræddir inn og skemmt sér án þess að verið sé að
kássast upp á þá með þeim hætti sem tíðkast í maka-
veiðilendum skemmtistaðanna. Málið er einfaldlega
það að við sem érum að stofna þetta félag einstakra
manna höfum í hyggju að vera einhleypir áfram og vilj-
um því forðast uppeldismiðstöðvar tilfinningasam-
banda. Menn eiga að geta lifað og skemmt sér maka-
lausir í friði.“
- SER.
Við greindum frá því nýlega í blaðinu að til stæði að
stofna félag einhleypinga í Reykjavík. Margir hafa hringt
til okkar og viljað fá nánari upplýsingar um þennan verð-
andi selskap manna, enda þá makalausir sjálfir. Hér
kemur svo viðtal við einn helsta hvatamanninn að stofn-
un félagsins, Örn Sævar Þorleifsson.
HELGARPÓSTURINN 3