Helgarpósturinn - 29.03.1984, Síða 6

Helgarpósturinn - 29.03.1984, Síða 6
INNLEND YFIRSÝN Skattsvikarar tölvuvæSast Ríkisstjórnin fór að líta í kringum sig um daginn til að reyna að hafa uppi á peningum til að fylia upp í fjáriagagötin. Þá sagðist Steingrímur Hermannsson forsætisráð- herra Scuinfærður um að ríkið ætti von á stórauknum tekjum cif söluskatti. Hann sagði í samtali við DV 22. mars, að ákveðið væri að treysta og herða innheimtu sölu- skattsins og sagðist ekki vera í vafa um að stórar upphæðir myndu þannig skila sér. Sama dag og forsætisráðherra viður- kenndi á þennan hátt að stórar fjárhæðir skiluðu sér ekki í ríkiskassann, að mikið væri svikið undan skatti, sendi Garðar Valdimcirsson skattrannsóknastjóri kæru sína um meint skattsvik fyrirtækisins Land- véla hf. og aðild tölvufyrirtækisins Tölvers hf. að málinu til Rannsóknarlögreglu ríkis- ins. Söluskatts- og bókhaldssvikin eru talin nema a.m.k. 10 milljónum króna og hér er sennilega um að ræða stærsta skattsvika- mál, sem upp hefur komist hér á landi í seinni tíð. Þetta mál virðist renna stoðum undir það sem ýmsir hafa haldið fram um áraraðir: að söluskattsvik nemi hundruðum milljóna króna á ári hverju. Hækkun söluskatts fyrir- tækja vegna athugana skattrannsókna- deildarinnar í fyrra nam tæpum fimm millj- ónum króna, en taiið er víst að margir sleppi í gegnum fremur lausriðið net skatta- eftirlitsins. Nú eru uppi bollaleggingar um að þrengja þetta net svo færri komist í gegn. En hert eftirlit er síður en svo auðvelt í framkvæmd. Það sýnir aðferðin við meint skattsvik fyrirtækisins í Kópavogi ijósiega. aðferðin sem talið er að hafi verið notuð er ný af nálinni og kom Skattrannsókncirdeild- inni í opna skjöldu. Skattsvikin virðast nefnilega hcifa verið unnin í tölvu, svikin beinlínis forrituð inní tölvubókhald fyrir- tækisins. Söluskatti hefur þannig verið hægt að stinga undan með kerfisbundnum hætti. Séu sakargiftir í málinu réttar er hér um að ræða fyrsta „tölvuglæpinn" sem upp kemst hér á landi. Við þessu var auðvitað að búast, því notkun tölva í bókhcddi fyrirtækja hefur farið hraðvaxandi hér á landi sem annars staðar. Tölva getur auðveldað skattsvik á sama hátt og hún getur auðveldað önnur hvítflibbaverkefni. Þegar möguleika til að góma skattsvikara ber á góma er erfitt að verjast samlíking- unni við nálina í heystakknum. Alls munu um 25 manns sinna skattaeftirliti hér á landi, þar af 18 hjá Skattrannsóknadeild rík- isskattstjóra. Það segir sig sjálft, að ógjöm- ingur er fyrir þessa 25 menn að fara ofan í saumana á þeim 9000 fyrirtækjum sem eru starfandi hér á landi. Og söluskattskyld fyrirtæki skila söluskattskýrslum mánaðar- lega. Það sem gerir skattaeftirlitinu erfiðcist fyrir er hinn síaukni fjöldi undanþága frá söluskatti, sem hleypt er í gegnum kerfið fyrir pólitískan þrýsting. Ef engar undan- þágur væm fyrir hendi væri eftirlitið leikur einn, en með undanþágunum, t.d. á mat- vöm og á ýmsum vélum og tækjum fyrir landbúnað, iðnað og sjávarútveg, hafa skapast möguleikar á að dulbúa söluskatt- svikin og fela þau fyrir skattayfirvöldum. Fyrirtæki sem versla bæði með söluskatt- skylda og ósöluskattskylda vöm hafa hér mesta möguleika. Þau geta komist hjá því að borga ríkissjóði söluskatt sem þau þó hafa innheimt hjá viðskiptaaðila sínum. Tökum dæmi um fyrirtæki A, sem selur fyrirtæki B vöm sem B ætlar að nota. B greiðir A söluskatt. En A greiðir söiuskatt- inn ekki áfram til ríkissjóðs. í staðinn gefur A upp þessa sölu til B eins og B væri endur- söluaðili vömnnar. Viðskipti af því tagi em ósöluskattskyld, A heldur eftir söluskattin- um og bókhaldinu er breytt til síimræmis. i tölvubókhcddi nægir að breyta forritinu - tölvan sér um restina. eftir Hallgrím Thorsteinsson Nú er svo komið, að hundmð vömteg- unda em ekki söluskattskyld. Nefna má olíu og rafmagn til húshitunar, ýmiss konar vélcir og tæki í samkeppnisiðnaði og í undir- stöðuatvinnuvegunum, sem fyrr segir. Fyrirtækið Landvélar selur margs konar varahluti til fiskisldpa; dæiur, slöngur o.þ.h. Nú síðast var tollur og söluskattur afnum- inn af tölvum og tölvubúnaði. Skattrannsóknadeild ríkisskattstjóra hef- ur yfir að ráða tölvuprógrammi sem velur úr þau fyrirtæki sem mesta möguleika hafa á „bókhaldsfiffi" af því tagi sem nefnt var að framan. Starfsmenn deildæinnar hafa samt litla möguleika á að kanna bókhald þeirra allra, e.t.v. 100 fyrirtækja á mánuði. Hver athugun kostar ferð í fyrirtækið og slíkar athuganir tcika því sinn tíma. Innan skamms er gert ráð fyrir að fjár- málaráðherra leggi fram mótaðar tillögur um hert eftirlit með söluskattsvikum og öðrum skattsvikum. Þessar tillögur varða meðal annars undanþágurnar og hugsan- lega bragarbót hjá þeim aðilum sem hafa með eftiriitið að gera; skattstofunum, ríkis- skattstjóra og skattrannsóknadeild og enn- fremur er gert ráð fyrir að tillögumar miði að því að draga úr þeim seinagangi sem verið hefur á gangi skattsvikamála í kerfinu. í þessu tilliti beinist athyglin að Rannsókn- arlögreglunni, saksóknara og dómstólum. „Lagaform þessara mála má eflaust bæta, en sjálft eftirlitið fer mest eftir þeim mann- afla sem við það starfar," segir Ámi Kolbeinsson, deildarstjóri í fjármálaráðu- neytinu. Eftirlitsmennirnir þurfa auðvitað að vera jafn klárir og bófamir. Og ríkinu gengur ilia að fá bókhaldsmenntaða menn, hvað þá að halda góðum starfskröftum á þessu sviði. Tölvufróðir menn í greininni fá e.t.v. um 50.000 krónur á mánuði á almenn- um markaði. Ríkið getur borgað þeim 20.000 krónur. Hussein Jórdanskonungur snýr baki við Bandaríkjunum Á kosningaári í Bandaríkjunum hafa mál ísraels og nágrannaríkja þess tilhneigingu til að dragast inn í kosningabaráttuna. Frambjóðendur og frambjóðendaefni kepp- ast um að afla sér stuðnings samtaka sem þykjast tala fyrir munn kjósenda af gyðinga- ættum, svo úr verður uppboð á fylgispekt við málstað ísraels. Á kosningaárinu 1984 situr í Hvíta húsinu forseti sem fyrstum repúblíkana um langan aidur tókst að ná kjöri með fylgi verulegs meirihluta bandarískra gyðinga. Á hnígandi kjörtímabili hans standa mál þannig, að Bandaríkin híma áiengdar áhrifalaus um frcunvindu mála í löndunum fyrir botni Mið- jarðarhafs. Þetta er niðurstaðan af því, að stjórn Ronalds Reagans ýtti undir innrás ísraelshers í Líbanon og lýsti yfir hemaðar- legu fóstbræðralagi við Israel, þegar í ljós kom að póiitísk markmið með innrásinni voru gengin ísraelsstjórn úr greipum. Á einum mánuði hefur botninn dottið úr stefnu Bandaríkjastjómar í málum fyrir Miðjarðarhafsbotni. Atburðarásin hófst með því að Reagan sá sig tilneyddan cif þrýstingi heima fyrir að kalla bandaríska landgönguliðið brott frá Beirut, höfuðborg Líbanons. Um sama leyti og sú ákvörðun var tekin, komu þeir Scimtímis í heimsókn til Wcishington Hussein kónungur í Jórdcin og Mubarak forseti Egyptalands. Reagan tjáði Hussein, að stjóm sín myndi nú snúa sér að því að leitast við að efla friðargerð með Israel og Jórdan, en hún snýst um hernumið land Palestínumanna á vesturbcikka Jórdansár. Fór Hussein heim staðráðinn í að taka Reagan á orðinu og efndi til fundar með Jasser Arafat, sem ný- sloppinn var frá Tripoli í Libcinon með sam- herja sína úr greipum Sýrlendinga og verk- færa þeirra í hópi Palestínumanna. 1 þeim átökum kom berlegar í ljós en nokkm sinni fyrr, að Palestínumenn á hemumdu svæð- unum fylkja sér fast um Arafat og fomstu hans, af því þeir telja að hann hafi sýnt að málstað Palestinuþj()ðarinnar setji hann öliu ofar og neiti að gerast handbendi ein- stakra arabaríkja. Nú hyggst Arafat efna til fundar í Þjóðar- ráðinu, þingi PLO, til að kveða í kútinn í eitt skipti fyrír öll þá foringja sem gengu á mála hjá Sýrlendingum. Til að það takist ríður á að fundinn geti sótt þeir 150 fulltrúar í Þjóð- arráðinu sem búsettir em á hemumdum svæðum á valdi ísraels. ísraelsmenn mein- uðu þessum hópi för á síðasta fund Þjóðar- ráðsins í Alsír. Að beiðni Arafats skrifaði Hussein konungur Reagan forseta, og hét á hann að beita áhrifum sínum til að fulltrú- arnir fengju óáreittir að sækja fundinn sem nú er ráðgerður. Jórdanskonungi barst um hæl algert cif- svæ frá Bandaríkjaforseta, og það varð til þess að Hussein átti viðtal við fréttamann New York Times, þar sem hann lýsti yfir að bandarísk milliganga í málum ísraels og arabiskra nágrannaríkja þess væri endan- lega úr sögunni. „Ljóst er að þið hafið vald- ið, og valið ísrael. Úr því að svo er, verður engu til leiðar komið... Mér er nú orðið ljóst, að grundvallarregiur skipta Bandaríkin engu máli. Skammtímasjónarmiðin ráða, sérstciklega á kosningaári," sagði konungur. Skömmu eftir að þetta viðtai birtist, vcir tilkynnt í Hvíta húsinu að Reagan forseti væri fallinn frá áformi um að selja Jórdcin og Saudi-Arabíu hátt á þriðja þúsund létt loít- varnaskeyti af gerðinni Stinger. Bemcird Gwertzman, fréttamaður New York Times i Washington, tekur aðdragandann að þess- ari ákvörðun til dæmis um ringulreiðina sem ríkir í Bandaríkjastjórn um meðferð mála sem varða löndin fyrir Miðjarðarhafs- botni. Kiukkutíma áður en Reagan hætti við sölu Stinger skeytanna, var hann að brýna fyrir viðmælendum sínum nauðsynina á að af henni yrði. Forsvarsmenn helsta þrýsti- hóps ísraelsvina á stjórn og þing vissu af ákvörðuninni löngu á undan yfirmönnum Mið-Austurlandadeildar utanríkisráðu- neytis BcUidaríkjanna. Haft er fyrir satt í Washington, að tilgang- urinn með því að hætta við sölu loftvama- vopna, sem liandaríska herstjómin hafði úrskurðað Jórdan nauðsynleg, hafi ekki að- eins verið að ná sér niðri á Hussein konungi fyrir ummæli hans í blaðaviðtalinu. Ekki vakir síður fyrir Reagan að versla við þrýstihópinn Americcm-Israel Public Affairs Committee. í staðinn fyrir að aflýsa vopna- sölunni, vill forsetinn fá AIPAC til að telja þingmenn sem Scuntökin hafa áhrif á ofan cif því að iáta koma til atkvæða tillögu um að Bandaríkjastjórn beri að færa sendiráð sitt í ísrael frá Tel Aviv til Jerúsalem. eftir Magnús Torfa Ólafsson Jerúsalem, helg borg þrennra trúar- bragða, er viðkvæmasti bletturinn í skipt- um Israels við umheiminn. Ríki heims neita flest að viðurkenna flutning höfuðborgar ríkisins til Jerúsalem, og þvjsíður taka þau í mál að fallast á innlimun Israelsstjómcir á arabiska austurhlutcuium af borginni, með flestum helgistöðunum, fyrir fjómm árum. Breyting á afstöðu Bandaríkjastjómar gagnvart réttarstöðu Jerúsalem væri vísasti vegurinn til að knýja stjóm Saudi-Arabíu tii að slíta vinfengi við Bandaríkin. Flutningsmaður tillögunnar um að flytja sendiráð Bandaríkjanna í ísrael frá Tel Áviv til Jerúsalem er DcUiiel Patrick Moynihan, öldungadeildarmaður frá New York. í New York-fylki er þriðji hver kjósandi af gyðingaættum, og þar fer fram á þriðjudag- inn kosning milli þeirra sem sækjast eftir forsetaframboði af hálfu demókrata í nóv- ember. Helstu keppinautarnir, Mondcile fyrr- um varaforseti og Hart öldungadeildarmað- ur, deiia nú ákcifcist um það í bráttu sinni um hylli kjósenda í New York, hvor sé meiri, einlægari og langæciri stuðningsmaður ísraels. Sér í lagi em þeir áfjáðir í að sýna kjósendum frcim á fylgi sitt við tillögu Moynihans um sendiráðsflutninginn. Meðan mál af þessu tagi em efst í huga forustumanna beggja flokka í Bandaríkjun- um, stefna mál landanna fyrir botni Mið- jarðarhafs í enn meira öngþveiti en fyrr. Persafióastríðið harðnar enn, og uggur ná- grannaríkja vex um að sókn Irana, þar sem ekki er horft í mannfali, kunni að yfirbuga varnir íraks. Væri þá Khomeini-veldinu greið leið til furstadæmcmna við Persaflóa, Saudi-Arabíu og Jórdans. Þing Jórdans hefur komið ssunan og lýst samþykki við afstöðu Husseins konungs, sérstaklega að Jórdan muni eftir framkomu Bandarfkjastjórnar leita nauðsynlegs vopnabúnaðar hvar sem hann er að fá. Sömuleiðis var tekið undir þá cifstöðu kon- ungs, að mál Palestí'numanna beri að taka upp með aðild allra ríkja sem eiga fast sæti í Oryggisráðinu, það er að segja með þátt- töku Sovétríkjanna. Og loks er Israelsstjóm fallin og nýjar þingkosningar ákveðnar 23. júlí. 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.