Helgarpósturinn - 29.03.1984, Síða 17

Helgarpósturinn - 29.03.1984, Síða 17
LISTAP' Ashkenazy kemur með 100 manns Stjórnar Hljómsveitinni Fílharmóníu áLista- hátíð í vor Nú er það komið á hreint: skrautblóm Listahátíðar í Reykja- vík að þessu sinni verður Hljóm- sveitin Fílharmónía frá Lundúnum, sem margir breskir gagnrýnendur álíta bestu sinfóníuhljómsveit þar í landi. Heiðurinn af heimsókn Phil- harmonia Orchestra á auðvitað enginn annar en Vladimir Ashken- azy, sem enn reynist stöðugur haukur í homi, sjáifur heiðurs- forseti Listahátíðar. Hljómsveitin heldur tvenna tónleika í Laugcir- dalshöll, 9. og 10. júní. Ashkenazy stjórnar og hann og Stefán (Vovka) sonur hans leika báðir einleik á píanó með hljómsveitinni. Það er ekki úr vegi að fræðast örlítið um Hljómsveitina Fílharm- óníu fyrst tónlistarunnendur em farnir að hlakka til að heyra í henni. Hún hélt fyrstu tónleika sína í október 1945 undir stjóm Sir Thomas Beecham, og skipaði sér á skömmum tíma á bekk með bestu 'sinfóníuhljómsveitum heims. Að henni löðuðust strcix ekki ófrægciri stjórnendur en Fúrtwangler, Tosc- anini, Giulini, Richard Strauss og Herbert von Karajan, sem vcirð aðalstjórnandi hljómsveitarinncu-. Þegar stofnandi Hljómsveitarinnar Fílharmóníu, Walter Legge, dró sig í hlé 1964 og hætta var á að hljóm- sveitin leystist upp, tóku félagar hennar sig samcin og stofnuðu sameignarfyrirtæki um hana og kölluðu sig New Philhannonia Orchestra. Klemperer hafði tekið við sem aðalstjórnandi og 1973 tók ungur ítalskur snillingur við ai honum, Ricardo Muti. Hljómsveit- in tók sér aftur sitt uppmncdega nafn 1977. Nýr aðalstjómandi, Giuseppe Sinopoli, tók við í janúar á þessu ári. Hann er einnig Itali og skipun hans kom flatt upp á tón- listcU'heim Lundúnaborgar, enda hafði maðurinn þá aðeins stjómað einum tónleikum með hljómsveit- inni. Af öðrum stjómendum sem mikið hcifa unnið með hljómsveit- inni má nefna Simon Rattle, Andrew Davis og Vladimir Ashken- azy. Engin önnur sinfóníuhljómsveit í heimi leikur inn á jafnmarg;ir plötur og Hljómsveitin Fílharm- ónía og engin hljómsveit er jafn víðförul. Og í sumar verður ísland sem sagt viðkomustaður hennar. Ashkenazy tekur ekkert fyrir að koma fram með hljómsveitinni hér á landi, að sögn Guðbrandar Gísla- sonar, hjá listahátíð. „Það bjargar málinu fyrir okkur fjárhagslega," segir hann, „en jafnframt því að vera aðalnúmer hátíðcuinnar er þessi heimsókn stærsta fjárhags- spursmálið." Ashkenazy er annars sagður taka allt að jafnvirði 420.000 króna fyrir píanótónleika og álíka fyrir að stjóma. Hann kem- ur að meðaltali fram 110 sinnum á ári. Einn af nánustu vinum Ashken- azys, André Previn, segist ekki þekkja betri tónlistarmann í heimi hér. Ashkenazy hefur meðal annars tekið upp helstu sinfóníur Tchai- kovskys með Hljómsveitinni Fíl- harmoníu, flestcir sinfóníur Sibel- iusar, 5. og 6. sinfóníur Beethovens og fjölmarga píanókonserta Mozarts. Efnisskráin á tónleikun- um í Laugardalshöllinni ber keim af þessu samstarfi. Fyrri dagur: Ravel: Mother Goose; Mozart: Píanókonsert nr. 456; Sibelius: 5. sinfónían. Síðciri dagur: Delius: Cuckoo; Tchaikovsky: Píanó- konsert nr. 1 og 4. sinfónía Tchai- kovskys. -HT. KVIKMYNDIR / skjóli Hitchcocks Tónabíó: I skjóli nœtur-Still oftheNight. Bandarísk. Argerð 1982. Handrit og leik- stjórn: Robert Benton. Aðalhlutverk Roy Scheider, Meryl Streep. Hitchcock -4- Hitchcock = Robert Benton. Bogart 4- Bogart = RoyScheider. Ekki tiltakanlega gáfuleg eða gagnleg stærðfræði. En myndin Still of the Night er ein af ótal myndum sem bjóða heim fjasi um „sálfræðilegan þriller í anda Hitch- cocks" og Roy Scheider í aðalhlutverki slíkrar myndar kallar óhjákvæmilega á samlíkingu við Humphrey Bogart, eins og Unglingarnir i Regnboginn: Skilningstréð - Kundskabens Trœ Dönsk. Árgerð 1982. Handrit: Nils Malmros og Fr. Cryer. Leikstjóri: Nils Malmros. Aðal- hlutverk Eva Gram Schjoldager, Jan Jo- hanson, Line Arline-Söborg. Skelfing er þetta indæl mynd og notaleg. Nils MalmroS, sem farið er að stimpla hinn „danska Truffaut", er ákaflega þroskaður og yfirvegaður kvikmyndagerðarmaður; gæddur næmi, kímni og húmanisma Frakk- ans en er jafnframt laus við þá dauðhreins- uðu ,,smekkvísi“ sem gerir myndir Truf- fauts dauflegri en efni stcmda einatt til. Anncirs er þessi samanburður á þeim Malmros og Truffaut vita óþarfur. Þessi kvikmynd sem Háskólabíó kynnir nú fyrir (slendingum í Regnboganum er síðasti hluti þríleiks, þar sem Malmros leiðir fram minn- ingar úr eigin æsku í nokkurs koncir upp- vaxtarsögu heillar kynslóðar um og upp úr 1950 í dönskum bæ. Fyrsta myndin var Lars Ole í 5-C, en hún er ósýnd hérlendis. Mynd númer tvö, Drengir, var afturámóti sýnd á norrænni kvikmyndaviku fyrir mörgum ár- hann gerði reyndar líka í annarri mynd ai svipuðum toga, The Last Embrace eftir Jonathan Demme sem einnig var sýnd í Tónabíói. Flestar þessar myndir í „anda Hitch- cocks“, ekki síst gjörvcúlt höfundarverk Brian DePalma, eru Íítið annað en huggu- legcir fingraæfingar, svona föndur aðdá- unarfullra lærisveina. Robert Benton er kvikmyndagerðarmaður af vandaðri sort- inni með ágætar myndir að baki einsog vestrann Bad Company og skilnaðardram- að Kramer vs. Kramer, að ógleymdum skemmtilegum leik að gömlu einkaspæj- í skóginum um og er mér enn í minni fyrir kyrrlátan en frísklegan stíl og húmoríska væntumþykju í allri efnismeðferð. Skilningstréð er prýdd sömu kostum, - tekin á þremur árum og birtir því bókstaf- lega þroskasögu unglinganna í öðrum bekk. Við kynnumst þeim í upphafi sem Sciklausum prökkurum á skuggeunyndasýn- ingu landafræðikennarans og skiljum við arzLhefðinni í The Late Show. Still of the Night er afturámóti hönnuð eftir forskrift- inni: Maður flækist inn í morðmál og verður skotinn í meintum morðingja. Sá myrti er sjúklingur Scheiders, sem er fráskilinn geð- læknir og hinn meinti morðingi er Meryl Streep, sem er hið dularrfulla viðhald hins myrta. Framanaf virkar myndin á tveimur plönum, fortíð og nútíð, - Scheider rifjar upp kynni sín af þeim myrta og verður æ heillaðri af rannsókn málsins. Þetta er mjög hefðbundin bygging sem virkar vel í sjálfu sér. En talsvert skortir á að sagcin nái nægi- legum tökum á áhorfanda; fléttan er ekki þau kynþroska, þar sem þau eru komin með fyrstu merki um sálarflækjur og tilfinninga- kreppur fullorðinsáranna en skortir and- legan þroska til að vinna úr þeim. Jafnframt eru þau smátt og smátt að festast í hefð- bundnu hegðunarmynstri samfélags fullorð- inna, og er þetta sett fram með skondnum og eftirminnilegum hætti í lokaatriði sem gerist á skólaskemmtun. Jan Johanson reynir að halda augunum oþnum í kennslu- stund, — með eld- spýtum, - í Skiln- ingstrénu. Amerísk fyndni Stjörnubíó: The Survivors. Bandarísk. Árgerð 1982. Handrit: Michael Leeson. Leikstjóri: Michael Ritchie. Aðal- hlutverk: Walter Matthau, Robin Williams, Jerry Reed. Maður kemur galvaskur til vinnu sinnar á toppi amerísks stórfyrirtækis og er rekinn, - af páfagauki. Annar maður segir við af- brýðisama eiginkonu að hann sé ekki að halda framhjá henni þegar hann er langtím- um í burtu, - hann sé að myrða fólk. Guðsélof, segir hún. Á þessum nótum er gamansemin í The Survivors. Að meginuppistöðu er myndin einhvers konar satíra af geggjuðu sortinni um bandarískt mannlíf á heljarþröm: Tveir vammlausir borgarar aí sitthvoru sauða- húsi, stjórinn Robin Williams og bensín- afgreiðsiumaðurinn Walter Matthau missa vinnuna og lenda óvart í slagtogi hvor með öðrum þegar þeir verða fórnarlomb vopn- aðs ráns. Framan af fyrsta þriðjungi myndarinnar nær Michael Ritchie leikstjóri upp góðum manískum hraða í atburðarásina og þeir Matthau, sem æ meir líkist hávaxinni upp- þornaðri kartöflu sem gengur frekar hokin, og Williams, sem lítur hins vegar út eins og vel snyrtur krepptur hnefi, halda uppi þétt- um samleik. En svo brestur höfundá kjark- eftir Árna Þórarinsson nógu snörp og snúin og endirinn fyrirsjácin- legur, aðaipersónumar, - fyrir utan hinn myrta -, ekki nógu safamiklar. En þetta er alveg þokkaleg þrilleræfing. Roy Scheider, þessi tálgaði, skarpleiti leik- ari, er betri en hlutverkið býður upp á, en Meryl Streep ætlar að verða innlyksa í dul- arfullum, ólukkulegum konum (Kramer vs. Kramer, Sophies Choice, French Lieuten- ant‘s Woman, Deer Hunter). Hún ætti að reyna að hafa hlutverkaskipti við Liv Ull- man á næstu ámm, - þeim báðum og áhorf- endum til tilbreytingar. -ÁÞ. Ótal myndir hefur maður séð sem fiska á svipuðum miðum og Malmros gerir í þess- um þríleik sínum. Nægir þar að nefna American Graffiti og endalausar skelingar á henni víða um lönd og hérlendis bálk Pét- urs Gunnarssonar um Andra. Það sem háir Skilningstrénu er það form að raða mynd- inni saman í mnu af stuttum, laustengdum atriðum og uppákomum, þar sem stundum er lögð áhersla á hópinn allan og stundum stímt inná nokkra einstaklinga innan hans. Af þessu. hlýst dálítið flöt bygging sög- unnar, auk þess sem hún er í lengra lagi. Það er athyglisvert hve Malmros einbeitir sér að samfélagi unglinganna, eins og það birtist í skólalífinu, en lætur það skarast afcir takmarkað við heim hinna fullorðnu. Þessir unglingar em ákaflega einir í heim- inum, þótt þeir virðist búa við ytri velmegun heima fyrir. Skilningstréð er, hvað sem minniháttar ágöllum líður, mynd sem allir hljóta að hafa gaman og gagn aí að sjá. Vonandi fáum við bráðlega að sjá nýjustu mynd Nils Malmros, Skönheden og uhyret. -ÁÞ. inn um miðbikið og myndin breytist í ósköp venjulega og slappa gcimcinhascumynd einsog Ameríkanar enda eiginlega alltaf í, þegar þeir ætla að reyna að vera skemmti- legir. Handritið leggst saman einsog sprungin blaðra og Williams verður þreyt- andi í stressuðum, örum leikstíl sínum. Synd, - þetta fór af stað sem snotur utan- garðskómedía en hafnaði von bráðar á þjóðvegi lágkúrunnar. - -ÁÞ. HELGARPÓSTURINN 17

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.