Helgarpósturinn - 19.04.1984, Side 17
Birgir
Þorvaldsson með
stóra glasið sitt.
því miklu vitlegra hjá dyravörðun-
um að hvetja fólk til að mæta með
sólgleraugu, en að vera að röfla í
aumingja Palla.
Hérumbil ekta enskur
Við Jim lögðum nú land undir
leigubíl (90 krónur í viðbót, herra
ritstjóri) uppá Hverfisgötu þar sem
búið er að opna Pöbb-inn, aðra öl-
keldu. Þar var sýnu líflegra en á
Gauknum, enda bjórkoilu-unn-
endur ekki verið lokaðir úti til
klukkan níu. Pöbb-inn er miklu
stærri staður en Gaukurinn og þar
er meira að segja stór hliðarsalur
fyrir ballskákarspilara. Pöbb-inn er
líka miklu pöbbalegri í innrétting-
um og það lyftist brúnin á mínum
engilsóixneska fótógraf þegar hann
sá að þarna var fólk í tvöfaldri röð
við að styðja barinn.
Einhverjir gestir höfðu komið
með gítara með sér og stóðu uppi á
sviði, syngjandi hástöfum. Gestim-
ir tóku hressilega undir þegar þeir
kunnu textana og Jim varð dreym-
inn á svip; „Þetta er bara hémmbil
eins og í London.“
Þótt Pöbb-inn sé nýr staður er
hann þegar búinn að fá nokkra
fastagesti, sem jafnvel geyma þar
sínar einkakrúsir og fá hellt í þær
með vægum afslætti. Einn þeirra
er Birgir Þorvaldsson sem á þar
gríðarlegt bjórglas og svo minni
könnu sem hann fékk að gjöf frá
Lyndon heitnum Johnson, Banda-
níqaforseta.
Það var mjög skemmtileg
stemning á kránni. Þama vom
hópar sem auðsjáanlega þekktust
vel og fólkið var staðráðið í að
skemmta sér. Barstúlkurnar höfðu
engímveginn undcin að afgreiða
enda æfingin ekki mikil ennþá, en
þær em svo sætar að það gerði
ekkert til. Semsagt góður andi og
skemmtilegt. Eitt mættu þó þeir
sem þcir stjóma húsum taka til
endurskoðunar. Það er hvemig
komið er fram við gesti þegar ölið
hefur borið þá ofurliði.
Einn gestanna þarna h;ifði sofn-
að ósköp hæglátlega í stólnum sín-
um. Dyravörður kom til hans, virti
hann fyrir sér andartak. Svo tók
hann sér stöðu fyrir aftan gestinn,
vafði hann örmum, lyfti uppúr
stólnum og dröslaði til dyra. Þegar
að dyrunum kom var gesturinn að
vakna upp við vondan draum og
sprellaði, eðlilega, dálítið. Hinn
dyravörðurinn kom samstundis og
vafði hann örmum líka og það
næsta sem hann vissi var að hann
stóð, nývaknaður og kaldur og
skjálfandi úti á götu.
Þeir fóm ekkert þjösnalega með
hann piltarnir en þetta vom samt
óþarfar og ósæmilegar aðfarir.
Veitingcimenn ættu að hafa í huga,
þegar ölið ber gestina ofurliði, að
þeir heifa veitt cilla hugscinlega að-
stoð til að koma á þessu ástandi og
þegið fyrir drjúgan skilding. Eng-
um breskum pöbb-hcildara, með
nokkra sjálfsvirðingu, myndi detta
í hug að setja dauðadmkkinn, sof-
andi gest, út á Guð og gaddinn. Hann
myndi reyna að vekja hcinn og
hressa við og koma svo til síns
heima, með leigubíl eða lögreglu.
Og svo niðurstaðan
Það var dálítið skondið að sjá að
með þessum tveimur pöbbum hef-
ur biðraðamenningin aftur haldið
innreið sína í skemmtanalífið. Þvi
Gestirnir tróðu
upp á Pöbb-inn.
Troðfullt hús af
,,öllurum“.
fyrir utan Pöbb-inn var stór biðröð
þegar við komum að, sem sýnir
vinsældir staðarins. Úr þessu kann
að rætast þegar fleiri pöbbar koma
en oss er tjáð að um hálft tonn
umsókna sé á borðum þeirra sem
með valdið fara. Því hefur lengi
verið haldið fram að í Reykjavík sé
mikil þörf fyrir svona samkomu-
staði; þar sem fólk getur komið
saman og rabbað yfir ölkollu. Að-
sóknin að þessum tveim stöðum
virðist renna stoðum undir þá
kenningu.
Nú, og hvað finnst mér svo um
reykvíska pöbba (ég býst við að
Árni heimti einhverja niðurstöðu
fyrir sjöhundmðogfimmtíu krón-
urnar sínar). Ég ætla ekki að fara
að leggjast í neinarvangavelturum
hvort þetta eykur drykkju landsins
barna, sjálfsagt verða aðrir til þess.
(Ég get nú satt að segja ekki skilið
að þessi óþverri sem þleir kalla bjór
sé mjög drykkjuhvetjandi). En
þetta em ósköp huggulegir staðir
og gestirnir virtust una sér vel. Ef
því verða gefin út leyfi fyrir fleiri
pöbba þá er það reiðilaust af minni
hálfu.
Litla matreiöslubókin
utgefin af Erni og Órlygi
Ib Wessman tók saman.
BUFFSTEIK MEÐ
KRYDDJURTASMJÖRI
• 4 þykkar sneiöar nautafilet = úrhryggvöðva
u.þ.b. 200 g hver sneið
• matarolía
• 75 g smjör
• salt, malaður pipar
Ofnsteiktir tómatar: 4-8 tómatar, olía, salt.
Kryddsmjör: 200 g smjör, 2 msk söxuð steinselja, 2
msk söxuð garðperla (karse) 1 msk smátt klipptur
graslaukur og ef vill 1 msk smátt saxaður kjörvill eða
estragon, smávegis sítrónusafi, mulinn pipar og
nokkrir dropar af enskri sósu.
Meðlæti: Franskar kartöflur, ofnsteiktirtómatar,
hrafnaklukkublöð (bröndkarse), kryddsmjör.
Sláið buffsteikurnar létt til með lófanum eða berjið
þær varlega og létt með kjöthamri og formið þær
síðan til. Þerriðsíðan steikurnarmeðeldhúsþurrku.
Hitið þykkbotnaða steikarpönnu með 1 -2 msk af
matarolíu. Snöggsteikið buffin á báðum hliðum á vel
heitri pönnunni svo að yfirborð kjötsins loki sér.
Takið steikurnar af pönnunni og þerrið en síðan er
smjör/smjörlíki brúnað á pönnunni og steikurnar
steiktar í 2 - 3 mín. á hvorri hlið allt eftir gæðum og
þykkt kjötsins. Snúið steikunum 2-3 meðan á
steikingu stendur.
Framreiðsla: Steikurnar settar á heitt fat og heitu
smjörinu hellt yfir. Ofnsteiktum tómötum raðað til
hliðar við steikurnar. Franskar kartöflur og hrafna-
klukkublöð borin með. Framreitt strax.
Ofnsteiktir tómatar: Skerið lítinn kross í hvern
tómat og penslið þá með olíu og stráið salti í þá.
Tómatarnir settir í ofnfast fat og bakaðir í miðju
ofnsins í 8 - 12 mín. við 200° hita.
Kryddsmjör: Hrærið saman linu smjöri og söxuð-
um kryddjurtum og bragðbætið með sítrónusafa,
pipar og enskri sósu. Smjörinu síðan rúllað inn í
smjörpappír og kælt í ísskáp í nokkrar
klukkustundir. Vel má laga kryddsmjörið deginum
áður. Smjörið skorið i sneiðar og framreitt með
steikinni. Þegar steikin er látin á diskinn er smjörið
látið á hana en ekki fyrr því þá bráðnar það niður.
Verið velkomin
NAUTASNITCHEL KR. 390 KG.
NAUTAFILET - LUNDIR KR. 467 KG.
KJOTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2. s. 86511
Opið til kl. 10 miðvikudag og 7 - 4 laugardag fyrir páska.
Ekkert shampoo jafnast á viö
EL’VITAL
frá
L’ORÉAL
Fyrir sundiðkendur
alveg
frábært
HELGARPÓSTURINN 17.