Helgarpósturinn - 19.04.1984, Page 19
LEIÐARVÍSIR PÁSKANNA
SVNINGAR
Listasafn alþýðu
Valgerður Hauksdóttir og
Malcolm Christhilf sýna í
Listasafni alþýðu til 1. maí.
Opið verður á virkum dögum
kl. 16-22 og helgidaga kl.
14-22. Sýndar verða stórar
grafíkmyndir, teikningar og
myndir unnar með blandaðri
tækni.
Gerðuberg
Föstudaginn 20. apríl kl. 15
opnar í Gerðubergi sýningin:
Átök, hneyksli og nekt á
Apaplánetunni. Það er sam-
sýning 18 súrrealistafráNorð-
urlöndum. Þeir sem verk eiga
á sýningunni eru, auk
Medúsukarlaklúbbsins (sem
stendur fyrir henni), Alfreð
Flóki, Uno Svensson, Reigge
Gorm Holten, Georg Broe, Öi-
vind Fenger, Kjell Erik Vind-
tarn, Jörgen Nash, Lis Zwick,
Ole Ahlberg og Tony Pusey. A
sýningunni eru um 120 verk:
grafík, olíumálverk, teikning-
ar, grímur, klippimyndir, fánar,
Ijósmyndir, skúlptúrar o.fl. og
eru flest verkanna til sölu. I
tengslum við sýninguna verða
kvikmyndasýningar, ávörp,
break-dansar, óhöpp, verð-
launagetraun, barna-
skemmtun, tónleikar og ýmis-
legt óvænt.
Við opnunina mun Lúðra-
sveitin Oxmá leika létt lög og
Medúsumenn ganga grímu-
klæddir um sali og afhjúpa sig.
Abdou, Björk og Sigtryggur sjá
um helgistund ásamtstrengja-
sveit. Sýningin er opin virka
daga frá kl. 16 - 22 og um
helgarfrá 14-18.
Listmunahúsið
„Leir og lín“ samsýning 11
listakvenna sem stendurtil 29.
apríl. Til sýnis og sölu eru leir-
munir og textílverk. Listmuna-
húsið er opið kl. 14 - 22 um
helgar og 10 - 18 virka daga.
Lokað verður 24. apríl.
Ásmundarsalur
í Ásmundarsal við Freyju-
götu er Hanna Gunnarsdóttir
með sýningu á vatnslitamynd-
um . Sýningin verður opin alla
dagafrákl. 14-22. Henni lýk-
ur 23. apríl.
Vesturgata 17
Þar sýnir Gunnar Örn Gunn-
arsson Monotypur, vatnslita-
myndir og m.fl. Opið daglega
kl. 9 - 17. Ekki opið um pásk-
ana.
Kiarvalsstaðir
A Kjarvalsstöðum standa nú
yfir þrjár sýningar. Baltasar
sýnir málverk í vestursal.'
Ragnhildur Stefánsdóttir
sýnir skúlptúr í v-forsal og
Borealis, norræn listasýning,
hefur verið sett upp í austursal
og austurforsölum. Sýningun-
um lýkur annan í páskum.
LEIKHÚS
Þjóðleikhúsið
Gæjar og píur
Söngvar og dansar blíva á
sviði Þjóðleikhússins yfir
páskana. Þetta er söngleikur,
Gæjarog píur, sem byggðurer
á sögu og persónum eftir
Damon Runyon, en tónlistin
og textar eru eftir Frank
Loesser. Damon Runyon var
einn ágætasti smásagnahöf-
undur amerískur á sinni tíð.
Heimur hans var undirheimur
stórborgarinnar, hann þekkti
persónulega fólkið sem hann
var að skrifa um, smáglæpa-
menn og stórbófa Nýju Jórvík-
ur, og hann þykir hafa skapað
mjög persónulegan stíl. Heim-
ir Pálsson segir í umsögn sinni
um uppfærslu Þjóðleikhússins
á Gæjum og píum að ,,því mið-
ur er söngleikurinn sem þeir
Loesser, Serling og Burrows
gerðu eftir smásögum Runy-
ons sjaldan eins fyndinn og
sögurnar sjálfar, en margt
verður til að bæta það upp og í
heild er músíkallinn þeirra
rækalli góður kall - ef menn
hafa á annað borð gaman af
söng og dansi með skemmti-
legum leikfléttum inn á milli.“
Þetta verkefni Þjóðleikhússins
hefur fengið afbragðs dóma í
öllum dagblöðum og er þar
umsögn Heimis engin undan-
tekning. Hann segir ennfrem-
ur: ,,í heild ersýning Þjóðleik-
hússins ágætlega heppnuð.“
Og segir hann þar nánast alla
þætti hjálpast aö. Leikendur
eru fjölmargir í þessu verki, en
þeir helstir Egill Ólafsson,
Ragnheiður Steinþórsdóttir,
Sigríður Þorvaldsdóttir og
Bessi Bjarnason auk Flosa
Ólafssonar sem einnegin
þýddi verkið með ágætum,
eins erfitt og það hefur verið
talið. Leikstjórar eru Kenn
Oldfield og BenediktÁrnason.
Leikfélag
Reykjavíkur
Bros úr djúpinu
Páskaleikrit L.R. heitir Bros
úr djúpinu, en það er eftir ein-
hverja skærustu stjörnu
skandinavískra leikhúsbók-
mennta um þessar mundir,
Svíann Lars Norén. Hann var
þekktur á árum áður sem Ijóð-
skáld, en snéri sér fyrir fáum
árum að leikritun og eftir eina
misheppnaða frumtilraun á því
sviði, sló hann í gegn. Bros úr
djúpinu er hans þekktasta og
umtalaðasta verk til þessa.
Það fjallar um rithöfund sem
ekki hefur getað skrifað í
nokkur ár og konu hans,
ballerínu sem fer yfirum eftir
sinn fyrsta barnsburð, afneitar
krakkanum, og gerist leikurinn
á heimili þeirra hjóna kvöldið
þegar hún kemur af geð-
veikrahæli. Gunnlaugur Ást-
geirsson segir í umsögn sinni
um verkið: ,,Það eru engin
hversdagsvandamál sem per-
sónur leiksins eiga við að
stríða. Allar eru þær tilfinn-
ingalega tættar í sundur . ..“
og síðar í dómi sinum: ,,Sál-
fræðin í verkinu er bæði marg-
slungin og djúphugsuð, en ég
á nú samt bágt með að trúa
henni. Ég trúi til dæmis illa því
að manneskjurnar séu jafn
viljalaus fórnarlömb uppeldis
og aðstæðna og verkið vill
vera láta . . . Leikrit eins og
þetta gerir miklar kröfur til leik-
stjóra og leikenda, en þó fyrst
og fremst þá að þeir trúi verk-
inu og persónunum. En það
sýndist mér þeir gera illa..."
Helstu leikendur þessarar
uppfærslu L.R. eru Sigurður
Skúlason og Hanna María
Karlsdóttir, en leikstjóri er
Kjartan Ragnarsson.
Alþýðuíeikhúsið
Undirteppinu hennarömmu
Vorkonur Alþýðuleikhúss-
ins sýna leikverk Nínu Bjarkar
Árnadóttur, ,,Undir teppinu
hennarömmu“, í ráðstefnusal
Hótel Loftleiða á 2. í páskum
kl. 21.00.
Miðasalan á Hótel Loftleið-
um er opin alla daga kl. 17-19.
Sýningardaga kl. 17—21. Sími
22322. Lokað á föstudaginn
langa.
Atriði úr leiknum verður flutt
á dagskrá ,,Friðarviku“ í
Norræna húsinu á föstudaginn
langa kl. 20.30.
Leikfélag Akureyrar
Kardimommubærinn
Varla hefur nokkurt barna-
leikrit notið eins mikilla vin-
sælda á Norðurlöndunum
undanfarin ár og Kardi-
mommubærinn, nema þá ef
vera skyldu Dýrin í Hálsa-
skógi, en þessi leikrit eru
reyndar eftir sama höfundinn,
þann eina sanna Thorbjörn
Egner úr Norðurvegi. Leikfé-
lag Akureyrar er nú um stundir
með þetta verk á fjölunum
undir brekkubrúninni í höfuð-
stað Norðurlands. Óþarfi erað
rekja efnisþráð verksins hér,
en okkar dómari norðan heiða,
Reynir Antonsson, segir um
uppfærsluna: „Sýning Leikfé-
lags Akureyrar á Kardimommu-
bænum er sannkölluð vorsýn-
ing, full kátínu og hlýju, prýði-
legur endapunktur eftir sér-
lega velheppnað leikár." Það
var gífurlegur fjöldi leikara
sem Theodór Júlíusson þurfti
að stýra við æfingar þessa
verks; við skulum til dæmis
nefna ræningjana sem eru í
höndum Þráins Karlssonar,
Gests E. Jónassonar og
Bjarna Ingvarssonar. Soffíu
frænku leikur hún Sunna Borg
sntnpinMM
SÖLUBOÐ
LEl m EI^DHÚS- RULLUR 4rl
FRIG ► IVA G ÞVOTTAEFNI 2,3 kg
FRIG< ► ÞVOL g ÞVOTTALÖGUR1/2 fl
SiC m tómatsósa 300 gr
SINNEP 300 gr
KORNIHRÖKKBRAUÐ 250 gr
...vöruverð í lágmarki
HELGARPÓSTURINN 19