Helgarpósturinn - 19.04.1984, Page 23
c
■Wigurður Helgason hefur að
undanfömu styrkt verulega stöðu
sína innan Flugleiða og er þar
óneitanlega hæstráðandi til sjós
og lands um þessar mundir og þá
ekki síst eftir stöðuhækkun Leifs
Magnússonar sem sagður er hon-
um handgenginn og er orðinn
einskonar yfirframkvæmdastjóri.
Það mun fara verulega í taugamar
á Albert Guðmundssyni fjár-
málaráðherra hvað Sigurður hefur
styrkt sig í sessi og munaði litlu að
upp úr syði er stjóm Flugleiða
neitaði að sel ja starfsmönnum Am-
arflugs hlutabréf Flugleiða í Amar-
flugi sem þó höfðu verið afskrifuð
og vom einskis metin. Mun Albert
nú vera að leita leiða til þess að
koma sölunni í kring og er sagt að
hann myndi ekki harma það þótt
Fiugleiðir fengju það fyrir bréfin
sem þau em bókfærð á í reikning-
um félagsins - nefnilega ekkert...
lUft
■ WMeirihlutinn í borgar-
stjóm hefur haft mikinn ahuga á
því að auglýsa hugmyndsam-
keppni varðandi nýbyggingar við
Skúlagötuna. Eins og komið hefur
fram í fjölmiðlum hefur staðið mik-
ill styrr um „Berlínarmúrinn" svo-
nefnda og hefur Arkitektafélagið
látið málið mjög til sín taka, eink-
um vinstri menn í félaginu. Sjálf-
stæðismenn í borgarstjóm em því
farnir að heykjast á hugmynda-
samkeppninni því dómnefndin
verður þannig samsett að útkom-
an gæti orðið minnihluti borgar-
stjómæ í vil. Samkvæmt lögum
eiga nefnilega 5 aðilar sæti í nefnd-
inni, 3 frá borgarstjóm og 2 úr
Arkitektafélagi Islands. Vitað er að
fulltrúar Arkitektafélagsins em úr
vinstri arminum og einn af þremur
fulltrúum borgarstjómar er vinstri
maður. Þar með em þrír vinstri
menn í dómnefnd og hugmynd
sjálfstæðismanna um Skúlagötu-
múrinn fallin. Mjög líklegt er því að
meirihluti borgarstjómar muni
hætta við hugmyndasamkeppnina
og fela einum af „sínum mönnum"
að hanna Skúlagötuna...
V
íða um land em menn nú að
verða búnir eða jafnvel búnir með
þorskveiðikvóta sinn og því vand-
séð hvað verður seinni hluta árs-
ins. Menn taka þessu misjafnlega
þunglega og enn er sannarlega til
skopskyn,svo sem hjá skipstjóran-
um sem var alveg að verða búinn
með kvótann og kom í land með
fáeina þorska úr róðri. Hann var
spurður hvemig hefði gengið og
svaraði að bragði: „Illa - sem betur
fer...“
^^stahátíð á að fara fram í
Reykjavík í sumar og er það til-
hlökkunarefni. Mesta umræðan
varðandi dagskrá hátíðarinnar hef-
ur orðið um hvaða erlenda popp-
hljómsveit beri að fá hingað og hef-
ur sú umræða einkum farið fram í
lesendadálkum dagblaðanna. En
þótt aðdáendur hinna ýmsu hljóm-
sveita setji þar fram sínar óskir,
mun langt frá því að vel gangi að
verða við þeim. Til marks um það -
og kannski líka til marks um það
hversu vel að sér stjórnendur há-
tíðarinnar em um poppheiminn
núna - er að HP heyrir að Fálk-
anum hafi um daginn borist bréf
frá Listahátíð þar sem óskað er
eftir milligöngu fyrirtækisins um
útvegun erlendrar p>opphljóm-
sveitar á hátíðina í sumar. Þar var
ofarlega á blaði breska rokksveitin
Led Zeppelin, sem hefurekki ver-
ið starfandi í f jölda ára...
Æ
kvisögur stjómmála-
manna hafa notið mikilla vinsælda
á bókamarkaðinum á undanföm-
um ámm og sumar þeirra verið í
flokki metsölubóka. Ekki er vitað
um neinar bækur á þessum vett-
vangi sem verið er að undirbúa
fyrir næstu jólavertíð nema bók
um Jón Sóínes sem sagður er
ófeiminn að senda mönnum tón-
inn. Mörg bókaforlög em á höttun-
um eftir minningabók eða bókum
frá Gylfa Þ. Gíslasyni og Hanni-
bai Valdimarssyni en þeir em
báðir sagðir mjög tregir til og mun
Hannibal hafa gefið öllum afsvar
við máledeitcuiinni...
A
^^^^nnað vinsælt bókaviðfangs-
efni er fiugið og endurminningar
flugfólks. Bækur Jóhannesar
Snorrasonar hafa fengið hinar
bestu viðtökur og mun þriðja bindi
æviminninga hans jafnvel væntan-
legt á næsta jóiamarkaði. Þá er ver-
ið að vinna að endurminningabók
Alfreðs Elíassonar og er það
Jakob Ásgeirsson blaðamaður á
Morgunblaðinu sem þá bók skrifar
og eins hefur heyrst að Setberg
áformi að gefa út bók um íslenskar
flugfreyjur. Verður það væntcin-
lega viðtalsbók og er sagt að Bryn-
dís Schram sjónvarpsstjama og
ritstjóri hafi verið fengin til að
skrifa bókina...
ifisvert söguleg auglýsinga-
myndataka fyrir sjónvcirp átti sér
stað í kringum opnun bílasýning-
arinnar Auto ’84. Þórhalli Sig-
urðssyni (Ladda) og Baldri
Brjánssyni var falið að hanna
auglýsinguna en ísmynd fengin til
að annast tæknivinnuna. Taka við
myndina hófst um hádegi á föstu-
deginum, sama dag og sýningin
var opnuð, og er skemmst frá því
að segja að myndin var tekin,
kiippt og hljóðsett til bráðabirgða
á 24 klukkustundum, þannig að
hún fór til útsendingar í sjónvarpi
kvöldið eftir. Er ekki vitað til að
jafn viðamikil leikin auglýsing hafi
verið unnin á jafn skömmum tíma
áður hér á landi. Við auglýsinga-
gerðina var notuð ný upptöku-
tækni sem byggist á svokallaðri
sambyggðri sjónvarpstökuvél og
myndsegulbandi en ísmynd mun
nýverið hcifa fengið slfkan upp-
tökubúnað, einn hinn fyrsta sinnar
tegundar á Norðurlöndum...
Aldraðir þurfa líka
að ferðast — sýnum
þeim tillitssemi
V
nmliins;
skírtemi
AIJr(ðu-
bankaiis
Þú færð 6% hærri vexti af innlánsskírteinum Alþýðubankans
en af almennum sparisjóðsreikningum.
Þú leggur einfaldlega inn ákveðna upphæð (lágmark kr. 3.000)
og sex mánuðum síðar tekurðu hana út ásamt vöxtum,
sem á ári nema nú 21%.
Með því að leggja inn upphæðina ásamt vöxtum í aðra sex mánuði
nærðu 22,1% ávöxtun á ári af innlánsskírteininu.
Eftir fyrstu sex mánuðina reiknast annars almennir sparisjóðsvextir
af innlánsskírteininu þar til þú tekur út.
Innlánsskírteini Alþýðubankans eru skattfrjáls
eins og almennar sparisjóðsbækur.
Þau eru afgreidd frá og með 16. apríl í Alþýðubankanum,
Laugavegi 31, og útibúum Suðurlandsbraut 30 og á Akureyri.
Alþýðubankinn hf.
HELGARPÓSTURINN 23.