Helgarpósturinn - 03.05.1984, Page 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar: Árni Þórarinsson
og Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaóamenn: Óli Tynes og
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Útlit: Björgvin Ólafsson
Ljósmýndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Hildur Finnsdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdast jóri:
Guðmundur H. Jóhannesson
Auglýsingar:
Steen Johansson
Skrifstofustjóri:
Ingvar Halldórsson
Innheimta:
Jóhanna Hilmarsdóttir
Afgreiðsla: Ragna Jónsdóttir
Lausasöluverð kr. 30.
Ristjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrif-
stofa eru að Ármúla 36. Sími
8-15-11.
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Vietnamarnir
Tæp fimm ár eru liðin frá
því að fyrstu vietnömsku
flóttamennirnir komu til
landsins. Það voru 34 í þeim
hópi og af þeim eru 23 bú-
settir hér ennþá. Ættingjar (
hafa síðan bæst í hópinn.
Yfirleitt hefur þessu fólki
vegnað vel. Það þykir vinnu-
samt og duglegt og Ijúft í
umgengni. Það er þó langt
frá því að það hafi samein-
ast íslensku þjóðfélagi.
Vietnamarnir eiga fáa ís-
lenska vini en tengjast aftur
sterkum böndum innbyrðis.
Ástæðan er ekki sú að
það sé að reyna að halda í
sína gömlu menningu og
siði. Þvert á móti hefur það
lagað sig aðdáanlega að
okkar háttum og börnin eru
kannske meira íslensk en
vietnömsk. Þau tala alla-
vega sitt nýja móðurmál bet-
ur en það gamla. Ástæðan
er líklega fyrst og fremst sú
að fullorðna fólkið talar litla
íslensku og á því erfitt með
að blanda geði við okkur.
Fyrst þegar það kom til
landsins var það sett á sex
mánaða íslenskunámskeið
en að því loknu var ekki frek-
ari kennsla.
í dag birtir Helgarpóstur-
inn viðtöl við þrjár víet-
namskar fjölskyldur. Þar
fjalla innflytjendurnir um
aðlögunina að íslensku
þjóðfélagi og þau vandamál
og gleðistundir sem við hafa
blasað í nýju landi. Meðal
annars kemur fram að is-
lenskukunnáttu flóttamann-
anna er ábótavant. Hér er
verkefni fyrir menntayfirvöld
í landinu. Það ætti, með ein-
hverjum hætti, að gera
þessum nýju löndum okkar
kleift að læra málið til hlítar,
fyrr þarf ekki að búast við að
þeir falli alveg inn í hjörðina.
Með því væri ekki verið að
svipta þá menningararfi eða
neinu slíku, þeir halda auð-
vitað áfram að tala viet-
nömsku innbyrðis. En betri
íslenskukunnátta myndi
hjálpa þeim til að kynnast
okkur betur, og öfugt.
Vietnamarnir okkar hafa
sem betur fer að mestu
sloppið við fordóma vegna
uppruna síns. Þó hefur kom-
ið fyrir að þeir hafa heyrt tal-
að um „gula djöfla“ og ann-
að miður skemmtilegt.
Þeir sem láta sér slíkt um
munn fara eru þjóðinni og
sjálfum sér til skammar.
Sem betur fer hefur í lang-
flestum tilfellum verið tekið
á móti þessu fólki af vin-
semd, eins og sjálfsagt er.
Þótt hart sé í ári á Islandi
verðum við vonandi aldrei
svo illa á vegi stödd að við
eigum ekki eitthvað af
mannlegri hlýju.
BRÉF TIL RJTSTJÓRNAR
>mál blaðamennskimnar...
HP - oft góður
— sjaldan mjög
slæmur
Vestmannaeyjum,
27. april 1984
HPrHelgarpóstur
Ég óska þér til hamingju með 5
ára afmælið. Hef keypt (í lausa-
sölu) blaðið frá því það fæddist í
þennan syndum spillta heim - og
líkar oft vel og aldrei mjög illa.
En þér að segja þótti mér af-
mælisblaðið (19.4.) það lélegasta
sem ég minnist að hcifa lesið. Það
hefur sjálfsagt verið gaman að
hlusta á norsku hjónin en ég gafst
upp á að lesa um þau.
Eftir lestur Nærmyndar af Jesú
var ég öngvu nær.
Með bestu kveðju,
Haraldur Guðnason.
Helgarpósturinn þakkar og hvet-
ur lesendur eindregið til að
senda okkur línu, hvort heldur er
um tilteknar greinar úr blaðinu
eða almennt um efni þess.
Skammir eða hrós, - allt er vel
þegið.
-Ritstj.
HSÍ og
formanns
slagurinn
Vegna greinar í síðasta blaði HP
vill undirritaður stuðningsmaður
Friðriks Guðmundssoncu-, núver-
andi formanns HSÍ, vekja athygli á
eftirfarandi:
Þrír stjómarmenn, þeir Guð-
mundur Friðrik Sigurðsson gjald-
keri, Þórður Sigurðsson ritari og
Davíð Sigurðsson meðstjómandi,
standa allir með Friðriki. Þá munu
báðir landsliðsþjálfaramir, þeir
Aldraðir þurla líka
að lerðast— sýnum
þeim tillitsseml
Bogdan Kowalzic og Viðar Símon-
arson, vilja að Friðrik sitji í for-
mannssætinu meðan þeirra ráðn-
ingartími er, en þeir vom báðir
ráðnir til tveggja ára.
Sá ágreiningur sem er innan
stjómar HSÍ mun aðallega vera á
milli formanns og varaformanns,
Jóns Erlendssonar. Auk varafor-
mannsstarfsins gegnir Jón for-
mennsku í mótanefnd og er einnig
launaður framkvæmdastjóri HSÍ.
Friðriksmenn vilja breyta þessu
og telja að framkvæmdastjórinn
eigi ekki að vera stjómarmaður, en
Jón mun tregur til að láta af hendi
völd sín innan stjómarinnar. Hann
stendur því að mótframboði gegn
Friðriki og er Pétur Rafnsson mjög
hentugur formaður fyrir Jón þar
sem Pétur þekkir lítið sem ekkert
til hcmdboltans innanlands og hef-
ur engin sambönd erlendis og gæti
Jón því stjórnað Pétri algerlega.
Pétur kom í stjóm HSÍ á vegum
NOACK
FYRIR ALLA BÍLA OG TÆKI
Sænsku bilaframleiöendurnir VOLVO. SAAB og SCANIA
nota NOACK rafgeyma vegna kosta þeirra.
Júlíusar Hafstein sem væntanlegur
arftaki og stendur Júlíus, svo og
félagi þeirra Þórarinn Ragnarsson,
við baJdð á Jóni. Þess má geta að
Pétur er fyrrverandi formaður
Heimdallar og hyggur nú á frekari
frcima í pólitíkinni.
Allt það umtal sem verið hefur
um felumót og annað slíkt hjá HSÍ í
vetur má rekja beint til fram-
kvæmdastjórans og varafor-
mannsins og formanns móta-
nefndar, Jóns Erlendssonar, sem
alltaf hefur verið að lofa frétta-
mönnum bót og betrun en engar
efndir. Formaðurinn hefur hins
vegcir einbeitt sér að fjárlagagati
HSI og gert þar stórátak. Það em
hinsvegar fulltrúar á HSÍ-þingi sem
velja næsta formann HSÍ en ekki
Júlíus og Jón og ef þingfulltrúar
velja formann sinn málefncdega og
eftir árangri þá mun Friðrik Guð-
mundsson verða áfram formaður
HSÍ.
Amundi Amundason.
Boddyhlutir og bretti
o tysler_^cfafg
cC.'*4 ^------ .
Póstsendum.
'ot ■ renault •
G%varahlutir
Hamarshöfóa 1 — Sfmar 36510—83744
Innkaupin eru þægileg hjá okkur
Svo geturðu líka slappað af í Kaffiteríunni
OPIÐ:
Mánud.-fímmtud. 9-19.
Föstud. 9-20. Laugard. 9-16.
Jli
Jon Loftsson hf
brrlr
3 LJ □ lJ QLl
. . lJ l Í 1 1 í J J ] j
jlhjdqj:
Hringbraut 121 Simi 10600
VERSLUNARMIÐSTÖÐ
VESTURBÆJARIN
RAFTÆKJADEILD
II. HÆÐ
Raftæki - Rafljós
og rafbúnaöur
JL-GRILLIÐ
Grillréttir allan daginn
MUNIÐ OKKAR
HAGSTÆÐU
GREIÐSLUSKILMÁLA
10 HELGARPÓSTURINN