Helgarpósturinn - 17.05.1984, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 17.05.1984, Blaðsíða 2
Gabrietá/ HÖGGDEYFAR I MIKLU ÚRVALI Viö opnum kl. 8.30 og höfum opið í hádeginu Næg bílastæði Krotiitkortmþjónustm. HABERChí Skeifunni 5a, sími 84788. Rokkgengið í góðu gengi MAZDA626 hlýturgóða einkunn ☆ „Þessi bíll hefur selst vel á íslandi," segir Steinn Sigurðsson, sölustjóri Bíla- borgar, sem m.a. flytur inn bíla af gerðinni Mazda. Umræddur bíll er af gerðinni Mazda 626 sem nýverið var valinn besti innflutti bíllinn í V-Þýskalandi af stærsta og virtasta bílatímariti þar í landi, Auto Motor und Sport. Bíllinn var kjörinn í svonefndum 1800 ccflokki og er það í fyrsta skipti sem japanskur bíll fær þessa einkunnagjöf. Hinsvegar hefur hann verið kosinn bíll ársins í Bandaríkjunum, Japan, Ástralíu, Nýja- Sjálandi, Austurríki og S-Afríku. ,,Við höfum selt á fjórða hundrað bíla af þessari gerð,“ segir Steinn við HP, ,,og þetta mun vera mest selda framhjóladrifna bif- reiðin hérlendis í þessum stærðarflokki."^ NP VARAHLUTIR Ármúla 22 — 105 Reykjavík. Sími 31919 Draupnisgötu 2, 600 Akurevri. Sími 26303. Hvergi hagstaAara verð. ☆ Guðmundur Axelsson í Klausturhólum héltmikiö málverkauppboð s.l. mánu- dag að Hótel Sögu. Seldust þar margar myndir og mis- dýrt eins og gengur á upp- boðum. Tæplega fimm- hundruð manns sóttu uppboðið og léttist pyngja margra meðan á hasarnum stóð. Dýrustu verkin voru eftir gömlu meistarana. Þingvallamálverk eftir Kjarval fór á 170 þúsund krónur, mynd eftir Jón Stefánsson er ber nafnið „Horfttil fjalla" fórá 150 þúsund krónur og „Þorp“, mynd eftir Þorvald Skúlason, var boðin upp á 107 þúsund krónur. Þá fór figúratíf uppstilling eftir Nínu T ryggvadóttur á 90 þúsund krónur og ómerkt mynd eftir Snorra Arinbjarnarson á 55 þúsund. Kunnugirsegjaað ef mynd Snorra hefði verið merkt hefði hún verið slegin á 100 þúsund krónum hærra verð.* VARAHIUT1R í ALLA JAPANSKA BÍLA Honda, Mazda, Mitsubishi, Toyota og Datsun LÁTIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ bprungu Upplýsingar í símum (91) 66709 & 24579 Tökum að okkur að þétta sprungur í steinvegjum, lögum alkalískemmdir, þéttum og ryðverjum gömul bárujárnsþök. þsk- þétting Höfum háþróuð amerísk þéttiefni frá RPM 11 ára reynsla á efnunum hér á landi. Gerum föst verðtilboð yður að kostnaðarlausu án skuldbindinga af yðar hálfu. ☆ ,,Við munum ferðast um landið þvert og endilangt í sumar,“ segir Axel Einars- son í Landshornarokkurum. Þegar hann segir viö á piltur- inn ekki við hina kunnu Landshornarokkara, heldur er hér um að ræða Rokk- gengið, sambræðslu úr téðum rokkurum og Djellý- systrum, sem er kvenrokk- hljómsveit eins og lesendur HP vita mætavel. „Við mun- um ennfremur hafa rokka- billísöngvarann Billy Rock með í farangrinum," segir Axel, „þú veist gæjann sem gert hefur allt vitlaust í Þórs- café og Skiphól." Við nánari eftirgrennslan rannsóknarblaðamanns HP komst hann að því að ofan- greindar hljómsveitir, ásamt hljómsveitinni Foss, eru að taka upp plötu í stúdíói um- rædds Áxels Einarssonar. Kemur platan út innan skamms og mun að öllum lík- indum bera nafnið „Rokk- gengið“.* 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.