Helgarpósturinn - 17.05.1984, Page 3

Helgarpósturinn - 17.05.1984, Page 3
Alíslenskar innréttingar ☆Viö bjóöum upp á allar inn- réttingar fyrir hús og íbúðir sem tilbúnar eru undir tré- verk. Og nýjungin er sú aö allar vörur okkar eru al- íslensk framleiðsla," segir Sæmundur Sæmundsson, annar eigandi TRÉ-X búð- arinnar í Ármúla 17, sem opnaði fyrir viku. Hinn eig- andinn er Þorvaldur Ólafs- son í Keflavík, en hann rekur einmitt trésmiöju þar syðra. íslensku framleiðsluvörurnar eru frá fjórum innlendum fyrirtækjum sem eru, auktré- wm mm mm smiðju Þorvaldar, trésmiðjan Börkur, Akureyri, Hagi og Rafha. TRÉ-X hefur á boðstólum einstakar innréttingar svo sem inni- og útihurðir, loft- og veggklæðningar, sól- bekki, gólf, milliveggi og heimilistæki. Einnig er hægt að kaupa allar innréttingar í húsið eða íbúðina í sérstök- um pakka. „Það er hægt að gera einn samning um allt saman,“ segir hinn nýi versl- unareigandi, Sæmundur Sæmundsson.^ Skák, Bubbi kóngur! ☆Stjórn Strætisvagna Reykjavíkur er nýkomin úr mikilli samnorrænni funda- ferð, sem haldin var í Osló. Margt bar á góma eins og gjarnan gerist í slíkum utan- landsreisum opinberra starfsmanna. Það sögulega við þessa feðr var að þetta var í fyrsta skipti sem fulltrúi Kvennalistans fór í slíka ferð. FulltrúikvennannavarHelga Thorberg leikkona. Strákun- um í SVR fannst voða gaman að stelpa skyldi vera með í ferðinni og gerðu sitt til þess að ferðin yrði sem ánægju- legust fyrir Helgu. Sveinn Björnsson, forstjóri SVR, er mikill skákmaður og fer aldrei í ferðir nema að taka taflið með sér. Tóm- stundaiðja strákanna milli funda var m.a. að bregða sér upp á herbergi á Grand Hotel, þar sem sendinefndin bjó, og taka eina skák eða svo. Eitt kvöldið stakk Sveinn upp á því að stelpan fengi að vera með í skákinni. Strák- arnir tóku undir það. Sigurjón Fjeldsted, stjórnarformaður SVR, bauðst til að tefia við tátuna. Helga færðist hins vegar undan, sagðist ekki vera hörð í skákinni og ekki hafa tekið í tafl í ein sextán ár. Strákarnir í SVR hvöttu hana hins vegar óspart til að tefla við Sigurjón, og fór svo að lokum að Helga lét undan. Hófst nú skákin og mátti lengi framan af vart á mili sjá hvort hefði betur. Þegar líða tók á skákina fór hins vegar að halla á Helgu og var hún komin með tvo menn undir. Höfðu þau þá setið að tafli í tvotíma. Strákarnirklöppuðu samt Helgu á öxlina og sögðu henni að gefast ekki upp. Helga hugsaði enn um hríð og eygði skyndilega mjög flókna fiéttu sem gat orðið henni til framdráttar. Hún lék manni sínum og viti menn! Sigurjón gekk beint í gildruna. Nokkrum leikjum síðar skákaði Helga og sagði stundarhátt: „Skák, Bubbi kóngur, og mát!“ Runnu þá tvær grímur á Sigurjón og varð hann að bíta í það súra epli að verða undir. Strák- arnirtefldu einir þaðsem eftir var ferðarinnar, en ekki er vitað hvort þeir vildu ekki bjóða Helgu aftur til leiks eða hvort hún kærði sig hreinlega ekki um frekari taflmennsku í þessari sendinefndarferð SVR.* í SUMAR- BÚSTAÐINN ABC duftslökkvitæki 2850 kr. Eldvarnateppi 555 kr. Reykskynjarar 730 kr. Pálmason hf. ÁRMÚLA 36 SÍMI 84391 IhBB |EU»OCAP „Ég er síður en svo á móti þessum útsendingum. Enda væri fjarstæða af mér að segja sem svo. Það hlaut að komaað þessu.“ En þú munt ekki vera sérstaklega hlynntur þeirri dagskrá sem boðið er uppá á þessari rás hljóðvarps- ins, ef marka má ummæli þín um niðurstöður hlust- endakönnunarinnar um daginn? „Það er svo allt annað mál. Þessi tónlist sem erspiluð þarna höfðar engan veginn til mín. Ég hef ekki haft neinn áhuga á þessari músíktegund frá því ég var unglingur. Og það er langt síðan. Hitt er svo annað mál að dag- skrárstefna rásarinnar uppfyllir vissa þörf fyrir léttmeti. Þannig get ég alveg sagt að þessi starfsemi eigi rétt á sér.“ Þú sagðir í áðurnefndum ummælum, að þú hefðir aðeins einu sinni hlustað á efni Rásar 2 og þá af nauðsyn. Finnst þér þú í Ijósi þessa geta dæmt það efni sem þarna er boðið uppá? „Ég er ekkert að gera það....‘ En mér heyrist þú telja þetta allt vera léttmeti. „Það er einfalt mál að þessi stöð uppfyllir vissa þörf fyrir léttmeti. Hún á að gera það. Ég hef hinsvegar ekki áhuga á slíku tónlistarefni. Og það ætti i sjálfu sér ekki að skipta máli í þessu sambandi." Finnst þér ekki að framkvæmdastjóra hljóðvarps sé nauðsynlegt að fylgjast með því sem gert er í þessari deild Ríkisútvarpsins? „Ég hef ekki aðgang að útvarpstæki hérnaáskrifstof- unni hjá mér og þar af leiðandi hef ég ekki möguleika á að fylgjast með útsendingartíma rásarinnar, sem er jú vinnutími fólks. Og meðan það er ekki kvartað yfir efni þessarar deildar útvarpsins, þá finnst mér ekki ástæða til að hlusta á hana. Þá hlýtur þetta allt að vera gott og blessað." Telurðu sem framkvæmdastjóri útvarpsins að það eigi að breyta efnisvalinu á Rás 2 frá því sem nú er? „Fólk virðist ánægt með þettaeins og þaðerog því er varla ástæða til breytinga. En ef einhverju ætti að breyta, þá finnst mér að það ætti ekki að gera fyrr en rásin nær til landsins alls. Þá tel ég að vel komi til greina að rásin taki upp eitthvert efni sem hingað til hefur heyrt undir Rás 1. Ég nefni til dæmis knattspyrnu- og hand- boltalýsingar og annað slíkt sem höfðar til unglinga. Annars er það náttúrlega framtíöin ein sem segir til um þetta.“ Framtíðin vel á minnst. Telurðu hana bjarta á Rás 2? „Það held ég hljóti að vera, ef mið er tekið af því hvað þessi starfsemi kom vel út í hlustendakönnuninni. Aug- lýsingar hljóta að fara vaxandi í kjölfar þeirrar niður- stöðu að mikill meirihluti landsmanna ber sig eftir þessu efni.“ Þú varst nú eitthvað að draga í efa niðurstöður þessarar hlustendakönnunar í einu dagblaðanna ef ég las rétt? „Það eina sem ég dró í efa í sambandi við þessar niðurstöðu var að svo margir hlustuðu virkilega í sínum vinnutíma. Mér finnst bara ósennilegt að fólk slóri svo mjög í sinni vinnu.“ Heldurðu sem sagt að rásin virki vinnuletjandi? „Ja, hvernig vinnur það fólk sem þarf að hugsa í sinni vinnu, þegar það hefur dynjandi músík yfir sérallan dag- inn?“ Það ætti kannski að rannska það næst? „Það eróvitlaust.“ Að lokum. Gæti farið svo Guðmundur að þú kveiktir á Rás 2 í annað sinn á næstunni? „Það getur vel verið að svo fari eftir áramót, en þá kemst éq á eftirlaun hérna á stofnuninni." —SER. Guðmundur Jónsson.framkvæmdastjóri hljóðvarpsins,lýsti því yfir í einu dagblaðanna um daginn að hann hefði aðeins einu sinni hlustað á Rás 2 og það hefði hann gert af nauðsyn. Þetta sagði hann aðspurður um álit sitt á niðurstöðum hlust- endakönnunarinnar á starfsemi þessarar deildar útvarpsins. Hann skeytti við þetta að hann drægi þessar niðúrstöður í efa. Margir urðu hvumsa við þessi ummæli Guðmundar, þar á meðal skifarar HP. Þessvegna er hann hér i viðtali. Ertu á móti Rás 2? HELGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.