Helgarpósturinn - 17.05.1984, Síða 5
Forseti skal það heita
☆ Baldur Hermannsson, sem
áður vann á sjónvarpinu og
DV, hefur nú hafið sjálfstæða
útgáfustarfsemi, eins og
reyndar hefur komið fram í
fjölmiðlum. Baldur hefur
nefnilega farið út í útgáfu á
tímariti um vídeó og tölvurog
ber tímaritið nafnið ,,2000“.
Útgáfufyrirtæki Baldurser
einkafyrirtæki hans og því
þurfti hann að skrá fyrirtækið
sem vörumerki. Baldur hafði
lengi hugsað um nafn á út-
gáfufyrirtækið og loks komst
hann að niðurstöðu: Útgáfu-
fyrirtækið skyldi heita
FORSETI. Þeim aðilum sem
annast skráningu vöru-
merkja fannst þetta hins veg-
ar fulllangt gengið og vegið
nærri forseta vorum á
Bessastöðum. Baldur, sem
kunnur er fyrir aö standa fast
á sínu og hvergi láta undan,
sagði hins vegar að þarna
væri ekki um neinn sér-
stakan forseta að ræða. Til
væru forsetar bæjarstjórna,
forsetar félaga, forse.tar bók-
menntaklúbba og þar fram
eftir götunum. ,,Jú, en þú
getur ekki beðið um að fá
nafnið Forseti skráð,“ sagði
skráningarfulltrúinn, „hvað
heldurðu að forsetinn segi?“
„Hann erekki Forseti, heldur
forseti íslands,“ svaraði
Baldur að bragði. „Og hann
getur alveg fengiö þaö
skráð!“ Þar með gafst kerfið
upp fyrir þessum skelegga
forsvara einkaframtaksins,
og útgáfufélag videó- og
tölvutímaritsins heitir
semsagt FORSETI.*
I felum
☆ Einn sem vill forðast sviðs-
Ijós fjölmiðlanna! En hver er
þessi dularfulli maður, sem
myndin er af? Og hvers
vegna er honum illa við fjöl-
miðla? Er þetta í blóðinu, er
hann skyldur Howard
Hughes eða Grétu Garbo,
kannski? Vill hann vera í
friði, er hann í friðarhreyfing-
unni? Spurningarnar hrann-
ast upp. Rétt svör þurfa að
berast til HP fljótlega, þessi
óvissa er svolítið óþægileg.
HP, Ármúla 36 R. Sími
81511.★
llmsjón:
Ingólfur Margeirsson og Jim Smart.
Hrafninn flýgur
☆ Hér er svo örlítil saga úr
íslenska kvikmynda-
heiminum. Hrafn Gunnlaugs-
son og ónefndur kunningi
hans sátu kvöldstund eina
fyrir nokkru og horfðu á af-
hendingu óskarsverðlauna.
Þegar Sven Nykvist kvik-
myndatökumaður tók við
Óskarnum fyrir hönd Ing-
mars Bergman sem hlaut
styttuna fyrir bestu erlendu
kvikmyndina, stóðst vinur
Hrafns ekki lengur mátið.
Hann spurði: „Hrafn, hvað er
langt í að þú standir þarna á
sviðinu og takir við sama
Óskar?“ Hrafn hugsaði sig
um nokkra stund, svaraði
síðan: „Tja, 15, kannski20
ár.“ Vinurinn spurði þá: „Og
þá ætlarðu náttúrlega að
þakka foreldrum þínum,
systkinum og vinum eins og
mérfyrirsigurinn." Hrafn
svaraði: „Nei.“ Vinurinn
spurði þá hlessa: „Hvað
ætlarðu þá að segja þegar þú
tekur við styttunni?" Hrafn
svaraði: „l’m sorry I wasn’t
here before!“^
Skottúrar ~
Salóme
☆ Þingmenn fóru nýverið í
reisu til Parísar. Meðal þátt-
takenda var Salóme Þorkels-
dóttir, forseti efri deildar.
Frökkum þótti það hæfa
stöðu hennar að hljóta sér-
staka öryggisgæslu. Voru
tveir öryggisverðir settir til að
gæta hennar nótt sem nýtan
dag og stóðu þeir sérstakan
vörð fyrir utan hurð hennar á
hótelinu á nóttunni. í hvert
sinn sem hún fór út fyrir
hússins dyr, var hún keyrð í
sérstökum bíl lögreglunnar
og fór sá á 130 km hraða um
götur Parísar. Franskaör-
yggislögreglan hefur nefni-
lega reiknað út í sambandi
við ferðir De Gaulle sáluga
að erfitt sé að skjóta á bifreið
og hæfa farþega ef bíllinn er
á umræddum hraða. Hins
vegar segir heimildamaður
blaösins að Salóme hafi ver-
ið nær dauða en lífi af
hræðslu meðan á þessum
skottúrum stóö.^
EÐALRÚSIR:
Alexánder ....................... orangerauö angandi blóm, langir stilkar, sniðrós
Dame de Coeur ................... dumbrauð
Hanne ........................... dökkrauð angandi blóm, sendist vel
Kings Ransom .................... gul gullgul angandi blóm
Manou Meilland .................. kirsuberjarauð
Peace ........................... gul/rósa friðarósin tvílit blóm
Peer Gynt ....................... gul stór gullgul blóm
White Queen Elisabeth ........... hvit hvítt afbr. af Q. Elisabeth
SKÚFRÚSIR:
Allgold ......................... gul haröger blómin fölna ekki
Allotria ........................ orangerauð skær orangerauö
Erna Grootendorst ............... dökkrauð afarharðger
Heidekind ....................... rös-bleik mjög góð gróðurskálarós
Irene af Danmark ................ hvit dauf angan afar blómsæl
Joseph Guy ...................... kirsuberjarauð mjög harðger liflega hlýrauð blóm
La Sevilliana ................... rauð
Nina Weibull .................... rauð mjög frostþolin ónæm fyrir regni
OrangeTriumph ................... orangerauð afar harðger þakin blómum
Schneewitchen ................... hvit stórvaxin harðger
TomTom .......................... rós-bleik angandistórendingagóðblóm
SKRIÐRÚSIR:
he Fairy ........................ rós-bleik góð gróðurskálarós
RedVesterday .................... rauð langur blómgunartimi lOOblómiskúf
Swany ........................... hvít blómgast mjög mikið árvöxturinn
KUFURRÚSIR:
Chinatown ....................... gul - blómgast á sumarvöxtin hæð 1-1,5 mtr.
Feurwerk ........................ orangerauð glóðarrauð 1,5 mtr.
Flammentanz ..................... rauð sú alharðasta
Golden Showers .................. gul eðalrósalík 2-3 mtr.
New Dawn ........................ rósrauö góð gróðurskálarós 2 mtr.
Polstjarna ...................... hvit gömul afar harðger sort
Westerland ...................... orangegul hálffyllt angandi blóm 1,5 mtr.
RUNNARÚSIR:
Heiðaros - Dornröschen - ........ rósrauð
gullrós - Persian Yellow - ..... gul
Skáldarós - Splendens - ...... rauð
Kinarós - orosa Hugonis - .... gul
Meyjarós - Rosa Moyesi - ........ rauð
Fjallarós - Rosa Pendulina - ... rauð
Pyrnirós - Maigold - .......... gul
igulrós - F.J. Grootendorst - ... rauð
igulrós - Hansa - ............... rauð (fjólublá)
igulrós - Moje Hammerberg - ,. fjólurauð
igulrós - Pink Grotndorst — rósrauð
árviss blómgun, eðalrósablóm.
hreingul velfyllt blóm
mjög spengileg og blómsæl.
viðkvæm, finlegt laufskrúð.
dansandi vaxtarlag, harðger
blómviljugasta villirósin
skærgul fyllt angandi blóm
viðkvæm en blómgast á ársvöxtinn
örugg, þolir særok vel, angandi blóm
eins og HANSA en lægri, stór blóm
bleik F.J. GROOTENDORST
Auk ofantalinna rósa höfum viö svo á boðstólum rósir
sem einkum eru ætlaöar til ræktunar í stofum og litlum
gróðurskálum.
Þessar rósir eru úr flokki dvergrósa en eru samt dálítið
viðkvæmari en þær dvergrósir sem taldar voru upp
í listanum hérað ofan:
POTTARÚSIR:
Morsdag fagurrauð litil eðalrósablóm.
Orange Morsdag raeð laxórange blómlit.
Snövit skjannhvit smá fyllt blóm.
Orange Meillandiana með glóðarrauö litil fyllt blóm.
Sendum gjarnan um allt land.
Gróðurhúsinu við Sigtún: Símar36770-86340
HELGARPÓSTURINN 5
• •