Helgarpósturinn - 09.08.1984, Blaðsíða 24
bræður Þórður og Sverrir Her-
mannssynir (iðnaðarráðherra)
ásamt fieiri hluthöfum í Ögurvík h/f
gott kauptilboð í eina vænstu lax-
veiðijörð landsins, Grænumýrar-
tungu í Bæjarhreppi í
Strandasýslu. Pegar fréttist um
kauptilboð stórlaxanna var haldinn
„krísufundur" í hreppsnefndinni og
samþykkt að hreppsfélagið í Bæjar-
hreppi nýtti sér forkaupsréttinn og
keypti jörðina. Var gengið frá
þeim kaupum í fyrri viku og urðu
þeir bræður því af vænsta laxveiði-
hluta Hrútafjarðarár...
v
W ið höfum sagt fra ýmsum
hræringum innan Alþýðuflokksins
að undanförnu. Ljóst er nú orðið að
Kjartan Jóhannsson mun halda
áfram formennsku og ekki verður
blásið í herlúðra vegna þeirrar
ákvörðunar hans þótt enginn sé
sáttur við þá niðurstöðu. Mikill kurr
er þó í ýmsum forystumönnum sem
vilja koma hreyfingu á mál flokks-
ins. Ber þar einna mest á Sighvati
Björgvinssyni fyrrv. alþingis-
manni sem mun, ásamt öðrum
toppum innan Alþýðuflokksins,
hafa fullan hug á að stofna nýjan
krataflokk er á að ndnast Jafnað-
armannaflokkur íslands. Hafa
þessir forystumenn þegar átt sam-
ræður við Bandalag jafnaðarmanna
og frjálslynda arminn í Sjálfstæðis-
flokknum (gjarnan kenndur við
Gunnar heitinn Thoroddsen) um
aðild að kosningabandalagi fyrir
næstu kosningar. Aðrir ráðamenn
Alþýðuflokksins hafa tekið þessar
sviptingar Björgvins og félaga
rólega, búast tæplega við neinum
breytingum á högum Alþýðuflokks-
ins...
leðilegra tiðinda er að
vænta úr bankaheiminum á næst-
unni, að sagt er. Jónas Haralz
bankastjóri, sem er ekkjumaður,
ætlar nefnilega að gifta sig í lok
ágústmánaðar og er sú heppna
amerísk kona sem Jónas ku hafa
þekkt í nokkurn tíma. Ætlun hans
og frúarinnar tilvonandi mun vera
að fara í brúðkaupsferð norður í
land eftir athöfnina enda kom Jónas
sér undan því að hitta hóp merkra
erlendra bankamanna sem berja
landið augum í þann mund sem gift-
ingin fer fram...
argir aðstandendur
Flugleiða eru sárgramir yfir hvern-
ig haldið var á málum þegar félag-
inu buðust tvær DC-10 þotur úr
þrotabúi Laker-flugfélagsins fyrir
nokkrum mánuðum. Þessar þotur
voru í geymslu í eyðimörk nokkurri
þar sem flugvélar eru gjarnan
geymdar til að þær skemmist ekki
af seltu og raka. Þeim hafði verið lít-
ið flogið og verð og kjör nánast æv-
intýralega góð.
Forráðamenn Flugleiða reyndu
hinsvegar að pressa verðið enn
meira niður í gegnum íslensk og
bandarísk stjórnvöld og vísuðu
meðal annars til þess að félagið
hefði mátt þola mikið tap þegar
DC-10 vélum var bannað flug til
Bandaríkjanna hér um árið. Á með-
an á þessu stappi stóð kom hinsveg-
ar annar aðili sem tók kostaboðinu
tveim höndum og samstundis og
Flugleiðir sátu eftir með sárt
ennið...
Talsverður pirringur ríkir nú á
launadeild fjármálaráðuneytisins.
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra er eins og menn vita mað-
ur óhefðbundinna aðgerða.
Persónuleg fyrirgreiðsla hefur
ávallt verið hans aðalsmerki og ku
opinberir starfsmenn sem fylgja
Sjálfstæðisflokknum að málum nýta
sér þennan kost Alberts. Berast þær
fréttir úr ráðuneytinu að sjálfstæðis-
menn í stofnunum hins opinbera
gangi hver á fætur öðrum á fund Al-
berts og biðji hann um að kippa sér
upp einn launaflokk eða tvo því
endar gangi illa saman. Albert mun
hafa brugðist ljúfmannlega við slík-
um bónum eins og hans er von og
vísa og haft tafarlaust samband við
deildarstjóra launadeildar þegar
slík fyrirspurn berst. Nú mun deild-
arstjórinn vera orðinn langþreyttur
á fyrirgreiðslum Alberts og gengur
æ stirðar fyrir fjármálaráðherra að
sannfæra launadeild um ágæti
launahækkana opinberra starfs-
manna. ..
B
■^Forgarráð kemur saman á
þriðjudag n.k. og samþykkir nýja
stöðu sem mun breyta miklu í æsku-
lýðs- og íþróttamálum borgarinnar.
Ætlunin er að setja æskulýðs- og
íþróttaráð Reykjavíkurborgar undir
einn aðila og mun búið að finna
þann mann. Júlíus Hafstein, for-
maður íþróttaráðs og Kolbeinn
Pálsson, formaður Æskulýðsráðs
munu vera sáttir við þessa ákvörð-
un. Núverandi tilhögun mun þó
standa óhögguð fram að næstu
borgarstjórnarkosningum en síðan
munu þessi tvö ráð falla undir einn
aðila. . .
J
<SW óhanna Sigurðardóttir hef-
ur að undanförnu ferðast um landið
við hlið Kjartans Jóhannssonar
eins og Ferraro við hlið Mondales í
Ameríku, og hefur verið að styrkja
stöðu sína í slagnum við Magnús
Magnússon um varaformennsk-
una í Alþýðuflokknum. Síðast þegar
fréttist var Magnús jafnáfjáður í að
halda áfram varaformennskunni og
Kjartan er að vera formaður
áfram...
skaltu kynna þér
JLbyggingalánin og JLvöroúrvalið
Það sem er mikilvægast fyrir þann sem er að kolli. Einnig er hægt að semja um sérstök
byggja eru auðvitað fjármálin og byggingar- J.L.-lán, sem miðast t.d. við útborgun líf-
hraðinn. eyrissjóðslána eða húsnæðismálastjórnar-
lána. Þannig getum við verið með frá byrj-
J.L. Byggingavörur gerir húsbyggjendum un.
kieift að byggja með fyrsta fiokks vörum á
sérstökum J.L.-lánakjörum. Iðnaðarmenn sem vinna fyrir viðskiptavini
okkar þurfa ekki að leita annað í efniskaup-
J.L. Byggingalánin eru þannig í frani- um. Um leið og búið er að grafa grunninn
kvæmd: geta smiðirnir komið til okkar og fengið
Stofnaður er viðskiptareikningur, fyrir tí- fyrstu spýturnár. Og í framhaldi af því fæst
unda hvers mánaðar er úttekt fyrri mánaðar allt byggingarefnið hjá okkur.
yfirfarin, a.m.k. 20% greidd í peningum, og
allt að 80% sett á skuldabréf til allt að sex Renndu við vestur í bæ og talaðu við okkur
mánaða. Þannig er þetta framkvæmt koll af ef þú ert að byggja.
I BYCGINGflWÖBUB
HRINGBRAUT 120: Maln>nqarvo>u> oq *en.l*>. 28-605
UyqqirKj.iv'Hc' /H 600 StHuMKX. 28-693
MaiAviftais.iia 28 6CM
I
i
I
24 HELGARPÓSTURINN
VIÐ FRAMKÖLLUM
UTMYNDIR
MYNDIRNAR FRÁ OKKUR ERU 28% STÆRRI
10x15cm í STAÐ 9x13cm.
SERMENNTAÐ STARFSFÓLK OKKAR OG FULLKOMNUSTU
TÆKI TRYGGJA BESTU MÖGULEG MYNDGÆÐI
Á AÐEINS 60 MÍNÚTUM.
FRAMKÖLLUN
smmxim
AUSTURSTRÆTI 22 - S. 621350