Helgarpósturinn - 13.09.1984, Page 4

Helgarpósturinn - 13.09.1984, Page 4
FREE STYLE FORMSKUM lOreal m § Já — nýja lagningarskúmiö RKl'lM t háriö? f,i l'ORéal JA. UlVl !■ rJUH.U. og hárgreMan verðu. leikur einn. Heiðurslaun B ru nabótafélags íslands 1985 í tilefni af 65 ára afmæli Brunabótafélags íslands 1. janúar 1982, stofnaöi stjórn félagsins til stöðugildis hjá félaginu til þess að gefa einstaklingum kost á að sinna sér- stökum verkefnum til hags og heilla fyrir íslenskt samfélag, hvort sem er á sviði lista, vísinda, menningar, íþrótta eða atvinnulífs. Nefnast starfslaun þess, sem ráðinn er: Heiðurslaun Brunabótafélags íslands. Stjórn BÍ veitir heiðurslaun þessi samkvæmt sérstökum reglum og eftir um- sóknum. Reglurnar fást á aðalskrifstofu BÍ að Laugavegi 103 í Reykjavík. Þeir sem óska eftir að koma til greina við ráðningu í stöðuna á árinu 1985 (að hluta til eða allt árið) þurfa að skila umsóknum til stjórnarfélagsinsfyrir 10. okt. 1984. Brunabótafélag íslands ÍlEins og menn muna samþykkti Alþýðusamband íslands í sumar að einstök verkalýðsfélög berðust hvert fyrir sínum samningum, í stað þess að um heildarkjarakröfur ASÍ yrði að ræða. Þessi ákvörðun var tekin eftir að Verkamannasam- bandið, undir forystu Guðmundar J. Guðmundssonar, gerði sér- samningana eins og frægt er orðið. Nú eru hins vegar uppi sterkar raddir meðal formanna og varafor- manna verkalýðsfélaga um land allt að horfið verði frá þesseui sérsamn- ingastefnu og Alþýðusambcindið sýni sameinað hnefann. Mun eink- um reyna á þessa stefnu eftir ríkis- stjómarfundina með forystumönn- um launþega og vinnuveitenda sem haldnir vom í byrjun vikunnar... s érsamningar dagblaðanna við prentara Blaðaprents runnu út í sandinn eins og kunnugt er. Fyrst og fremst strönduðu samingamir á því að NT rann á rassinn; stjóm blaðsins þorði einfaldlega ekki að gera sérsamninga af ótta við að sprengja launarammann og koma þar með ríkisstjóminni í stórhættu. Hafi einhver efast um pólitísk tengsl Framsóknarflokksins og NT, gerir hann það ekki lengur. Hins vegar var tillagan um sérsamninga felld á jöfnu og var stjómarformaðurinn Hákon Sigurgrímsson fylgjandi tillögunni. Hins vegar athuguðu NT- menn það ekki fyrr en næsta dag, þegar þeir fóm að glugga í lögin um útgáfustjómina, að í raun og vem hafði útgáfustjómin samþykkt til- löguna. I lögunum stendur nefni- lega skýrum stöfum að falli atkvæði jöfn í stjóminni en formaður stjóm- ar sé fylgjandi tillögunni, skuii hún túlkast sem samþykírt. Mikill titring- ur komst á NT-menn er jieir upp- götvuðu skyssuna, og var haldinn fundur næsta dag þar sem stjómar- menn ákváðu að halda fast við þá ákvörðun að tillagan hefði faJlið. Var send út fréttatilkynning til ríkis- fjölmiðlanna þess efnis, að ítrekuð hefði verið fyrri niðurstaða fundar- ins. En auðvitað sögðu stjómar- menn NT ekkert um að raunvem- lega hefðu þeir samþykkt tillöguna kvöldið áður, án þess að hafa hug- mynd um það... M ■ W Beira um NT: Langt verk- fall prentara getur gengið að flest- um blöðum dauðum og er NT síður en svo undantekning í því dæmi. Um 80 manns em á launaskrá hjá blaðinu og berst það í bökkum fjár- hagslega. Því hafa verið reyndar all- ar hugsanlegar leiðir að koma blað- inu út. Ein þeirra var að prenta blaðið á mismunandi stöðum úti á landi, en fallið var frá þeirri hug- mynd. Sú nýjasta er að starfsmenn blaðsins NT (og þá einkum blaða- menn) skrifi sig fyrir útgáfunni og fái prentréttinn framseldan. Hefur Alþýðublaðið lýst því yfir í viðræð- um við NT-menn að það sé reiðu- búið að starta Blaðaprenti með sér- samningum við prentara verði þetta gert. En framsóknarmenn em enn hræddir og síðast er fréttist hafði flokkurinn ekki gefið grænt ljós á hinn óháða málsvara frjáls- tyndis, samvinnu og félagshyggju... ^Eins og kunnugt er hafa félagar í BSRB boðað verkfall þ. 4. október. Hafa ýmsar upplýsingar verið kynntar landsmönnum með nýstár- legum hætti, ma. gengu átta opin- berir starfsmenn með spjöld innan um áhorfendur að landsleik íslands og Wales í fyrri viku þar sem launa- kjör þeirra og störf vom kynnt. Öll þessi auglýsinga- og kynningarher- ferð BSRB-manna þykir hin nýstár- legasta, enda mjög persónubundin og óvenjuleg. Útskýringin er þó ein- föld: Eigandi Auglýsingaþjónust- unnar, Gunnar Steinn Pálsson, datt niður á þessa óhefðbundnu að- ferð, hannaði hugnyndina í grófum dráttum ásamt samstarfsmönnum sínum og hélt á fund BSRB-foryst- unnar. Sá fundur mun hafa verið hinn stórkostlegasti, því Gunnar Steinn beinlínis sjarmeraði hina stirðu embættismenn upp úr skón- um þegar hann var kominn í ham- inn og samþykktu þeir allir sem einn kynningarherferðina. Nú er eft- ir að sjá hvort auglýsingaflóð BSRB ber tilætlaðan árangur og ýtir undir samkomuiag í kjaradeilunni... || ■ ^Hæsta víst er orðið að út- sendingar Rásar 2 nái til fimmtu- dagskvelda frá og með byrjun.októ- ber. Útvarpsráð aífgreiddi bón þessa efnis frá Þorgeiri Ástvaldssyni, forstöðumanni rásarinnar, fyrir fá- einum dögum, og fékk hana í hend- ur svokallaðri samræmingamefnd rásanna tveggja, en þessi afgreiðsla málsins ku í reynd þýða að bónin sé samþykkt. Eitthvað erfiðara er hins- vegar að fá leyfi til að útvarpa á Rás 2 á laugardögum, eins og forstöðu- maður rásarinnar hefur sóst fast eftir, og þykir ljóst orðið að af þeim útsendingum verði ekki í bráð að minnsta kosti. Útsendingar Rásar 2 á fimmtudagskvöldum munu að lík- indum spanna tímann frá kl. 20.00 til miðnættis og verða efnislega í formi beinna útsendinga með léttri tónlist að undirstöðu. Þó er mikill vilji fyrir því meðal starfsmanna rásarinnar að efni þessara kvelda verði að mestum hluta unnið (pró- dúserað), en þar stendur einfald- lega á því að þessari deild útvarps- ins bætist annar fastur tæknimaður auk þess eina sem nú er fyrir, en sá getur ekki sinnt nema biýnustu verkefnum rásarinnar sem stendur. Útvarpsráð ku hinsvegar daufheyr- ast við þeirri sjálfsögðu ósk starfs- mannanna... c C^egja má að Ásgeir Hannes Eiríksson hafi verið seinheppinn með startskotið á ísafold. Varla veir hann búinn að koma fyrsta tölu- blaðinu á götuna fyrr en á var skoll- ið verkfall prentara og bókagerðar- manna. En Ásgeir Hannes er maður þrár líkt og fleiri og kom átta siðna Verkfallstíðindum út í síðustu viku. Hins vegar gekk salan á fyrsta tölu- blaði ísafoldar ekki sem skyldi. Ás- geir hélt því fram í blaðaviðtali að hann hefði látið prenta 18 þúsund eintök og flest þeirra væru komin út. Kannski átti hann við að þau væru komin á sölustaði. Hvað um það. Ásgeir Hannes hafði nefnilega búist við að fyrsta tölublað ísafold- ar rynni út eins og heitar lummur og seldist á andartaki. Alla vega lét hann gera forsíðuplötu að endur- prentuðu upplagi 1. tölublaðs og hafði tilbúið í Blaðaprenti. Þar gaf að líta borða yfir alla forsíðuna sem á stóð: „1. tölublað ísafoldar upp- selt. 2. prentun". Snjallt hugsað en því miður var plötunni aldrei komið fyrir í prentvalsinum - af þeirri ein- földu ástæðu að enn mun vera nóg til af 1. tölublaði, 1. prentun... A____________________ tímum kjarabaráttu og verkfalla heyrum við um ýmiss konar kaup og kjör. Það mun vera haft fyrir satt að hluti af skrifstofufólki hjá Osta- og smjörsölunni sé með 27 þúsund krónur á mánuði þótt það sé aðeins í 60% starfi. Var einhver að tala um milliliðastarfsemi í landbúnaðin- um.„? HEIGARPÚSTURINN Verkfall Iðjulaus ég eigra nú eins og dæmin sanna. Ég er að draga björg í bú bókagerðarmanna. Niðri 4 HELGÁRPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.