Helgarpósturinn - 13.09.1984, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 13.09.1984, Blaðsíða 18
SKÁK eftir Guðmund Arniaugsson * Af Islandsþingi Nú stendur Skákþing íslands sem hæst. Þetta er á ýmsan hátt óvenjulegt skákmót, það er haidið á óvenjulegum tíma árs, um fleira er teflt en sjálfan meistaratitilinn, meðal annars þátttökurétt á næsta svæðismóti, og þarna tefla nær allir sterkustu skákmenn ís- lendinga. Óhætt er að fullyrða, að þetta sé öflugasta íslandsþing sem haldið hefur verið. Ástæðan er einföld: við eigum meira mannval í skák- inni en nokkru sinni fyrr og tekist hefur að fá fleiri til leiks en nokkru sinni. Vonandi spáir þetta góðu um ís- landsþingið í skák á komandi ár- um. Þessar línur eru ritaðar morgun- inn eftir þriðju umferð mótsins, en þegar þær birtast verður væntan- lega níu umferðum að mestu lok- ið, og ef til vill farið að hilla undir sigurvegarann. Meiri líkur eru þó á því, að úrslitin ráðist ekki fyrr en í síðustu umferð, svo jöfn virðist keppnin vera. Eg horfði á þriðju umferðina í gærkvöldi, fann þessa gömlu spennu í blóðinu, sem alltaf segir til sín þegar maður horfir á „lif- andi“ skák, horfir á skákina með- an hún er tefld, bíður næsta leiks með óþreyju, setur sig í spor tefl- andans og hugsar um hverju mað- ur mundi sjálfur leika; er ánægður ef meistarinn velur sama leik, en hugsandi ef hann fer aðra leið. Það er erfitt að lýsa þeirri spennu sem gagntekur mann við að horfa á skák á þennan hátt, mér dettur frekast í hug spenna í kvikmynd hjá góðum leikstjóra. Áhorfand- anum er ljóst að komið er að ör- lagaríku atriði, en leikstjórinn gef- ur sér góðan tíma, teygir ögn á söguþræðinum til þess að auka á eftirvæntinguna. Þú hefur hugboð um hvað muni gerast og ert eins og festur upp á þráð meðan þú veist ekki hvort það rætist né hvernig það rætist. En leikstjóran- um liggur ekkert á... Eg gat fylgst með öllum skákun- um úr sæti mínu. Hvarvetna var eitthvað að gerast, hugurinn hvarflaði frá einni skák til annarr-' ar og aftur til baka. Þarna er Dan búinn að teygja sig ansi langt gegn Lárusi, skyldi það standast, hvor- ugur á of mikinn tíma. Margeir á betra gegn Hauki, hvernig er best að vinna úr því? Riddari Sævars stendur eins og klettur úr hafinu þar sem biskup Halldórs á erfitt með að finna nokkra fótfestu. En sú skák sem hélt athyglinni hvað fastast þegar á leið var við- ureign Karls við Jóhann. Sú skák tefldist hægt framan af, enda varð staðan snemma allþung. Skákin virtist báðum erfið, klukkurnar tif- uðu áfram, en leikirnir komu afar hægt. Engum þurfti þó að leiðast, þarna komu mörg kunnustu þemu skákarinnar í röð, eins og myndir á tjaldi: átök um rými og Íínur, hangapeðin, staka drottningar- peðið; síðar veilur í kóngsstöðu og þrýstingur á þær, skiptamunar- ,fórn og.. . Loks þegar skáktímanum var al- veg að ljúka fóru atburðirnir að gerast með leifturhraða. Það small í mönnum þegar þeim var skellt á borðið, eins og í hörðustu hraðskák, og ungi maðurinn sem flutti leikina á sýningarborðið hafði naumast undan, og var hann þó ótrúlega lipur. Allt fer í háaloft, nú sýnist mér Jóhann leika manni í opinn dauðann — en Karl hirðir hann ekki — gagnkvæm skák- blinda, eða er það eg sjálfur sem er sleginn blindu? ... Karl Þorsteins — Jóhann Hjartars. borð og reyndu að rifja skákina upp og skrifa hana niður. Því var ekki lokið þegar eg fór, Jóhann mun ekki hafa tapað á tíma. Hann leysti hnútinn með laglegri fléttu: 1... .Dg2+ 2. Dxg2 e2+ 3. Df2 elD+ og mát í næsta leik. .. í fyrstu umferð gaf Lárus Jó- hannesson Jóni Lofti færi á sókn sem hann nýtti svo vel að úr varð skóladæmi um atlögu gegn kóngi: Jón L. ÁrnasonLárus Jóhannesson 01 e4 c6 02d4d5 03 Rd2 dxe4 04 Rxe4 Rf6 05 Rxf6+ exf6 06 c3 Bd6 07 Bd3 0-0 08 Dc2 He8 + 09 Re2 g6 Nú fræ hvítur skotmark sem hann beinir liði sínu að. Öruggara Varh6' 10h4Rd7 11 h5 Rf8 12 Bh6 Be6 Og hér var líklega betra að andæfa með f5. Hér kemur staðan í lok tíma- hraksins, Jóhann lék einum leik, og þá féll vísirinn hans megin. Kapparnir fluttu sig yfir á annað 13 0-0—0 b5 15 Bxf8 Bxf8 17 Dxg6+ Bg7 19 Hh8+ Kxh8 21 Hhl Hel + 14 hxg6 fxg6 16 Bxg6 hxg6 18 Rf4 Bf7 20 Dxf7 Bh6 22 Kc2 og svartur gafst upp. Lokin eru snotur! En var ekki 18. -Dc7 haldbetri vörn? VEÐRIÐ SPILAÞRAUT LAUSN Á KROSSGÁTU Vegna verkfalls bókagerðar- manna hafa veður skipast skjótt í lofti, og óveður í aðsigi. i Amman mun þó hafa verið logn og blíða, einn allsherjar brakandi þurrkur yfir Miðjarðarhafsbotni. Hins vegar hef ég alltaf álitið kínverskar mýs hinar mestu þarfaskepnur, og víst að landbúnaðinum héðra vegnaði bet- ur ef þeim væri meiri gaumur gef- inn. En hvað með svona amriskai jussureinsog Hússein hefur komið sér upp? Ég heyrði pena gamla prentara, meira að segja framsókn- armenn, nota mælieininguna tví- klofið aftan vinstra. Sumsé: rigning og rok þaðra. S K-G-10-9 H G-10-9 T 3-2 L D-10-8-7 S Á-D-3-2 H K-D-6-3 T Á-D L Á-K-9 S 5-4 H Á-8-5-2 T 9-8-7 6-5-4 L 6 S 8-7-6 H 7-4 T K-G-10 L G-5-4-3-2 Vestur spilar sex hjörtu. Norður lætur hjartagosann. Hvernig vinnur þú slemmuna? Lausn á bls. 10. ; n P 5 £ 'A K F ’P \* CO (3 o T i N u fí S f U Æ 5 T fí fí 'O Q N fí fí L f T u /71 H 'fí u r U R fí R £ G U /V R IB L fí P R Æ L. L fí rV fí a * C L fí U m U R T fí ro u R Ll T r fí R / N r 'fí L u R ■ R ú K U R L D T n F t F r £ c- U R t> 0 £ T U R T fí L B U R N o T fí T Æ /Y) R fí T ft K * S fí G fí m fí 5 K fí K T D G fí R / L u m P fí /V rf\ / N a/ K fí t> / R ■ K fí F n f3 f) K fí R tA K j fí R. R / fí S fí m T Þ ú ■ Z> R b fí L p Ð ! /V fí f) /V R fí u L- fí fí L L- fí R T fí L / Ð Pt u /n T fí p fí R L fí U rJ fí /c K íj 2s flKL L/ HNtlóÐI TV/H£ • BftRft OF- 5VÉF/L flL/T,K —1, KftPP SK-Sr. HvÍl L>! F£R 0R LffíG / ftORáft Ss UPPHftf TTrftfí B/lS BfíÚK R fí OL'iKIR .Lji L ./■* T © 5ÉRHL. H'fí rrufj fív/v Dýpi' n* '■h-m ■ Wl/- V röL/fí VÖRO^ 3 iFRElt £JN FHPV ur? vonT ’flR- FERÐJ VinNU bTfíí) Ufi DUR) UR_ I !<v£H fú&L* /Y/OTfí HÍGÐUH 6£RR RÐ VENjU TlT/LL flRNflZ HRÚ6 Hfí/ FÆVD Sm'ft „ ftSKfíR fty fí UOL. KftKÍftR VRH5l F0R DRK/t) - VEfíJU -r / 7 £/N S X 'SE/NS VERSHI ’/SLftNJ) BftDft r FTftJ/UK THJ6N fíÐua verímk L/F LftT fl/Sft , 7o rvT t/0KKm '/ 5Tro JLXNU/A RfVFflK SOFGft KÚúffD V/N SÍÚKUR OL/K/R Rt/Kft f VEL flrutu Sftm-D £RTf) þuRFft LtNGj NiÞuR Túrrfí fl/k KLRKt IL/KS p/m BYP’Ð/ Lörp — F /yi t GjftLD SKRIF/ -~r F? SÉRHL -r OF rn/K/LL KlfíJuR 1 Koivft Kmm FOR m'oV/R %E/HS ÖSLFföl T /Ð/V 5KOFP) f>/ lY/fíL TómR Dfl/t> ‘oHRth/ Kft LfíNL> RRUSj HÆúR *. 18 HELGARPOSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.