Helgarpósturinn - 13.09.1984, Page 24
H^vri
I yrir skömmu var vélbáturinn
Sæbjörg VE í Vestmannaeyjum
staðinn að ólöglegum netaveiðum í
landhelgi. Eigandi og skipstjóri
bátsins er Hilmar Rósmundsson í
Vestmannaeyjum. Hilmar er enn-
fremur varaþingmaður Framsóknar
í Eyjum. Kæra Landhelgisgæslunn-
ar var send dómsmálaráðuneytinu
eftir hefðbundnum leiðum en þcir
stöðvaðist líka málið. Jón Helga-
son dómsmálaráðherra ákvað eftir
samráð við Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra að flokks-
bróðumum í Eyjum skyldi hlíft og
var kæran látin niður falla...
L
R
in verið hin stórkostlegasta að því
að við fréttum. Hins vegar hefur
þeim, sem kunnugt var um þátttöku
Einars Karls, verið það mikið
skemmtiefni að hringja í Þjóðvilj-
ann og spyrja eftir umræddum rit-
stjóra. Hefur iðulega verið svarað á
þá lund að hann væri á fundi eða
kæmi ekki í dag eða þá að hann hafi
brugðið sér frá. Er ljóst að NATÓ-
andstæðingurinn og ritstjóri mál-
gagns sósíalisma hefur gefið ströng
fyrirmæli um að gefa ekkert upp um
ferðir sínar, sem Atlantshafsbanda-
lagið bauð í, honum að kostnaðar-
lausu...
inn við hlið ritstjóra NT, Magnúsar
Ólafssonar. Var flogið til Bergen
þar sem NATÓ-vamir Norðmanna
vom skoðaðar, síðan var haldið til
Oslóar og hvílst lítillega. Næsti
ákvörðunarstaður vsir Berlín en þá
haldið til Hamborgar. Öll hefur ferð-
gerðinni Dauphin og munu fljúga
henni heim með viðkomu í Bret-
landi. Mun franska þyrlan koma til
íslands þ. 12. október. Eins og menn
rekur minni til, var mikið um það
deilt hvort Landhelgisgæslan ætti
að kaupa frönsku tegundina eða
þyrlu af gerðinni Sikorsky S 76. Svo
vill til að í fyrri viku sprakk mótor í
slíkri Sikorsky-þyrlu í Bcindaríkjun-
um með þeim afleiðingum að þyrl-
an fórst. Framleiðendumir-United
Technologies Sikorsky Corp. fyrir-
skipuðu þegar í stað flugbann á 200
þyrlur af þessari gerð meðan tækni-
rannsókn fer fram á vélabúnaði
þyrlanna...
P
yrluflugmenn Landhelgis-
gæslunncir em famir til Frcikklcinds
til að taka við frönsku þyrlunni af
pp úr helginni kemur full-
trúanefnd Listahátíðar saman og
fer yfir reikninga og uppgjör hátíð-
arinnar frá því í sumar. Búist er við
að endanlegt tap sé um 6 milljónir.
Það er tala sem Davið Oddsson og
meirihluti borgarstjómar á erfitt
með að sætta sig við. Formaður
Listahátíðcir hefur verið Þorkell
Sigurbjömsson og framkvæmda-
stjóri Bjarai Ólafsson. Það ertalið
mjög ólíklegt að þeir sitji áfram,
heldur verði leitað að nýjum mönn-
um í stöðumar. Allt er á huldu um
framkvæmdastjórastöðuna en við
heyrum að mikill þrýstingur sé á
Hrafn Gunnlaugsson að hann
taki að sér formannsstöðuna. Hrafn
hefur áður gegnt framkvæmda-
stjórastarfi Listahátíðar og mun
ekki til viðræðu um að endurtaka
það en mun hins vegar vel geta
hugsað sér að taka við stöðu for-
manns Listahátíðar...
laxveiðimenn ýmsir munu nú
vera æfir út í Pál í Póiaris. Málið er
þíinnig vaxið að Páll er leiguhafi
Laxár í Kjós, sem er ein vinsælasta
laxveiðiá landsins. Fyrir þá sem
ekki stunda laxveiðar skal það tekið
fram að útlendingar eru yfirleitt
með besta veiðitíma sumarsins, þ.e.
júlí og fyrri part ágúst. Þeir veiða
einungis á flugu og því er fyrsta vika
eftir að veiðitíma þeirra lýkur mjög
eftirsótt meðal íslendinga sem nota
þá maðk með geysilega góðum
árcingri, enda laxinn orðinn óður í
orm eftir fluguna. Nú brá svo við í
sumar að þegar fluguveiðum er-
lendra veiðimanna lauk leigði Páll
Finnum ána í viku sem notuðu
maðk og mokuðu löxunum upp á
bcikkana. Viku síðar leigði hann ís-
lendingum ána og kallaði vikuna
réttilega „viku á eftir útlendingum",
því Finnar eru jú útlendir. íslending-
amir reyndust hins vegar ekki jafn
fengsælir þótt þeir hafi þrætt maðk-
inn af mikilli list...
Htstjórar dagblaðanna hafa
verið í mikilli Evrópuför í boði
NATÓ, enda verkfall prentara og öll
blaðaútgáfa stopp í landinu. Rit-
stjórar dagblaða stjómarandstöð-
unnar sögðu ekki nei takk við ferð-
inni, þótt báðir séu yfirlýstir cind-
stæðingar NATÓ; þeir Guðmund-
ur Árai Stefánsson, ritstjóri Al-
þýðublaðsins, og Einar Karl Har-
aldsson, ritstjóri Þjóðviljans.
Mánudaginn í fyrri viku flugu rit-
stjóramir út í F3 kafbátaleitarflug-
vél bandaríska hersins á Keflavíkur-
flugvelli og sat þá Þjóðviljaritstjór-
24 HELGARPÓSTURINN
Póstkort frá París
f>/í, JU/Jsrn/ kyúunCur ^
J&'P/fiáMU! iJJ'JcL'UI! m/niUusrru/3 ^
/Mcv(, Aúsrdurrv tfnvti éMwnAtfwM
^ dUijfi uMeuS út <Ul okkcu. oUtcu fortwr/nar
ptiteuiiaj* (oM faru ^ 4u*
%un\ <LoJUtá /rruUadCc/ farir faxwnajffötvnO-
•éfárirrÚMei,
i kJeuo~/
í/ieudömucr
auka-aukafeiöir með Henríettu og
Rósamundu til
fröken Parfsar.
26.okt.-2.nóv Verö kr. 15.550
9.-13. nóv. Verð kr. 14.250
14.-20. nóv. Verö kr. 15.135
Innifalið: Flug til Luxemborgar, rúta til Parísar þar sem konur hristast saman, og gisting á þægilegu hóteli í latínu-
hverfinu, með morgunverði, - og beint flug heim aftur (ásamt fararstjórum sem seint munu gleymast).
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 8, 23727