Helgarpósturinn - 15.11.1984, Side 14
Fjölbreyttara vöruúrval
Erum búnir að gjörbreyta
allri versluninni
Opið til kl. 8 á föstudagskvöld
Opíð til kl. 4 á laugardag
SÝNINGAR
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
i dag, fimmtudag, opnar Björg Atladóttir
sýningu á verkum sínum í Gallerí Borg í
Reykjavík. Á sýningunni verða málverk,
teikningar og myndir unnar meö blandaðri
tækni. Verkin eru gerð á sl. tveimur árum.
Björg nam við Myndlistaskólann í Reykjavík
á árunum 1976 — 79 og við Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1979—82. Þar lagði
hún stuhd á málun. Fyrr á þessu ári var Björg
með einkasýningu í boði listkynningar Hér-
aðsbókasafnsins í Mosfellssveit. Einnig átti
Björg verk á Kirkjulistarsýningunni aö Kjar-
valsstöðum 1983.
Sýningin er opin virka daga kl. 10 —18 og
um helgar kl. 14 — 18.
Gallerí Grjót
Skólavörðustíg 4a
Frá og með föstudeginum 16. nóv. verður
einkasýning á verkum Ófeigs Björnssonar í
Gallerí Grjóti. Þar sýnir hann skúlptúra og
myndklæði. Gallerí Grjót er opið alla virka
daga frá kl. 12—18.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Asgerður Búadóttir sýnir vefnað í vestur-
gangi og vestursalnum sem hún deilir með
Valgerði Hafstað, en hún sýnir þar málverk.
Guttormur Jónsson sýnir 29 verk, unnin í
tré, stein og trefja-steinsteypu. Þetta er 1.
einkasýning Guttorms. Næstsíðasta sýn-
ingarhelgi.
Steinunn Marteinsdóttir sýnir í Kjarvalssal
veggmyndir (lágmyndir) sem eru unnar í
postulín, einnig vasa o.fl. Þetta er síðasta
sýningarhelgi.
Um sl. helgi opnuðu þeir Valgarður Gunn-
arsson og Böövar Björnsson sýningu í vest-
ursal Kjarvalsstaða á 18 handmáluðum Ijóð-
um eftir Böðvar, unnum í samvinnu. Ljóð-
myndirnar eru unnar í olíu, akrýl og pastel.
Aö auki sýnir Valgarður u.þ.b. 40 myndir
unnar í ýmis efni, s.s. olíu, vatnslit og
gouche. Valgarður Gunnarsson stundaði
nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands
1975—79 og Empire State College í New
York 1979—81. Sýningin stendur til 25.
nóvember. Menningarsetrið er opið daglega
frá kl. 14-22.
Langbrók
Amtmannsstíg 1
Á laugardaginn kemur mun Eva Vilhelms-
dóttir opna sýningu á leðurfatnaði sem unn-
inn er úr kálfa- og lambaskinnum. Megin-
uppistaða sýningarinnar eru jakkar, frakkar
og kápur en einnig eru á sýningunni teikn-
ingar af nýjum fatnaði sem er væntanlegur á
markaðinn fyrir jólin. Eva lagði stund á nám
í hönnun við Skolen for Brugskunst í Kaup-
mannahöfn. Hún er eigandi verslunarinnar
Skryddu að Bergstaðastræti 1, þar sem hún
hefur vinnustofu.
Lísbet Sveinsdóttir glerlistakona sýnir
einnig verk sín í Langbrók, leirmuni sem eru
árangur tilraunastarfsemi hennar við leir-
brennslu í jörðu vestur í Breiðafirði. Lísbet
var við nám í Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands og síðar við Konstfackskolann í Stokk-
hólmi.
Sýningarnar standa yfir dagana 17. —25.
nóvember. Gallerftð er opið daglega; á virk-
um dögum frá kl. 12—18 og um helgar frá
14-18.
Þess má að lokum geta að mánudaginn
26. nóvember verður opnuð í Gallerí Lang-
brók samsýning (jólasýning) Langbróka.
Listamiöstööin
Hafnarstræti 22
Um síðustu helgi opnaði Guðni Erlendsson
sýningu í Listamiöstöðinni á 30—40 verkum
en sýningu sína kallar hann „Leirmyndir".
Myndirnar eru silkiþrykktar. Þetta er 1.
einkasýning Guðna og er hún opin daglega
kl. 14—19 en á fimmtudags- og sunnudags-
kvöldum fram til kl. 22. Síðasta sýningar-
helgi.
Listmunahúsið
Lækjargötu 2
Um þessar mundir stendur yfir málverkasýn-
ing Ómars Skúlasonar í Listmunahúsinu.
Það eru collagemyndir frá 1976 en megin-
uppistaðan eru tvær myndraðir, unnar á ár-
inu 1984. Við myndgerðina er notuð blönd-
uð tækni, s.s. málun, þrykk og klippingar.
Einnig eru á sýningunni tvær myndir eftir þá
Egil Eðvarösson og örn Þorsteinsson. Sýn-
ingin er 2. einkasýning Ómars og er opin
virka daga, nema mánudaga, kl. 10—18 og
um helgar frá 14 — 18. Síðasta sýningarhelgi.
Menningarmiðstöðin
við Gerðuberg
Á sunnudaginn lýkur sýningu á veggmynd-
um og myndasögum úr samkeppni sem
Reykingavarnanefnd efndi til meðal grunn-
skólanemenda á árinu 1983. Myndirnar, sem
eru á annað hundrað talsins, snerta reyk-
ingavandamálið og eru mjög fjölbreyttar
hvað efni og vinnubrögö snertir. Húsið er op-
ið mánudaga til fimmtudaga kl. 16—22 og
um helgar kl. 14 — 18.
Norræna húsið
Myndlistarmaðurinn og -kennarinn Jón E.
Guðmundsson opnaði firnafína sýningu á
verkum sínum í kjallara Norræna hússins um
sl. helgi. Sýningin er haldin í tilefni af sjö-
tugsafmæli kempunnar. Jón er hvað þekkt-
astur fyrir leikbrúður sínar sem eru fjölmarg-
ar á sýningunni og eru strengjabrúður í meiri-
hluta en auk þeirra eru 62 vatnslitamyndir
sem Jón hefur málað um dagana. Elsta
myndin er frá árinu 1964.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3b
Þessa dagana sýnir Emil Gunnar Guðmunds-
son Ijósmyndaröð, „Hlegið í gegnum tárin",
í neðri sal Nýlistasafnsins. Sýningin er haldin
í tengslum við sýningar Egg-leikhússins á
leikritinu „Skjaldbakan kemst þangað líka"
og er opin öllum almenningi á miðasölutíma
leikhússins, kl. 17—21. Ljósmyndasýning-
unni lýkur um leið og sýningum Egg-leik-
hússins.
BÍÓIN
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolanleg
O léleg
Austurbæjarbíó
Garp
★★Sjá umsögn í Listapósti.
Sýnd um helgina í sal 1, kl. 5 og 9.
Bíóhöllin
Metropolis
★★★★Sjá umsögn í Listapósti.
Sýnd í sal 1, kl. 5, 7, 9, og 11.
Ævintýralegur flótti
(Night Crossing)
Bandarísk. Árg. 1981. Handrit: John Mc-:
Greevey. Aðalhlutverk: John Hurt, Jane I
Alexander, Biau Bridges. Efni: Fjölskylda flýr
frá A.-Þýskalandi í loftbelg.
Sýnd í sal 2, kl. 5, 7, 9 og 11.
Fjör í Ríó
(Blame it on Rio)
★
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Stanley
Donen. Aðalhlutverk Michael Caine, Joseph
Bologna, Michello Johnson.
Erótísk gamanmynd um tvo miðaldra feður
sem fara til Ríó ásamt gjafvaxta dætrum sín-
um til að hressa upp á tilveruna. Vandamál
skapast er önnur dóttirin fer að sofa hjá
pabba hinnar. Þunn og illa leikin mynd, gerð
eftir vonlausu handriti.
Sýnd í sal 3, kl. 5, 7, 9 og 11.
Splash
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Ron How-
ard. Aðalhlutverk: Tom Hanks, Daryl Hann-
ah, John Candy. Gamanmynd.
Sýnd í sal 4, kl. 5 og 7.
Fyndið fólk II
(Funny People II)
★
Ramm-amerísk. Leikstjóri og sögumaður:
Jamie Ulys.
Sýnd í sal 4, kl. 9 og 11.
Háskólabíó
í blíðu og stríðu
(Terms of Endearment)
★★★Sjá umsögn í Ustapósti.
Sýnd kl. 5, 7:30 og 10.
Laugarásbíó
Hard to Hold
Bandarísk. Árg. 1983. Aðalhlutverk: Rick
Springfield, Janet Eilber og Patti Hansen.
Tónlistarkvikmynd með söguívafi.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Tónabíó
í skjóli nætur
(Still of the Night)
Bandarísk. Leikstjóri: Robert Benton (Kram-
er vs. Kramer). Aðalhlutverk: Roy Schelder
og Meryl Streep. Spennumynd.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Nýja Bíó
Dalalíf
★
íslensk. Árg. 1984. Leikstjóri: Þráinn Bertels-
son. Framleiðandi: Jón Hermannsson. Kvik-
myndataka: Ari Kristinsson. Aðalhlutverk:
Eggert Þorleifsson, Karl Ágúst Úlfsson,
Hrafnhildur Valbjörnsdóttir, Sigurður Sigur-
jónsson o.fl.
Sýnd kl. 5, 7 og 9, sunnudag kl. 3, 5, 7 og 9.
Regnboginn
Þverá
(Cross Creek)
Bandarísk. Árg. 1982. Handrit: Dalene
Young eftir sjálfsævisögu Marjorie Kinnan
Rawlings (The Yardling). Leikstjóri: Martin
Ritt. Aðalhlutverk: Mary Steenburgen, Rip
Torn, Peter Coyote, Alfred Woodard.
Efni: Myndin fjallar um skáldkonuna Mar-
jorie sem segir skiliö við sitt fyrra líf (og kall)
í New York, flytur til Kaliforníu og fer að
rækta appelsínur og skrifa vinnukonusögur í
rauðum stft en hafði lítið uppúr krafsinu.
Sýnd í C-sal, kl. 3, 5:30, 9 og 11:15.
Óboðnir gestir
Bandarísk. Árg. 1983. Leikstjóri: Michael
Laughlim. Aðalhlutverk: Paul le Matt, Nancy
Allen. Reyfaraefni. Fjallar um óþekktar verur
útan úr heimi...
Sýnd í A-sal, kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Rauðklædda konan
(Woman in Red)
★★★
Amerísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Gene Wilder.
Aðalhlutverk: Gene Wilder, Charles Gordin.
Tónlist: Samin og flutt af Stevie Wonder.
Sýnd í B-sal, kl. 5:05, og 9:05.
Eins konar hetja
(Some Kind of Hero)
Amerísk. Árg. 1983. Leikstjóri: Michael
Pressman. Aöalhlutverk: Richard Pryor,
Margot Kidder, Ray Schardey, Ronny Cox.
Gamanmynd, að sögn.
Sýnd í B-sal, kl. 3:05 og 7:05.
Kúrekar norðursins
★
íslensk. Árg. 1984. Stjórn: Friðrik Þór Frið-
riksson. Myndataka: Einar Bergmundur Arn-
björnsson og Gunnlaugur Þór Pálsson.
Sigurður Snæberg Jónsson. Aðalleikarar:
Hallbjörn Hjartarson, Jhonny King, menn og
dýr á Skagaströnd o.fl.
Sýnd í D-sal, kl. 3:;5, 7:15, 9:15 og 11:15.
Söngur fangans
(The Executioner's Song)
Amerísk. Árg. 1980. Leikstjóri: Lawrence
Chiller. Aðalhlutverk: Tommy Lee Jones,
Rosanna Arquette, Christine Lahti, Eli Wall-
ach. Byggð á atburðum úr ævi Gary Gilmore
og gerð í samráði við hann. Handrit: Norman
Mailer. Myndin er um einn af frægari föng-.
um Bandaríkjanna sem var sakaður um
morð og stórglæpi sem hann játaði á sig. Gil-
more var í framhaldi af því dæmdur til dauða
árið 1977 en dómnum var skv. venju ekki
framfylgt. Hinn dæmdi krafðist þess þó og
var líflátinn í rafmagnsstólnum.
Sýnd í B-sal, kl. 5 og 9.
Handgun ,
Amerísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Tony Garn-
ett. Aðalhlutverk: Karen Young, Clayton
Day. Efni: Fjallar um fórnarlamb nauðgara,
unga stúlku sem grípur til hefndaraðgerða.
Sýnd í E-sal, kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Stjörnubíó
Moskva við Hudson fljót
(Moskva on the Hudson)
Amerísk. Árgerð 1984. Leikstjóri: Paul Maz-
ursky. Aðalhlutverk: Robin Williams, Maria
Conchita.
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11:05.
Heavy Metal
Bandarfsk teiknimynd. Tónlistin situr í fyrir-
rúmi og er það þungarokkið sem skipar önd-
vegið. Hana sömdu hljómsveitirnar Black
Sabbath, Cult, Cheap Trik, Nazareth, Riggs
og Trust o.fl. sem einnig flytja tónlistina.
Endursýnd í B-sal, kl. 5, 9 og 11.
Educating Rita
★★★
Sýnd í B-sal, kl. 7.
LEIKLIST
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Alþýðuleikhúsið hefur fengið inni á Kjar-
valsstöðum í nokkurn tíma og sýnir leikritið
Beisk tár Petru von Kant eftir Fassbinder á
föstudagskvöld kl. 20:30, laugardag og
sunnudag kl. 16 og á mánudaginn kl. 20:30.
Þýðinguna gerði Böðvar Guðmundsson.
Leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir. Miða-
pantanir eru í síma 26131.
Norræna húsið
Nk. mánudagskvöld, 12. nóv., verður flutt í
Norræna húsinu verkið „Óður steinsins" fyr-
ir píanó, upplestur og litskyggnur. Jónas
Ingimundarson leikur á píanó tónlist Atla
Heimis Sveinssonar, Sigrún Björnsdóttir les
upp Ijóð Kristjáns frá Djúpalæk og sýndar
verða litskyggnur Ágústs Jónssonar, þess
kunna steinasafnara, af steinþynnum. Verk-
ið er tilraun til að fella saman tónlist, Ijóðlist
og myndlist og er hugsað sem ein heild.
Kveikjan að þvfvoru IjósmyndirÁgústs af ör-
þunnum sneiðum steina, sem Kristján frá
Djúpalæk orti Ijóð við, eitt um hverja mynd,
alls 30 Ijóð. Atli Heimir samdi síðan píanólög
við Ijóðin og myndirnar. Listunnendur geta á
þennan hátt slegið þrjár flugur í einu höggi
með því að mæta á mánudagskvöld kl.
20:30.
Félagsstofnun stúdenta
v/Hringbraut
í kvöld, fimmtudag, 15. nóv. frumflytja Há-
skólakórinn og Stúdentaleikhúsið nýja upp-
færslu á Sóleyjarkvæði Jóhannesar úr Kötl-
um við tónlist Péturs Pálssonar. Stjórnandi
kórsins er Árni Harðarson og útsetti hann
einnig tónlistina fyrir kórinn. Guðmundur
Olafsson leikari fer með talaðan texta jafn-
framt því að leikstýra með Árna. Verkið verð-
ur sfðan flutt 16., 17. og 18. nóvember. Flutn-
ingurinn á verkinu hefst kl. 21 öll kvöldin.
Miðapantanir I síma 17017.
TÓNLIST
Háskólabíó
í kvöld, fimmtudag, verða haldnir reglulegir
áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 20:30.
Bernard Wilkinson leikur einleik á flautu.
Stjórnandi er Karolos Trikolidis.
Bústaðakirkja
íslenska hljómsveitin heldur síödegistón-
leika í Bústaðakirkju á sunnudaginn kemur
og hefjast þeir kl. 17.
Kristskirkja
Landakoti
Musica Nova stendur fyrir tónleikum í Krists-
kirkju á mánudaginn 19. nóv. kl. 17. Það er
Hörður Áskelsson sem spilar á orgel kirkj-
unnar.
Menntaskólinn
v/Hamrah.íð
Hinn sigursæli Hamrahlíðarkór sem gert hef-
ur garðinn frægan undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur kemur fram á tónleikum þar
sem verðlaunaafhending fer einnig fram.
Tónleikarnir verða í Hamrahlíðarskólanum á
laugardaginn og hefjast þeir kl. 17.
Norræna húsið
Þriðjudaginn 20. nóv. verða haldnir píanó-
tónleikar í Norræna húsinu. Kjell Bækkelund
heitir maðurinn. Tónleikarnir hefjast kl.
20:30.
Háskólatónleikar sem réttu nafni nefnast
hádegistónleikar (kl. 12:30) verða síðan
haldnir miðvikudaginn 21. nóv. Að þessu
sinni verða tónleikarnir helgaðir djassinum:
Dúettinn Reynir Sigurðsson, víbrófónn og
Guömundur Ingólfsson, píanó, koma fram.
14 HELGARPÓSTURINN I