Helgarpósturinn - 29.11.1984, Qupperneq 23
iiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
VIÐ HEYGARÐSHORNIÐ
Við heygarðshorn Alþingis
Ég tek undir með hinum sauð-
svarta íslenska almúga, sagði Sig-
ríður Dúna. Það eru til peningar
einhvers staðar í þessu þjóðfélagi.
En þeir eru ekki í veski kvenna,
þótt þeir ættu að vera þar og
hvergi annars staðar.
Börnin mín eru þér hjartanlega
sammála, tók Guðrún Helgadóttir
undir.
Hvar á að taka þá peninga?
spurði Albert úrræðagóði. Ég veit
ekki betur en við höfum verið að
leita að peningum ekki bara
heima heldur um allan heim. Væri
hægt að taka þá upp úr steinunum
væri nóg af þeim hér á landi, grjót-
hörðum. Hvar eru peningarnir?
Það veit ég ekki, svaraði Kristín
Kvaran. Ég hef verið í fæðingar-
orlofi.
Já, getur þjóðin ekki verið bara
í óléttuorlofi næstu níu mánuð-
ina? spurði Albert úrræðagóði.
Það eru kannski lausnirnar þín-
ar? spurði Svavar illur í augum.
Ég veit ekki til þess að ég hafi
enn legið á sæng, svaraði Albert.
En þú liggur á peningunum,
greip Ragnar Arnalds fram í. Það
gerði ég ekki. Heldur hefði ég vilj-
að liggja á sæng en peningum.
Albert ætlaði að rjúka upp eins
og þykkur vindlareykur en Guð-
rún gekk fram og sagði:
Nei, strákar mínir, ekki rífast.
Það er allt of mikið. Þið eruð ekki
lengur í Menntó.
Hvar fékk Ellert peningana fyrir
útvarpsstöðinni sinni? spurði Sig-
ríður Dúna og beyglaði rauða
munninn frekjulega eins og telpa.
Er ekki vani krakkanna að rjúka
í foreldrana? spurði Albert. Vilja
sumir ekki vera krakkar enda-
laust og endaslagið að leita til for-
eldranna grenjandi?
Ég veit bara það að mín börn
fengju ekki að vaða í mig þótt þau
vantaði útvarpsstöð, sagði Stein-
grímur. Það er engu að síður eng-
in lausn í sjálfu sér. Mér þykir lík-
legt að lausnin sé hjá sjálfri sér.
Lausnirnar eru það einfaldlega en
ekki endilega hjá ráðherrunum.
Ég segi fyrir mig. . .
Nú fékk Steingrímur ekki að
segja neitt fyrir sig, Svavar sagði
fyrir hann:
Hvað þýðir að segja fyrir sig,
það verður að segja þjóðinni, að
tala fyrir hönd hennar og ávarpa
almenning og gera mönnum ljóst
að peningarnir eru ekki uppi í
Breiðholti tvö.
Peningarnir eru þar sem þeir
eru skapaðir, sagði Albert. Ég þarf
ekkert að vitna í Bordiga, Gur-
vitch, Guerin, Bachelard né Sögu
vísindanna eftir Crombie. Þetta
veit maður heilvita uppi á íslandi.
Ég veit, þótt ég hafi ekki brotið til
mergjar Politische Psykologie,
sem ég þýði Sálfræði stjórnmál-
anna eftir Boesch, Bowman,
Bracher, Eyferth, Grohs og Hork-
heimer, að þetta hjá Birgi Thorla-
síus í verkfallinu var bara það
þegar litli bróðir fer að rífa sig eftir
að vindurinn er horfinn úr eldri
bræðrunum. Það er algengt í
stjórnmálum: litli bróðir leitar fær-
is og rífur sig undan pressunni,
sökum bróðurkomplex. Verkfall-
ið var skólabókardæmi.
Allir sem stóðu við heygarðs-
horn Alþingis góndu á Albert,
enginn vissi hvaðan honum kom
hið pólitíska sálfræðilega innsæi.
Enginn við hornið vissi hvaðan á
sig stóð veðrið, eins og sagt er.
Nafnarunan var svo mikið áfall
fyrir Svavar að hann gleymdi öllu
sem hann hafði lesið eftir Maurice
Brinton um Óskynsemi í stjórn-
málum. Guðrún hafði ekki börnin
sín til að vitna í, svo hún stóð
þarna á stærra gati en hún hafði
staðið á, manneskja sem stóð
stöðugt á tindinum í Menntó.
Ég fæ mér bara sígarettu, sagði
hún og sneri sér að Albert sem
snýr sig líka út úr öllum vanda
með reyk, og hún bætti við:
Albert, þú færð þér vindil mér
til samlætis.
Ég fæ mér aldrei vindil, Guðrún
mín, sagði Albert. Ég er alltaf með
vindil. Samt veð ég engan vindla-
reyk sem ráðherra.
Hjörleifur hafði staðið yst til
vinstri við heygarðshornið og
brosti þögull sínu glæra brosi. Nú
opnaði hann munninn og sagði:
Gætum við ekki bara bjargað
efnahag landsins og þjóðarinnar
með því einfalda ráði að grípa til
öfugs ráðs við Alúsviss, að láta
kísilgúrinn okkar blessaðan
bólgna í hafi og á plöggunum?
^ Spurðu Jóhannes peningagúrú
að því í Seðlabankanum, svaraði
Albert úrræðagóði. Ég þekki
hvorki bólgu- né rýrnunarráð í
verslun.
Og ég ætla með, sagði Sigríður
Dúna. Ég kann að spyrja karl-
menn svo hvasst að þeir svari sem
konur. — Utan Kvennalistans,
nóta bene.
taka til starfa, Sjón og saga. Svo
virðist, sem fyrirtækið telji sjón
sögu ríkari, en þó ekki svo ríkari að
sagan megi ekki fljóta með. Eða
svoleiðis. Sjón og saga ætlar nefni-
lega að gefa út bæði bækur og
myndbönd um sama efnið. Þannig
er væntanleg bók og myndband frá
forlaginu nú fyrir jólin um Hrossin
frá Kirkjubæ eftir Hjalta Jón
Sveinsson. Sjón og saga ætlar líka
að gefa út fyrir jólin barnaþuluna
Tíu litlar ljúflingsmeyjar, svar Theo-
dóru Thoroddsen við Tíu litlum
negrastrákum. Það voru starfs-
menn Auglýsingastofunnar og
kvikmyndafyrirtækisins Sýn sem
stofnuðu og starfa við Sjón og sögu;
teiknarar, ljósmyndarar, kvik-
myndagerðarmenn, prentarar og
textahöfundar. Framkvæmdastjóri
er Gísli B. Björnsson. . .
s
^^^jálfstæðisfelag Akureyrar
hefur ekki verið sérlega starfsamt
sl. árið, en á dögunum var haldinn
aðalfundur í félaginu og þá var kjör-
inn nýr formaður. Sá heitir Einar
Tjörvi Elíasson, framkvæmda-
stjóri Kröfluvirkjunar, og binda
menn vonir við, að hann eigi eftir
að efla félagið. Frammistaða for-
vera hans, Halidórs Rafnssonar
þótti í slakara lagi og var hann því
ekki endurkjörinn...
A
Akureyri er einn maður,
sem situr í nefndum á vegum bæjar-
ins bæði fyrir hönd Alþýðuflokksins
og Sjálfstæðisflokksins. Þetta er
Báröur Halldórsson, mennta-
skólakennari og fornbókasali. Hann
var í fremstu víglínu krata á Akur-
eyri og m.a. ritstjóri Alþýðumanns-
ins, en söðlaði svo um og sneri sér
að Sjálfstæðisflokknum.
Vegur hans í Sjálfstæðisflokknum
hefur nú vaxið, því fyrir skemmstu
var hann kjörinn bæði í fulltrúaráð
og kjördæmisráð flokksins í Norð-
urlandskjördæmi eystra. . .
A
J^^^lvarlega þenkjandi banka-
stjórar hafa nú sívaxandi áhyggjur
af stöðu bankanna, sem er sögð fara
dagversnandi. Peningaútstreymið
úr bönkunum er sagt yfirgengilegt
og þær vonir sem bundnar voru við
ákvörðunarfrelsi þeirra í vaxtamál-
um hafa ekki ræst sem skyldi. Þar
að auki hefur auglýsingakostnaður-
inn við vaxtastríðsrekstur bank-
anna verið gífurlegur, og síst til þess
fallinn að bæta stöðu þeirra. Út-
vegsbankinn stendur banka verst,
og annar ríkisbanki, Landsbank-
inn á einnig í erfiðleikum. Vandi
beggja stafar aðallega af skuldbind-
ingum þeirra við grátt leikinn sjáv-
arútveginn. Þessa dagana eru langir
og tíðir fundir haldnir í ríkisbönkun-
um til að leita leiðar út úr ógöngun-
um. . .
H
H ■ eimsreisa, tunglgrjót,
Benz, silkinærföt, pelsar og sérstak-
ur aðstoðarmaður í kauphallarvið-
skiptum — allt eru þetta lúxusítem,
eins og það heitir á enskunni. Og
eins og lesendur vita kannski ætlar
Sam-útgáfan að fara að gefa út
blað sem á að fjalla um þessa hluti,
blað sem verður sérstaklega stílað á
hégómleika þessarar peningalausu
þjóðar. Blaðið heitir lúxus og því
verður hleypt af stokkunum á mik-
illi Lúxushátíð í Broadway á mið-
vikudagskvöldið kemur. Þetta
íburðarmikla veitingahús verður
fullt af alls lags munaðarvarningi
þetta kvöld, pelsum, skartgripum,
dýrum ilmvötnum...
Kavíar? Auðvitað verður kavíar,
ekta rússneskur kavíar eins og hann
kemur af styrjunni. Ritstjóri nýja
blaðsins er nú staddur í London að
kaupa kavíarinn á lúxusprísum. Lít-
il dós af styrjuhrognum er sögð
kosta 50 sterlingspund, eða álíka og
mánaðardagheimilisgjald einstæðr-
ar móður fyrir eitt barn. Tvær dósir,
tvö börn, o.s.frv.
Ekkert er heldur til sparað í blað-
inu sjálfu. Það hefur gylltan haus. í
því er fjallað um pelsa og skartgripi
(nema hvað), Rolls Royce og talað
við Sigurð Sigurjónsson leikara um
stjörnukortið hans, en stjörnukortin
frá Karnabæ eru nýjasta lúxus-ítem
ísiendinga. Blaðið kostar 185 krón-
ur og á að koma út minnst fjórum
sinnum á ári. . .
LAUSNÁ
SPILAÞRAUT
S K-D-10-9-2
H G-8
T 9-7-5
L D-G-8
s - S Á-6
H A-K-6-5-4 H 7.3.2
T A-K-D T G-10-6-4-2
L A-K-5-4-2 l 7-6-3
S G-8-7-5-4-3
H D-10-9
T 8-3
L 10-9
Vestur trompar kónginn. Lætur ás
og kóng í laufi. Liggi laufin ekki
tvö og þrjú, er ekki hægt að vinna
spilið. Þá koma tígulás, kóngur og
drottning. Ef andstæðingarnir
trompa, skapast trompinnkoma í
blindan. Ef andstæðingarnir vilja
ekki trompa, þá lætur vestur ás og
kóng í hjarta og síðan kemur lítið
lauf í þeirri von að norður eigi
ekki hjartadrottninguna.
RÍKULEG ÁVQXTUW
KYNNIÐ YKKUR VEL KJÖR SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS |
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS f
HELGARPÖSTURINN 23