Helgarpósturinn - 29.11.1984, Side 24
ÞRIGGJA STJORNU REIKNINGUR
ALÞÝÐUBANKANS ER AFGERANDlFYRIR
SFARIFJÁREIGENDUR
V
alur Arnþórsson stjórn-
arformaður Sambandsins, verður
næsti forstjóri SIS. Helgarpósturinn
hefur öruggar heimildir fyrir því að
gert hafi verið út um forstjóraskipt-
in á stjórnarfundi SIS um miðjan
mánuðinn. Stjórnarfundurinn tók
tvo og hálfan dag og þar mun hafa
tekist óformlegt samkomulag um
Val sem eftirmann Erlendar Ein-
arssonar, sem lætur af störfum
seinni hluta næsta árs...
frumvarpið við Ragnhildi Helga-
dóttur menntamálaráðherra fyrir
hönd framsóknarmanna. Sjálf-
stæðismenn eru ekki hræddir
við andstöðu framsóknarþing-
manna á borð við Pál Péturs-
son við frumvarpið.
Þeir telja sig eiga vísan stuðning eða
hjásetu Bandalags jafnaðarmanna í
málinu og að kratar geti líka komið
til aðstoðar. Fnginn þingmaður er 1
sagður hrifinn af frumvarpinu og
það er kallað hinn mesti laga-bast-
arður. Meirihluti þingheims vill
bara fá breytinguna í gegn og hugg-
ar sig við það að lögin eiga aðeins
að gilda í þrjú ár, en þá verða þau
endurskoðuð. . .
||
tvarpslagafrumvarpið
kemur væntanlega til annarrar um-
ræðu í neðri deild Alþingis á föstu-
dag eða mánudag. Sáralitlar breyt-
ingar hafa orðið á frumvarpinu í
meðförum menntamálanefndar nd.
Breytingar hafa einkum verið gerð-
ar á orðalagi hér og þar og agnúar
sniðnir af. Veigamesta breytingin er
24 HELGARPÓSTURINN
M
I ú er talið hæpið að útvarps-
lagafrumvarpið verði samþykkt
sem lög frá Alþingi fyrir jól. Efri
deild á eftir að fjalla um frumvarpið
og þar er framsóknarmaðurinn
Haraldur Ólafsson formaður
menntamáladeildar. Sjálfstæðis-
menn telja þó ekki að Haraldur setji
sig sérstaklega á móti frumvarpinu
vegna þess að það var hann, sem
gekk til samningaviðræðna um
sú, að sveitarstjórnir á þeim svæð-
um þar sem stofna skal útvarpsstöð
þurfa nú ekki að mæla með veitingu
leyfis, eins og upphaflega var gert
ráð fyrir í frumvarpinu. Séð var
fram á að hægt hefði verið að kom-
ast framhjá þessu ákvæði í praxís,
með því til dæmis að fá samþykkt
útvarpsleyfi á Seltjarnarnesi ef
Reykjavík hefði sett sig á móti því.
Önnur breyting sem nefndin gerði
var að gera ráð fyrir að allir lögaðil-
ar og einstaklingar gætu sett upp út-
varpsstöð, en ekki aðeins sveitarfé-
lög eða sérstök útvarpsfélög, eins
og upphaflega var gert ráð fyrir. . .
D
HlP úvörudeild SÍS varð fyrir
stórkostlegu áfalli í síðustu viku
þegar bandarísku dráttarvélaverk-
smiðjurnar Cays Inc. keyptu upp
búvélafyrirtækið International
Harvester og David Brown drátt-
arvélaverksmiðjurnar. Sambandið
hefur séð íslenskum bændum fyrir
dráttarvélum og öðrum búvélum
frá þessum fyrirtækjum í 55 ár, og
þessar vélar hafa verið ein aðalsölu-
vara þess allan þennan tíma. Vélar
og þjónusta, fyrirtækið sem hefur
haft umboð fyrir Cays hér á landi,
fær nú einnig umboðin fyrir IH-tæk-
in og David Brown dráttarvélarnar,
en SIS situr eftir með sárt ennið. Og
til að gera málið enn pínlegra fyrir
Sambandið, þá er SÍS að bjóða 50
bændum á Smithfield landbúnað-
arsýninguna í Englandi í byrjun
september, þar sem þeir eiga að
skoða sýningu International Har-
vester og fara sérstaka skoðunar-
ferð í verksmiðjur IH í Englandi. . .
Í f það er rétt að grunnurinn að
framtíðarstefnu stjórnmálaflokk-
anna sé lagður í ungliðahreyfingum
þeirra, má gera ráð fyrir að Fram-
sóknarflokkurinn fari bráðlega
að sjá fram á umtalsvert breytinga-
skeið. Ungliðar þess flokks hafa nú
hvað eftir annað hreyft við málum
sem hafa hingað til verið eins konar
bannmál þar á bæ. Það síðasta sem
við heyrðum í þá veru er af fyrir-
hugaðri þingsályktunartillögu
Björns Líndals, hins 28 ára gamla
varaþingmanns Framsóknarflokks-
ins, en hún gengur þvert á viðtekna
stefnu flokksins. Björn ætlar að
leggja til að skipuð verði nefnd til að
gera tillögur um rýmkun á heimild-
um erlendra aðila til þátttöku í ís-
lensku atvinnulífi. Hann vill opna
nýjar ieiðir fyrir erlent áhættufjár-
magn, sem beint yrði inn á brautir
nýsköpunar í atvinnulífinu. Unglið-
ar Framsóknarflokksins eru sagðir
áfjáðir í að sýna að glögg kynslóða-
skipti séu framundan í flokknum og
að þeir séu jafnvel tilbúnir að skjóta
sjálfstæðismönnum ref fyrir rass í
málatilbúnaði til að leggja áherslu á
þetta. ..
ÞETTA ERU AFBRAGÐSKJOR SEN HVORKIAÐRIR
BANKAR NÉ RÍKISSJÓÐUR BJÓÐA UPP A
Þriggja stjörnu reikningur Alþýðubankans
er afgerandi fyrir spariQáreigendur. Við bjóðum
einstaklingum, félagasamtökum og sjóðum upp á fulla
verðtryggingu og 9% vexti.
Og hjá okkur er binditíminn aðeins tvö ár.
A
Alþýðubankinn býður best!
Alþýðubankinn hf.