Helgarpósturinn - 12.09.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTAPÓSTUR
Fjárlagagerð rædd í ríkisstjórninni
Drög að frumvarpi til fjárlaga voru rædd innan ríkis-
stjórnarinnar á þriðjudag en stjórnarliðar verjast frétta.
Það mun meginmarkmið stjórnarinnar að koma í veg fyrir
að erlendar skuldir aukist. Að öðru leyti mun ríkja talsverð-
ur ágreiningur milli stjórnarflokkanna um leiðir til að láta
enda ná saman við gerð fjárlagafrumvarpsins. Um sinn
munu þeir einkum beina augum að óbeinum sköttum, og í
bígerð er að afla liðlega tveggja milljarða króna með þvi móti,
en þá upphæð vantar enn til að fjárlagadæmið gangi nokk-
urn veginn upp. Aftur á móti eru 600 miiljónir króna áætl-
aðar til lækkunar tekjuskatts á næsta ári, samkvæmt þvi
sem ákveðið var á síðasta þingi.
Bónusdeilan í biðstöðu
Lítið miðar í bónusdeilu VSÍ og VMSÍ. Meginkrafa Verka-
mannasambandsins er um það sem þeir kalla fast 30 króna
bónusgjald á hverja unna klukkustund í fiskvinnu. Þá
kröfu segja þeir hjá VSÍ hins vegar ekkert tengda bónus og
þar með ekki eiga heima i bónussamningum. Bónusvinnu-
stöðvun hófst á fjórum stöðum á landinu á mánudag, á
Stokkseyri, Skagaströnd, Eskifirði og Siglufirði og fleiri
staðir munu bætast við í vikunni. Nokkur óánægja er meðal
fólks á þeim stöðum þar sem bónusvinnustöðvun er hafin
með dræma þátttöku annarra félaga og segir það að því hafi
verið talin trú um að félög um allt land yrðu með. Þá hefur
VSÍ kært samúðarvinnustöðvun Dagsbrúnar og Framsókn-
ar til Félagsdóms.
Herskip inn Hvalfjörðinn
Á mánudag og þriðjudag komu 8 erlend vöruflutninga-
skip, 2 olíuskip og kanadískt herskip inn Hvalfjörðinn og
höfðu viðkomu í einn sólarhring. Skip þessi taka þátt í ein-
hverjum mestu heræfingum NATO sinnar tegundar á sjó,
nefnast þær Ocean Safari og ganga út á að æfa varnir á
birgðaflutningaskipum yfir Atlantshafið. Herskip NATO-
flotans koma ekki inn fyrir landhelgina. Varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins hefur lýst yfir að það hafi aldrei
staðið til og stæði í engu sambandi við yfirlýsingu Geirs
Hallgrímssonar í vetur um að herskip með kjarnorkuvopn
innanborðs mættu ekki koma inn fyrir íslenska landhelgi
nema með leyfi islenskra yfirvalda.
Hriktir í kvótakerfinu
Menn velta því nú fyrir sér hvort hugmynd sjávarútvegs-
ráðherra um kvótamillifærslur milli ára sé dauðadómur
yfir kvótakerfinu, svo og hvort það reikningsdæmi gangi
upp að kaupa og selja fiskiskipakvóta. Eftirspurn eftir kvót-
um hefur stóraukist undanfarið. Þeir sem eru aflögufærir
bjóða kílóið af þorski á allt að 6 krónur. En eftirspurn er
meiri en framboð af þvi að mörg skip völdu sér sóknarmark
og geta þvi hvorki keypt kvóta né selt. Deildar meiningar eru
um kvótakerfið í ríkisstjórninni, Steingrímur Hermanns-
son lýsti því til dæmis yfir i vikunni að hann væri ekki
kvótamaður.
Viðræður við Kínverja um stækkun álversins
í undirbúningi
Sverrir Hermannsson iðnaöarráðherra átti í gær samráðs-
fund með stóriðjunefnd þar sem rætt var um hugsanlegt
samstarf Kínver ja, Alusuisse og íslendinga varðandi stækk-
un álversins. Talið er að þegar formlegar samningaviðræður
við Kínverja hefjast í byrjun nóvember verði gengið út frá
þeim samningum sem í gildi eru á milli íslenska ríkisins og
Alusuisse.
Ljóð á tækniöld
Fyrsta norræna ljóðlistarhátíðin var sett í Reykjavík á
mánudag. Upphafsmaður hennar var Knut Ödegárd for-
stjóri Norræna hússins. Hátíðin ber yfirskriftina Ljóð á
tækniöld og markmið hennar er að færa ljóðið til stærri les-
endahóps og styrkja bókmenntalegt samstarf á Norður-
löndunum. Hátiöin er þó ekki einskorðuð við Norðurlöndin
heldur hefur verið boðið ýmsum af fremstu ljóðskáldum frá
öðrum löndum og tungúmálasvæðum. Hátíðin stendur yfir
fram á föstudagskvöld. Verndari hennar er frú Vigdis Finn-
bogadóttir forseti.
Fiskvinnslan á Austfjörðum styrkir Einar spjótkastara
Einar Vilhjálmsson varð að sætta sig við áttunda sætið í
spjótkastskeppninni í lokakeppni Grand Prix mótanna um
helgina sökum meiðsla. Helstu fiskvinnslufyrirtæki á Aust-
fjörðum hafa nú ákveðið að veita Einari fjárhagslegan
stuðning fram að næstu Ólympiuleikum árið 1988. Er þá
miðað við að tryggja afkomu Einars og f jölskyldu hans svo
hann geti helgað sig íþrótt sinni.
Fréttamolar
• Fimm læknar hafa kannað svefnvenjur íslendinga. Nið-
urstöður sýna m.a. að meðalsvefntími er sjö og hálf klukku-
stund og aö þeir fara seinna i háttinn en aðrar þjóðir.
• Efnaverksmiðjan Sjöfn á Akureyri hefur hafið fram-
leiðslu á dömubindum og bleyjum. Framleiddar eru tvær
gerðir af bleyjum, dagbleyjur og náttbleyjur, undir vöru-
merkinu ,,Bamba-bleyjur“ og tvær stærðir af dömubindum
undir vörumerkinu „Sjafnarbindi".
• Vífilsstaðaspítali er 75 ára um þessar mundir. Flestir
sjúklinganna sem þar dveljast þjást af astma, berkjubólgu
og lungnaþembu. Um 90% þeirra eru reykingamenn.
• Hafin er samkeppni meðal norrænna arkitekta um hönn-
un íslensks tónlistarhúss sem mun hýsa sígilda tónlist,
óperur og popp, allt undir sama þaki. Því hefur verið valinn
staður í Laugardalnum á 45.000 fermetra lóð.
• Ágreiningur er á milli stjórnarflokkanna um með hvaða
hætti forstjóramálum skuli háttað við Byggðastofnun sam-
kvæmt nýjum lögum. Fregnir herma að forsætisráðherra
hafi nú þegar gefið Bjarna Einarssyni forstöðumanni
Byggðasjóðs vilyrði fyrir forstjórastólnum en sjálfstæðis-
menn munu hafa ákveðnar athugasemdir við þá tillögu.
Lappir manns. Fyrir það fyrsta
getur svo margt verið að þeim. Ég
nefni náttlangan kláða í stórutá.
Ellegar varanlegan sinadrátt í
vinstri il. Og það sem er kannski
verst, ef eitthvað er: Litlutáarlíðan
eftir að kona í háhæluðum. . . þið
vitið!
Alla jafna er samt allt í lagi með
þær, finnst manni. Þær virka, færast
hvor fram fyrir aðra eins og ekkert
sé, flytia mann frá a til bé, ef ekki
ómeðvitað, þá af gömlum vana. En
hvort þær lykta eða eru krökkar af
sveppum, er allt annað mál. . .
Mál, sem maður getur ímyndað
sér að varði fótsnyrtifræðinga. Ég
gat það einu sinni á leið ellefu aust-
ur Laugaveginn þegar maður kom
nánast svífandi út um dyr í húsa-
lengjunni þar. Að minnsta kosti var
göngulag hans einkennilega dú-
andi!
Nokkru seinna komst ég að því, á
leið fjögur vestur sama veg, að Hjör-
dís Hinriksdóttir hafði verið að fikta
í fótum mannsins, því það hangir
skilti yfir þessari hurð sem segir
hana snyrta fætur og gera við ef
með þarf. Ég fékk fiðring í mína. ..
Hafði aldrei prufað að láta dúlla í
býfunum á mér gegn gjaldi: Barasta
glenna í sundur tásurnar og láta ein-
hvern sérfróðan sinna þeim á þann
hátt sem þær eiga skilið eftir ára-
tuga langt og ósérhlífið þramm. Mér
fannst ég ætti að skella mér.
Fór loks. Sé ekki eftir því. Algjört
dúndur. Rétt eins og maður kynnist
fótunum á sér upp á nýtt, öðlist nýja
tilfinningu og miklu meiri viröingu
fyrir tánum en áður var. Að loknu
fótabaði með fæturna í fingrum
Hjördísar fór maður að spurja. . .
— Það eru einar tólf stofur sem
snyrta lappir í ekki fjölfœttari borg
en Reykjavík. Hvernig má þad vera?
„Ja, það er nú ekki alveg beint að
marka þennan fjölda, því sumir
snyrtifræðingar sinna líka fótaað-
gerðum. Og fótsnyrting og fótaað-
gerð er alls ekki það sama..
— Hver er munurinn?
„Þeir sem aðeins snyrta, nota
ekki hnífa, taka til dæmis ekki ofan
af líkþornum, skera ekki í sveppi ell-
egar taka upp niðurgrónar neglur.
Þeir fínisera bara, lakka, smyrja,
nudda, fegra neglur...“
— Svona eins og þú ert aö gera
við tásurnar mínar núna?
„Já.“
— Þetta er þá ekki ósvipað and-
litssnyrtingu?
„Hreint ekki, ef fólk vill á annað
borð halda löppunum á sér í góðu
ásigkomulagi."
— En svona í einlœgni; er einhver
þörf fyrir þetta, ég meina; maður
gerir nú ekki íðí að sýna á sér býf-
urnar?
„Ja, fæturnir bera okkur nú einu
sinni uppi. Og þó ekki sé nema af
þeim sökum er mikið atriði að hafa
þá í góðu lagi; að manni finnist gott
að stíga í þá. Fótaaðgerðir eru nauð-
synlegar af skiljanlegum ástæðum
en þeim er ekki beitt nema eitthvert
meinið sé farið að há göngulagi
manns. Hvort svo fótasnyrting eigi
eitthvað skylt við pjatt? Nei, hreint
ekki að mínu mati. Hún er fyrir-
byggjandi og eðlilegt viðhald þess
hluta líkamans sem mest mæðir á.“
— Hvort kemur fólk meira til þín
í snyrtingu eða aðgerð?
„Meirihluti minna viðskiptavina
kemur til mín vegna þess að þeim er
orðið illt í fótunum, en hitt er líka
næstum eins algengt að fólk komi
hingað þó ekkert ami að því og vilji
aðeins láta yfirfara á sér fæturna.
Þetta er mikið til ungt fólk sem er að
verða æ meðvitaðra um nauðsyn
umhyggju fyrir eigin líkama og út-
liti.“
— Finnst fólki þetta ekki vera
œðislega gott?
„Jú, alveg rosalega."
— Það kemur kannski hingað
gagngert til þess að láta dúlla við
sig?
„Þess eru dæmi. En oftast nær
kemur fólk hingað af illri nauðsyn.
Og þá gjarnan með illa farnar lappir
sem það hefur ekki þorað að láta líta
á fyrr en komið var í óefni.“
— Hvernig eru virkilega illa farn-
ar lappir?
„Það getur verið ansi mikið að
fólki í löppunum. Neglurnar geta
verið virkilega þykkar á hverri ein-
ustu tá og jafnframt allar grónar of-
an í holdið, kláði brotist út allt frá tá-
bergi og upp á miðja rist. Þá getur
verið mikil rakamyndun á milli
tánna sem veldur annaðhvort vexti
margra lítilla sveppa þar á milli eða
2 HELGARPÓSTURINN