Helgarpósturinn - 12.09.1985, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 12.09.1985, Blaðsíða 12
GEF_U_M_F_ÖJI!L afríku FATASÖFNUN RKÍ 1985 Vikuna 9.-15. september gengst Rauði kross íslands fyrir fatasöfnun til handa þurfandi Afríkubúum. Tekið verður á móti hreinum og heilum fatnaði (ekki skóm) á eftirtöldum stöðum: Reykjavík: Reykjavíkurdeild RKl, Öldugötu 4, alla daga á milli kl. 14.00 og 18.00 Tónabær, Ársel, Fellahellir, Bústaðir og Þróttheimar, virka daga kl. 16.00 - 20.00, laugardaga og sunnudaga kl. 14.00 - 18.00. Kópavogur: Sunnuhlíð Kópavogsbraut 1 (kjallara) fimmtudag og föstudag kl. 17.00 - 19.00, laugardag frá kl. 13.00 - 15.00. Garðabær: Hús Hjálparsveitar skáta við Bæjarbraut, virka daga kl. 18.00 - 22.00, laugardaga og sunnudaga kl. 10.00 - 16.00. Keflavík: Hafnargata 62, virka daga milli kl. 17.00 og 22.00, laugardaga og sunnudaga kl. 14.00 - 22.00. Hafnarfjörður: Hús Hjálparsveitar skáta við Hraunbrún, virka daga kl. 17.00 - 21.00, laugardaga og sunnudaga kl. 14.00 - 18.00. Mosfellssveit: Reykjalundur, anddyri heilsugæslustöðvar, virka daga kl. 16.00 - 18.00. Annars staðar: RK-deildir um land allt munu auglýsa sérstaklega tilhögun söfnunar á sínu svæði. HJÁLPIÐ OKKUR AÐ HJÁLPA ÖÐRUM’ 0) RAUÐIKROSS ÍSLANDS c^Húsnæðisstofnun ríkisins BREYTTUR EIIMDAGI UMSOKINIA UM LÁN TIL BYGGINGAFRAMKVÆMDA ÁÁRIIMU 1986. 1 VERÐUR EINDAGI FRAMVEGIS í STAÐ 1. FEBRÚAR. Þess vegna þurfa umsóknir vegna framkvæmda á árinu 1986 að berast eigi síðar en i. nóvember nk. Lán þau sem um ræðir eru þessi: - Til byggingar á íbúðum eða kaupa á íbúðum í smíðum. - Til byggingar íbúða eða heimila fyrír aldraða, og dagvistarstofnana fyrir börn og aldraða. - Til nýbygginga í stað heilsuspillandi húsnæðis. - Til framkvæmdaaðila í byggingariðnaði. - Til tækninýjunga í byggingariðnaði. Ofangreindur eindagi gildir einnig fýrir framkvæmdaaðila í byggingariðnaði, sem vilja leggja inn bráðabirgðaumsóknir vegna væntanlegra kaupenda. Umsækjendur, sem eiga fullgildar iánsumsóknir hjá sto fnuninní, er boríst hafa fyrir 1. febrúar 1985, en gera ekki fokhelt fyrir 1. nóvember nk., skulu staðfesta þær sérstaklega, ella verða þær felldar úr gildí. Reykjavík, 4. september 1985 r^Húsnæðisstofnun ríkisins A Vestfjörðum velta pólitisk- ir spekúlantar nú vöngum yfir því hvort Sighvatur Björgvinsson sé afráðinn í því að bola Karvel burtu úr efsta sæti krata í kjördæminu; Þessir menn segja, að Sighvatur sé þegar byrjaður að treysta það fylgi sem hann hefur, og jafnframt er á það bent, að Sighvatur hafi sjaldan eða aldrei skrifað af jafnmiklu kappi í blöð og nú enda þótt Skutull, mál- gagn krata, hafi ekki komið út í næstum tvö ár eða frá því að Sig- hvatur og Helgi Már Arthursson, BSRB, skrifuðu nýársblaðið í hitteð- fyrra með harðri gagnrýni á forystu flokksins. Hins vegar mun það vera Sighvati einhver fjötur um fót, að hann og Jón Baldvin eru ekki bestu vinir. Karvel mun hafa komið sér allsæmilega í mjúkinn hjá for- manninum, en vegna veikinda hef- ur hann ekki getað beitt sér að neinu ráði. Þá benda menn á, að Karvel sé mikil eftirsjá í manni að nafni Henrik Tausen á Flateyri, en hann hefur verið einn helsti at- kvæðasmali Karvels. Henrik var með kjötvinnslu og fékk til þess styrki úr opinberum sjóðum en varð gjaldþrota og mun nú vera horfinn af landinu. Þá er einnig bent á, að annar drjúgur kosningasmali Kar- vels, Valdimar Lúðvík Geirsson forseti bæjarstjórnar á Bolungarvík, njóti ekki sömu vinsælda og fyrr. Ekki sakar þetta fyrir Sighvat og það sakar heldur ekki fyrir Sighvat, að þessa dagana er hann að vinna að undirbúningi Norrænna vikna á ísafirði og á Patreksfirði, í tveimur helstu kratavígjunum fyrir vestan. Sighvatur er sem kunnugt er fram- kvæmdastjóri Norrænu félag- anna.. . lE^ns og alþjóð hlýtur að hafa rekið sig á, er bankastarfsemi rúm- frek starfsemi. Þannig þarf Sam- vinnubankinn í Bankastræti að stækka við sig vegna þrengsla og nú hefur bankinn tryggt sér ákaflega heppilegt húsnæði hinum megin við vegginn, nefnilega í húsi Mái- arans á horni Bankastrætis og Ing- ólfsstrætis. Þar er nú til húsa Herra- húsið, sem verður látið víkja. Og auðvitað kaupir Samvinnubankinn þetta myndarlega hús og í þaö íaTa víst örugglega ófáar milljónirnar... l október er væntanleg á mark- aðinn ný bók eftir Þórarinn Eld- járn. Þessi nýja bók Þórarins heitir Margsaga og er safn 15 nýrra smá- sagna, en áður hefur komið út eftir Þórarin annað smásagnasafn, Of- sögum sagt. Sú bók seldist betur en flestar ef ekki allar bækur ungra höfunda, eða í rösklega fjögur þús- und eintökum. Þórarinn Eldjárn hefur nú brugðið á það ráð að gefa sjálfur út bók sína í stað þess að skipta við eitthvert hinna stóru for- laga. Bókaútgáfa Þórarins heitir Gullbringa e.f. (einkafyrirtæki) og með aðstoð tölvutækninnar hefur höfundur bæði samið bókina og sett hana fyrir prentsmiðjuna. Sjálfur sér hann svo um dreifingu og annað er fylgir bókaútgáfu. Þórarinn er ekki fyrsti ungi höfundurinn, sem bregður á þetta ráð, því Pétur Gunnarsson rithöfundur stofnaði fyrirtæki um útgáfu á bókum sínum og nefnist það Punktar.. . c saga gengur í Reykjavík, að Ólafur þinghelgi Þórðarson, al- þingismaður framsóknarmanna á Vestfjörðum númer tvö, rói að því öllum árum að losna við efsta manninn í kjördæminu, sjálfan for- manninn Steingrím Hermanns- son forsætisráðherra. Fyrir vestan þykir mönnum sem til þekkja þetta heldur hláleg saga, þótt þeir viður- kenni að þessi hugsun kunni að blunda með Ólafi. Hins vegar benda þeir á, að Ólafur hafi ekkert fylgi til slíkra verka enda þótt Steingrímur hafi vanrækt kjördæmið af kappi fyrir utan að redda víxlum handa framsóknaratkvæðum. Raunar ligg- ur sama orð á Ólafi. Annars á Ólafur einn moguleika á efsta sætinu á Vestfjörðum og þar með trygga þingmennsku. Hann er sá, að Stein- grímur fari fram hér fyrir sunnan til þess að hífa upp þéttbýlisfylgið, sem hefur hrunið af flokknum sam- kvæmt skoðanakönnunum á þessu ári... að hefur sjálfsagt ekki farið framhjá fólki, að ákaflega erfitt reynist að fá kennara til starfa úti á landsbyggðinni. Svo slæmt er ástandið, að dæmi eru um það, að kennarar hafi nánast verið „sjang- hæjaðir" í kennslu. Þannig heyrð- um við dæmi utan af landi um fóstru, sem ætlaði að starfa sem slík en fékk ekki húsnæði. Þá brá hún á það ráð að sækja um kennslu við barnaskólann á staðnum. Og ástæð- an var ákaflega einföld: Skólinn gat boðið henni upp á húsnæði. . . RÍKISÚTVARPIÐ ÚTVARP ALLRA LANDSMANNA RÍKISÚTVARPIÐ auglýsir eftirtalin störf laus til umsóknar: Starf aðalbókara Ríkisútvarpsins. Staðgóð þekking á bókhaldsstörfum er nauðsynleg. Starf fulltrúa í fjármáladeild Ríkisútvarpsins til afleysinga í 6 mánuði. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg og þekk- ing á ritvinnslu væri æskileg. Starf málara í leikmyndadeild sjónvarpsins. Vaktavinna. Starf skrifstofumanns á aðalskrifstofu sjónvarpsins. Við- komandi þarf að hafa bílpróf. Umsóknarfrestur um þessi störf er til 20. september og ber að skila umsóknum til starfsmannastjóra Ríkisút- varpsins, Skúlagötu 4 eða Laugavegi 176, á eyðublöðum sem fást á báðum stöðum. Ríkisútvarpið vill einnig ráða tvo fréttamenn tii starfa á fréttastofu útvarpsins frá 1. október til maíloka á næsta ári. Háskólamenntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 15. september.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.