Helgarpósturinn - 12.09.1985, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 12.09.1985, Blaðsíða 16
SÆKIST EFTIR ÁRANCRI - EKKI VÖLDUM báðum stöðum.“ SAMEIGINLEGIR SIGRAR - SAMEIGINLEGIR ÓSIGRAR Og í framhaldi af þessu: „Annars er þetta svo mikið að breytast, verkalýðshreyfingin og vinnuveitendur eru ekki sömu and- stæðu pólarnir og áður. Sjálfur iít ég ekki á þá stráka í Alþýðusamband- inu eða verkalýðshreyfingunni sem andstæðinga mína, heldur fyrst og fremst viðsemjendur og samstarfs- menn." — En er ekki stadreyndin sú ad þiö vinniö aö ólíkum hagsmunum tveggja ólíkra hópa? „Nei, í raun og veru ekki. Ég lít a.m.k. þannig á að þetta séu sömu hagsmunir; að menn vinni ekki sigra hvor á öðrum, heldur sameig- inlega sigra og verði rétt eins fyrir sameiginlegum ósigrum. Það þarf alltaf að semja um kaup, og það er alltaf álitamál hvað verður borgað. Um þá hluti verður auðvitað að tala, og það verða engir samningar á ís- landi þeir síðustu, — það vinnur enginn lokasigra. Það sem skiptir mestu máli, er að þessir sameigin- legu hagsmunir verði aðalatriði, og menn reyni að vinna á þeim basis og líti á samninga og launamál sem viðfangsefni fremur en orrustu." — Svo viö vendum nú okkar kvœöi í kross, og snúum okkur að þinginu ykkar á dögunum. I stjórn- málaályktun þess segir m.a.: ,,. . . aö Sjálfstœðisflokknum sé einum treystandi til þess að vinnna bug á þeim erfiöleikum sem þjóöin glímir viö. ..“ Nú leita ráöherrar flokksins með ágreiningsmál sín fyrir dóm- stóla. Hvernig getur fólk treyst slík- um flokki? ,,Ja, hverjum öðrum? — Ég er ekkert að segja að Sjálfstæðisflokk- urinn sé fullkominn, en það sem við eigum við með þessu, er að hann sækir fylgi sitt til allra stétta og styrk sinn í að vera flokkur, þar sem sam- eiginlegir hagsmunir einstakra hópa eru í fyrirrúmi." — En er ekki lágmark — til aö efla traust og afla fylgis — aö for- ystumenn flokksins komi sér sam- an? „Það er auðvitað ansi veigamikið atriði. Ég hef horft upp á það, jafn óánægður og aðrir sjálfstæðis- menn, að þessir menn skuli láta svona, og er ekkert hress með það. Auðvitað væri það árangursríkara fyrir flokkinn ef betra samkomulag ríkti þarna á milli." Á STUTTBUXUM, EN EKKI BERSTRÍPAÐIR — Ætlar þú sem formaöur SUS aö segja forystumönnum flokksins og ríkisstjórninni til syndanna ef þörf krefur? „Eins og ég hef gert. Það verður engin breyting þar á.“ — Mig langar aö spyrja hvort þú hafir sérstaka trú á einhverjum flokksmanni. „Ég hef trú á formanni flokksins, svo erum við Friðrik Sophusson miklir vinir og ég hef mikið álit á Davíð Oddssyni. Svo eru ýmsir aðrir sem maður virðir sem pólitíkusa, en aðrir sem ég hef ekki jafn mikið álit á.“ — Má ég spyrja um ráðherrana? „Því svara ég þannig, að við ungir sjálfstæðismenn ákváðum fyrir norðan að halda okkur á stuttbux- unum, en vera ekki berstrípaðir eins og þeir.“ — Langar þigað fá Porstein í ráö- herrastól? „Ég mundi styðja hann mjög ein- dregið til þess, en ég veit ekki hversu klókt það er á þessu stigi að fara inn í þessa ríkisstjórn." — Nú hefur mönnum, oftar en einu sinni, þótt ástœöa til að ákveönir ráöherrar í ríkisstjórninni segðu af sér. Hefur þér þótt þaö? „Já, já.“ — Hver þeirra? „Ríkisstjórnin öll. Það hefur ekki verið neitt leyndarmál af minni hálfu. Mér hefur ekki fundist þessi ríkisstjórn skila þeim árangri sem hún hefði getað náð. Hennar stóra tromp er að hafa náð niður verð- bólgunni, en hennar stóri veikleiki er skuldasöfnun við útlönd og þensla og launaskrið. Ég hef verið mjög óánægður með þetta, og látið það i Ijós við hvern sem er, hvar sem er.“ — Veröuröu kannski þeim degi fegnastur þegar þessi ríkisstjórn fer frá? „Nei, ekki segi ég það nú, — lengi getur vont versnað." SUMIR SEGJA MIG EÐLISLATAN — Svona undir lokin; formenn SUS hafa hingaö til veriö úr lög- frœöingastétt, þar til forveri þinn, sem er hagfrœöingur, braut þá hefö, og ná þú líka. Er þetta tilviljun? „Nei, ég held einmitt að þetta endurspegli það sem hefur verið að gerast í þjóðfélaginu á undanförn- um árum. ísland var eiginlega rekið af lögfræðingum til skamms tíma. Það á sér langa hefð í okkar skóla- kerfi. Nú síðustu árin hafa komið fleiri hópar af menntamönnum; hagfræðingar, félagsfræðingar, stjórnmálafræðingar og hvað þetta allt heitir, og þá hafa áhrif lögfræð- inganna minnkað. Þeir eru ekki lengur jafn sjálfsagðir til alls og þeir voru.“ — Spurning sem beinist að þinni persónu; mér hefur veriö sagt aö þú sért vinnusamur og stefnir einbeittur aö settu marki. Rétt? „Það held ég sé nú ofmælt. Mér þykir ágætt að slappa vel af. Sumir segja nú reyndar að ég sé eðlislatur. Sjálfur mundi ég ekki orða það þannig að ég væri vinnusamur, öllu heldur að ég kunni að vinna — hafi verksvit." — Ertu metnaöargjarn? „Ég hef minn metnað, en hann beinist fremur að því að geta fylgst með hlutunum gerast en að vera sjálfur miðdepill alheimsins. Ég sækist eftir árangri, ekki völdum." Kennara vantar að grunnskólanum á Þórs- höfn, íþróttir og almenn kennsla. íbúð í boði. Upplýsingar hjá skólastjóra. SYNINGAR Árbæjarsafn Sumarsýningin er farandsýning frá þjóð- minjasafni Grænlendinga og lýsir græn- lensku bátunum „qajaq" og „umíaq". Hún er hingað komin á vegum Útnorðursafnsins, en svo nefnist samstarf nokkurra menning-| arsögulegra safna í Færeyjum, á Grænlandi' og á íslandi. Sýningin er opin á opnunartíma safnsins frá kl. 13.30 til 18 alla daga nema mánudaga. Ásgrímssafn Opið í vetur þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 13.30—16. Gallerí Borg Pósthússtræti 9 Daði Guðbjörnsson sýnir olíumálverk, dúk- ristu og steinþrykk til 16. september. Opið kl. 12—18 virka daga, 14—18 um helgar. Meðal mynda, sem til sölu eru í Gallerí Borg þessa dagana eftir gömlu meistarana má nefna Kjarvalsmálverk, Vestmannaeyja- mynd eftir Júlíönu Sveinsdóttur, konu- mynd eftir Gunnlaug Blöndal, tvær myndir eftir Jón Stefánsson og hefur önnur þeirra, Baula í Borgarfirði, ekki sést hér á markaði fyrr. Hægt er að panta sérstaka viðtals- og sýningartíma í síma 24211 frá kl. 10—12 dag hvern. Gallerí Langbrók Amtmannsstíg 1 Sýning á fellistólnum Sóley eftir Valdimar Harðarson arkitekt. Sýndar verða ýmsar út- gáfur af stólnum auk Ijósmynda af frum- gerðum hans. Þá verða á sýningunni úr- klippur úr fjölda erlendra blaða og tímarita. Jafnframt verða sýnd verðlaunaskjöl sem Valdimar Harðarson hefur hlotið vegna þessa stóls. Sýningin er öllum opin ókeypis. Virka daga er opið frá 10—18 og laugar- og sunnudaga frá kl. 14—18. Gallerí Salurinn Vesturgötu 3 Þar hefur Gunnar Karlsson tekið niður sýn- inguna „Óður til íslands" og sett upp í „hinu flotta gallerfi" myndir málaðar í Finnlandi í heitum litum og miklum kulda. Opið kl. 13—18 alla daga nema mánudaga. Kjarvalsstaðir við Miklatún Sýning SeptemhópsinsíAustursal og í Vest- ursal sýnir Jón Reykdal. Opið kl. 14—22 alla daga. Listasafn ASl Grensásvegi 16 Bjarni Jónsson sýnir Ijósmyndir í Listasafni alþýðu til 22. september frá kl. 14—21 alla daga. Listasafn Einars Jónssonar Hnitbjörgum við Njarðargötu Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30—16. Höggmyndagarður safnsins er opinn daglega frá kl. 11—17. Listmunahúsið Karl Kvaran listmálari sýnir daglega frá kl. 10—18, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14—18. Sýningunni lýkur 22. september. Mokkakaffi v/Skólavörðustíg Erla Ólafsdóttur sýnir Ijósmyndir. IMorræna húsið Sýning finnsku listakonunnar Ullu Sang- ervo-Lappalainen í anddyri opin daglega kl. 14—19 til 19. september. Norræn Ijóðahátíð stendur yfir og lesa skáld úr verkum sínum og annarra á kvöldin. Nýlistasafniö Vatnsstíg 3b Föstudaginn 13. sept verðuropnuð sýning á verkum listamannanna Gerwald Rocken- schaub, Jan Kap, Jan Mladowsky, John van't Slot, Juliao Saramento, Peter Anger- mann, Stefan Szczesny og Tomas Stimm. Þeir hafa sýnt víða um heim og er það sameiginlegt að tengjast „nýja málverk- inu". Sýningin stendur til 22. sept. og er opin daglega kl. 16—20. Þjóðminjasafn íslands í Bogasal stendur yfir sýningin Meö silfur- bjarta nál, íslenskar hannyrðakonur og handverk þeirra. Á sýningunni eru hannyrðir íslenskra kvenna undanfarinna alda. Opið kl. 13.30—16 daglega. BÍÓIN ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ ágæt ★ ★ góð ★ þolanleg O léleg Regnboginn örvæntingarfull leit að Súsönnu (Desperately Seeking Susan) ★★★ Framleiðendur: Midge Sanford og Sara Pillsbury. Leikstjórn: Susan Seidelman. Handrit: Leora Barish. Kvikmyndun: Edward Lachman. Aðalleikarar: Rosanna Arqueete, Madonna, Aidan Quinn, Mark Blum, Robert Joy, Laurie Metcalf. Þetta er flókiö... Og þó ekki: Leikstjórinn setur þetta efni nefnilega fram af natni, djörfung og aukinheldur svolitlu kæruleysi. Þetta er holl mynd. Hún sýnir manni að enn eru nýjar leiðir fyrir hendi. Köld krumla kvik- myndaveranna fer hér ekki um. —SER. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Hernaðarleyndarmál (Top Secret) ★ Framleiöendur: John Davison og Hunt Lowry. Leikstjórn og handrit: Jim Abrahams, David og Jerry Zucker ásamt Martin Burke. Kvikmyndun: Christopher Challis. Tónlist: Maurice Jarre. Aðalleikarar: Val Kilmer, Lucy Gutteridge, Warren Clarke, Jeremy Kemp, Omar Sharif. . . .samfellan lítiPí *Top Secret. Áherslan er öll á hvern brandara hverju sinni, þeir eru íengu byggðir upp, heldur skellt bláköldum framan í áhorfendafésin frammi í sal, sem að sönnu vita ekkert hvaö bíður þeirra næst og allt þar til flippið endar. Leikendum myndarinnar er vorkunn. . . -SER. Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05. Vitniö (The Witness) ★★★ Handrit: Earl W. Wallace/William Kellery. Kvikmyndataka: John Seale. Tónlist: Maur- ice Jarre. Leikstjóri: Harrison Ford, Kelly McGills, Josef Sommer, Lukas Haas, Jan Rubes, Alexander Godunov og fl. Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.15. Löggan í Beverly Hills (Beverly Hills Cop) ★★★ Bandarísk, árgerð 1984. Aðalhlutverk Eddie Murphy. Þrælgóður að vanda. Leikstjóri Martin Best. Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15. Atómstöðin ★★ íslenska kvikmyndin eftir sögu Halldórs Lax- ness. Enskur skýringartexti. (English subtit- les.) Sýnd kl. 7.15. Indiana Jones ★★ Aðalhlutverk Harrison Ford. Bönnuð innan 10 ára. Sýnd kl. 3, 5 og 7. Fálkinn og Snjómaðurinn (The Falcon and the Snowman) ★★★ Fálkinn og Snjómaðurinn er bæði spenn- andi og skemmtileg mynd, og það er ekki síst að þakka afbragðsleik þeirra Penn og Suchet, að ógleymdu vönduðu handverki, sérstaklega klippingu. — IM. Sýnd kl. 9.15. Háskólabíó Rambó ★★ Framleiðandi: Buzz Feitshans. Leikstjóri: George R Cosmatos. Tónlist: Jeffry Gold- smith. Handrit: Silvester StalloneLlames Cameron eftir sögu Kevin Jarre. Aðalhlut- verk: Sylvester Stallone, Richard Crenna, Charles Napier, Steven Berkoff og fl. Rambó er geysilega vel gerð mynd, tækni- lega séð. Hún er vel tekin, vel klippt og hljóð- ið ásamt tónlist fyrsta flokks. Leikstjórinn Cosmatos skilar fyrirtaks handbragði. Fyrir þetta fær myndin fullan pott. Innihaldið og hugmyndafræðin viö Rambó er hins vegar það ómerkilegasta sem hér hefur lengi sést... Ég vona bara að ég sé ekki sá eini sem fær óbragð í munninn þegar horft er á áróðursmyndina Rambó. — IM Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Nýja bíó Steggjapartý (Bachelor Party) ★ Með grínurunum Tom Hanks, Adrian Zmed, William Tapper og leikstjóranum Neal Israel. Framleiðendur Ron Moler og Bob Israel (Police Academy). Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bíóhöllin Salur 1 Ár drekans (The Year of the Dragon) ★★★ Sjá Listapóst. Bönnuð yngri en 16 ára. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Gullselurinn ,(The Golden Seal) Ný barnamynd. Sýnd kl. 3 á laugardag og sunnudag. Salur 2 Víg í sjónmáli (A Wiew to a Kill) ★★ Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 (og kl. 3 um helgina). Salur 3 Tvífararnir (Double Trouble) ★ Mynd með Trinity-bræðrum: Terence Hill og Bud Spencer. Leikstjóri E.B. Clucher, sem gerði fyrstu tvær myndir bræðranna. Sýnd kl. 5 og 7 (og kl. 3 um helgina). , Löggustríðið (Johnny Dangerously) ★★ Grínmynd um löggur og bófa á 3. áratugn- um. Aðalhlutverk: Michael Keaton, Joe Pis- coto, Peter Boyle, Dom Deluise, Danny De- Vito. Sýnd kl. 9 og 11. Salur 4 Hefnd Porkýs (Porky's Revenge) Tónlist í myndinni er leikin af Dave Edmunds og George Harrison. Aðalhlutverk: Dan Monahan, Wyatt Knight, Mark Herrier. Leik- stjóri: James Komack. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sagan endalausa Sýnd kl. 3 um helgina. Salur 5 Rafdraumar (Electric Dreams) ★★ Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 (og kl. 3 um helgina). Laugarásbíó Salur A Gríma (Mask) ★★★ Framleiðandi: Martin Starger. Leikstjórn: Peter Bogdanovich. Handrit: Anna Hamilton Phelan. Kvikmyndun: Laszlo Kovacs. Förðun og gervi: Michael Westmore og Zoltan. Að- alleikarar: Cher, Sam Elliot, Eric Stolz, Estelle Getty, Richard Dysart, Laura Dern, Craig King. ...í stuttu máli sagt hefur ætlunarverkið tek- ist. Gríma er afskaplega vönduð kvikmynd og ber þar hæst þrjá höfuðþættina: handrit, leikstjórn og leik. Að ekki sé talað um förð- unina. Hún er kraftaverk... Bogdanovich hef- ur sýnt það áður að hann er metnaðarfullur leikstjóri, Cher að hún er mikilhæf leikkona. Ásamt Eric Stolz í rullu Rockystekst þeim að sýna áhorfendum inn íóþekktan heim þeirra sem hafa ekki útlit að skapi samfélagsins. Og tekst það svo innilega að ekki er annað hægt en að hrífast. -SER. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Salur B Maðurinn sem vissi of mikið. (The Man Who Knew Too Much) ★★★ Framleiðandi og leikstjóri: Alfred Hitchcock. Handrit: John Michael Hays eftir sögu Charles Bennett/D.B. Wyndham Lewis. Kvikmyndataka: Robert Burks. Tónlist: Bern- ard Herrmann. Aðalhlutverk: James Stew- art, Doris Day, Christopher Olsen, Bernard Miles, Brenda de Banzie, Reggie Nalder, Daniel Gélin og fl. Maðurinn sem vissi of mikið er dæmigerð Hitchcock-mynd, hlaðin öllum þeim smá- atriðum, fínleika, húmor og spennu sem gamli meistarinn einn gat matreitt. — IM. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Salur C Morgunverðarklúbburinn (The Breakfast Club) ★★★ Framleiðendur: Ned Tanen og John Hugh- es. Leikstjórn og handrit: John Hughes. Tón- list: Keith Forsey. Aðalleikarar: Emilio Estevz, Paul Gleason, Anthony Michael Hall, Judd Nelson, Molly Ringwald, Ally Sheedy. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Austurbæjarbíó Salur 1 Ofurhugar Mynd um afrek og líf fyrstu geimfara Banda- ríkjanna. Aðalhlutverk Stan Shepard, Charles Frank, Scott Grenna. Sýnd kl. 5 og 9. Salur 2 Breakdance II ★ Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur 3 Arthur Aðalhlutverk: Dudley Moore, Liza Minelli, John Gielgud. Sýnd kl. 5, 9 og 11. When The Raven Flies (Hrafninn flýgur) ★★★ Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 7. Tónabíó Minnisleysi (Blackout) ★★ Framleiðendur: Les Alexander og Richard Parks. Leikstjórn: Douglas Hickox. Handrit: David Ambrose, Richard Smith, Richard Parks og Les Alexander. Kvikmyndun: Tak Fujimoto. Tónlist: Laurence Rosenthal. Aðal- leikarar: Richard Widmark, Keith Carradine og Kathleen Quinlan. Eins og vera ber er áherslan öll á það atriði að viðhalda spennunni. Hér tekst það með ágætum og reyndar með nokkrum glans ef það er haft í huga að varla fleiri en tveir menn koma til greina sem fanturinn. Og því bara annaðhvort, eða... —SER. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Stjörnubíó Salur A Starman ★★ Sjá Listapóst. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Líka kl. 3 um helgina. Salur B Micki og Maude ★★ Aðalleikarar: Dudley Moore, Richard Muli- gan, Anna Renking, Amy Irving. Leikstjóri: Blake Edwards. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Prúðuleikararnir Sýnd kl. 3 um helgina. LEIKUST Rokk-söngleikur á faraldsfæti „Ekkó — Guðirnir ungu" verður til sýnis á eftirtöldum stöðum kl. 20.30 (dagskráin verður birt hér í áföngum): 12. sept. Dalvík, 13. sept. Akureyri, 14. sept. Akureyri (kl. 15), þ. 15. Aðaldal (Ýdölum), 16. Húsavík, 17. Þórshöfn, 18. Vopnafirði, 19. Borgarfirði eystra, 20. Egilsstöðum, 21. Neskaupstað, 22. Reyðarfirði (kl. 15). TÓNLIST Broadway Sjeikkvöld föstudag og laugardag, eða hvað? Að minnsta kosti verður breska „bítla- hljómsveitin" The Swinging Blue Jeans á staðnum. Þetta verður þeirra önnur reisa til íslands; komu hingað og léku m.a. við hvern sinn fingur í Hippy, Hippy Shake og Good Golly Miss Molly í Austurbæjarbíói fyrir sirka tveim áratugum. Skyldi sveiflan vera söm við sig í bláu gallabuxunum? 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.