Helgarpósturinn - 12.09.1985, Side 4
eftir Guðmund Árna Stefánsson mynd Jim Smart
SKATTSVIKARAR OG FJÁRSVIKARAR í ÞUMALSKRÚFU NÝRRAR DEILDAR RLR?
ENGIR
GALDRAMENN
EN MIKILL HUGUR
í OKKUR
SEGIR HALLVARDUR EINVARDSSON
RANNSÓKNARIOGREGLUSTJÓRI
Nýverid var sett á stofn rannsóknardeild við Rannsóknarlögreglu ríkisins, sem
mun eingöngu fást við skatta- og viðskiptabrot. Það er rannsóknarlögreglustjóri
sjálfur, Hailvarður Einvarðsson, sem veitir hinni nýju deild forstöðu, en fjórum nýj-
um stöðugildum hefur verið bætt við RLR til að mæta auknum verkefnum og hraðari
afgreiðslu efnahagsbrota af ýmsu tagi.
Við náðum Hallvarði Einvarðssyni á síma-
línuna og spurðum hver tildrög hefðu verið
að stofnun hinnar nýju deildar. „Upphafið
má rekja til þess, að 8. febrúar síðastliðinn
skipaði dómsmálaráðherra nefnd til að gera
tiilögur um hraðari og skilvirkari meðferð
skatta- og efnahagsbrota í dómskerfinu. í
nefndina voru skipaðir þeir Þorsteinn Geirs-
son ráðuneytisstjóri, sem var formaður
nefndarinnar, Þórður Björnsson ríkissak-
sóknari, Gunnlaugur Briem yfirsakadómari,
Hallvarður Einvarðsson rannsóknarlög-
reglustjóri og Garðar Valdimarsson skatt-
rannsóknarstjóri. Nefndinni var gert að
hraða störfum og skila hið skjótasta áliti —
sem hún og gerði. Hún skilaði niðurstöðum
sínum 13. mars 1985, rúmum mánuði eftir að
hún var skipuð.
Tillögur nefndarinnar voru eftirfarandi —
í fimm liðum:
1. Ráðinn yrði einn lögfræðingur til emb-
ættis ríkissaksóknara og einn saksóknari þar
hafi það sem forgangsverkefni að annast ætl-
uð skatta- og efnahagsbrot og hafa á hendi
sókn í stærri málum fyrir sakadómi.
2. Dómurum í sakadómi Reykjavíkur verði
fjölgað um tvo vegna skatta- og efnahags-
brota og lögð verði áhersla á, að dómarar
þeir, sem falin er meðferð þessara mála, hafi
eða öðlist reynslu í slíkum málum.
3. Að hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
verði stofnuð sérstök deild sem rannsaki
skatta- og efnahagsbrot, öðru nafni við-
skiptabrot, og að ráðnir verði fjórir rann-
sóknarlögreglumenn til RLR vegna þessara
mála, þar af tveir lögreglufulltrúar.
4. Lagt verði fyrir Alþingi frumvarp til laga
um ákveðnar tilteknar breytingar á lögum í
þessum efnum.
5. Nú þegar verði ráðinn sérfróður maður
í skatta- og efnahagsbrotum, sem starfi sem
ráðunautur í þágu RLR og ríkissaksóknara.
Af þessum fimm liðum í niðurstöðum
nefndarinnar lúta tveir beinlínis að RLR, þ.e.
liðir 3 og 5.
Síðan hefur verið unnið að þessari endur-
skipulagningu hér við embættið og nú hefur
verið settur á stofn vísir að sérstakri deild við
RLR og ráðnir menn til starfa, sem hafa hlot-
ið mesta þjálfun og reynslu í meðferð slíkra
mála þ. á m. í samvinnu við skattrannsóknar-
stjóra, ríkisendurskoðun og fleiri aðila sem
koma við sögu þessara mála. Nú er þetta sem
sé að komast í höfn og þeir fjórir, sem eru
komnir í gang í hinni nýju deild eru lögreglu-
fulltrúarnir Hörður Jóhannesson og Guð-
mundur Guðjónsson og rannsóknarlögreglu-
mennirnir Gunnlaugur Sigurðsson og Högni
Einarsson. Að auki hefur verið leitað til Atla
Haukssonar löggilts endurskoðanda, sem
hefur mikla þekkingu og reynslu í þessum
málum og mun hann leggja deildinni lið.
Þetta er sem sagt af upphafi málsins og
stöðu þess nú og ég held að menn séu á einu
máli um það, að að þessum málum þurfi að
huga aivarlega."
— Nú hafa mál af þessu tagi komið inn
á ykkar borð í gegnum árin. Þýðir þetta
það, aö þið hafið verið illa færir fram að
þessu, að taka á skattabrotum og við-
skiptabrotum almennt?
„Eg vil nú ekki ætla það. Hins vegar hefur
það verið með þessi mál eins og sum önnur,
að það hefur ekki verið nægur mannafli til
að sinna þeim sem skyldi. Enda er kjarninn
í þessum breytingum sá, að gera meðferð
þessara mála hraðari og skilvirkari og það er
von mín að með þessari skipan mála séum
við betur í stakk búnir til að fullnægja þess-
um kröfum."
— Eruð þið með fullar skúffur af fjár-
svikamálum, skattsvikamálum og öðr-
um viðskiptabrotum nú þegar?
„Ó nei, það eru ekki mörg slík mál hjá okk-
ur núna, a.m.k. ekki af skattabrotum. En það
4 HELGARPÓSTURINN
er þó nokkuð af meintum efnahagsbrotum
eða viðskiptabrotum hjá okkur núna. Og
mörg þeirra æði umfangsmikil. Meðal mála
sem áfram verður unnið að í þessari deild, er
kaffibaunamálið svokallaða.
Eg hef sjálfur í hyggju að fylgja þessari nýju
deild úr hlaði, meðan ég sé verkefnaþung-
ann og hvernig tengsl deildarinnar verða við
önnur verkefni hér við embættið."
— Nú hefur því stundum verið haldið
fram að Rannsóknarlögreglan hafi alls
ekki verið í stakk búin til að rannsaka
með fullnægjandi hætti flóknari mál og
umfangsmeiri á sviði skatta- og efna-
hagsmála. Því t.d. verið haldið fram, að
tiltekin umfangsmikil söluskattssvik
hafi hreinlega farið ofan í skúffu, í salt-
kistuna til lengri dvalar, vegna áður-
greinds aðstöðuleysis. Hvað segirðu um
þetta?
„Þetta er nú ekki rétt að mínum dómi. Mál
hafa fengið hér rækilega og góða meðferð
eftir efnum og aðstæðum."
— Hin nýja deild hefur heimild til að
taka upp mál að eigin frumkvæði. Mun
það einhverju breyta?
„Það er líklegt að svona mál komi frá
skattrannsóknarstjóra eða skattyfirvöldum,
en samkvæmt 108. grein laga um tekju- og
eignarskatt fer Rannsóknarlögregla ríkisins
líka með frumrannsókn þessara mála, þ.e.
lögreglurannsóknina. Og það er oft að svona
mál ber þannig að, að kæruefni koma til okk-
ar um viðskiptabrot, en þau tengjast gjarnan
skattamálum ýmsum. Við höfum þá algert
forræði þess að taka upp rannsókn á slíkum
sakarefnum, en það er jafnframt ljóst að það
verður reynt að vinna þetta í góðri samvinnu
við skattayfirvöld og þá sérstaklega skatt-
rannsóknarstjóra.“
— En þetla þýðir að Pétur og Páll geti
komið utan af götu og til Rannsóknar-
lögreglunnar og kært náungann fyrir
skattsvik eða önnur viðskiptabrot og
þið færuð þegar í stað í gang, án þess að
þurfa að bíða eftir frumkvæði frá öðrum
aðilum í kerfinu.
„Já, já."
— Því hefur stundum verið haldið
fram að við íslendingar séum meistarar
í skattsvikum. Telur þú að alhæfingar af
þessu tagi eigi einhvern rétt á sér, þegar
þú lítur til ykkar reynslu af umfangi
mála af þessu tagi á ykkar borðum?
„Ég vil einungis segja það, að mitt hugboð
er, að það sé að allmörgu að hyggja í þessum
málum og menn gjaldi ekki ætíð keisaranum
það sem hans er.“
— En nú hefur því líka verið haldið
fram að hvítf libbaglæpir svokallaðir séu
oftar en ekki óupplýstir. Hefurðu á til-
finningunni að lögreglan eigi óplægðan
akur í þeim efnum og að í neðanjarðar-
hagkerfinu þurfi þessi nýja deild að láta
til sín taka svo um munar?
„Ég get lítið fullyrt í þessum efnum, en það
kann að vera.“
— Áttu von á því að fleiri brotamál af
þessu tagi komi upp á yfirborðið nú með
bættri aðstöðu lögreglunnar við rann-
sókn þessara mála og þarmeð auknu
frumkvæði hennar við upptöku mála?
„Það er einlæg von mín að við getum látið
að okkur kveða í þessum efnum og ég hef
fullan hug á því að gera þessum málum þau
skil, sem þessi stofnun er frekast í aðstöðu
til.“
— En þetta eru tímafrek mál í rann-
sókn og oft flókin og illviðráðanleg —
ekki satt?
„Jú, það er alveg rétt. Þetta eru tímafrek
mál og oft umfangsmikil og það er oft ekki
nægilega Ijóst, þegar fjölmiðlar greina frá
þessum málum.“
— Eruð þið tækjum búnir til að rann-
saka fjársvikamál ofan í kjölinn?
„Það stendur yfir mikii úttekt hér á starf-
seminni og þá m.a. með tilliti til tölvunotk-
unar. Ég er vongóður í þeim efnum, að yfir-
völd muni mæta þeim þörfum af fullum
skilningi. Núverandi fjármálaráðherra hefur
sýnt þeim málum góðan skilning."
— En það er a.m.k. fullljóst að þið þurf-
ið meira en vasatölvur við rannsóknir
þessar?
„Já, já, við erum að reyna að kaupa litlar
reiknivélar og góða ljósritunarvél, sem er
ómissandi tæki í svona gagna- og skjalafarg-
ansmálum. Og svona annað sem á þarf að
halda. Og þótt við séum ekki mjög margir
eða neinir galdramenn, þá er mikill hugur í
okkur að gera þessum málum þau skil, sem
við á.“
— Almannarómur fullyrðir að skatta-
brot og fjársvikabrot alls konar séu tíðk-
uð víða í þjóðfélaginu. Einnig virðist
sumum, sem margir líti ekki á skatta-
brot eða viðskiptabrot sem afbrot í
þeirri merkingu, heldur öllu heldur
tómstundaverkefni eða sjálf sbjargarvið-
leitni. Orð frá þér um það.
„Auðvitað hefur maður orðið var við hugs-
unarhátt, sem kynni að benda til slíks.“
— En slíkir brotamenn fá núna að vita
hvar Davíð keypti ölið?
„Já, það er alveg öruggt og hvort um er að
ræða hvítflibba, eins og þú orðaðir það, eða
aðra, þá munu menn sitja sannarlega við
sama borð hér, ef á reynir. Og þeirra úrræða
verður neytt, sem réttarfarslög frekast gefa
tilefni til ef lagaskilyrði eru fyrir hendi.“